Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 ✝ Filippus Hann-esson, bóndi, fæddist á Núpsstað 2. desember 1909. Hann andaðist á hjúkr- unarheimilinu Klaust- urhólum 23. maí 2010. Foreldrar hans voru Hannes Jónsson, landpóstur og bóndi, og Þóranna Þórarins- dóttir húsfreyja. Fil- ippus var sá fjórði í röð tíu systkina. Mar- grét, f. 1904, Dag- björt, f. 1905, Eyjólfur, f. 1907, Fil- ippus, f. 1909, Margrét, f. 1910, Jón, f. 1913, Málfríður, f. 1914, Sigrún, f. 1920, Jóna Aðalheiður, f. 1924, og Ágústa Þorbjörg, f. 1930. Systkinin Margrét (f. 1904), Jón, Jóna Aðalheiður og Ágústa Þorbjörg lifa bróður sinn. Filippus var ókvæntur og barn- laus. Hann var fjár- bóndi lengst af ævinn- ar og ólst upp við það að fé væri beitt á vetr- um en minna gefið hey á húsum. Kind- urnar hans voru van- ar útigangi og voru að hluta gamall kvía- stofn, svolítið gróf- byggðar, sem hentaði vel í fjalllendi, og harðgerar. Fil- ippus hætti fjárbúskap árið 1999, árið sem hann varð níræður. Filippus verður jarðsunginn frá Bænhúsinu, Núpsstað í dag, 4. júní, og hefst athöfnin kl. 14. Mig langar að minnast bróður míns með þessum ljóðum. Í dag felldu blómin mín blöðin sín. Og húmið kom óvænt inn til mín. Ég hélt þó að enn væri sumar og sólskin. Ég horfði út um gluggann. Haustsins blær um hlíðarnar lagðist en silfuskær kom máninn upp yfir austurfjöllin. (Tómas Guðmundsson) Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga) Það var eitt kvöld að mér heyrðist hálfvegis barið, ég hlustaði um stund og tók af kertinu skarið, ég kallaði fram, og kvöldgolan veitti mér svarið: Hér kvaddi Lífið sér dyra, og nú er það farið. (Jón Helgason) Kveðja, Jóna Aðalheiður. Filippus Hannesson, bóndi á Núpsstað, er látinn 100 ára að aldri. Með nokkrum orðum vil ég minnast vinar og samstarfsmanns til margra ára. Filippus og bróðir hans Eyjólfur tóku við jörðinni á Núpsstað eftir foreldra sína, Hannes Jónsson og Þórönnu Þórarinsdóttur. Eyjólfur lést árið 2004, en þeir bræður voru í hópi tíu systkina og eru fjögur á lífi. Margrét er elst, fædd 1904, og lifir hún Filippus bróður sinn. Núpsstaður er meðal merkustu sögustaða þjóðarinnar. Bærinn á Núpsstað á sér aldalanga sögu. Bæj- arstæðið á Núpsstað er tilkomumik- ið þar sem andstæðurnar eru skarp- ar, og náttúra og mannvirki verða eitt. Lágreistur bær og bænhús í grösugu túni undir háum bergvegg og víðáttumiklir sandar sunnan við. Þar á meðal er bænhúsið, sem var friðlýst árið 1930 og endurvígt ár- ið1961 að lokinni viðgerð á vegum Þjóðminjasafns Íslands. Samvinna þjóðminjavörslunnar og bænda á Núpsstað hefur þannig staðið yfir lengi, eða allt frá tímum foreldra Fil- ippusar, Þórönnu og Hannesar land- pósts. Á síðustu árum hefur verkefn- ið verið fólgið í viðgerðum á torfhúsunum, sem var upphaflega unnið í góðu samráði við bræðurna báða og síðar Filippus, sem fræddi okkur um aðferðir bænda við viðhald torfhúsa fyrr á tímum. Við Filippus áttum margar ánægjulegar stundir yfir kaffibolla í eldhúsinu hans á Núpsstað og á göngu um bæjarstæð- ið, þar sem við ræddum verndun bæjartorfunnar. Það var sannarlega lærdómsríkt, og ógleymanlegt. Fil- ippus fylgdist með atburðum líðandi stundar og með blik í auga lýsti hann skoðunum sínum, gantaðist og ræddi málin. Hann var ekki endilega sam- mála síðasta ræðumanni, jafnvel stríðinn á stundum. Afar fróðlegt var að heyra frásagnir hans af mannlífi á Núpsstað nær öld aftur í tímann. Fil- ippus mundi æskuárin, daglegt líf í gegnum tíðina, siði og atburði. Hann mundi Kötlugosið 1918, sem bar á góma síðast þegar við hittumst á tímum öskufalls úr Eyjafjallajökli. Filippus var hlýr maður og umfram allt skemmtilegur. Á hundrað ára af- mælisdegi Filippusar þann 2. desem- ber sl. áttum við gott samtal og er ég þakklát fyrir þá stund og vináttu okkar í gegnum árin. Saga ábúenda og minjar á Núps- stað eru merkar og ómetanlegar þjóðinni. Er það von mín að vel megi takast til um framtíðarverndun minjanna. Með virðingu og þökk kveð ég Filippus Hannesson, bónda á Núpsstað. Heiðruð sé minning hans. Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður. Hljóðnað hefur á Núpsstað, Fil- ippus Hannesson er horfinn sýnum, maður sem gaf ættarsetrinu forna líf og lit um svo mörg ár. Með honum hvarf saga heillar aldar. Kvikur og hress, langminnugur, viðræðugóður heilsaði hann samlöndum sínum er sóttu býli hans heim og leiddi þá inn í sögu hins gamla sómagarðs. Þarna bjó ættfaðirinn Jón Bjarnason um aldamótin 1700 og ættin óslitið síðan. Fyrst sótti ég Núpsstað heim 1952 og átti því láni að fagna að hitta heið- urshjónin Hannes Jónsson og Þór- önnu Þórarinsdóttur og synina tvo, Eyjólf og Filippus. Kynnin hafa ekki rofnað síðan. Menningin mætti manni jafnt í viðmóti fjölskyldu, fornum húsum og húsbúnaði. Gömlu húsin á Núpsstað eru hluti af menn- ingararfi Íslendinga og þeim skyldi fullur sómi sýndur. Mér var það hluti af ævintýrum liðinnar ævi að hafa hitt Filippus, fagnandi gesti sínum með alúð og hlýju. Hundrað ára að aldri ók hann enn bíl sínum um þjóð- brautir, einsdæmi á Íslandi að ég hygg ef ekki í víðri veröld. Í svipinn er auðnarlegt um að litast á Núps- stað en sagan hefur haslað sér þar þann völl að haldið verður áfram í horfi og hlúð að hinu einstæða húsa- safni. Til þess mun fullur vilji hjá öll- um sem þar eiga hlut að máli. Hið liðna í horfnu, minnisstæðu mannlífi kemur ekki aftur en sagan heldur áfram og fortíð skyldi sýna fullan sóma. Byggðasafnið í Skógum minnist Filippusar á Núpsstað í virðingu og þökk og sendir systkinum hans og fjölskyldu allri samúðarkveðjur. Þórður Tómasson. Filippus Hannesson Það var fyrir tæpum fjórum árum sem ég hitti Óla fyrst. Það var á menningarnótt í Reykjavík og Óli og Alda voru búin að grilla læri þegar ég og Ævar komum í heimsókn. Ég man það eins og það hafði gerst í gær þegar hann tók á móti mér með faðmlagi með brúna kúrekahattinn sinn og það var eins og ég hefði þekkt hann alla ævi. Við sátum undir berum himninum og töluðum lengi saman, fórum að Perl- unni og horfðum á flugeldasýninguna og sungum í bílnum á leiðinni og ekki var um að villast að mikill söngmaður var þarna á ferðinni sem fannst gaman að njóta lífsins og skemmta sér. Frá fyrstu stundu eignaði Óli sér stað í hjarta mínu enda ekki annað hægt þar sem hann var yndislegur maður í alla staði. Einnig er það mér mjög minnis- stætt þegar Óli hringdi í mig í byrjun júlímánaðar 2008 og ég ófrísk að afas- telpunni hans. Hann sagði við mig að hann myndi koma suður þann 15. júlí Ólafur Svanur Gestsson ✝ Ólafur SvanurGestsson fæddist í Bolungarvík 27. nóv- ember 1951. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi 3. maí síðastlið- inn. Útför hans fór fram frá Hólskirkju í Bol- ungarvík 15. maí 2010. og ég yrði bara að halda henni inni í mér þangað til að hann kæmi. Já hann var nú yfirleitt ekkert að tvínóna með hlutina og sagði yfirleitt bara beint út það sem honum fannst, enda einn sá hreinskilnasti og blíðasti maður sem ég hef kynnst. Óli og Alda voru dug- leg að koma í heimsókn til okkar á Selfoss og áttum við margar góðar stundir saman. Eftir að Birta Dís fæddist var Óli yfirleitt ekki lengi að láta sjá sig á fótum, um leið og hann heyrði í afastelpunni eldsnemma á morgnana, var hann kominn fram til þess að leika við stelpuna sína. Ekki gat hann lengi setið auðum höndum þegar hann kom í heimsókn og yfirleitt var hann kominn með málningarpens- ilinn í höndina og farinn að mála pall- inn eða lagfæra eitthvað í húsinu með Ævari. Lífið er ekki alltaf eins og við viljum hafa það og þegar maður á besta aldri er tekinn frá okkur finnst okkur það ekki sanngjarnt. Elsku Óli, ég er svo þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum saman, ég og Ævar munum gera okkar allra besta til þess að Birta Dís viti hversu mikill öðlingsmaður þú varst. Þú munt ætíð lifa með okkur í anda og átt þér stað í hjörtum okkar. Hvíl þú í friði, elsku Óli. Bjarney Sif Kristinsdóttir. Elsku Óskar. Við í Gospelkór Ak- ureyrar erum óendan- lega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og njóta hæfileika þinna og krafta. Við munum aldrei gleyma stundunum sem við fengum með þér, ofarlega er sú stund síðastliðið haust, þegar við komum fram á Fiskidagsmessu á Dalvík. Þú komst norður til að spila undir hjá okkur en hafðir skorið þig illa á fingri. Þrátt fyrir sárið lékstu á píanóið af því- líkum krafti og innlifun að flestir héldu að 15 hendur væru þar á ferð, en ekki tíu puttar og einn af þeim slasaður. Óskar Jakobsson ✝ Óskar Jakobssonfæddist í Reykja- vík 25. júlí 1977. Hann lést á heimili sínu, Skarphéð- insgötu 2 í Reykjavík, 15. maí sl. Útför Óskars fór fram frá Dómkirkj- unni 27. maí 2010. Það var alltaf svo gott að fá þig norður, hvort sem það var skipulögð heimsókn eða ekki. Við gleymum því ekki heldur þegar þú komst norður akk- úrat þegar við vorum með Gospelkirkju, þér fannst strákarnir vera heldur fáliðaðir, svo þú skelltir þér bara í hópinn. Spilaðir svo undir í nokkrum lög- um, allt óæft, en engin feilnóta sungin né spil- uð. Enda sannur fagmaður. Elsku Óskar, við munum aldrei gleyma öllum stundunum saman. Hvíl í friði, elsku vinur, þín bíður greinilega stærra og meira verk ann- ars staðar. Elsku Björn Tómas og aðrir ætt- ingjar og vinir, okkar innilegustu samúðarkveðjur, hugur okkar er hjá ykkur. Fyrir hönd Gospelkórs Akureyr- ar, Helga Hrönn og Valdís Anna. Hreinn í Sunnuhlíð hefur nú flutt sig yfir á annað tilverustig, útskrifast héðan með stæl. Hann var búinn að ákveða að flytja úr Sunnuhlíð, hafði enda lokið störfum þar. Nýi áfangastaðurinn varð þó annar en hann reiknaði með, örlögin gripu þar óvænt í taumana og sá sem þeim ræður ákvað nýja staðinn og Hreinn varð sáttur við þau málalok. Það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast Hreini í Sunnuhlíð. Hví- líkur öðlingur. Hann átti tvær dásamlegar dætur og hann gaf mér aðra þeirra, með því skilyrði þó að ég yrði góður við hana. Hreinn og Hulda áttu þó ekki bara þessar tvær dætur því þegar þær voru komnar vel á legg ætt- leiddu þau dreng, systurson Huldu, kornungan og var það mikill og dýrmætur fengur fyrir fjölskyld- Hreinn Ketilsson ✝ Hreinn Ketilssonfæddist á Finna- stöðum í Eyjafjarðar- sveit 14. mars 1924. Hann lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri 21. maí síðastliðinn. Útför Hreins fór fram frá Svalbarðs- kirkju á Svalbarðs- strönd 31. maí 2010. una. Hreinn hafði gam- an af búskapnum, hann var mikið fyrir að vera úti að brasa, best fannst honum að vera einn. Hann fann einhverja rómantík í því að vera seint um sumarkvöld að slá túnin, gera við girð- ingar, tæta kartöflu- garða. Að tæta kart- öflugarða fannst honum skemmtilegast ef þeir voru nógu brattir og traktorinn ýmist við það að velta eða endastingast. Við börnin og tengdabörnin vor- um svo lánsöm að fá að vera um árabil með í kartöfluræktinni og oftast var það það sem bjargaði efnahagnum fyrstu búskaparárin, oft ekki skemmtilegt meðan á því stóð en dýrmætt í minningunni. Einnig voru það mikil forréttindi fyrir börnin okkar að fá að vera í sveitinni með afa og ömmu og kynnast sveitinni umvafin þeirra kærleik. Verkaskipting í Sunnuhlíð var þannig að allir sinntu útiverkum í félagi, enda var Hreinn mjög oft að heiman vegna annarra starfa. Í seinni tíð þegar þau voru orðin ein hjálpuðust þau að við bústörfin, vöktu til skiptis um nætur yfir sauðburði. Innistörfin voru oftast nánast alfarið á herðum Huldu, svo sem algengast hefur verið til sveita yfirleitt. Eftir að Hulda lést gekk Hreinn bara í þessi verk eins og ekkert væri sjálfsagðara. Hann fór að elda, strauja, halda þrifalegu inni, vökva blómin, kaupa sumarblóm í garðinn eins og venjan var. Í gegn um tíðina sýndist manni að Hreinn væri ekki mjög fínlegur í höndunum, frekar ónákvæmur og handsterkur. Allt virtist þurfa tölu- vert afl. Þegar hann markaði lömb- in var eins og eyrun væru úr þykku gúmmíi. Þegar hann stillti útvarpið í bílnum þá ýtti hann tökkunum sundum innúr og allt hætti að virka. Þegar hann skrúfaði fyrir krana þá fór pakkningin. Þess vegna er það dálítið merkilegt að þegar hann var hættur búskap þá fór hann að binda inn bækur og gerði það mjög vel en það krefst mikillar nákvæmni og fínhreyfinga. Síðast var hann að læra útskurð og var efnilegur þar. Í starfi með eldri borgurum var hann mjög virkur og naut sín þar og var vinsæll eins og ævinlega. Hreinn er einn sá mikilvægasti í mínu lífi, ég verð ævinlega þakk- látur fyrir að hafa kynnst honum og átt hann að og það er gott að vita að nú hefur hann aftur hitt þá sem hann saknaði og elskaði en er þó enn meðal okkar og í okkur. Það gerir okkur söknuðinn og sorgina léttbærari. Haukur Már Ingólfsson. Allar minningar á einum stað. ÍS L E N S K A S IA .I S M O R 48 70 7 01 /1 0 –– Meira fyrir lesendur Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 og til dagsins í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.