Fréttablaðið - 12.10.2011, Blaðsíða 4
12. október 2011 MIÐVIKUDAGUR4
Múlaafrétt
E5
4
2
4 1
2
1
2 3
1
Grindarsel
Grafarsel
M
iðhúsasel
MarbælisselÓslandssel
1
2
3
4
5
1
3
2
1
3
1
6
1 2
1
2
43
Deildardalsafrétt
Hofssel
Ennissel
Unadalsafrétt
4
Unadalsafrétt
3
2
3
2
3
5
5
1
23
4
Miðhúsasel
Ytri-Tunguá
Úlfá
Úlfá
Björk
Mörk þjóðlendu skv.
úrskurði óbyggða-
nefndar
Mörk afréttar innan
þjóðlendu skv.
úrskurði óbyggða-
nefndar
Aðalkrafa ríkisins um
þjóðlendumörk
Afturkölluð krafa
ríkisins um þjóð-
lendumörk
Kröfur gagnaðila
ríkisins
Sellönd
Skörun á kröfum
gagnaðila ríkisins
Mörk sveitarfélaga
Afmörkun svæðis 7
norður
Þjóðlendumál
% 10 20 30 40 50 60
Heimild: Capacent
Meðallestur á hvert tölublað
finnur.is
MONITOR
60,05%
36,91%
31,46%
10,91%
26,1%
23,54%
8,66%
Könnun apríl til júní 2011
Könnun júlí til sept. 2011
FJÖLMIÐLAR Yfir sextíu prósent
landsmanna lesa Fréttablaðið, líkt
og verið hefur undanfarna mán-
uði, samkvæmt nýjustu prent-
miðlakönnun Capacent Gallup.
Ekki reynist vera mikill munur á
lestri prentmiðla á milli kannana,
en flestir miðlarnir dala lítið eitt
síðan síðasta könnun var gerð.
Meðallestur á Fréttablaðinu er
60,05 prósent, en var 61,3 í síðustu
könnun sem birt var fyrir þremur
mánuðum. Meðallestur Morgun-
blaðsins helst óbreyttur, fer úr 31,7
prósentum í 31,46 prósent. Lestur
Fréttatímans var 40,4 prósent í
síðustu könnun, sem gerði hann
mest lesna vikublaðið. Lestrartöl-
ur Fréttatímans hafa farið niður í
36,91 prósent, eða um þrjú og hálft
prósentustig.
Meðallestur DV mælist nú 10,91
prósent, sem er samdráttur um
rúm tvö prósentustig frá síðustu
könnun.
Lestur Viðskiptablaðsins mælist
nú 8,66 prósent, en hann var 10,2
prósent. Monitor mælist með 23,54
prósent en var 25 prósent.
Engar breytingar eru á lestri á
Finnur.is á milli kannana, en hann
hefur haldist í 26 prósentum. - sv
Ekki miklar breytingar á lestrartölum prentmiðla samkvæmt nýjustu könnun Capacent Gallup:
Langflestir landsmenn lesa Fréttablaðið
DÓMSMÁL Óbyggðanefnd hefur
úrskurðað níu svæði á Tröllaskaga
sem þjóðlendur og afrétt. Deilt var
um fjórtán svæði. Nefndin segir eitt
svæðanna að auki vera þjóðlendu og
afrétt að hluta. Fjögur svæði séu
hins vegar eignarlönd.
Óbyggðanefnd segir meðal ann-
ars að Hnjótafjall sunnan Atla-
staða í Dalvíkurbyggð sé þjóðlenda.
„Þetta teljum við vera alrangt,“
segir Einar Sigurbjörnsson pró-
fessor sem árið 2004 keypti Atla-
staði ásamt eiginkonu sinni.
„Þarna er um að ræða svæði
sem verið hefur í einkaeigu öldum
saman þótt það hafi ekki legið
undir Atlastaði fyrr en á nítjándu
öld. Það er mjög furðulegt að fara
svona með eignir sem hafa gengið
kaupum og sölum og bara þjóðnýta
á einu bretti eins og ekkert sé. Ég
geri ráð fyrir því að við munum
áfrýja þessu eins og fleiri,“ segir
Einar.
Agnar Gunnarsson, bóndi og odd-
viti Akrahrepps, kveðst langt í frá
vera sáttur með þann úrskurð að
Silfrastaðaafréttur sé þjóðlenda.
„Við teljum að hreppurinn eigi þetta
land. Þetta er alls engin þjóðlenda
heldur land sem var keypt af bónd-
anum á Silfrastöðum fyrir rúmlega
110 árum.“
Áður hefur verið úrskurðað um
annan hluta af Silfrastaðaafrétt
með sömu niðurstöðu. Akrahrepp-
ur rekur það mál nú fyrir Hér-
aðsdómi Norðurlands vestra. „Ég
reikna með að við förum sömu leið
með þetta mál. Við berum ábyrgð
á því að reyna að vernda eignir
sveitarfélagsins,“ segir oddvitinn.
Málunum fjórtán var skipt á
tvo úrskurði, annars vegar vegna
Eyjafjarðar ásamt Lágheiði en án
Almennings norðan Hrauna og hins
vegar á Skagafjörð ásamt Almenn-
ingi norðan Hrauna en án Lágheið-
ar.
Óbyggðanefnd segir Vífilsstaði/
Kot, Þorvaldsdalsafrétt, Almenning
norðan Hrauna og Kolbeinsdalsaf-
rétt vera eignarlönd. Hnjótafjall,
Skíðadalsafrétt, Möðruvallaafrétt,
Bakkasel, Stífluafrétt og Lágheiði,
Hrolleifsdalsafrétt, Flókadals-
afrétt, Unadals- og Deildardals-
afréttir, Silfrastaðaafrétt og Kross-
land séu þjóðlenda og afréttur eða
í afréttareign. Þjóðlenda en ekki
afréttur sé landsvæði norðaustan
Stífluafréttar og Lágheiðar.
Óbyggðanefnd segir að vegna
sparnaðar í ríkisfjármálum hafi
nefndin nú engin þjóðlendumál til
meðferðar. Þá muni fjármálaráð-
herra ekki lýsa kröfum ríkisins um
þjóðlendur fyrr en í fyrsta lagi 1.
janúar 2012. gar@frettabladid.is
Þjóðlenduúrskurður
á leið fyrir dómstóla
Níu af fjórtán svæðum sem deilt er um á Tröllaskaga eru þjóðlendur, úrskurðar
óbyggðanefnd. Jarðeigendur vísa niðurstöðunni til dómstóla. Vegna sparnaðar
eru engin mál nú hjá óbyggðanefnd og ríkisvaldið gerir hlé á landakröfugerð.
BANDARÍKIN Alríkislögreglan í
Bandaríkjunum hefur nú lokað á
annan tug barnaklámssíðna. 26 ára
kínverskur karlmaður, Yong Wang,
var handtekinn og ákærður fyrir
að halda úti að minnsta kosti 18
síðum frá heimili sínu í Flushing í
New York-ríki.
Síðurnar voru allar á kínversku
og er talið að Wang hafi grætt
hundruð þúsunda Bandaríkjadala
með því að selja aðgang til ein-
staklinga sem borguðu fyrir að
horfa, deila og hala niður mynd-
um af barnaklámi. Síðurnar voru
auglýstar fyrir kínverskumælandi
íbúa í Kína, Bandaríkjunum og
víðar. - sv
Á annan tug síðna lokað:
Ákærður fyrir
barnaklám
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært fimmtugan mann fyrir að
hóta aðstoðarsaksókara og lög-
reglumönnum, reyna að hrækja á
hina síðarnefndu og reyna að kasta
í þá stálstól.
Þegar aðstoðarsaksóknari
úrskurðaði manninn í gæsluvarð-
hald sagði hann: „Bíddu bara, eftir
sjö daga þegar ég losna.“
Á leiðinni á Litla-Hraun hótaði
maðurinn tveimur lögreglumönn-
um og fjölskyldum þeirra lífláti og
ofbeldi. Á heimili sínu hafði mað-
urinn ræktað nokkrar kannabis-
plöntur. - jss
Fimmtugur maður ákærður:
Hrækti, hótaði
og sveiflaði stól
SAMGÖNGUMÁL Útlit er fyrir að
umferð á höfuðborgarsvæðinu
dragist saman um allt að 2,6
prósent á árinu miðað við árið í
fyrra. Þetta kemur fram á heima-
síðu Vegagerðarinnar.
Umferðin var örlítið meiri á
höfuðborgarsvæðinu í september
en í sama mánuði í fyrra. Þrjá
af níu mánuðum ársins hefur
umferðin verið meiri en í fyrra.
Vegagerðin mælir umferðina
á Hafnarfjarðarvegi, Nesbraut
ofan Ártúnsbrekku og Reykja-
nesbraut við Dalveg. Umferð er
að meðaltali mest á haustin á
höfuðborgarsvæðinu. - þeb
Mælingar Vegagerðarinnar:
Umferð dregst
saman milli ára
NEYTENDAMÁL Neytendasamtök-
in hafa opnað vefinn leigjendur.
is, sem er leiðbeiningarsíða um
leiguíbúðir.
Neytendasamtökin hafa séð um
leiðbeiningaþjónustu fyrir leigj-
endur frá því í vor samkvæmt
samningi við velferðarráðuneyt-
ið. Með tilkomu síðunnar eiga nú
allar upplýsingar um leigumál að
vera á einum stað. Þar eru upp-
lýsingar um samningsgerð, skyld-
ur og réttindi meðan samningur
er í gildi og við lok samnings. Þá
eru útdrættir úr álitum kæru-
nefndar húsamála undanfarin ár.
- þeb
Vefur um leigumál opnaður:
Allar upplýsing-
ar á einum stað
Herti að hálsi og kýldi
Tæplega þrítugur maður hefur verið
ákærður fyrir Héraðsdómi Austur-
lands fyrir að taka í hálsmál á skyrtu
annars manns, herða að og kýla
hann síðan í andlitið með hnefa
eða olnboga. Fórnarlambið hlaut
bólguáverka og eymsl.
DÓMSMÁL
UMFERÐ Umferð gæti dregist saman um
2,6% á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
24°
13°
13°
19°
17°
13°
13°
27°
20°
22°
18°
29°
12°
19°
25°
10°Á MORGUN
10-16 m/s en
hægari inn til landsins.
FÖSTUDAGUR
8-13 m/s
S- og V-til.
9
5
3
4
3
5
5
8
9
11
1
13
15
10
8
6
8
6
9
11
15
13
10
7
9
13
11 6
5 5
4
7
HLÝNAR Í dag
blæs og rignir
hressilega S- og
SV-til en NA-
lands verður bjart
fram eftir degi. Á
morgun verður
áfram vætusamt S-
og V-til en þurrt að
kalla norðaustantil.
Á föstudaginn má
búast við skúrum,
þá verður búið að
lægja að mestu
leyti – og það
kólnar á ný!
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
GENGIÐ 11.10.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,7056
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,49 117,05
182,12 183,00
158,23 159,11
21,255 21,379
20,298 20,418
17,354 17,456
1,5193 1,5281
182,35 183,43
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is