Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 6
Vegna aðstæðna á Fimmvörðuhálsi efnir Útivist ekki til hefðbundinnar og vinsællar göngu yfir Fimmvörðu- háls á Jónsmessunótt. Um 200-300 manns hafa tekið þátt í þessum Jónsmessugöngum, auk starfs- manna Útivistar. Í staðinn ætlar Útivist að halda Jónsmessuhátíð sína með því að fara í áhugaverða göngu frá Básum til að skoða um- merki um eldgosið. Gangan er um 15 kílómetrar. Skúli H. Skúlason, fram- kvæmdastjóri Útivistar, segir að að- stæður efst á Fimmvörðuhálsi séu nokkuð erfiðar, nokkurt öskulag of- an á blautum snjó. Því sé talið óvar- legt að fara með svo stóran hóp yfir hálsinn í einni atrennu. Nokkurt öskufall varð á Lauga- veginum, milli Landmannalauga og Þórsmerkur. „Nú dönsum við bara regndans í gríð og erg og ef við fáum einhverja rigningu niður, þá er ég bjartsýnn á að við fáum ekki mikið fjúk úr þessu því þá ætti fínasta efn- ið að síast niður.“ runarp@mbl.is „Nú dönsum við bara regndans í gríð og erg“ Áhugaverð ganga að gosstöðvunum Ljósmynd/Sigurður Sigurðarson Yfirtaka Hraunrennslið tók ekkert tillit til gönguleiðarinnar. 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ágætis viðbrögð hafa orðið við kynn- ingu á Íslandi sem minkaræktar- landi. Hópur danskra áhugamanna kemur í ágúst til að líta á aðstæður hér. Dönsk fjölskylda sem tengist Ís- landi hefur þegar keypt minkahús í Skagafirði og stefnir að því að koma því í rekstur í sumar. Samband loðdýraræktenda, Bændasamtök Íslands og Fjárfest- ingarstofa Íslands kynna möguleika minkaræktarinnar hér á landi fyrir erlendum bændum og áhugamönn- um, einkum í Danmörku og Hollandi. Einar Eðvald Einarsson, ráðunautur í loðdýrarækt, skrifaði greinar í fag- blað danska loðdýraræktar- sambandsins og í framhaldi af því kynntu þeir tækifærin hér á skinna- og tækjasýningu í Herning. Einar segir að viðbrögð hafi verið góð og tekið verði á móti þeim í ágúst. Kostnaður minni Danska uppboðshúsið, „Kopen- hagen Fur“, aðstoðar við að kynna minkaræktina á heimsvísu og fram- kvæmdastjóri þess hefur lagt inn gott orð hjá íslensku bönkunum. „Við höfum nægt hráefni og fóður. Sem dæmi má nefna að danskir loð- dýrabændur sækja hingað 40 þús- und tonn af fiskúrgangi árlega en við notum ekki nema 4 þúsund tonn sjálfir. Við eigum landrými til að byggja og dreifa úrgangi á,“ segir Einar þegar hann er spurður að því hvað Ísland hafi fram að færa, og þá umfram meiri loðdýraræktarlönd. Víða í Evrópu eru landþrengsli mikil og umhverfisreglur takmarka mögu- leika til uppbyggingar og förgunar á úrgangi. Hann bætir því við að lofts- lag hér sé hentugt til loðdýraræktar. Þá segir Einar að þeir íslensku loðdýrabændur sem eftir eru í grein- inni hafi náð góðum árangri. Þeir fái gott verð fyrir skinnin, aðeins Danir séu þeim fremri. Þá gjörbreytti lækkun gengis íslensku krónunnar samkeppnisstöðu íslenskra útflutn- ingsgreina eftir mörg mögur ár og á þessu ári hefur verð minkaskinna hækkað á heimsmarkaði. „Við getum ekki byggt á góðu gengi á einstökum uppboðum heldur verðum að líta á meðaltalið. Ég er sannfærður um að við getum framleitt skinn með minni kostnaði en í nágrannalönd- unum og það getur ráðið úrslitum,“ segir Ein- ar. Danskir bændur líta til Íslands  Kynningu á Íslandi sem minkaræktarlandi vel tekið Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Minkaskáli Nýjasta minkahúsið í Héraðsdal II var byggt 2006, alls liðlega 3300 fermetrar að gólfflatarmáli. Á jörð- inni eru þrjú eldri minkahús, auk íbúðarhúss. Búið hefur ekki verið í rekstri frá því undir lok árs 2008. Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Skólameistarar í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu eru ósáttir með breytingar á innritunarfyrir- komulagi nemenda á leið í fram- haldsskóla. Senn lýkur innritun nemenda fyrir næsta skólavetur, en í ár munu skólar m.a. þurfa að gera upp á milli nemenda eftir búsetu. „Ég er mjög ósáttur,“ segir Ingi Ólafsson, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands, aðspurður um hvernig breytingarnar mælast fyrir. „Það er ætlast til þess að Verzl- unarskólinn veiti nemendum úr fjór- um skólum forgang, en nú þegar hafa nemendur úr um sjötíu skólum sótt um skólavist. Okkur finnst þetta ekki sanngjarnt.“ Yngvi Pétursson, rektor Mennta- skólans í Reykjavík, tekur í sama streng. Hann segir að fyrirkomulag- ið sé skref aftur á bak og að nem- endur sitji ekki lengur við sama borð. „Nemendur úr Vesturbænum hafa t.a.m.forgang að tveimur bekkjarkerfisskólum á meðan nem- endur úr öðrum hverfum borgarinn- ar kunna að hafa eingöngu forgang að skólum með áfangakerfi. Æski- legra hefði verið að taka mið af skólagerðum,“ segir Yngvi, sem kveðst hafa verið ánægður með fyrra kerfi. Lárus H. Bjarnason, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, telur breytingarnar til marks um eðlilega viðleitni. „Þetta er ekki algjör hverfaskipting, en leysir hugsanlega vandann. Ég ætla í það minnsta að gefa þessu tækifæri fyrst um sinn áður en ég gagnrýni þetta,“ segir Lárus. Tildrög breytinganna má rekja til þess vanda sem skapaðist í fyrra við innritun. Þá þurftu framhaldsskólar, þar á meðal hinir ofangreindu, að vísa fjölmörgum nemendum frá vegna plássleysis. Í kjölfarið enduðu margir nemendur ekki í þeim skóla sem þeir óskuðu eftir. Hildur Einarsdóttir, námsráðgjafi Hagaskóla, segir það mikinn kost við breytingarnar hvernig umsókn- irnar séu meðhöndlaðar. Breyting- arnar séu til þess fallnar að hjálpa nemendum að komast í þann skóla sem þeir óska eftir. Hingað til hafi nemendur þurft að velja sér skóla í fyrsta og annað val, þar sem fyrsta val hafði forgang. Vinsælir skólar áttu það til að fylla sín pláss með nemendum sem völdu skólann sem fyrsta val undireins, sem gerði ann- að valið svo til marklaust. Núna þurfi nemendur ekki að hafa áhyggjur af því að minnka lík- ur sínar á innritun í skólann í öðru vali. Skólarnir munu taka allar ný- skráningar til greina, óháð sæti á óskalista nemanda. Skólameistarar ósáttir með innritunarferli  Reynt að leysa vanda síðasta skólaárs Hverfisskólar 45% nýnema næsta árs munu koma úr hverfisskólum. Breytt innritunarferli » Hið nýja fyrirkomulag felur í sér að 45% nýnema þurfi að koma úr grunnskólum úr ná- grenni viðkomandi framhalds- skóla. » Nemendur verða ekki innrit- aðir á samkeppnisgrundvelli fyrr en þetta skilyrði hefur ver- ið uppfyllt. » Skráningu lýkur þann 11. júní næstkomandi. „Þetta var hugmynd bróður kærasta míns, hann er ráðu- nautur í loðdýrarækt. Ég er að klára nám og kærastinn var líka til í að prófa eitthvað nýtt,“ segir Halla Ólafsdóttir frá Djúpavogi. Hún og Jesper Bækgaard flytjast frá Árósum í Héraðsdal II í Skagafirði í sum- ar og hefja þar minkarækt. Bræðurnir ólust upp á loð- dýrabúi foreldra sinna og öll fjölskyldan stendur að fjárfest- ingunni en Jesper og Halla annast búskapinn. Í Héraðsdal II er íbúðarhús og miklir minkaskálar. Ekki hefur verið búskapur þar í hálft annað ár og mannvirkin komin í eigu Landsbankans. Þau þurfa að byrja á því að taka til, þrífa og mála og kaupa hvolpa til að geta byrjað. Til í að prófa eitthvað nýtt FRÁ ÁRÓSUM Í HÉRAÐSDAL Í eldgosinu á Fimmvörðuhálsi rann hraun yfir hina hefð- bundnu gönguleið. Skúli segir að menn hafi mælt út þægileg- ustu leiðina yfir hrauntung- urnar og Útivist og Ferðafélag Íslands hyggist stika hana út á næstu dögum, í samráði við Umhverfisstofnun. „En ég tel mjög mikilvægt að göngufólki sé beint í ákveðinn farveg yfir hraunið.“ Með því minnki hætta á slysum og skemmd- um. Stikur settar í hraunið NÝ EN GÖMUL GÖNGULEIÐ Jesper Bækgaard og Halla Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.