Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 Getur þú lýst þér í fimm orðum? Frekar fín en stundum frek. Hvernig hefurðu það? (spyr síðasti að- alsmaður, Fanney Ingvarsdóttir, ungfrú Ís- land) Ég get ekki kvartað. Hvernig var að vera andlit hins nýja Íslands í landkynningarmyndbandinu? Hvernig var? Það var alla vega mjög gaman að gera þetta, svo vona ég bara að þetta hafi einhver áhrif. Er svona rosalega gaman að vera á Íslandi? Dansa allir, alltaf og alls staðar? Ég veit það ekki, en ég vona að ferðamönnunum sem koma hingað eigi eftir að finnast gam- an. Leiklist er eins og …? Æ, ég veit það ekki. Við gerum okkar besta og vonum svo að til verði töfrar þegar við fáum áhorfendur, eins og hvað er það? Fyrsta deitið kannski? Hvert er draumahlutverkið? Úff, mig langaði alltaf að leika Curly Sue þegar ég var pínu pons. Núna langar mig að prófa allt. Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Leikkona og læknir og lögfræðingur . Hvor er með flottari hárgreiðslu, Jón Gnarr eða Dagur B. Eggertsson? Er Jón Gnarr með hárgreiðslu? Hver er tilgangur lífsins? Að slaka á og njóta þess eftir bestu sam- visku og bæta heiminn með hænuskrefum og að reyna alltaf að vera pínulítið betri manneskja í dag en í gær? Áttu þér tvífara og ef svo er þá hvern? Hahaha! Já, stundum er mér ruglað saman við Þorbjörgu Helgu Þorgilsdóttur leik- konu, ég tek því bara sem miklu hrósi. Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast? Gone with the Wind kannski, eða Moulin Rouge, svona í seinni tíð. Annars held ég að Home Alone eigi vinninginn. Hvað óttastu mest? Að missa. Hver er uppáhaldsleikarinn þinn? Hilmar Guðjónsson. Hvað gerir þú á föstudagskvöldum? Stundum fer ég og hitti fólk sem mér finnst skemmtilegt og dansa og dansa og dansa. Stundum horfi ég á bíómyndir og borða súkkulaði. Stundum geri ég frábærlega fabjúlös plön um að dansa og dansa en enda svo bara heima að horfa á bíómynd. Hvað færðu ekki staðist? Afslöppun í sól. Veistu allt um Enron- málið? Ég veit ýmislegt um En- ron-málið, ég veit að að- ferð Enron-fólksins er ekki uppskrift að gæfu og gengi, en það er algengur mis- skilningur. Hvað á að gera í sumar? Fara í kjól og útskrif- ast úr Listaháskól- anum, fara til Amsterdam og sigla í síki, læra að dansa hipphopp-dans, syngja power- ballöður og skera kökur á Kaffi Norðurfirði, fara í brúðkaup, prófa sjósund, fara í venjulegt sund og hlusta á fólkið og komast nær tilgangi lífsins í pottinum. Hvaða húsverk finnst þér leið- inlegast? Ryksuga, engin spurning. Það er svo mikið vesen. Svo finnst mér líka leið- inlegt að þrífa svona gamaldags ofna sem eru samsettir úr rörum. Með hvaða liði held- urðu á Heimsmeist- aramótinu í knatt- spyrnu ? Öllum. Hvers viltu spyrja næsta aðalsmann? Bíó eða leikhús? – Hví? Aðalsmaður vikunnar er leikkonan Lára Jóhanna Jónsdóttir sem starfar fyrir Borgarleikhúsið og mun m.a. leika í Enron og Ofviðrinu í því húsi. Auk þess kemur hún fram í nýju landkynn- ingarmyndbandi átaksins Þjóðin býður heim. Morgunblaðið/Jakob Fannar Er Jón Gnarr með hárgreiðslu? Lára Heldur með öllum liðunum á HM. HHH T.V. - Kvikmyndir.is SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI HHH S.V. - MBL HHHH T.V. - Kvikmyndir.is HHHH ...óhætt er að að fullyrða að Hrói Höttur hefur aldrei verið jafn grjótharður og í túlkun Crowe. Þ.Þ. - FBL HHH Ó.H.T - Rás 2 SÝND Í SMÁRABÍÓI Frá Neil Marshall leikstjóra “The Descent” kemur hörku spennumynd Sími 462 3500 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Get Him to the Greek kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára Robin Hood kl. 10:20 B.i. 12 ára Brooklyn’s Finest kl. 8 B.i. 16 ára Húgó 3 Ísl. tal kl. 6 LEYFÐ SÝND Í SMÁRABÍÓ Sýnd kl. 4, 7 og 10 Sýnd kl. 4 og 6Sýnd kl. 8 og 10:30 ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA “THE TRAINING DAY” Sýnd kl. 3:50, 5:50, 8 og 10:10 HEIMSFRUMSÝNING FRÁ LEIKSTJÓRA FORGETTING SARAH MARSHALLOG FRAMLEIÐANDA KNOCKED UP KEMUR EIN KLIKKAÐASTA GRÍNMYND SUMARSINS SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í BORGARBÍÓ Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greið með kreditkorti tengdu Aukakrónum www.laugarasbio.is 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á -bara lúxus Sími 553 2075 með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.