Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Golli Lærlingur Sindri kann vel við sig í vinnunni og er byrjaður að flúra einfaldar myndir, tákn og letur. flúr hafa bæst við á þessum fimm- tán árum sem liðin eru frá fyrsta flúri.“ Þegar flúrin á Sindra eru skoð- uð kennir þar ýmissa grasa, bæði í lit og stíl. Og hann segist hiklaust ætla að bæta nokkrum á sig. „Ég ætla að fylla upp í auð svæði á hægri handleggnum og fá mér flúr á bringuna. Ég ætla líka að fá mér flúr yfir allt bakið, það verður ein- hverskonar Íslendingasagnaþema. Grettir sterki og Gísli Súrsson verða þar. Ætli ég hanni og teikni það ekki bara sjálfur,“ segir Sindri sem fer ekki yfir ákveðnar línur þegar kemur að flúri á hans eigin líkama. „Ég mun aldrei láta flúra mig í andlitinu, á hálsinum, handarbök- unum eða hnúunum, vegna þess að ég vil geta klætt þetta af mér þegar mér hentar.“ Hann segir mjög misjafnt hvað fólk vilji þegar það kemur á stofuna til að fá sér flúr, sumir vilji bara eitt lítið flúr á meðan aðrir eru alltaf að bæta við sig nýju flúri. 72 ára kona fékk sér flúr Sindri segir ekki hægt að flokka þá sem fá sér húðflúr undir einn hatt. „Hingað kemur allskonar fólk á öllum aldri. Auðvitað eru töff- arar og rokkarar þar á meðal, en líka fjölskyldufeður, geðlæknar og penar konur. Ég flúraði til dæmis 72 ára konu um daginn. Hún kom frá Akureyri, var í fermingarveislu hér í bænum og stakk af þaðan til að láta flúra sig. Hún mætti hingað prúðbúin og fékk sér einfalt flúr þar sem falleg hugsun lá að baki. Hún lét mig flúra á upphandlegg sinn upphafsstafi eiginmannsins og þar undir skrifað: Að eilífu.“ Sindri sá fyrst aðallega um að sótthreinsa tæki og tól og lærði þannig á vélarnar en hann er ný- lega byrjaður að flúra letur og tákn. „Þetta er mikil nákvæmnis- vinna en æfingin skapar meist- arann.“ Snilld Mynd eftir Sindra sem er sjálfmenntaður í teikningu. Daglegt líf 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 airgreenland.com Höfuðborg Grænlands - spennandi áfangastaður Þú færð nýja sýn á lífið í ferð til Nuuk. Í þessari aðlaðandi höfuðborg mætast fortíð og framtíð í götumynd gamalla tréhúsa og nýrra bygginga. Það er ógleymanleg tilfinning að sigla inn 100 km langan Nuuk fjörðinn með 1000 metra há fjöll á hvora hlið og sjá í fjarðarbotninum hvernig skriðjökulinn teygir sig ofan í sjó. Frá Nuuk er einnig upplagt að heimsækja þorpið Kapisillit og kynnast hefðbundnu veiðimannaþorpi í stórfenglegri náttúru. FLUG FRÁ KEFLAVÍK TIL NUUK, ÖNNUR LEIÐIN FRÁ AÐEINS 39.160,- ISK* Skattar og gjöld innifalin. *1.749 DKK. Miðað við Visa kortagengi 20.05.2010 og 22.39 ISK = 1 DKK, með fyrirvara um breytingar á gengi ISK. Húðflúr er þekkt í öllum heims- álfum og virðist hafa fylgt manninum í hundruð alda. Ísmaðurinn Ötzi sem fannst í Ölpunum og talinn er vera frá því löngu fyrir Krists burð, var með 57 flúr á sínum líkama. Eldfornar egypskar múmíur eru sumar hverjar með flúr, Inúítar voru flúraðir og víkingarnir for- feður okkar voru einnig flúr- aðir. Frumbyggjar á Nýja- Sjálandi halda enn vel við sinni flúrhefð. Þegar kristnin kom til sög- unnar fordæmdi hún húðflúr og því hvarf það víða um tíma. Húðflúr barst til Evrópu meðal annars með landkönnuðum en ekki síst með sjómönnum sem létu flúra sig á siglingum um heimsins höf og framandi slóð- ir, t.d. í Pólýnesíu, en þaðan kemur einmitt nafnið tatau yfir húðflúr, eða tattoo á ensku. Flúr er ævafornt SJÓARAR LÉTU FLÚRA SIG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.