Fréttablaðið - 26.10.2011, Side 31
MARKAÐURINN 7MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 201126. OKTÓBER 2011 MIÐVIKUDAGUR
FJÁRVAKUR ER EKKI EINS OG ÖNNUR
FJÁRMÁLAÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI
Á ÍSLANDI
SÍMI 50 50 250
FJARVAKUR@FJARVAKUR.IS
WWW.FJARVAKUR.IS
ÞESSI TVENN
GLERAUGU
ERU EKKI
ALVEG EINS
Önnur þeirra hafa aldrei séð úrræði til
að lækka kostnað fyrirtækja og ná fram
hagræðingu.
Hin eru eins og Fjárvakur. Þau búa að
mikilli reynslu þegar kemur að því að
koma auga á skilyrði fyrir hagræðingu
og meiri árangri í rekstri.
Fjárvakur sérhæfir sig í umsjón bókhalds, launavinnslu og annarra
fjármálaferla fyrir meðalstór og stór fyrirtæki. Fagfólk okkar
leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu, áreiðanlegar
upplýsingar og að ná árangri með viðskiptavinum okkar.
Með því að útvista fjármálaferlum til Fjárvakurs geta fyrirtæki
dregið úr kostnaði og lagt meiri áherslu á kjarnastarfsemi sína.
Aukin áhersla á kjarnastarfsemi stuðlar að meiri árangri í rekstri.
Okkar kjarnastarfsemi er umsjón fjármálaferla. Hver er þín
kjarnastarfsemi?
KYNNTU ÞÉR HVAÐ VIÐ GETUM GERT FYRIR ÞITT FYRIRTÆKI
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
S
5
30
76
1
0.
20
11
Hlutafé í Existu, sem nýverið
var endurnefnt Klakki ehf., var
aukið um 6,4 milljarð króna í lok
ágúst. Allt hlutaféð var greitt með
skuldajöfnun. Samkvæmt upp-
lýsingum frá félaginu var um að
ræða stóran hóp kröfuhafa, bæði
innlendra og erlendra, sem lýstu
kröfum sínum á Klakka/Existu
fyrir allnokkru og hafa nú fengið
umræddar kröfur viðurkenndar.
Klakki /Exista gekk í gegn-
um nauðasamning haustið 2010.
Í honum fólst meðal annars að
kröfuhafar félagsins breyttu um
10% af samningskröfum Existu í
hlutafé og tóku félagið yfir í kjöl-
farið. Eftirstandandi samnings-
kröfum var breytt í lán að fjár-
hæð 122 milljarðar króna. Ljóst
er að kröfuhafarnir hafa afskrif-
að stórar fjárhæðir í endurskipu-
lagningunni því samkvæmt síð-
asta birta ársreikningi námu
skuldir Existu 486 milljörðum
króna í lok árs 2009. Ársreikning-
ur Klakka/Exista fyrir árið 2010
og árshlutareikningur þess fyrir
fyrri hluta ársins 2011 liggja báðir
fyrir. Framkvæmdastjóri Klakka/
Existu vildi ekki afhenda reikn-
ingana þegar eftir því var óskað.
6,4 milljarða skuldum breytt í nýtt hlutafé
Hagdeild ASÍ er heldur svart-
sýnni á hagvaxtarhorfur hér
á landi en aðrir spáaðilar. ASÍ
birti í gær hagspá fyrir næstu
ár, en þar er spáð 2,4 prósenta
hagvexti á þessu ári, 1 prósents
hagvexti á næsta ári, 2,7 pró-
senta hagvexti árið 2013 og loks
1,5 prósenta hagvexti árið 2014.
Spá ASÍ er í takti við aðrar
spár um hagvöxt á þessu ári en
er nokkuð svartsýnni um horfur
á næstu árum en Seðlabankinn,
AGS, OECD og Íslandsbanki,
sem hafa til að mynda spáð hag-
vexti á bilinu 1,6 til 3,1 prósents
árið 2012.
Í skýrslu hagdeildar ASÍ segir
að verstu afleiðingar hrunsins
séu komnar fram og hægur
efnahagsbati sé fram undan.
Hagur heimilanna vænkist
nokkuð á næstu misserum en at-
vinnuleysi haldist hátt og verði
enn um 5 prósent í lok árs 2014.
Ekki er í spánni gert ráð fyrir
stórum framkvæmdum á næstu
árum. Verði framkvæmdir við
álver í Helguvík og orku- og
iðjuver á Norðurlandi að veru-
leika yki það hins vegar hagvöxt
áranna um 3 prósentustig.
Spáir hægum
vexti næstu ár
ÓLAFUR DARRI ANDRASON Aðal-
hagfræðingur ASÍ segir deyfð blasa
við næstu árin nema fjárfesting aukist
verulega. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRN Pétur J. Eiríksson e-r stjórnarformaður Klakka/Existu.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
(AGS) og ríkisstjórn Íslands
munu í sameiningu halda al-
þjóðlega ráðstefnu um þann lær-
dóm sem hægt er að draga af
efnahagsbata Íslands í Hörpu á
fimmtudag. Á meðal þeirra sem
halda framsögu eru Nóbelsverð-
launahafinn Paul Krugman og
hagfræðingarnir Willem Buiter
og Simon Johnson. Þeir munu
meðal annars ræða um hvort
önnur lönd geti dregið lærdóm
af þeirri leið sem farin var
hérlendis.
Tilefni ráðstefnunar er lok
efnahagsáætlunar Íslands og
AGS. Henni lauk með síðustu
endurskoðun hennar í lok ágúst
síðastliðins. Íslendingar fengu
samtals 2,1 milljarð dala, um
240 milljarða króna, að láni
meðan á áætluninni stóð.
Paul Krugman
talar í Hörpu
NÓBELSVERÐLAUNAHAFI Krugman
verður á ráðstefnunni á morgun.