Fréttablaðið - 12.10.2011, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 12.10.2011, Blaðsíða 38
12. október 2011 MIÐVIKUDAGUR22 Myndsímtöl á 0 kr. í dag! Þú greið ir f. sím an r. o g a ðr a no tk un s kv . v er ðs kr á á si m in n. is Ef þú ert með GSM hjá Símanum hringir þú myndsímtöl innan kerfis Símans fyrir 0 kr. í dag. Magnaður miðvikudagur! p 22 menning@frettabladid.is HVERFISKAFFI Í GERÐUBERGI Elsa Hrafnhildur Yeoman fer yfir sýn stýrihópsins 111 - Reykjavík á verkefni sín, núverandi stöðu og framtíðarverkefni í Breiðholtinu í kvöld klukkan 20 í Gerðuberg. Arkitektarnir Gunnar Sigurðsson og Ástríður Magnúsdóttir kynna vinnu við nýja hönnun á göngustígnum langa í Fellahverfi og einnig verður hvatt til almennrar umræðu og kallað eftir ábendingum frá íbúum um hvaða lausnir og endurbætur þeir vilja sjá í Breiðholtinu. ... fyrir Ísland með ástarkveðju Kærleikskúlan 2011 eftir Yoko Ono er komin í verslanir. Útsölustaðir Casa - Kringlunni og Skeifunni Epal - Skeifunni, Hörpu og Leifsstöð Kokka - Laugavegi Kraum - Aðalstræti og Garðatorgi Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu Líf og list - Smáralind Hafnarborg - Hafnarfirði Módern - Hlíðarsmára Blóma- og gjafabúðin - Sauðárkróki Norska húsið - Stykkishólmi Póley - Vestmannaeyjum Valrós - Akureyri Verslanir Póstsins um allt land og í netverslun á kaerleikskulan.is S T Y R K T A R F É L A G L A M A Ð R A O G F A T L A Ð R A Sigurður Skúlason leik- ari lék í sinni fyrstu bíó- mynd þegar hann var 21 árs. Myndin var ekki klár- uð fyrr en nýlega, rúmum 40 árum síðar. Heimildar- myndin Paradox, sem fjallar um það ferli, verð- ur sýnd í Bíó Paradís á næstunni. „Þetta vildi þannig til að Sigurð- ur fór að segja mér frá stuttmynd sem hann lék einu sinni í, árið 1967 þegar hann var 21 árs og nýút- skrifaður leikari. Myndin hafði verið tekin upp, en aldrei klippt eða hljóðsett,“ segir Hafsteinn Gunnar Sigurðsson kvikmyndaleikstjóri. „Myndin hafði sótt á Sigurð í öll þessi ár, þar til hann fékk loks film- urnar í sínar hendur og lét yfirfæra þær á stafrænt form. Þegar hann sýndi mér þetta varð ég strax mjög hrifinn, enda er þetta mjög fallegt svarthvítt myndefni. Þeir Níels Óskarsson og Þröstur Magnússon, sem gerðu upphaflegu myndina, eiga hrós skilið fyrir að hafa hrint þessu í framkvæmd á þessum tíma, þegar stuttmyndagerð var fáheyrð hér á landi.“ Hafsteinn og Sigurður ákváðu að gera heimildarmynd um það ferli þegar myndin er kláruð, rúmum fjörutíu árum eftir að hún var tekin upp. Þeir fengu til liðs við sig þá Daníel Bjarnason tónskáld og Kristján Loðmfjörð klippara til að eftirvinna myndina. „Úr varð mjög skemmtileg atburðarás. Það voru ekki allir sammála um hvernig ætti að koma verkinu heim og saman og ólík sjónarmið ólíkra kynslóða í gangi. Kristján og Daníel voru til að mynda hrifnir af aldri film- unnar og voru að vinna með ryk og rispur á henni, á meðan þeir Níels og Þröstur voru frekar til í að láta hreinsa upp myndina. Þetta endur- speglar meðal annars ólík viðhorf ólíkra kynslóða sem koma fram í myndinni.“ Í lok heimildarmyndarinnar gefur svo að líta stuttmyndina eftir að búið er að glæða hana lífi. Paradox var frumsýnd á heimildar myndahátíðinni Skjald- borg í sumar og jafnframt sýnd á Reykjavík International Film festi- val, RIFF, sem lauk nú í byrjun október. Á föstudaginn kemur hún í almennar sýningar í Bíó Para- dís. Þess má geta að þar er einn- ig önnur kvikmynd eftir Hafstein í sýningum, Á annan veg, sem er leikin bíómynd í fullri lengd. holmfridur@frettabladid.is Heimildarmynd um stutt- mynd sem aldrei varð til FYRSTA HLUTVERKIÐ Sigurður Skúlason var 21 árs þegar hann lék í sinni fyrstu stuttmynd. Myndin var hins vegar ekki kláruð fyrr en nýlega. Hér er hann í hlutverki einnar af þremur aðalpersónum myndarinnar. LEIKSTJÓRAR Hafsteinn Gunnar Sigurðs- son og Sigurður Skúlason leikstýra heimildarmyndinni Paradox, sem fjallar um stuttmynd sem Sigurður lék í ungur að árum en var aldrei kláruð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.