Morgunblaðið - 04.06.2010, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 04.06.2010, Qupperneq 25
Minningar 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 ur og Guðmundur sem arkitekt. Mikil og ómetanleg vinátta mynd- aðist með okkur öllum. Nokkrar ferðirnar fórum við Gunna saman eftir að við kynnt- umst, bæði innanlands og utan. Fyrstu árin vorum við duglegar að fara á gönguskíði og þar með urðu allar helgar uppteknar á veturna í fjöllunum. En Gunna var mikil skíðadrottning á sínum yngri árum á Ísafirði, þar sem hún ólst upp. Síðan urðum við meðlimir í ferða- félaginu Útivist. Með félaginu fór- um við meðal annars í gönguferðir bæði á kvöldin og í styttri dags- ferðir. Ein þessara ferða var sér- staklega eftirminnileg, en það var ferðin yfir Leggjabrjót, þar sem hún bæði handleggs- og rifbeins- brotnaði. Hún lét það þó ekki aftra sér frá því að ljúka göngunni, sem lýsir því svolítið hvernig kona hún var. Gunna var mikill göngugarpur allt til síðasta dags þó að hún væri komin með göngugrind sér til stuðnings síðustu mánuðina. Við Gunna fórum einnig í útilegur með lítinn tjaldvagn sem ég átti. Í Stykkishólmi lentum við í því að það vantaði eina skrúfu til að við gætum tjaldað vagninum. Gunna lét það nú ekki aftra sér og hélt tjaldinu uppi í hálfa klukkustund meðan ég skaust inn í bæinn til að ná í viðgerðar- mann. Svo kom að því að við ákváðum að fara utan og Mallorka varð fyrir valinu. Þessi fyrsta ferð okkar var svo velheppnuð að margar aðrar ut- anlandsferðir fylgdu í kjölfarið eins og Búdapest, Svartiskógur og Gardavatn. Allar þessar ferðir voru sögulegar og ævintýri líkastar, hver á sinn hátt. Einnig fórum við til Færeyja og síðasta ferðin okkar var til Grænlands árið 2006. Ég geymi margar góðar minningar um Gunnu úr þessum ferðum. Gunna varð fyrir mörgum áföll- um í lífinu. Eitt af því var þegar hún missti elstu dóttur sína, Ellu Stínu. Það var henni þungbært og sorgin óyfirstíganleg en alltaf hélt hún ótrauð áfram. Gunna var minn klettur í lífinu sem ég gat alltaf leitað til þegar ég þurfti á góðum ráðleggingum að halda. Ég kveð með söknuði mína elskulegu vinkonu en á sama tíma er ég full þakklætis fyrir að hafa kynnst þessari sérstöku konu sem hefur haft mikil áhrif á líf mitt og fjölskyldu minnar. Ég sendi börn- um hennar, tengdabörnum, barna- börnum og barnabarnabörnum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ragnhildur Auður Vilhjálmsdóttir. Kæra Guðrún mín. Mig langar að skrifa þér örfá kveðjuorð og þakka fyrir samveru- stundirnar okkar sem allar voru góðar. Stórbrotnari og hlýrri manneskju hef ég varla kynnst. Þú varst létt í lund, fróð og gast verið svo skemmtilega hnyttin og þú varst með þetta „glimt i öjet“ sem ein- kenndi þig svo mjög. Ógrynnin öll kunnir þú af vísum og ljóðum sem ætíð hittu í mark við hin ýmsu tæki- færi. Það var ekki nein lognmolla kringum þig. Þú áttir stóran og samheldinn afkomendahóp og marga vini og allir sóttu til „ömmu Gunnu“. Ávallt fór ég glaðari frá þér. Ég vildi hafa kynnst þér miklu fyrr og átt með þér lengri tíma. Hjartans þakkir fyrir fá en góð ár, elsku Guðrún mín. Þín vinkona, Júlía Leví. Elsku Gunna mín. Ekki datt mér í hug, þegar ég kom til þín á fimmtudaginn fyrir hvítasunnu, að það væri síðasta stundin, sem við ættum saman. Þú varst þá svo hress miðað við hvað þú ert búin að vera veik undanfarið. Þú hefur oft orðið fyrir áföllum í lífinu, bæði veikindum og missi en staðið sterk sem eik á eftir. Okkar fyrstu kynni voru þegar ég var á öðru ári og for- eldrar okkar deildu saman íbúð á Öldunni á Ísafirði. Þar var þröngt búið og m.a. var eldhúsið sameig- inlegt. Vinátta þeirra var ævilöng. Að leiðarlokum þakka ég þér tryggð þína við mig. Minningarnar eru margar, sem nú rifjast upp, skíðaferðir á Seljalandsdal, bad- minton á morgnana fyrir vinnu. Báðar spiluðum við handbolta. Þú í Herði, en ég í Vestra. Þegar þú varst að fara frá Ísafirði með Bjarna Gunnar og giftist Þorsteini hvattir þú mig til að koma suður. Það var ekki síst fyrir þína hvatn- ingu sem ég hóf nám í hjúkrun. Þú bauðst mér að gista hjá ykkur í Karfavoginum. Fljótlega fékk ég vinnu og húsnæði. Þið fluttuð á Baldursgötuna þar sem ég var tíður gestur og alltaf jafn velkomin. Bjarni Gunnar hafði gaman af því að lána mér rúmið sitt því þá fékk hann að sofa uppi í hjá mömmu og Steina. Leiðir skildi síðan þegar þið fluttuð til Vestmannaeyja. Á sein- asta námsárinu mínu í hjúkruninni bauðstu mér að koma þangað í sum- arfríinu. Þú útvegaðir mér vinnu í frystihúsinu og útbjóst mig með nesti. Fríið endaði ég svo á þjóðhá- tíðinni í Eyjum 1954. Segja má að nýr kafli í samskipt- um okkar hafi hafist þegar þið flutt- uð upp á land eftir gosið. Alltaf var gaman að fá ykkur í heimsókn til okkar í Borgarnes og sjá þessi myndarlegu börn ykkar. Eftir að við fluttum suður og aldurinn færð- ist yfir höfum við notið þess að geta hist og spjallað saman og rifjað upp gamla daga. Ég minnist þess þegar ég fór í Þjóleikhúsið í fyrsta sinn, þá var það með ykkur Steina til að sjá Íslandsklukkuna eftir opnun leikhússins. Það rifjast líka upp þegar við fyrir tilviljun hittumst á götu á Ítalíu. Því miður var Steini orðinn lasinn í þeirri ferð. Ég þakka þér fyrir ræðuna, sem þú hélst í 80 ára afmælinu mínu. Systkini mín höfðu mjög gaman af því þegar þú sagðir svo skemmti- lega frá foreldrum okkar. Kæra vinkona. Ég þakka þér ævilanga tryggð og vináttu sem aldrei bar skugga á. Við Húnbogi sendum börnum þínum og fjöl- skyldum þeirra innilegar samúðar- kveðjur. Erla Ingadóttir. Kveðja frá Þorgerðarsystrum Með söknuði kveðjum við kæra vinkonu okkar Guðrúnu A. Gunn- arsson. Þrátt fyrir að aldurinn færðist yfir, kom skyndilegt fráfall hennar mjög á óvart. Hún sat og spjallaði í síma að kvöldi en að morgni var hún látin. Sjóninni hafði hrakað mikið en engu að síður stundaði hún gönguferðir í ná- grenni við heimili sitt þegar vel viðraði. Útivist hafði alltaf höfðað til hennar og var það partur af hennar daglega lífi. Guðrún var minnug og sagði skemmtilega frá. Hún bar sig ævinlega vel, var vel máli farin og orðheppin. Enda hélt hún óskiptri athygli allra viðstaddra. En hennar tími var kominn. Guðrún var aðalhvatamaður að stofnun nýrrar Oddfellowstúku í Reykjavík árið 1977 með konum sem búið höfðu í Vestmannaeyjum. Flestar áttu heimili sitt þar þegar eldgosið hófst í Heimaey 1973 og íbúar þurftu að flýja Eyjarnar og til viðbótar voru konur sem áður voru fluttar upp á fastalandið. Það voru miklar breytingar hjá fólki sem skyndilega þurfti að yfirgefa heimili sín og setjast að á nýjum stað. Því var kærkomið að hittast og sameina hópinn sem hafði starfað saman úti í Vestmannaeyjum. Guðrún hafði brennandi áhuga á þessu máli og dreif hlutina áfram. Hún var sjálf- kjörin til forystu og hreif hinar með sér. Þessir forystuhæfileikar fylgdu Guðrúnu og oft á liðnum árum lagði hún góðum málum lið og hafa orð hennar ævinlega vegið þungt. Fram til þess síðasta var hún virkur þátt- takandi í sístækkandi stúku okkar sem hún var upphafsmaður að fyrir rúmum 30 árum síðan, félagi þar sem eining og áhugi til að láta gott af sér leiða er hafður að leiðarljósi. Við sem höfum starfað með Guð- rúnu í gegnum árin eiguðumst vin- áttu hennar og tryggð. Hennar verður sárt saknað. Guð blessi minningu Guðrúnar A. Gunnarsson. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Börnum Guðrúnar og öðrum ást- vinum hennar vottum við okkar innilegustu samúð. Gyða Guðbjörnsdóttir. Gunna Gunn var ein af þeim per- sónum sem verða svo minnisstæðar þeim sem eftir lifa. Hún var stór persónuleiki eins og stundum er sagt. Gunna var þátttakandi í lífi mínu í um það bil 35 ár, sem móðir æsku- vinkonu minnar. Við Anna Hedvig, yngsta dóttir hennar, höfum verið bestu vinkonur frá unga aldri og vorum gjarnan kallaðar samlokurn- ar eða Önnurnar. Á þeim árum var ég heimagangur hjá Gunnu og lærði fljótt að meta mannkosti hennar og einstakan persónuleika. Hún hafði sérstakt lag á að láta manni líða vel inni á heimilinu, eins og maður væri hluti af fjölskyldunni. Hún spjallaði við barnið eins og jafningja sinn, af virðingu. Mér fannst ég alltaf svo- lítið fullorðin þegar við töluðum saman og bar lotningu fyrir visku þessarar konu. Þegar ég komst á fullorðinsár breyttust umræðuefnin og snerust meira um ættfræði, sögur frá Ísa- firði og Eyjum og ósjaldan um að- dáun okkar beggja á dótturdóttur hennar og nöfnu, Guðrúnu Önnu, guðdóttur minni. Gunna hafði mikinn áhuga á ís- lenskri tungu. Hún leiðrétti mál- fræði og tungutak okkar vinkvenn- anna óspart og uppfræddi um merkingar fornra orða en áhugi og undirtektir voru oft takmarkaðar. Hún var líka vel hagmælt, kunni mikið af ljóðum og orti talsvert sjálf. Eftir hana liggja ógrynni af stökum og vísum sem hún skrifaði á miða hér og þar. Gunna var ávallt skemmtilegasti gesturinn í boðinu. Það var unun að hlusta á hana segja sögur. Hún sagði þær svo undir tók í salnum og allir lögðu við eyru. Hún hafði kald- hæðna kímnigáfu og skemmtilegt lag á að gera grín að sjálfri sér og öðrum. Gunna varð sjaldan orðlaus, hún átti alltaf hnyttin tilsvör og glotti þegar vel tókst til. Hún var djúpvitur kona sem hafði reynt eitt og annað í lífinu, bjó yfir fróðleik og lífsspeki sem hún kunni að miðla til samferðafólks. Ég naut þess að heimsækja hana og spjalla um heima og geima og fannst ég alltaf svo miklu ríkari að visku þegar ég kvaddi. Gunna var ákaflega stolt kona og vildi lifa með andlegri og líkamlegri reisn og það fékk hún svo sann- arlega að gera. Hún gekk í Elliðaár- dalnum sínum fram á síðasta dag og naut þess að vera sjálfstæð í eigin íbúð. Hún kvaddi á þann hátt sem hún hefði helst kosið. Ég átti eftir að spjalla meira við Gunnu og sakna þess að fá ekki að halda samræðunum áfram eilítið lengur. Samræðum við konu eins og hana lýkur reyndar aldrei, maður heldur þeim áfram í huganum. Mér þótti afar vænt um Gunnu og er henni þakklát, hún skilur eftir sig svo hlýjar og góðar hugsanir. Ég hlakka til þeirra stunda þegar við dóttir hennar og dótturdóttir sam- einumst í frásögnum og minningum um Gunnu. Við munum njóta þess að segja dóttur minni frá þessari mögnuðu og merkilegu konu, sem færði henni svo fallegar gjafir og kveðjur og gladdist svo einlæglega með mér þegar hún kom í heiminn. Ég sendi allri fjölskyldu Gunnu mínar innilegustu samúðarkveðjur. Sérstaklega votta ég elsku vinkonu minni, Önnu Hedvig, og dóttur hennar, Guðrúnu Önnu, samúð mína og vona og veit að birtan og hlýjan hennar Gunnu fylgir þeim um ókomin ár. Anna Birna. „Þú ert nú meiri angurgapinn,“ sagðir þú. „Ha?“ svaraði ég. „Svei … ég hélt að þú værir ætt- aður að vestan, veistu ekki hvað angurgapi þýðir?“ sagðir þú. „Ha?“ svaraði ég. Þá pírðir þú augun lítið eitt og settir upp þitt sérstaka bros – bros sem táknaði að þú skemmtir þér. Svo hlóstu og sagðir: „Komdu í það minnsta og fáðu þér gott kaffi.“ Stuttu seinna sofnaðir þú yfir kaffi- könnunni. Þú sofnaðir líka inni í pottaskáp. Það var helst þegar svefninn sótti á þig sem ég hafði betur í orðaskaki. Ég man það betur en flest annað þegar við hittumst fyrst á stigapall- inum í Litlahjalla fyrir tuttugu og fimm árum. Ég var í þeim erinda- gjörðum að eltast við dóttur þína en þú varst í þeim erindagjörðum að skemmta þér á minn kostnað. Ég sá tilvonandi tengdamömmu en þú sást taugaveiklaðan stubb sem reyndi að hverfa ofan í viðinn. Við rifjuðum þennan atburð upp fyrir nokkrum dögum og hlógum mikið. Þegar fyrstu kynnum var lokið þarna á pallinum léstu vaða: „Hver hefur gefið þér leyfi til að eltast við hana dóttur mína?“ Ég svitnaði í lófunum en mér tókst að stynja upp: „Ja, ég ætlaði einmitt að fara að biðja þig um leyfi.“ Upp frá því tókst vinátta sem átti sér fá líkindi. Við ræddum svo margt sem eng- inn veit. Við lásum ljóð og horfðum á fótbolta, ég lærði að stuðla en þú stökkst úr stólunum og hrópaðir „rangstaða!“ Skömmu seinna vor- um við sest inn í eldhús yfir kaffi og döðluköku. Það voru hinir bestu tímar. Þegar ég átti mínar erfiðustu stundir sendir þú mér línur sem ég geymi á meðal þess sem reynst hef- ur verðmæti í þessu lífi: Vonir þínar, vinur minn, verða við þig bundnar. Alltaf mun ég elska þig til okkar hinstu stundar. (Guðrún G.) Ég skrifaði þér seinna nokkrar línur sem ég sendi þér aldrei, kannski vegna þess að þú áttir að fá þær nú: Þú veist það ekki, vina mín, þótt vita mættir flest að alltaf voru orðin þín allra orða best. (Atli G.) Þú býrð í huga mér sem góður vinur – eins og sólblóm við svefn- herbergisglugga sem gægist yfir sylluna og boðar góðan dag. Vinur sem hreyfir við strengjum kátínu og veitir tímanum tilgang. Þar sem þú ert, þar er góður félagsskapur. Þú gengur nú um í grænni laut á heiðum degi. Þeir sem hafa beðið þín fá nú loks að njóta kátínu þinnar og þola beinskeytta vestfirska fyndni. Þú lifir áfram á meðal okkar hinna sem mær minning og von um að við sláumst aftur í sama hóp þeg- ar sú stund rennur upp. Það eru til manneskjur sem segja töfraorð. Töfraorð eru bara ósköp venjuleg orð sem flestir kunna en þau bera með sér töfra þegar mann- eskja eins og þú gefur þeim gildi. Töfraorð eru eins og faðmlag í ein- semd, hlátur á meðal vina, sól að morgni og hlý sæng að vetrarnóttu. Í anda Þorgerðar. Þinn vinur, Atli. Í dag kveð ég góðan vin minn, Guðrúnu Önnu Gunnarson, sem kom eins og stormsveipur inn í líf mitt fyrir u.þ.b. aldarfjórðungi síð- an, þegar hún gerðist húsvörður í Snælandsskóla í Kópavogi. Með okkur tókst strax góð vinátta og er óhætt að segja að hún hafi laðað það besta fram í öllum sem hún um- gekkst, ekki hvað síst nemendum skólans sem vildu allir allt fyrir hana gera. Fyrir hvern skóla er það ómetanlegt að hafa starfsfólk sem á gott með að umgangast börn og unglinga og kemur fram við ung- dóminn af virðingu. Ég geri mér ekki alveg grein fyr- ir því hvað það var sem varð til þess að við urðum svona miklir vinir, en einhvern veginn hitti hún mig bara beint í hjartað. Hún var ein sú allra besta og skemmtilegasta mann- eskja sem ég hef kynnst um ævina. Velvilji hennar í garð annarra og manngæska áttu sér engan sinn líka. Hún hafði lifað margt og hafði frá mörgu að segja, frá árunum á Ísafirði forðum daga og eins úr Vestmannaeyjum og svo líka frá ár- unum hérna á mölinni síðustu árin. Hún var fróð um margt, ljóðelsk með afbrigðum og átti gott með að setja saman tækifærisvísur, ég fór ekki varhluta af þeim frekar en aðr- ir vinir hennar. Umfram allt var hún skemmtileg manneskja og glettin og átti svo gott með að koma auga á hið spaugilega í lífinu. Hún sagði skemmtilega frá og var hlát- urmild, hún hafði einhvern veginn mannbætandi áhrif á alla í kringum sig, það fann maður langar leiðir. Um leið og ég kveð þig kæra vin- kona, vil ég þakka þér fyrir hönd okkar sem voru þér samferða hér í Snælandsskóla fyrir öll þín góðu verk hér – þau voru mörg og ómet- anleg. Ég vil líka þakka þér fyrir samveruna og tryggðina við mig í gegnum árin, þú gerðir mig svo sannarlega að betri manni. Takk líka fyrir allar skötuveislurnar, vís- urnar, sögurnar og samverustund- irnar. Minningarnar mun ég geyma í hjarta mér. Um leið og ég votta öllum að- standendum og vinum samúð mína bið ég þér Guðs blessunar, Gunna mín, ég veit að þú munt áfram hafa mannbætandi áhrif bæði í þessu lífi og því næsta. Þinn vinur, Helgi B. Helgason. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSGERÐUR SIGURBJÖRNSDÓTTIR sjúkraliði, Byggðavegi 86, Akureyri, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 1. júní. Útför hennar verður auglýst síðar. Haraldur Magnússon, Anton Haraldsson, Sigurbjörg Haraldsdóttir, Þorvaldur Rafn Kristjánsson, Sverrir Haraldsson, Magnús Orri Haraldsson, Sigurbjörn Haraldsson og barnabörn. Morgunblaðið birtir minningar- greinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður grein- in að hafa borist eigi síðar en á há- degi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.