Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 18
18 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Fjármálaráðherrar og seðlabankastjórar frá tutt- ugu helstu iðnríkjum heims koma saman til fundar í Pusan í Suður-Kóreu í dag. Sem kunnugt er þá hafa fundir tuttugu helstu iðnríkja heims verið megin- samráðsvettvangur viðkomandi stjórnvalda um við- brögð við ástandinu á fjármálamörkuðum. Enn sem komið er hefur ekki mikið áunnist í þeim efnum og miðað við þau drög að ályktun fundarins í Pusan, sem lekið hefur verið í fjölmiðla, er ekki að búast við miklum breytingum í þeim efnum um helgina. Skjálftavirkni og ójafnvægi Dow Jones-fréttaveitan hefur drög að yfirlýs- ingunni undir höndum. Þar kemur þó fram að sam- staða sé um að sá viðsnúningur sem átt hefur sér stað byggi á veikum stoðum. Í drögunum segir að skjálftavirkni sé enn mik- il á fjármálamörkuðum og aðstæður kalli á aukið samstarf helstu ríkja um aðgerðir. Þetta lætur vel í eyrum en vandinn er að lítil samstaða er meðal ríkjanna um hvernig eigi að bregðast við og hvernig byrðar aðlögunarferlisins í átt að nýju jafnvægi í al- þjóðahagkerfinu skuli dreifast. Þannig er lögð rík áhersla í drögunum á að ríki beiti aðhaldi við stjórn ríkisfjármála og forðist ósjálfbæra skuldasöfnun. Þetta á fyrst og fremst við hagkerfin á Vesturlöndum en vandinn er að slík- ar aðgerðir leiða sjálfkrafa til minni eftirspurnar, sem er lítil fyrir, í viðkomandi hagkerfum og þar af leiðandi þurfa þau að reiða sig á að þau ríki sem búa við hagstæðan viðskiptajöfnuð grípi til efnahags- aðgerða heimafyrir sem örvar eftirspurn eftir inn- fluttum vörum. Fyrst og fremst er horft til Kína auk annarra útflutningshagkerfa í Asíu í þessum efnum, en segja má að þetta gildi einnig um stöðu Þýskalands gagnvart öðrum hagkerfum evrusvæðisins. Ólík- legt er að kínversk stjórnvöld ljái máls á því að leyfa handstýrðu gengi júansins að styrkjast gagnvart Bandaríkjadal, þótt stjórnvöld í Washington leggi á það mikla áherslu. Slík gengisstyrking myndi draga úr bandaríska viðskiptahallanum og örva eft- irspurn í Kína eftir innfluttum varningi. En þar sem mikil veiking evrunnar á mörkuðum undanfarið hefur þrengt að samkeppnis- hæfni kínversks útflutnings á alþjóðamörk- uðum eru stjórnvöld í Peking enn fráhverf- ari því en áður að leyfa júaninu að styrkjast. Á meðan þetta ástand ríkir má búast við að viðskiptahallinn vestanhafs aukist á ný frek- ar en minnki. Rætist sú spá má segja að hið hnattræna ójafnvægi alþjóðaviðskipta, sem er ein af meginorsökum fjármálakreppunnar, sé jafn fjarri því að lagast í dag og fyrir kreppu. Ekki verður séð að fundarhöldin um helgina breyti miklu þar um. Fundað í skugga skuldavanda  Fundur fjármálaráðherra og seðlabankastjóra tuttugu helstu iðnríkja heims hefst í Pusan í dag  Samstaða um nauðsyn aðgerða en ekki útfærslu þeirra Það er víðar en á Íslandi sem moldviðri byrgir mönnum sýn. Þessi indverski ökuþór lét fjúkið ekki hafa áhrif á sig þar sem hann ók um götur borgarinnar Mathura á norðanverðu Indlandi. Aftar í götunni leiðir ógreinilegur maður reið- hjól en hjá honum er vagn með þungri byrði. Líklega voru þeir fegnir því að komast inn fyr- ir hússins dyr. Maðurinn með farsímann kippir sér lítið upp við storminn. Á vélfáki í gegnum kófið Reuters Þótt kviknað hafi í tveimur Nano-dvergbílum láta Tata Motors-verksmiðjurnar engan bilbug á sér finna. Þvert á móti hyggjast indversku bílasmiðjurnar blása til frekari sóknar með verksmiðju sem stórauka mun fram- leiðsluna á örbílnum. Segja má að Nanoinn sé nú kominn úr 1. gír og að hann sé farinn að malla í 2. gír. Fyrstu Nanoarnir runnu af færi- bandinu í mars 2009 og hafa síðan hátt í 31.000 eintök selst á Indlandi. Það er þó aðeins byrjunin og mun nýja verk- smiðjan í Sanand í Gujarat-héraði geta smíðað 350.000 bíla á ári þegar hún verður að fullu komin í gang. Brunalykt af byrjuninni Byrjað verður að taka við pöntunum síðar í mánuðinum en óhöppin tvö þóttu bagaleg fyrir vörumerkið. Verksmiðjurnar telja þau hins vegar ekki tengjast fram- leiðslugalla en hafa til öryggis bætt einangrun við bensín- dæluna til að lágmarka líkur á að það kvikni í bílnum. Segja má að Nanoinn sé Volkswagen-bjalla sinnar kyn- slóðar en henni var sem kunnugt er ætlað að gera þýsku millistéttinni kleift að eignast fólksbíl, sem væri mun ódýr- ari en Benz og aðrar dýrari gerðir. Annað dæmi úr sögunni væri Ford T, fólksbíll Henrys Fords. Til stendur að bjóða bílinn til sölu í Evrópu og Banda- ríkjunum en hann kostar beint úr kassanum á Indlandi um 2.000 Bandaríkjadali, eða sem svarar 256.000 krónum. Tata-verksmiðjurnar hyggja á frekari landvinninga og má nefna að senn hefst sala á Nanoinum í Taívan. Gerir millistéttinni kleift að eignast bíl Nanoinn þótti bylting á Indlandi þar sem efnalítið fólk hefur þurft að gera sér skellinöðrur að góðu en athygli vek- ur að í Taívan er sömu sögu að segja þótt þjóðartekjur á mann séu þar miklu hærri. Til þess þarf Nanoinn þó að uppfylla strangari öryggis- kröfur líkt og hann þyrfti á vestrænum mörkuðum. Fimmaurabíllinn úr 1. gír Reuters Bíll fólksins Nanoar renna af færibandinu í nýju verk- smiðjunni. Verðið er svipað og á sæmilegum flatskjá.  Ný verksmiðja fyrir örbílinn Nano í gagnið  Indverska millistéttin hefur nú ráð á bíl  Salan hefur aukist hratt Alan Johnson, fv. innanríkisráð- herra Bretlands, telur að íhuga þurfi hertar regl- ur um byssueign í Bretlandi, eftir að breska innanrík- isráðuneytið skýrði frá því að Derrick Bird, 52 ára leigubílstjóri sem skaut 12 manns til bana í fyrra- dag, hefði haft leyfi fyrir haglabyssu í 15 ár og fyrir riffli frá 2007. Fjallað var um málið á vef Daily Telegraph en þar sagði að Johnson teldi brýnt að athuga andlega heilsu umsækjenda um byssuleyfi, með þeim orðum að of auðvelt væri fyrir landsbyggðarfólk að nálgast skot- vopn. David Cameron forsætisráðherra telur hins vegar að ekki beri að ganga of langt í viðbrögðum við ódæðinu en nú er komið í ljós að Bird myrti tví- burabróður sinn á miðvikudag. Skoði reglur um byssueign Derrick Bird Bretar fara yfir málin í kjölfar fjöldamorðs Heimild: ITOPF (Alþjóðleg umhverfissamtök olíuskipafyrirtækja). * Um það bil 798.000 tunnur VERSTU OLÍUSLYS SÖGUNNAR Atlantic Empress 1979 287.000 Deepwater Horizon 2010 108.000* ABT Summer 1991 260.000 Castillo de Bellver 1983 252.000 Irenes Serenade 1980 100.000 Amoco Cadiz 1978 223.000 Haven 1991 144.000 Odyssey 1988 132.000 Torrey Canyon 1967 119.000 Urquiola 1976 100.000 Sea Star 1972 115.000 Exxon Valdez 1989 37.000 STÓR OLÍUSLYS SÍÐAN 1967 Stærð olíuleka í tonnum Olíuskip 700 600 500 400 300 200 100 0 OLÍULEKI Í ÞÚSUNDUM TONNA '70 '72 '74 '76 '78 '82 '84 '86 '88'80 '92 '94 '96 '98'90 '02 '04 '06 '08'00 ABT Summer 260.000 Castillo de Bellver 252.000 Atlantic Empress 287.000 ORSÖK SLYSA Tengd rekstri 57,4% Óhöpp 21,2% Aðrar og óþekktar ástæður 21,5% Eitt af þeim málum sem hart verður tekist á um á fundinum er hvort og hversu hratt eigi að ganga til verks við að herða reglur um eiginfjárstöðu banka. Vegna versnandi ástands á fjár- málamörkuðum í Evrópu er deilt um hvort harðari reglur um þessar mundir séu ótíma- bærar þar sem þær gætu graf- ið undan mögulegum viðsnún- ingi. Ennfremur verður tekist á um kosti og galla alþjóð- legrar skattlagningar stórra banka. Eigið fé og skattlagning ÁTAKAMÁLIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.