Fréttablaðið - 26.10.2011, Síða 39

Fréttablaðið - 26.10.2011, Síða 39
MIÐVIKUDAGUR 26. október 2011 23 saltdreifarar Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ. Sími 480-0000 · www.aflvelar.is - sala - varahlutir - þjónusta NÀTTÚRULEG VELLÍÐAN ÞURRKUR KLÁÐI SVEPPASÝKINGAR? Veltir þú fyrir þér hvað þú ert að nota á þitt viðkvæmasta svæði LÍFRÆN dömubindi og tíðatappar án klórs án ilmefna án plastefna Tónlist ★★★ Kebab diskó Orphic Oxtra Flott framhald Hljómsveitin Orphic Oxtra vakti athygli í fyrra bæði með líflegu tónleikahaldi og fyrstu plötunni sinni sem bar nafn sveitarinnar, en á henni var fjörmikil danstónlist af balkönskum uppruna. Á Kebab diskó heldur sveitin áfram á svip- uðum slóðum, en nú blandar hún fleiri bragðtegundum við balkan- og klezmer-grunninn. Það eru þrettán meðlimir í Orphic Oxtra á plötunni og þeir sýna fín tilþrif á hljóðfærin. Lögin ellefu eru frumsamin. Þau standa öll ágætlega fyrir sínu, en eru samt miseftirminnileg. Mín uppáhalds- lög á plötunni eru titillagið Kebab diskó, Banvænn bílaeltingarleikur á götum Damaskusborgar, Maritsa og Skeletons Having Sex On a Tin Roof, en það síðastnefnda er að einhverju leyti byggt á samnefndu lagi með Swords of Chaos. Kebab diskó er fín plata sem sýnir að það er mikill hugur í með- limum Orphic Oxtra og þeir eru opnir fyrir því að taka nýja strauma inn í tónlistina. Það verður spenn- andi að fylgjast með því hvernig tónlist sveitarinnar þróast á næstu plötum. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Balkansveitin Orphic Oxtra rúllar plötu númer tvö upp með stæl. Vandræðagemlingurinn Lindsay Lohan deyr ekki ráðalaus en nýj- ustu fregnir herma að hún hafi tekið tilboði Hughs Hefner um að fletta sig klæðum fyrir Playboy. Samkvæmt vefsíðunni tmz. com hljóðar tilboðið upp á rúmar 115 milljónir íslenskra króna og er þegar búið að taka hluta af myndunum. Lohan hefur ekki átt sjö dag- ana sæla undanfarið heldur verið inn og út úr meðferðum og fangelsum. Í vikunni sást til hennar á líkhúsi í Los Angeles þar sem hún sinnir samfélags- þjónustu til að bæta fyrir brot sín en Lohan hefur margoft verið tekin með eiturlyf í fórum sínum og fyrir að keyra undir áhrifum. Fjölmiðlar vestanhafs telja að nektarmyndatakan í Playboy sé liður í að lappa upp á feril Lohan en einnig að leikkonan sé peninga- þurfi enda ekki unnið neitt að ráði í mörg ár. Lindsay Lohan flettir sig klæðum NEYÐIN KENNIR … Leikkonan Lindsay Lohan ætlar að sitja í fyrsta sinn fyrir allsnakin í tímaritinu Playboy. NORDICPHOTOS/GETTY Noel enn hundfúll Noel Gallagher segir það útilokað að hann komi aftur fram með hljómsveitinni Oasis. Rætt hefur verið um að sveitin fagni 20 ára afmæli plötunnar (What‘s the Story) Morning Glory? árið 2015 með tónleikum en Noel hyggst ekki taka þátt í þeim. Bróðir hans Liam megi hins vegar vel halda slíka tónleika kjósi hann svo. „Hann má spila plötuna ef hann vill. Mér er sama,“ segir Noel. Liam hafði áður lýst yfir áhuga á að koma aftur fram með bróður sínum. Noel hætti í Oasis árið 2009 eftir rifrildi við bróður sinn. „Það er ástæða fyrir því að ég hætti í hljómsveitinni og hún stendur enn,“ segir Noel, sem gaf á dögunum út fyrstu sólóplötu sína. Liam gaf fyrir skemmstu út plötu með hljómsveitinni Beady Eye. NOEL GALLAGHER Vill ekki troða upp með bróður sínum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.