Fréttablaðið - 26.10.2011, Qupperneq 10
26. október 2011 MIÐVIKUDAGUR10
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 112841
SUCCESS AND FAILURE IN ENGINEERING:
A Paradoxical Relationship
Dr. Henry Petroski,
öndvegisfyrirlesari Verkfræði- og
náttúruvísindasviðs, flytur erindið:
Dr. Henry Petroski er verkfræðingur og prófessor í byggingarverkfræði
og sagnfræði við Duke-háskólann í Suður-Karólínufylki í Bandaríkjunum.
Hann hefur ritað fjölda bóka um verkfræði, nýsköpun og hlutverk
mistaka í verkfræðilegri hönnun.
Fyrirlesturinn er í röð öndvegisfyrirlestra á aldarafmæli Háskóla Íslands
og fer fram í Hátíðasal skólans, Aðalbyggingu, laugardaginn 29. október nk.
kl. 14.00.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
2Gravérmaskiner og mærkningsudstyr
Gravograph heimsækir Ísland.
Gravograph mun frá 30. október til 3. nóvember heimsækja Reykjavík,
Ísland. Við munum búa á Icelandair hótel í Reykjavík þar sem við
höfum sýningarherbergi með eftirfarandi tæknibúnaði.
LS100 C 35Watt
M40
M20 RV
Þar að auki munum við, ef það er hægt, heimsækja þá viðskiptavini í
Reykjavík sem eftir því óska. Ef þú vilt fá okkur í heimsókn, þá ertu
beðin/n um að hafa samband við Gravograph dk í síma (+45) 4613
9600 eða
í síma: (+45) 4031 9021 og leggja inn ósk um að við heimsækjum þig.
Við munum gera okkar besta til að heimsækja viðskiptavini mánudaginn
31. október.
Gravograph dk A/S - Industrisvinget 9 - DK-4030 Tune, Danmark
Tölvupóstur: gravo@gravograph.dk
Komið og sjáið sýninguna okkar - eða við getum komið til ykkar!
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00
VIÐSKIPTI Samkeppniseftirlitið er
með rekstur Arion banka á Penn-
anum til athugunar og kannar
hvort nauðsynlegt sé að setja eign-
arhaldi bankans á Pennanum frek-
ari skilyrði. Þetta kemur fram í til-
kynningu sem eftirlitið sendi frá
sér í gær.
Þar segir einnig að Arion banki
hafi haldið því fram að eftirlitið
hafi ekki lagaheimildir til að setja
rekstri bankans
á Pennanum
frekari skilyrði.
Hann hafi þó
lýst yfir vilja til
að ræða hugs-
anlegar úrbæt-
ur. Sú rannsókn
stendur enn yfir
og hefur Sam-
keppniseftir-
litið meðal ann-
ars kallað eftir upplýsingum um
fjárhagsleg samskipti bankans og
Pennans.
Fréttablaðið greindi frá því í
síðustu viku að Eignabjarg, félag í
100% eigu Arion banka, hefði aukið
hlutafé sitt í Pennanum um 200
milljónir króna í september. Nýi
Penninn, sem var stofnaður í apríl
2009, tapaði samtals rúmum millj-
arði króna á árunum 2009 og 2010
þrátt fyrir að skuldir upp á um 8
milljarða króna hafi verið skild-
ar eftir í þrotabúi gamla Pennans
og að Arion banki hafi breytt um
1,2 milljarða króna skuld í hlutafé
þegar félagið var sett á fót.
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri
Arion banka, segir að sala Penn-
ans hafi tekið allt of langan tíma.
„Stundum fara hlutirnir ekki eins
og til var ætlast. Ég verð að segja
að það hefur gengið alveg ein-
staklega illa að koma Pennanum
í söluhæft ástand. Fyrir því eru
ýmsar ástæður. Þetta er flókn-
ari rekstur en margur annar. Það
voru ákveðnar fyrirstöður varð-
andi leigusamninga og ýmislegt
slíkt. En burtséð frá öllu þessu þá
hefur þetta bara tekið allt of lang-
an tíma. Ég er þeirrar skoðunar.“
Hann vill þó árétta að Arion
reki ekki Pennann heldur virði
bankinn armslengdarsjónarmið
í þeim efnum. „Rekstur Pennans
er í ákveðnum strúktúr eins og
hjá öðrum fyrirtækjum sem við
höfum tekið yfir. Þar er haldið
utan um þessa eignarhluti, fólk
fengið í stjórn fyrirtækjanna og
stjórnendur ráðnir til að reka þau.
Við erum ekki hér alla daga að
reka bókabúð. Armslengdarsjónar-
mið eru mjög í heiðri höfð í þessu.“
Penninn sendi einnig frá sér
yfirlýsingu í gær til að svara því
sem stjórnendur fyrirtækis kalla
aðdróttanir í garð Pennans. Þar
kemur meðal annars fram að
rekstur Pennans sé jákvæður og
að engir peningar frá Arion banka
hafi farið í rekstur fyrirtækisins.
Þá hafnar Penninn því alfarið að
vera í „mjúkum faðmi bankans“.
thordur@frettabladid.is
Kanna rekstur
Arion banka
á Pennanum
Samkeppniseftirlitið ætlar að kanna hvort nauð-
synlegt sé að setja eignarhaldi Arions á Pennanum
frekari skilyrði. Bankastjóri Arion segir söluferli
Pennans hafa tekið „allt of langan tíma“.
HLIÐ VIÐ HLIÐ Penninn er að koma sér fyrir í þriggja hæða skrifstofuhúsi við hlið
húsgagnaverslunarinnar Casa í Skeifunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VESTFIRÐIR Unnið er að stofnun
samtaka áhugafólks um hrein-
dýr á Vestfjörðum. Samtökin
munu beita sér fyrir því að gerð-
ar verði rannsóknir á smithættu
milli sauðfjár og hreindýra. Þetta
kemur fram á fréttavef Bæjarins
besta.
Þá vilja samtökin að gerð verði
rannsókn á gróðurfari á Vest-
fjörðum í þeim tilgangi að athuga
hvort nægjanlegt æti sé fyrir
hreindýr á svæðinu. Stofnfund-
ur verður haldinn laugardaginn
3. desember og geta þeir orðið
félagsmenn sem eiga lögheimili á
Vestfjörðum, eiga þar fasteignir
eða jarðir. - sv
Áhugafólk um hreindýr á Vestfjörðum:
Stofna hreindýrasamtök
HREINDÝR Áhugamenn um hreindýr á
Vestfjörðum vilja láta gera rannsóknir á
smithættu milli sauðfjár og hreindýra.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Við erum ekki hér alla
daga að reka bóka-
búð. Armslengdarsjónarmið
eru mjög í heiðri höfð í þessu
HÖSKULDUR ÓLAFSSON
BANKASTJÓRI ARION BANKA
HÖSKULDUR
ÓLAFSSON