Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 4. J Ú N Í 2 0 1 0  Stofnað 1913  128. tölublað  98. árgangur  STRÍPAST HETJAN Í SIGURVÍMU? MATJURTIR GARÐRÆKT OG GRILL SJÁLFLÆRÐUR OG FLINKUR FAGMAÐUR GARÐAR 32 SÍÐUR HÚÐFLÚRSHÁTÍÐ 10ÍÞRÓTTIR 4 Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Minna mun verða til skiptanna til útgreiðslu innistæðna við gjaldþrot íslenskra fjármálafyrirtækja ef nýtt frumvarp efnahags- og viðskipta- ráðherra nær fram að ganga. Frumvarpið veitir auknar heimildir til veðsetningar eigna fjármálafyr- irtækja, en áhrifa þess mun fyrst og fremst gæta hjá NBI og skilanefnd Landsbankans. NBI gaf út skulda- bréf til skilanefndarinnar upp á 260 milljarða króna í erlendri mynt þeg- ar eignir voru færðar milli bank- anna. Í frumvarpinu eru veittar auknar heimildir til færslu eigna inn í hið veðsetta eignasafn til full- nægjandi tryggingar. Skiluðu minnihlutaáliti Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er einn full- trúa minnihluta efnahags- og við- skiptanefndar sem skilaði áliti um frumvarpið. Hún segir að frumvarp- ið muni hafa í för með sér að erf- iðara verði fyrir Tryggingasjóð innistæðueigenda og fjárfesta að sækja eignir í þrotabú NBI komi til greiðslufalls bankans: „Þrátt fyrir að innistæður njóti enn forgangs samkvæmt neyðarlögunum, er í raun verið að afnema hann með þessu frumvarpi. Ef til gjaldþrots NBI kæmi myndi skilanefnd Landsbankans fá sitt skuldabréf greitt upp í topp. Með þessu frum- varpi er verið að segja fjárfestum að lögbundinn forgangur inni- stæðna á Íslandi sé aðeins í orði, en ekki á borði,“ segir Eygló. MSkuldabréf tekin fram fyrir »16 Skilanefnd tryggð  Lagafrumvarp um veðréttindi fjármálafyrirtækja vegna uppgjörs eigna milli gömlu og nýju bankanna talið ganga langt í þá átt að afnema forgang innistæðna Sannkölluð sjóræningjastemning var á leikskól- anum Nóaborg í Reykjavík í gær. Börnin klæddu sig í sjóræningjabúninga og leituðu ákaft að fal- inni fjársjóðskistu. Eineygð og með krók á hendi tókst þeim á endanum að finna fjársjóðinn og fengu að launum grillaðar pylsur. Morgunblaðið/Golli Sjóræningjar á Nóaborg leituðu að földum fjársjóði Kostnaður við að reka viðskipta- og iðnaðarráðuneytið jókst um næstum þriðjung eftir að ráðuneytinu var skipt í tvennt árið 2007. Þetta eru um 120 milljónir. Kostnaður við rekstur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu- neytisins dróst hins vegar saman um rúmlega 14% eftir að ráðuneytin voru sameinuð. Rekstur ráðuneytis- ins kostaði í fyrra um 50 milljónum króna minna en árið 2006. Þetta má lesa út úr svari fjármála- ráðuneytisins við fyrirspurn frá Vig- dísi Hauksdóttur alþingismanni. Starfsmönnum ráðuneytanna hef- ur fjölgað ár frá ári. Árið 2006 voru starfsmenn aðalskrifstofu ráðuneyt- anna 456 ef Hagstofan og þýðinga- miðstöð utanríkisráðuneytisins eru ekki taldar með, en starfsmenn þeirra falla ekki undir skrifstofuna í dag. Um síðustu áramót voru starfs- mennirnir orðnir 511. Þeim fjölgaði um átta í fyrra. Starfsmönnum fjár- málaráðuneytisins fjölgaði um fimm. Fjölgun starfsmanna ríkisins er þó enn meiri ef þýðingamiðstöð ut- anríkisráðuneytisins er talin með. Í ár voru 24 nýir starfsmenn ráðnir til að þýða. Kostnaður við starfsemina nam 70 milljónum árið 2006, en verð- ur 356 milljónir í ár samkvæmt fjár- lögum. egol@mbl.is »12 120 milljónir í fjölgun ráðuneyta  Útgjöld viðskipta- og iðnaðarráðuneytis upp um 30% við að skipta ráðuneytinu Stjórnarráðið Kostnaðurinn við reksturinn hefur farið vaxandi.  Kynningu á Íslandi sem minka- ræktunarlandi hefur verið vel tekið í Danmörku. Hópur Dana kemur í ágúst til að kynna sér aðstæður hér á landi og dönsk fjölskylda, sem tengist Íslandi, hefur þegar keypt minkahús í Skagafirði. Hún stefnir að því að koma minkahúsinu í rekstur í sumar. Einar Eðvald Einarsson, ráðu- nautur í loðdýrarækt, segir að þeir íslensku loðdýrabændur sem eftir eru hafi náð góðum árangri. Þeir fái gott verð fyrir skinnin, aðeins Danir séu þeim fremri. »6 Danir vilja rækta minka á Íslandi Hátt verð fæst nú fyrir minkaskinn.  „Ég er mjög ósáttur,“ segir skólastjóri Verzl- unarskólans um fyrirhugaðar breytingar á inn- ritunarreglum í framhalds- skólum. Nýtt fyr- irkomulag felur í sér að 45% ný- nema þurfa að koma úr grunnskólum í nágrenni viðkomandi skóla. „Nemendur úr Vesturbænum hafa t.a.m. forgang að tveimur bekkjarkerfisskólum á meðan nemendur úr öðrum hverf- um borgarinnar kunna að hafa ein- göngu forgang að skólum með áfangakerfi. Æskilegt hefði verið að taka mið af skólagerðum,“ segir Yngvi Pétursson, rektor Mennta- skólans í Reykjavík. »6 Nýjar reglur fyrir framhaldsskóla Stúdentar setja á sig kollinn. 260 milljarðar króna er nafnverð skuldabréfs NBI til skila- nefndarinnar. ‹ SKULDABRÉF NBI › »  Málefnasamn- ingur nýs fjög- urra flokka meirihluta í Kópavogi verður kynntur í dag, en ekki er gefið upp hver næsti bæj- arstjóri er. Í Reykjavík ganga viðræður Besta flokksins og Samfylkingarinnar að sögn vel og stefnir allt í að Jón Gnarr verði borgarstjóri. Samstarf vinstriflokkanna er að skríða sam- an í Hafnarfirði. Í Norðurþingi verður samstarf Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar kynnt, að fengnu samþykki flokksfunda. Þá hafa fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks náð saman um stjórn mála í Grindavík. »2 og 8 Stjórn sveitarfélaga tekur á sig mynd Jón Gnarr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.