Fréttablaðið - 12.10.2011, Síða 22

Fréttablaðið - 12.10.2011, Síða 22
12. október 2 Edda Björg upplýsir að viðhöfð séu fundarsköp hjá Perlufest- inni. „Það er þroskandi að hittast og koma í pontu, hafa skoðun og tala og fólkinu finnst gott að hafa ákveðnar reglur,“ segir hún. „Ef einhver er ekki að einbeita sér þá biður fundarstjóri um hljóð í saln- um.“ Hópurinn stundar líka menning- ar- og listviðburði af miklu kappi utan Perlufestarinnar að sögn Eddu Bjargar. „Stundum þegar ég kem með hugmynd að sýningu er helmingur hópsins þegar búinn að fara,“ segir hún. „Þetta eru svo miklir snillingar, allir með tölu.“ gun@frettabladid.is Í Perlufestinni snýst lífið um leikhús og listir undir stjórn Eddu Bjargar sem hefur Mörtu Nordal leikkonu sér til fulltingis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Framhald af forsíðu NÝ SENDING! SPARIFATNAÐUR. SVARTAR DRAGTIR Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16 www.topphusid.is Mörkinni 6 - Sími 588 5518 NÆG BÍLASTÆÐI TOPPVÖR UR • TOP PÞJÓNUS TA NÝKOMNAR Í ÚRVALI ÚLPUR OG KÁPUR DÚN - OG VATTKÁPUR 50% afsl. Blaðamaðurinn Ethan Belmonte hjá The Philippine Star sem er frétta- veita fyrir Filippseyinga á heims- vísu varð heldur hissa þegar hann rakst á filippseyskan veitinga- stað á ferðalagi sínu um Reykja- vík. Hann skrifar um upplifun sína af veitingastaðnum Harry‘s á Rauðarárstíg 33 í nýlegri grein í blaðinu sem einnig má finna á www.philstar.com. Þar greinir hann frá því að filipps eyskur matur sé ekki algeng- ur úti í hinum stóra heimi og falli jafnan í skuggann af annarri asískri matargerð, frá Kína, Japan og Taílandi. Því hafi verið gleði- legt að hitta á Harry‘s og ekki síður skemmtilegt að sjá að staðurinn er í öðru sæti yfir tuttugu vinsælustu veitingastaði Reykjavíkur að mati lesenda vefsíðunnar TripAdvisor. com. Listinn á vefsíðunni er að mörgu leyti áhugaverður því þar er að finna bæði vel þekkta og minna þekkta veitingastaði borgarinnar. Harry‘s er til dæmis lítið þekktur meðal Íslendinga en trónaði lengi vel efst á listanum. Belmonte var sammála flestum þeim sem höfðu gefið Harry‘s einkunn og þótti stað- urinn einfaldur og vinalegur, mat- seðillinn aðgengilegur og maturinn vel lagaður. Eigendur Harry‘s eru hjónin Kristján Kristjánsson og Aralyn Kristjánsson kölluð Lolong. Meðan eiginmaðurinn sinnir gestunum stendur Lolong í eldhúsinu og eldar hvern réttinn á fætur öðrum. „Við kynntumst á Íslandi fyrir ellefu árum,“ segir Kristján en sameiginlegur draumur um eigin veitingastað vaknaði fljótlega. „Við höfðum ekki efni á slíkri fjárfest- ingu þá en fórum þess í stað út í annan rekstur og rákum söluturn- inn á Sunnutorgi við Langholtsveg í átta ár,“ upplýsir Kristján en fyrir tveimur árum ákváðu þau að láta slag standa. „Við keyptum lítið hús- næði við hliðina á Hótel Reykjavík á Rauðarárstíg og stofnuðum veit- ingastaðinn Harry‘s.“ Og hvað- an kemur nafnið? „Það er nú bara millinafnið mitt,“ svarar Kristján en með nafninu vildu þau höfða til ferðamanna af hótelum í göt- unni enda eru ferðamenn í miklum meirihluta gesta staðarins. „Við höfum lítið auglýst enda hefur gengið vel og svo erum við aðeins með 28 sæti og níu borð og getum því ekki annað mikilli eftir spurn,“ segir Kristján en þau hjónin sjá ein um staðinn. Þau hafa fundið fyrir auknum áhuga eftir vel gengnina á vefsíðunni Tri- pAdvisor. „Já, nú koma ferðamenn frá hótelum hinumegin í bænum,“ segir hann hlæjandi. En huga þau þá ekki að útrás? „Nei, við höfum lítinn áhuga á því. Við eigum nóg fyrir okkur og börnin okkar tvö. Við þurfum ekkert meir,“ segir Kristján hógvær. solveig@frettabladid.is Harry‘s vekur athygli Filippseyski veitingastaðurinn Harry‘s er umfjöllunarefni blaðamanns The Philippine Star, fréttaveitu Filippseyinga á heimsvísu. Harry‘s er í öðru sæti yfir bestu veitingastaði borgarinnar á TripAdvisor. Lolong og Kristján reka lítinn filippseyskan veitingastað á Rauðarárstíg. Staðurinn hefur vakið athygli á þekktri ferðamannavefsíðu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Íslendingar! Bjóðum heim er nýtt markaðsverkefni til að efla vetrarferðaþjónustu hérlendis. Átakið byggir á því að fá Íslendinga til að bjóða erlendum ferðamönnum að kynnast landi og þjóð gegnum persónuleg heimboð. Nánar á inspiredbyiceland.com. Tíu bestu veitingastaðir í Reykjavík samkvæmt lesendum TripAdvisor 1. Fiskfélagið, Vesturgötu 2a 2. Harry‘s, Rauðarárstíg 33 3. Café Haiti, Geirsgötu 7b 4. Austur-Indíafjelagið, Hverfis- götu 56 5. Sjávarkjallarinn, Aðalstræti 2 6. Indian Mango, Frakkastíg 12 7. Þrír frakkar hjá Úlfari, Baldurs- götu 14 8. Sjávargrillið, Skólavörðustíg 14 9. Nauthóll, Nauthólsvegi 106 10. Icelandic Fish & Chips, Tryggvagötu 8 Austurvegi 9 Selfossi Motivo.is í miklu úrvali stærðir: S-XXL Verið velkomin HAUSTVÖRUR JÓLAGJAFA HANDBÓKIN KEMUR ÚT 29. NÓVEMBER MEÐAL EFNIS Í BLAÐINU: Jólaljósin, kökur og sætindi, skraut og föndur, matur og borðhald jólasiður og venjur Bókið auglýsingar tímanlega: Benedikt Freyr Jónsson S: 512 5411, gsm 823 5055 benediktj@365.is Ívar Örn Hansen S: 512 5429 , gsm 615 4349 ivarorn@365.is Sigríður Dagný S: 512 5462, gsm 823 3344 sigridurdagny@365.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.