Morgunblaðið - 07.07.2010, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 7. J Ú L Í 2 0 1 0
Stofnað 1913 156. tölublað 98. árgangur
LJÓSHÆRÐA
POPPKRÚTTIÐ
SEM STUÐAR
SÉRSAUMAÐUR
HÁTÍSKUFATNAÐUR
ÚR FÍNUSTU EFNUM
TÖF VEGNA
TÚLKUNARDEILU
ÍSLENSKI ÞJÓÐBÚNINGURINN 10SUÐURLANDSVEGUR 18JESSICA SIMPSON 29
Fréttaskýring
eftir Andra Karl
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Tekjur sveitarfélaga af fasteigna-
sköttum jukust að raunvirði um 318%
frá árinu 1988 til ársloka 2009, sam-
kvæmt útreikningum sem byggjast á
upplýsingum frá Hagstofu Íslands.
Tekjuaukningin er talsvert umfram
hækkun fasteignaverðs á höfuðborg-
arsvæðinu, en frá árinu 1994 hefur
það hækkað um rúmlega 200%.
Þessar tölur taka til heildarhækk-
unar á tekjum af fasteignaskatti allra
sveitarfélaga landsins. Hækkun
tekna byggist á hærra fasteignamati,
einkum á höfuðborgarsvæðinu þar
sem mikil fasteignabóla er nýsprung-
in. Þar sem fasteignamatið hækkaði
minna jukust tekjurnar einnig minna.
Fasteignaskattar urðu á þessum
árum veigameiri tekjustofn en fyrr.
Þannig jukust heildartekjur sveitar-
félaga um 266% frá 1988 til loka árs
2009, töluvert minna en tekjur af fast-
eignasköttum. Langstærstur hluti
skattstofns fasteignagjalda er á höf-
uðborgarsvæðinu, en sveitarfélögin
þar hafa lækkað álagningarhlutfall
fasteignaskatts nokkuð á síðustu ár-
um þegar verðhækkun á fasteignum
var sem hröðust. Lækkunin hefur þó
ekki verið til samræmis við verð-
hækkun fasteigna. Tekjuaukning af
fasteignasköttum samanborið við al-
menna hækkun fasteignaverðs ber
því skýrt vitni.
MTekjur margfaldast »16
Stórgræddu á bólunni
Tekjur sveitarfélaga af fasteignaskatti jukust um 318% að raunvirði frá 1988
Skattarnir hækkuðu hraðar en heildartekjur Fasteignaverð hækkaði minna
Fasteignaskattar
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
6.
15
3
í milljónum króna
7.9
79
8.
38
1
9.
33
4
10
.1
45
11
.1
60
12
.6
98 15
.7
05 19
.6
16 24
.6
78
25
.7
27
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins,
Ólöf Nordal, er ósammála þeim til-
mælum Fjármálaeftirlitsins og
Seðlabanka Íslands að vextir af
gengistryggðum lánum skuli miðast
við vexti Seðlabanka en ekki samn-
ingsvexti. „Ég lít svo á að samn-
ingsvextir eigi að gilda,“ segir hún í
samtali við Morgunblaðið.
Ekki ráðlegt að hætta að
greiða af lánum
Lögmaður hvetur skuldara til að
hætta ekki að greiða af lánum sín-
um. Ráðlegast sé að greiða annað-
hvort samkvæmt tilmælunum eða
upprunalegu samningsskilmálunum
en þá með fyrirvara um óvissu um
inntak greiðsluskyldu og endur-
kröfu ofgreidds fjár. Skuldurum sé
að vissu marki í sjálfsvald sett hve
mikið þeir greiða meðan réttar-
óvissa varir. Annar lögmaður telur
tilmælin ekki bindandi fyrir skuld-
ara enda valdheimildir óljósar.
Þór Saari, þingmaður Hreyfing-
arinnar, bendir fólki á að ofgreiða
ekki af lánum sínum. Lántakar
skuli borga samkvæmt upp-
runalegri greiðsluáætlun en ekki
meira. »6
Ósátt
við til-
mælin
Morgunblaðið/Ómar
Nei Vaxtakjörum gengistryggðra
lána hefur töluvert verið mótmælt.
Telur FME og SÍ
byggja á hæpnum
lagagrundvelli
Hollendingar gulltryggðu Evrópu nítjánda heimsmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu með því að sigra Úrúgvæ, síðasta fulltrúa Suður-Ameríku á HM,
3:2, í bráðfjörugum undanúrslitaleik í Höfðaborg í gærkvöld.
Hollendingar, sem síðast léku til úrslita um titilinn í Argentínu árið
1978, mæta annaðhvort Spánverjum eða Þjóðverjum í úrslitaleiknum
næsta sunnudag. » Íþróttir
Holland í úrslit í fyrsta skipti frá 1978
Reuters
Formlegar
viðræður milli
lífeyrissjóðanna
og ríkisins um
að sjóðirnir
fjármagni fram-
kvæmdir fyrir
um 30 milljarða
hefjast í næstu
viku. Ákvörðun
um þetta var tekin á fundi full-
trúa lífeyrissjóðanna og ríkisins í
gær.
Náist samkomulag fljótlega
gætu framkvæmdir hafist þegar í
haust en gert er ráð fyrir að
þungi framkvæmdanna verði
mestur á árunum 2011-2014. »2
Ræða um 30 millj-
arða lánveitingar
Framlög rekstraraðila
Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
þ.e. ríkis og Reykjavíkur-
borgar, munu hækka talsvert á
næsta ári vegna hærri leigu í
Hörpu en í Háskólabíói.
Mennta- og menningar-
málaráðherra segir að hið
opinbera muni koma til
móts við hljómsveitina
vegna hækkunar á leigu-
verðinu og að það hafi
lengi legið fyrir. Talsverður
munur er á því leiguverði
sem Sinfónían greiðir nú
og því sem verður í Hörpu.
Talið er að leigan þar verði
um 50 milljónum hærri en í
Háskólabíói. Á síðasta ári
námu framlög ríkis og borgar
til hljómsveitarinnar 675 millj-
ónum króna.
Aðstandendur Sinfóníu-
hljómsveitarinnar eru bjart-
sýnir á að sértekjur hljóm-
sveitarinnar muni hækka
þegar hún flytur í nýtt og
bætt húsnæði. „Við væntum
þess að hljómsveitin geti
aukið sértekjur sínar að
einhverju marki í nýju tón-
listarhúsi,“ segir fram-
kvæmdastjóri Sinfóníunn-
ar. »15
Hærri leiga vegna Hörpu
Hlaupa undir bagga með Sinfóníunni