Morgunblaðið - 07.07.2010, Síða 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2010
Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Hvolsvöllur | Um þessar mundir
stendur yfir úti-ljósmyndasýning í
miðbæ Hvolsvallar. Það eru fjórtán
áhugaljósmyndarar úr Rangárþingi
eystra sem sýna 27 myndir á þessari
sýningu sem til stendur að verði
fram á haust.
Innblástur sóttur
í sveitarfélaginu
Myndirnar eru allar teknar í
sveitarfélaginu og er efnisval nokk-
uð fjölbreytt en gosið í Eyjafjalla-
jökli er ljósmyndurum eðlilega hug-
leikið.
Sýningunni hefur verið komið upp
bak við Landsbankann á Hvolsvelli
en þar eru borð og bekkir og er góð
hugmynd fyrir ferðalanga að staldra
við og borða nestið sitt og upplifa um
leið rangæska náttúru og mannlíf á
ljósmyndum. Menningarráð Suður-
lands og Rangárþing eystra styrkja
þessa sýningu en hópurinn sem
stendur að henni er með síðu á
Flickr sem kallast 860+.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
Hópurinn Áhugaljósmyndahópurinn 860+ sem sýnir ljósmyndir sínar undir berum himni um þessar mundir.
Áhugaljósmyndarar
sýna úti á Hvolsvelli
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1122
MOGGAKLÚBBURINN
HEPPINN ÁSKRIFANDI FÆR HELGARFERÐ FYRIR TVO
TIL BORGAR SEM ALLA DREYMIR AÐ SJÁ
Ferðavinningur í ágúst er helgarferð fyrir tvo með Heimsferðum til einhverrar af
eftirtöldum borgum: Barcelona, Madrid, Prag, Búdapest, Ljubljana, Rómar eða
Montreal.Vinningshafi velur borgina, sem hann langar til að heimsækja, og innifalin
í vinningi eru tvö flugsæti og gisting í tvíbýli með morgunverði á fjögurra stjörnu hóteli
í þrjár eða fjórar nætur (eftir því hvaða borg verður fyrir valinu).
Hvert dreymir þig um að fara? Til Barcelona, Madrid,
Prag, Búdapest, Ljubljana, Rómar eða Montreal?
Við drögum um borgarvinninginn eftir verslunarmannahelgi og þá getur þú
svo sannarlega dottið í lukkupott Moggaklúbbsins.
Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Í hverjum mánuði er dregið út nafn heppins áskrifanda sem hlýtur veglegan ferðavinning.Vinningur felur í sér þær
ferðir sem skilgreindar eru í þessari auglýsingu en gildir ekki sem úttekt á öðrum ferðum á vegum Heimsferða.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/M
O
R
50
57
6
06
/1
0
01.09.2010
Fjórir ökumenn voru teknir á höfuð-
borgarsvæðinu um helgina fyrir að
aka undir áhrifum fíkniefna og níu
voru teknir fyrir ölvunarakstur.
Ökumaður sem reyndist vera und-
ir áhrifum fíkniefna gerði tilraun til
að komast undan lögreglu og var
veitt eftirför í Grafarholti. Þegar
lögregla náði að elta ökuþórinn uppi
gerðu hann og tveir farþegar tilraun
til að komast undan á hlaupum.
Mennirnir náðust og reyndust hafa
bæði fíkniefni og töluvert af pen-
ingum á sér sem grunur leikur á að
séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu, að
því er segir í tilkynningu lögreglu.
Þrír próflausir undir áhrifum
Þrír þeirra sem teknir voru undir
áhrifum áfengis voru próflausir, þar
af var einn aðeins 15 ára og á því tvö
ár í að öðlast ökuréttindi. Sá var
stöðvaður á vespu rétt við Hlemm
aðfaranótt laugardags. Hann var
ekki einn á ferð því jafnaldri hans
sat aftan á vespunni.
15 ára fullur
á vespu með
vin aftan á
Fjórir ökumenn und-
ir áhrifum fíkniefna
Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra, sem er nú í opinberri
heimsókn í Króatíu, segir að ekkert
efnahagshrun hefði orðið á landinu
fyrir tveimur árum ef Ísland hefði
verið hluti af Evrópusambandinu og
evrusvæðinu þá.
„Það er ljóst að fjárhagslegar af-
leiðingar kreppunnar hefðu orðið
mun […] mildari fyrir Ísland,“ hefur
AFP-fréttastofan eftir Össuri, sem
ræddi við blaðamenn í Zagreb í gær
þar sem Össur sat fund með Gordan
Jandrokovic, utanríkisráðherra Kró-
atíu. „Ef Ísland ætlar að standa jafn-
fætis nágrannalöndum sínum í
Norður-Evrópu […] þá verður það
að ganga í ESB,“ sagði hann.
Össur átti einnig fund með forseta
landsins, dr. Ivo Josipovic, svo og
öðrum ráðherrum í gær.
Össur verður viðstaddur undir-
ritun samstarfssamnings milli verk-
fræðistofunnar Eflu og Energy
Institute Hrovje Pozar um jarð-
hitaverkefni í Króatíu. Össur heldur
til Ungverjalands í dag.
ESB hefði
mildað kreppu
Heilsast Össur Skarphéðinsson og
Gordan Jandrokovic á fundi í gær.