Fréttablaðið - 12.10.2011, Blaðsíða 22
12. október 2
Edda Björg upplýsir að viðhöfð
séu fundarsköp hjá Perlufest-
inni. „Það er þroskandi að hittast
og koma í pontu, hafa skoðun og
tala og fólkinu finnst gott að hafa
ákveðnar reglur,“ segir hún. „Ef
einhver er ekki að einbeita sér þá
biður fundarstjóri um hljóð í saln-
um.“
Hópurinn stundar líka menning-
ar- og listviðburði af miklu kappi
utan Perlufestarinnar að sögn
Eddu Bjargar. „Stundum þegar
ég kem með hugmynd að sýningu
er helmingur hópsins þegar búinn
að fara,“ segir hún. „Þetta eru svo
miklir snillingar, allir með tölu.“
gun@frettabladid.is
Í Perlufestinni snýst lífið um leikhús og listir undir stjórn Eddu Bjargar sem hefur
Mörtu Nordal leikkonu sér til fulltingis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Framhald af forsíðu
NÝ SENDING!
SPARIFATNAÐUR.
SVARTAR
DRAGTIR
Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16
www.topphusid.is
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
NÆG BÍLASTÆÐI
TOPPVÖR
UR • TOP
PÞJÓNUS
TA
NÝKOMNAR Í ÚRVALI
ÚLPUR OG KÁPUR
DÚN - OG VATTKÁPUR
50% afsl.
Blaðamaðurinn Ethan Belmonte hjá
The Philippine Star sem er frétta-
veita fyrir Filippseyinga á heims-
vísu varð heldur hissa þegar hann
rakst á filippseyskan veitinga-
stað á ferðalagi sínu um Reykja-
vík. Hann skrifar um upplifun
sína af veitingastaðnum Harry‘s
á Rauðarárstíg 33 í nýlegri grein
í blaðinu sem einnig má finna á
www.philstar.com.
Þar greinir hann frá því að
filipps eyskur matur sé ekki algeng-
ur úti í hinum stóra heimi og falli
jafnan í skuggann af annarri
asískri matargerð, frá Kína, Japan
og Taílandi. Því hafi verið gleði-
legt að hitta á Harry‘s og ekki síður
skemmtilegt að sjá að staðurinn er
í öðru sæti yfir tuttugu vinsælustu
veitingastaði Reykjavíkur að mati
lesenda vefsíðunnar TripAdvisor.
com.
Listinn á vefsíðunni er að mörgu
leyti áhugaverður því þar er að
finna bæði vel þekkta og minna
þekkta veitingastaði borgarinnar.
Harry‘s er til dæmis lítið þekktur
meðal Íslendinga en trónaði lengi
vel efst á listanum. Belmonte var
sammála flestum þeim sem höfðu
gefið Harry‘s einkunn og þótti stað-
urinn einfaldur og vinalegur, mat-
seðillinn aðgengilegur og maturinn
vel lagaður.
Eigendur Harry‘s eru hjónin
Kristján Kristjánsson og Aralyn
Kristjánsson kölluð Lolong. Meðan
eiginmaðurinn sinnir gestunum
stendur Lolong í eldhúsinu og eldar
hvern réttinn á fætur öðrum.
„Við kynntumst á Íslandi fyrir
ellefu árum,“ segir Kristján en
sameiginlegur draumur um eigin
veitingastað vaknaði fljótlega. „Við
höfðum ekki efni á slíkri fjárfest-
ingu þá en fórum þess í stað út í
annan rekstur og rákum söluturn-
inn á Sunnutorgi við Langholtsveg
í átta ár,“ upplýsir Kristján en fyrir
tveimur árum ákváðu þau að láta
slag standa. „Við keyptum lítið hús-
næði við hliðina á Hótel Reykjavík
á Rauðarárstíg og stofnuðum veit-
ingastaðinn Harry‘s.“ Og hvað-
an kemur nafnið? „Það er nú bara
millinafnið mitt,“ svarar Kristján
en með nafninu vildu þau höfða
til ferðamanna af hótelum í göt-
unni enda eru ferðamenn í miklum
meirihluta gesta staðarins.
„Við höfum lítið auglýst enda
hefur gengið vel og svo erum við
aðeins með 28 sæti og níu borð
og getum því ekki annað mikilli
eftir spurn,“ segir Kristján en þau
hjónin sjá ein um staðinn. Þau
hafa fundið fyrir auknum áhuga
eftir vel gengnina á vefsíðunni Tri-
pAdvisor. „Já, nú koma ferðamenn
frá hótelum hinumegin í bænum,“
segir hann hlæjandi. En huga þau
þá ekki að útrás? „Nei, við höfum
lítinn áhuga á því. Við eigum nóg
fyrir okkur og börnin okkar tvö.
Við þurfum ekkert meir,“ segir
Kristján hógvær. solveig@frettabladid.is
Harry‘s vekur athygli
Filippseyski veitingastaðurinn Harry‘s er umfjöllunarefni blaðamanns The Philippine Star, fréttaveitu
Filippseyinga á heimsvísu. Harry‘s er í öðru sæti yfir bestu veitingastaði borgarinnar á TripAdvisor.
Lolong og Kristján reka lítinn filippseyskan veitingastað á Rauðarárstíg. Staðurinn
hefur vakið athygli á þekktri ferðamannavefsíðu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Íslendingar! Bjóðum heim er nýtt markaðsverkefni til að efla
vetrarferðaþjónustu hérlendis. Átakið byggir á því að fá Íslendinga
til að bjóða erlendum ferðamönnum að kynnast landi og þjóð
gegnum persónuleg heimboð. Nánar á inspiredbyiceland.com.
Tíu bestu veitingastaðir í
Reykjavík samkvæmt lesendum
TripAdvisor
1. Fiskfélagið, Vesturgötu 2a
2. Harry‘s, Rauðarárstíg 33
3. Café Haiti, Geirsgötu 7b
4. Austur-Indíafjelagið, Hverfis-
götu 56
5. Sjávarkjallarinn, Aðalstræti 2
6. Indian Mango, Frakkastíg 12
7. Þrír frakkar hjá Úlfari, Baldurs-
götu 14
8. Sjávargrillið, Skólavörðustíg 14
9. Nauthóll, Nauthólsvegi 106
10. Icelandic Fish & Chips,
Tryggvagötu 8
Austurvegi 9 Selfossi Motivo.is
í miklu úrvali
stærðir: S-XXL
Verið velkomin
HAUSTVÖRUR
JÓLAGJAFA
HANDBÓKIN
KEMUR ÚT 29. NÓVEMBER
MEÐAL EFNIS
Í BLAÐINU:
Jólaljósin, kökur og sætindi,
skraut og föndur, matur og borðhald
jólasiður og venjur
Bókið auglýsingar tímanlega:
Benedikt Freyr Jónsson
S: 512 5411, gsm 823 5055
benediktj@365.is
Ívar Örn Hansen
S: 512 5429 , gsm 615 4349
ivarorn@365.is
Sigríður Dagný
S: 512 5462, gsm 823 3344
sigridurdagny@365.is