Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 Beint áætlunarflug Icelandair til Brussel í Belgíu hefst í dag og verð- ur tekið á móti vélinni með viðhöfn. Flogið verður tvisvar sinnum í viku, á föstudögum og mánudögum. Brussel er mikil viðskipta- og stjórnsýslumiðstöð og þangað á er- indi gríðarlegur fjöldi gesta í ýms- um erindagjörðum. Birkir Hólm Guðnason, fram- kvæmdastjóri Icelandair, segir að Icelandair hafi oft kannað mögu- leika á flugi til og frá Brussel vegna mikilvægis borgarinnar í evrópsk- um stjórnmálum og viðskiptum og nú hafi skrefið verið stigið. Fyrst og fremst sé verið að höfða til al- mennra ferðamanna og þeir munu bera flugleiðina uppi. Margir sem sinni viðskiptum og stjórnsýslu eiga oft leið til borgarinnar og munu fagna því að geta flogið beint. Áætl- anir félagsins geri svo ráð fyrir að lengja tímabilið á næsta ári. Birkir segir að sala í flugið til og frá Brussel hafi farið vel af stað og þegar hafi verið ákveðið að fram- lengja flugið út september í haust vegna meiri eftirspurnar en menn áttu von á. Belgískir ferðamenn nýti sér þetta flug til Íslandsferða, en einnig sé áhugi Íslendinga tölu- vert meiri en búist var við. Icelandair flýgur í sumar 155 flug á viku frá Keflavíkurflugvelli til samtals 27 áfangastaða, 20 í Evrópu og 7 í Norður-Ameríku. Alþjóðaflugvöllurinn í Brussel og Brusselborg standa fyrir athöfn í flugvellinum í dag, þar sem Etienne Schouppe, ráðherra samgöngu- og ferðamála Belgíu, og Arnaud Feist, forstjóri Brussels Airport, taka á móti fluginu og flytja ávörp ásamt Birki Hólm Guðnasyni, fram- kvæmdastjóra Icelandair, og Katr- ínu Júlíusdóttur, ferðamálaráð- herra. sisi@mbl.is Morgunblaðið/RAX Á áfangastað Farangurinn færður um borð með hraði. Fyrsta beina flugið til Brussel í dag Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@mbl.is Í greinargerð Íbúðalánasjóðs vegna rannsóknarskýrslu Alþingis er gagnrýnd sú niðurstaða að breyt- ingar á útlánareglum ÍLS 2004 hafi verið „með stærri hagstjórn- armistökum í aðdraganda falls bank- anna“. Taldi rannsóknarnefndin m.a. að innleiðing 90% lána og hækkun hámarkslána hefði verið þensluhvetjandi mistök sem hefðu verið „gerð með fullri vitund um lík- legar afleiðingar aðgerðanna“. Í greinargerð ÍLS segir að þær ásakanir sem fram komi í skýrslu Rannsóknarnefndarinnar hljóti að skoðast sem mjög alvarlegar en í umfjöllun nefndarinnar sé að finna staðreyndavillur og misskilning sem leiði til rangra ályktana. Í niður- stöðum greinargerðarinnar segir að rannsóknarnefndin hafi ekki kannað nægilega undirbúning og skipulag ákvarðana um breytingu á lána- reglum ÍLS, sem hafi átt að taka gildi frá 2004-2007 en komist í upp- nám vegna róttækra breytinga á út- lánareglum viðskiptabankanna. Þær hafi verið meginorsök hækkunar fasteignaverðs og þenslu í efnahags- lífinu sem stjórnvöld hafi ekki getað brugðist við. Þær breytingar sem stjórnvöld gerðu síðan á opinbera húsnæðiskerfinu hafi hins vegar haft hverfandi áhrif á þróun efnahags- mála. ÍLS segir skýrslu Alþingis ekki standast skoðun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun í sumar halda úti auknu um- ferðareftirliti á Vesturlandsvegi og Suðurlandsvegi. Sérstök áhersla verður lögð á eftirlit seinnipart föstudags þegar íbúar halda út úr höfuðborginni og aftur seinnipart sunnudags þegar þeir eru á leið til baka aftur. Aukið umferðar- eftirlit um helgar Síðar kvartbuxur str. 36 - 56 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is n o a t u n . i s H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t Ö ll ve rð er u bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill u og /e ða m yn da br en gl FERSKT OG SVALAN DI FRÁBÆRT MEÐ GRILL INU KJÖRÍS DÚETT ÍSLENGJA 1 L 479KR./STK. SPRITE OG SPRITE ZERO 2 L 179 KR./STK. HUNT’S TÓMATSÓSA 680 ML 289 KR./STK. KRYDDSMJÖR 2 TEGUNDIR 169 KR./STK. Við gerum meira fyrir þig KRYDDAÐ AÐ EIGIN VA LI LAMBAINNANLÆRI KR./KG3398 LAMBAFILE MEÐ FITURÖND KR./KG 2798 20% afsláttur 3498 2698 BBESTIR Í KJÖTI ÚRKJÖTBOR ÐI ÚR KJÖTBORÐI BBESTIR Í KJÖTI ÚRKJÖTBOR ÐI ÚR KJÖTBORÐI 20% afsláttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.