Morgunblaðið - 07.07.2010, Page 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2010
Hópur mótmælenda safnaðist saman
fyrir framan Stjórnarráðið á meðan
ráðherrar ríkisstjórnarinnar fund-
uðu þar innandyra í gærmorgun.
Mótmælendur kröfðust aðgerða í
kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar í
gengislánamálinu svokallaða.
Létu mótmælendur í ljós óánægju
sína með tilmæli Seðlabankans og
Fjármálaeftirlitsins til
fjármálafyrirtækja um vaxtakjör
sem koma eigi í stað gengistrygg-
ingar og erlends vaxtaviðmiðs geng-
istryggðra lána.
Framan af var hópurinn heldur fá-
mennur eða um 30 manns. En þegar
nær dró hádegi færðu mótmælendur
sig að Seðlabanka Íslands. Í kjölfarið
fjölgaði í hópnum sem þá óx ásmeg-
in. Hrópuðu mótmælendur vígorð
gegn Seðlabankanum, ríkisstjórn-
inni og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Boðað hafði verið til mótmælanna
í gegnum samskiptasíðuna Face-
book. Nokkrir kunnuglegir mótmæl-
endur létu sjá sig. Má þar nefna
Birgittu Jónsdóttur, þingmann
Hreyfingarinnar, og Sturlu Jónsson,
vörubifreiðarstjóra.
Nokkrir mótmælendur kveiktu í
skoteldum en að mestu leyti fóru
mótmælin friðsamlega fram. Lög-
regla hafði varann á og var með tölu-
verðan viðbúnað við Seðlabankann.
Pössuðu lögregluþjónarnir að allt
færi skikkanlega fram.
Fjöldi erlendra ferðamanna var í
miðbænum meðan á mótmælunum
stóð. Fylgdust margir þeirra með af
athygli og mynduðu allt í bak og
fyrir. hjaltigeir@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skilaboð Mótmælin hófust við Stjórnarráðshúsið. Þá var mótmælt við Seðlabankann og skrifstofu Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins. Léttara var yfir mótmælunum en í fyrradag og kom ekki til pústra milli mótmælenda og lögreglu.
Taktfastir mótmæl-
endur börðu bumbur
Mótmæli vegna
tilmæla Seðla-
bankans og FME
Morgunblaðið/Ómar
Ósátt Mótmælendur létu óánægju sína í ljós með tilheyrandi pottaglamri.
ferð til að auðvelda för andafjölskyldunnar á áfangastaðinn.
Ungarnir gengu í humátt á eftir mömmu sinni alla leið frá
Bæjarins bestu í Tryggvagötu, um Pósthússtræti, framhjá
Dómkirkjunni, um Templarasund og Vonarstræti og loks að
Það voru sannkallaðar hvunndagshetjur unga parið sem ljós-
myndari Morgunblaðsins fylgdist með aðstoða andamömmu
og ungana hennar fimm við að komast í Tjörnina í Reykjavík í
gærdag. Á meðan hann hvatti hópinn áfram stöðvaði hún um-
Tjörninni. Sundspretturinn var kærkominn eftir langa för. Af
myndum að dæma virðast andamamman og ungarnir ekki
hafa miklar áhyggjur þótt mannfólkið þurfi að hægja örlítið á
til þess að fjölskyldan komist leiðar sinnar.
Morgunblaðið/Ómar
Ungamamma lét stöðva umferð til að koma ungviðinu á flot
Menningarleg samvinna Íslands og
Kína, með áherslu á bókmenntir,
ekki síst ljóðlist, verður aukin með
tilkomu hins kínversk-íslenska
menningarsjóðs. Sjóðnum er ætlað
að starfa í tíu ár og hefur verið tryggt
fjármagn til starfseminnar að upp-
hæð ein milljón bandaríkjadala, eða
tæpar 130 milljónir íslenskra króna,
að því er segir í tilkynningu frá sjóðn-
um.
Í dag klukkan 8 verður blaða-
mannafundur í Peking í Kína þar
sem sjóðurinn verður kynntur.
Hvatamaður og bakhjarl sjóðsins
er kínverski kaupsýslumaðurinn og
ljóðskáldið Huang Nubo og fyrirtæki
hans, Zhongkun Group. Nubo var
samtíða Hjörleifi Sveinbjörnssyni
kínverskuþýðanda við nám í Pek-
ingháskóla og herbergisfélagi hans
þar á áttunda áratugnum.
Fyrsta verkefni sjóðsins verður
ljóðaþing í Norræna húsinu í byrjun
október. Til ljóðaþingsins er boðið
fjórum íslenskum skáldum auk fimm
frá hinum norrænu ríkjunum. Þingið
sækja sex kínversk ljóðskáld og tvö
japönsk. Í tengslum við ljóðaþingið
kemur út rit með völdum ljóðum
þátttakenda og þýðingum á þeim.
Stjórn sjóðsins skipa Huang Nubo,
forstjóri Zhongkun Group, sem er
formaður sjóðsins, Kristín A. Árna-
dóttir, sendiherra Íslands í Kína, og
Xie Mian prófessor, forstöðumaður
Ljóðaseturs Pekingháskóla.
Sjóðnum hefur verið sett
verkefnisstjórn á Íslandi. Stjórnar-
menn eru Hjörleifur Sveinbjörnsson,
formaður, Max Dager, forstjóri Nor-
ræna hússins í Reykjavík, dr. Geir
Sigurðsson, forstöðumaður Konfúsí-
usarstofnunar á Íslandi, Auður Edda
Jökulsdóttir, menningarfulltrúi ut-
anríkisráðuneytisins, og Þorgerður
Agla Magnúsdóttir, framkvæmda-
stjóri Bókmenntasjóðs.
Styrkir menn-
ingarsamvinnu
Íslands og Kína
Leggur 130 milljónir í menningarsjóð
Fjarskiptasjóður aflaði sér umsagnar
fjármálaráðuneytisins áður en samn-
ingur um háhraðanet í dreifbýli var
boðinn út í febrúar árið 2008. Sér-
fræðingar ráðuneytisins töldu í um-
sögn sinni að útboðið stangaðist ekki
á við ríkisstyrkjareglur ESB.
Vodafone hefur stefnt sjóðnum
vegna samningsins sem var gerður
við Símann eftir útboðið, en Fjar-
skiptasjóður segir að verulega hafi
skort á að fjarskiptafyrirtækin
myndu standa við áformaða uppbygg-
ingu háhraðaneta sinna, eftir útboðið.
Þau hefðu ekki haft áform um upp-
byggingu á þeim svæðum sem útboð-
ið átti að taka til. Í kjölfarið hafi farið
fram viðræður við Símann, sem var
lægstbjóðandi í útboðinu.
Vodafone gagnrýnir Fjarskipta-
sjóð fyrir að hafa ekki tryggt reiki-
aðgang að sendum Símans á viðkom-
andi svæðum, en sjóðurinn segir að
viðræður um slíkan aðgang hafi verið
í gangi á milli Vodafone og Símans á
sínum tíma og hann því ekki skipt sér
frekar af því.
Telja útboðið í
samræmi við reglur
Morgunblaðið/Golli