Morgunblaðið - 07.07.2010, Side 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2010
Í dag, miðvikudag, kl. 16.45-18.45
bjóða Kaninn og Síminn upp á tón-
leika í Nauthólsvík. Meðal þeirra
sem koma fram eru Elektra, Jónsi í
Svörtum fötum, Haffi Haff, Ís-
lenska sveitin, Friðrik Þór, Skíta-
mórall, Buff, Jón Jónsson og Magni.
Þá verður boðið upp á Segway-rall,
strandfótbolta og pylsur og drykki.
Kl. 17.30 verður svo haldið Foss-
vogssund þar sem öllum er velkom-
ið að taka þátt í sjósundi frá Naut-
hólsvík yfir í Kópavog og aftur til
baka. Sjósundið er haldið í sam-
starfi við sjósunds- og sjóbaðsfélag
Reykjavíkur. Gæslubátar verða á
sjónum og verður vel tekið á móti
sjósundsfólki með heitum potti á yl-
ströndinni.
Morgunblaðið/Ómar
Sjósund Nýtur aukinna vinsælda.
Stuð í Nauthólsvík
Á morgun, fimmtudag, kl. 15.00
gengur Anna Þorbjörg Þorgríms-
dóttir sagnfræðingur með gestum
um Nesstofu á Seltjarnarnesi og
fjallar um sögu hússins og búsetu
landlækna og lyfsala í Nesi.
Einnig verður sagt frá
hugmyndum um uppbyggingu
safnasvæðis Seltirninga í Nesi og
staldrað verður við sýninguna
„Saga og framtíð“, sem nú stend-
ur í Nesstofu. Þar er gerð grein
fyrir helstu niðurstöðum fjöl-
margra fornleifarannsókna sem
farið hafa fram á vestursvæðum
Seltjarnarness og varpa ljósi á
búsetu í Nesi frá landnámi og
fram á 20. öldina.
Leiðsögn um
Nesstofu á morgun
Á morgun, fimmtudag, kl. 20 verð-
ur Ný dögun með fund fyrir syrgj-
endur í safnaðarheimili Háteigs-
kirkju. Margir syrgjendur finna
fyrir litlum stuðningi á sumrin.
Þeir sem veita stuðning eru þá oft í
sumarfríi og félagsstarf fyrir syrgj-
endur liggur niðri. Úr því vill Ný
dögun bæta og hafa opið hús einu
sinni í mánuði yfir sumarið.
Á fundinum getur fólk komið
saman, spjallað, miðlað reynslu,
eða hlustað og fengið sér kaffi.
Venjulega er byrjað með stuttu inn-
leggi en svo er samveran í höndum
þeirra sem koma en þó er enginn
knúinn til að tjá sig. Samtalið er
bundið trúnaði.
Rætt um sorgina
Á döfinni er að
loka Austur-
stræti, Póst-
hússtræti og
hluta Hafnar-
strætis í
Reykjavík fyr-
ir bílum og
verða göt-
urnar ein-
göngu opnar
gangandi og hjólandi vegfarendum
í sumar.
Þá hefur grasbalinn, sem settur
var upp tímabundið á Lækjartorgi
á síðasta ári, nú lokið hlutverki sínu
og hyggst borgin sá næstu grænu
fræjum á Hverfisgötunni. Tvö stæði
við Hverfisgötu 42 verða tyrfð í lok
þessarar viku og um leið helguð
fólki en ekki bílum, segir í frétt frá
Reykjavíkurborg.
Lokað fyrir bíla
í miðborginni
STUTT
Engjateigi 5 • Sími 581 2141
40% afsláttur
af
stígvélum
www.hjahrafnhildi.is
Mjódd, sími 557 5900
Útsalan er hafin
Verið
velkom
nar
,
Smáralind, sími 554 3960 • Kringlunni, sími 533 4533
Tax-free-bomba
Fríhafnarverð
Verið velkomi
n
Fríhafnarverð á öllum vörum
í verslunum okkar þessa helgi
miðvikudag til sunnudags
VIÐTAL
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Júlíus Már Baldursson, bóndi á
Tjörn á Vatnsnesi á Norðvestur-
landi, hefur ræktað landnámshænur
í rúm 30 ár. Í mars sl. missti Júlíus
allt sitt í stórbruna. Hænsnabúið
ásamt útihúsum og öllu innanhúss
brann til grunna.
„Ég vaknaði við sprengingar, kl.
rúmlega fjögur um nóttina. Það
heyrðust drunur um allt og stein-
húsið hristist og skalf,“ segir Júlíus.
Hann hafði nýlega lagst til rekkju
eftir að hafa komið frá Akureyri. „Ég
kom heim um hálftvö um nóttina og
þá komu kisurnar mínar á móti mér.
Ég gaf þeim að éta, klappaði þeim og
talaði við þær. Síðan kíkti ég aðeins
inn í hænsnahúsið og fór svo inn til
að undirbúa mig fyrir svefninn. Ég
fór að sofa í síðasta lagi tvö. Þá var
ekkert óeðlilegt, engin lykt og ekk-
ert skrítið. Ég vaknaði kl. rúmlega
fjögur, var búinn að sofa stutt og var
hálfruglaður, ég hélt að einhver væri
uppi á þaki. Ég fór fram og þá blasti
eldhafið við mér. Það var allt alelda,“
segir Júlíus. Hann hljóp út til að at-
huga hvort hann gæti gert eitthvað,
þar sem allt var orðið rafmagnslaust
en náði sambandi við Neyðarlínuna í
gegnum farsíma.
Eldurinn tók allt saman
Allar hænur Júlíusar, um 200 tals-
ins, fjórir kettir hans og á annað
hundrað ungar ásamt 970 eggjum
brunnu inni. „Það vantaði þrjá daga
upp á að ungarnir kæmu úr klaki, ég
var farinn að heyra tíst í eggjunum,“
útskýrir hann. „Þetta fór allt.“ Úti-
húsin, fjós, haughús, hlaða, véla-
geymsla og tvöfaldur bílskúr brann
ásamt öllu sem þar inni var að finna.
„Allur búnaður, tæki og tól eyðilagð-
ist, bara allt sem ég átti,“ segir Júl-
íus. Íbúðarhús hans skemmdist einn-
ig en skipta þarf um allt rafmagn,
gólfefni, eldhúsinnréttingu og endur-
mála. „Ég bý svona í hálfgerðum
rústum,“ segir Júlíus í gamni.
Nú er búið að hreinsa svæðið og
setja möl yfir en stórt plan er þar
sem byggingarnar voru áður.
Aðspurður hvert næsta skref verði
segist Júlíus ætla að halda ótrauður
áfram og byggja búið aftur. „Lífið
heldur áfram þrátt fyrir áföll. Þá er
bara að bíta á jaxlinn og halda áfram.
Það þýðir ekkert annað,“ segir hann
hugrakkur. „Auðvitað held ég
áfram.“
VB-Landbúnaður ákvað að styðja
við bakið á hugrökkum hugsjóna-
manni og færði honum útungunarvél
af gerðinni Fiem Maya en verðmæti
hennar er um 120.000 krónur. Júlíus
er öryrki eftir veikindi og slys og
hefur því ekki mikið á milli hand-
anna. VB-Landbúnaður ásamt
fleirum hvetur þá sem mögu-
lega geta til að
styrkja Júlíus í
uppbyggingunni.
Stofnaður hefur
verið reikningur
vegna landnámshæn-
unnar í Sparisjóði
Húnaþings og er sá
reikningur eign
landnámshænunnar.
Reikningurinn er
1105-15-200235 og
kennitalan er
011260-2259.
Stórbruni Júlíus horfir á bæinn sinn brenna og slökkviliðið á þakinu. Brunahrúga Skemmdir sjást á íbúðarhúsi Júlíusar ásamt brunaleifunum.
Eldurinn eirði engu nema hug-
sjón og hugrekki Júlíusar Más
Veglegur styrkur til að rækta aftur landnámshænur á Tjörn á Vatnsnesi
Íslenska landnámshænan er
talin hafa borist til landsins
með landnámsmönnum á 10.
öldinni og hefur fylgt okkur
og verið okkur til nytja síðan.
Hún er smávaxin miðað við
aðrar hænsnategundir. Land-
námshænur eru harðgerðar,
duglegar og mjög litskrúð-
ugar. Þær eru mann-
elskar og auðvelt að
temja þær og kenna
ýmislegt. Þær byrja
yfirleitt varp á
fimmta til sjötta mán-
uði. Stofninn hefur
einangrast að hluta til
og haldið sínum erfða-
genum í gegnum tíð-
ina.
Litskrúðugur
hænsnastofn
LANDNÁMSHÆNSNI
Rangur
myndartexti
Í frétt í Morgunblaðinu á laugardag
um íslenska landnema í Noregi var
rætt við Eyþór Jóhannesson for-
mann Íslendingafélagsins í Roga-
landi. Undir mynd af Eyþóri sem
fylgdi viðtalinu var hins vegar röng
merking sem hér með leiðréttist og
beðist er velvirðingar á.
Föðurnafn
misritaðist
Í frétt í laugardagsblaðinu um kap-
ellu sem rísa mun á Ofanleiti í
Vestmannaeyjum misritaðist föð-
urnafn eins þeirra þriggja sem eru
í forsvari fyrir verkefninu. Rétt
nafn er Gunnlaugur Grettisson.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Skekkja í
útreikningi lána
Villa var í útreikningum með frétta-
skýringu um breyttar afborganir af
gengistryggðum lánum sem birtist í
föstudagsblaði Morgunblaðsins.
Niðurstöður um verðtryggt lán frá
2007 voru af þessum sökum rangar
en rétt er að afborgun af slíku láni
næmi í dag 181.000 kr. og skuldin
25,8 milljónum.
LEIÐRÉTT
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111