Morgunblaðið - 07.07.2010, Qupperneq 15
stjóri Sinfóníunnar, segir að áætla
megi að leigukostnaður muni hækka
um u.þ.b. 50 milljónir króna árlega
eftir að hljómsveitin flytur í Hörpu.
Hann bendir þó á að aukni kostn-
aðurinn sé ekki bara vegna stór-
bættrar aðstöðu, heldur einnig vegna
þess að ýmiss konar rekstrarútgjöld
séu innifalin í leigunni, m.a. vegna
miðasölu, tækni- og sviðsvinnu og
leigu ýmiss konar tæknibúnaðar.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, segir að
það hafi lengi legið fyrir að hið opin-
bera myndi þurfa að auka framlög sín
til Sinfóníunnar til að mæta hækk-
andi kostnaði við leiguna. Á síðasta
ári námu framlög ríkisins og Reykja-
víkurborgar 675 milljónum
króna, samkvæmt upplýs-
ingum frá fram-
kvæmdastjóra.
„Við höfum gert ráð
fyrir því í okkar fjár-
hagsáætlun að við
komum til móts við
leiguna, enda hefur
það legið lengi fyrir
[að hún muni
hækka]. Þannig að
við eigum von á því að
það muni ganga upp,“
segir Katrín.
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2010
Á næsta starfsári mun Sinfóní-
an ekki hafa sérstakan aðal-
stjórnanda. Rumon Gamba hef-
ur gegnt stöðunni síðastliðin
sjö ár, en hann lét af störfum í
síðasta mánuði. Að sögn Sig-
urðar Nordal hefur arftaki
Gamba ekki enn verið ráðinn.
„Við höfum verið að líta í
kringum okkur og prófa. Það
er ekki komið á það stig að til-
kynna eitthvað enn sem komið
er, en listinn hefur þrengst,“
segir Sigurður. Næsta vetur
mun hinn virti rússneski
stjórnandi Gennady Rozhdest-
vensky vera aðalgesta-
stjórnandi hljómsveitar-
innar. Rozhdestvensky,
sem er á áttræðisaldri,
stjórnaði SÍ síðasta vet-
ur og var yfir sig hrif-
inn af frammistöðu
hennar.
Aðalstjórnandi
ráðinn 2011
RUMON GAMBA HÆTTUR
Gennady
Rozhdest-
vensky
FRÉTTASKÝRING
Gísli Baldur Gíslason
gislibaldur@mbl.is
Senn líður að lokum samstarfs Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands og Há-
skólabíós. Hljómsveitin hefur átt að-
setur í kvikmyndahúsinu um
áratugaskeið en næsti vetur verður
sá síðasti sem „Melabandið“ mun
verja í Vesturbænum.
Næsta vor mun Sinfónían hreiðra
um sig í nýrisinni Hörpu við Reykja-
víkurhöfn. Hljóðfæraleikarar og unn-
endur hljómsveitarinnar bíða í eftir-
væntingu eftir að fyrstu tónarnir ómi
í nýja salnum, sem fróðir menn telja
að hafi burði til þess að verða sá allra
besti sem völ er á.
Framlög ríkisins hækka
Aðsetursskipti Sinfóníunnar verða
ekki aðeins dans á rósum. Ljóst er að
Harpa er talsvert dýrara húsnæði og
um leið tæplega helmingi stærra.
Vandinn sem steðjar að rekstri
sveitarinnar er því tvíþættur. Annars
vegar þarf að fjármagna leiguna og
hins vegar þarf að selja fleiri miða.
Aðalsalurinn mun taka 1800 manns í
sæti.
Sigurður Nordal, framkvæmda-
„Mér finnst í sjálfu sér jákvætt að
hljómsveitin skuli vera að fá heimili
til lengri tíma þó að það kalli á hærri
leigu,“ bætir ráðherrann við.
Bjartsýnn á auknar tekjur SÍ
„Harpa skapar ný tækifæri fyrir
hljómsveitina, hvað varðar aðstöðu
gesta og stærð salar. Við væntum
þess að hljómsveitin geti aukið sér-
tekjur sínar að einhverju marki í nýju
tónlistarhúsi,“ segir Sigurður.
Hann segir enga ákvörðun hafa
verið tekna um hvort miðaverð muni
hækka. „Salurinn er annars eðlis en
Háskólabíó. Uppsetning salarins er
með öðrum hætti og væntanlega
verður meiri dreifing í miðaverði
heldur en er í Háskólabíói.“
Rekstur Sinfóníunnar hefur gengið
vel upp á síðkastið. Tónleikagestum
fjölgaði um þrjátíu prósent á síðasta
starfsári og kom niðurskurður hins
opinbera ekki að sök. Sigurður segir
umsjónarmanna sveitarinnar bíða
ærið verkefni.
„Það er undir okkur komið, sem
rekum hljómsveitina, að laða áheyr-
endur inn í salinn. Það eina sem er í
okkar huga er að standa undir þeim
kröfum sem þetta leggur á hljóm-
sveitina – að sem flestir komi í salinn
og heyri tónlist sem höfðar til þeirra.“
Framlög munu hækka
Sinfóníuhljómsveitin leikur í síðasta sinn í Háskólabíói í vetur Hið opinbera
mun koma til móts við hærra leiguverð Nýr aðalstjórnandi tekur við á næsta ári
Morgunblaðið/Ómar
Tilvonandi heimili Framkvæmdir standa nú yfir í aðalsal Hörpu. Sviðið er fyrir miðju en svalir og önnur sætapláss hafa ekki enn verið endanlega mörkuð.
675
milljónir króna voru framlag
ríkisins og Reykjavíkurborgar
til Sinfóníunnar á síðasta ári.
Fimmtíu
milljóna króna hækkun verður
á húsnæðisleiguverði Sinfóníunnar
þegar hún flytur í Hörpu.
‹ RÍKI OG BORG ›
»
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Umferðin á þjóðvegum landsins í
júní dróst mikið saman miðað við
sama mánuð fyrir ári, samkvæmt
nýjum tölum frá Vegagerðinni. Talið
er á 16 völdum stöðum á þjóðveg-
inum og er samdrátturinn 8,7%. Á
þessum sömu talningastöðum er
samdrátturinn 4,6% fyrstu sex mán-
uði ársins miðað við sömu mánuði í
fyrra.
Umferðin minnkar á öllum taln-
ingarstöðunum 16 sem hefur ekki
áður gerst á þessum árstíma. Útlit
er því fyrir að umferðin í ár verði
töluvert minni en í fyrra og svipuð
eða jafnvel minni en hún var árið
2006.
Er þetta mesti samdráttur í um-
ferð milli ára fyrir sex fyrstu mánuði
ársins frá því að Vegagerðin hóf að
taka saman umferðartölur á þessum
stöðum. Þetta er einnig í fyrsta sinn
sem samdráttur er á öllum lands-
svæðum bæði frá áramótum og svo
milli júnímánaða.
Samdrátturinn á Suðurlandi er
það mikill að það jaðrar við að kall-
ast hrun þar sem um er að ræða
21,3% minni umferð, segir Vega-
gerðin. „Ekki er hægt að sjá í fljótu
bragði hvað veldur þessum mikla
samdrætti á Suðurlandi því ekki er
að sjá að leiðrétting vegna mikillar
aukningar árin á undan sé skýring.
Hvort þetta kunni að tengjast eld-
gosinu á einhvern hátt er ekki gott
að segja til um en það gæti verið
einn af áhrifaþáttum,“ segir Vega-
gerðin.
Samdráttur milli júnímánaða er
mun minni í öðrum landshlutum.
Næstmestur er hann á Austurlandi,
8,7%, 5,6% á höfuðborgarsvæðinu en
minnstur er hann á Norðurlandi,
1,6%.
Vegagerðin segir að júnímánuður
gefi góða vísbendingu um hvernig
sumarið muni koma út og sé tekið
mark á því nú stefni í að sumarið
verði það næstlakasta frá árinu 2005.
„Það er því nokkuð ljóst að miklar
líkur eru á að minni umferð verði á
landinu árið 2010 en árið 2009. Það
er eiginlega bara spurning hvort
umferðin verði meiri eða minni en
árið 2006,“ segir í frétt Vegagerðar-
innar.
Miklu færri bílar á þjóðvegunum en í fyrra
Samdrátturinn á Suðurlandi er það mikill að það jaðrar við að kallast hrun, segir Vegagerðin
Umferð Færri bílar eru á vegunum.
Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur þyk-
ir það miður að Oddný Sturludóttir
hefji störf sín sem formaður
menntaráðs Reykjavíkurborgar
með stolnum fjöðrum og minnist
ekki orði á að tekin hafi verið
ákvörðun um mál
Rauðhóls fyrir
kosningar. Í
Morgunblaðinu í
gær birtist um-
fjöllun um leik-
skólann Rauðhól
sem fær að lík-
indum að nýta
skólastofur Norð-
lingaskóla fyrir
fimm ára börn.
Þorbjörg bendir
á að þann 6. maí
hafi borgarráð
samþykkt tillögu Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur þess efnis að leik-
skólasviði væri falið að tryggja öll-
um börnum sem verða tveggja ára
á þessu ári leikskólapláss í haust.
Leikskólasviði var þá falið í sam-
ráði við fjármálaskrifstofu að und-
irbúa tillögu um nauðsynlega auka-
fjárveitingu vegna meiri fjölda
leikskólabarna en forsendur fjár-
hagsáætlunar gerðu ráð fyrir.
Í kjölfarið var gert ráð fyrir
tveim viðbótardeildum við leikskól-
ann Rauðhól ásamt fleiri sambæri-
legum breytingum á öðrum leik-
skólum til að koma um eitt hundrað
börnum fyrir. jonasmargeir@mbl.is
Ákvörðun
tekin fyrir
kosningar
Mál Rauðhóls
samþykkt 6. maí
Þykir miður
að Oddný
hefji störf
með stolnum
fjöðrum.
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að
taka á móti flóttamönnum frá Kól-
umbíu og eru vonir bundnar við að
fólkið verði komið hingað til lands
síðsumars eða snemma í haust.
Miðað er við að taka á móti fimm
einstaklingum að þessu sinni.
Málið er á forræði utanríkis-
ráðherra og félagsmálaráðherra og
hyggst utanríkisráðuneytið veita 20
milljónir króna í þetta verkefni.
„Við viljum helst að þetta verði
síðsumars eða snemma hausts, með-
al annars vegna skólamála barna,“
segir Mörður Árnason, formaður
flóttamannanefndar.
Mörður bendir á að Ísland hafi
tekið á móti erlendum flóttamönnum
í hálfa öld.
Síðast var tekið á móti 29 palest-
ínskum flóttakonum frá Al-Waleed-
flóttamannabúðunum í Írak árið
2008. Ekki var tekið á móti neinum á
síðasta ári vegna efnahags-
ástandsins. jonpetur@mbl.is
Kólumbískt
flóttafólk
væntanlegt