Morgunblaðið - 07.07.2010, Blaðsíða 27
Menning 27FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2010
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins,
Ungfónía, heldur tvenna tónleika
um helgina. Þeir fyrri verða
haldnir í Siglufjarðarkirkju á
sunnudaginn, 11. júlí, kl. 14.00 og
þeir seinni í Neskirkju degi síðar
kl. 20.00.
Á tónleikunum flytur hljóm-
sveitin þrjú íslensk verk en tvö
þeirra voru samin sérstaklega fyr-
ir hljómsveitina. Hafliði Hall-
grímsson hefur nýlokið við kons-
ert sem nefnist Svíta op. 44 fyrir
trompet, tvö klarinett og strengi
en einleikari í því verki er Jóhann
Már Nardeau trompetleikari.
Tryggvi M. Baldvinsson samdi
Sprett fyrir Ungfóníu árið 2006 og
þriðja íslenska verkið er Minni Ís-
lands eftir Jón Leifs. Háskólakór-
inn tekur þátt í flutningi verks
Jóns Leifs, verks sem byggist á
íslenskum þjóðlögum. Þá mun
hljómsveitin einnig leika fyrstu
sinfóníu Beethovens en stjórnandi
er Gunnsteinn Ólafsson.
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
er skipuð nemendum úr tónlistar-
skólum á höfuðborgarsvæðinu og
við erlenda tónlistarháskóla.
Morgunblaðið/Golli
Tónskáld Hafliði Hallgrímsson.
Nýtt verk
eftir Haf-
liða flutt
Ungfónía heldur
tvenna tónleika
Marilyn Monroe
er án efa ein
þeirra kvenna
heimssögunnar
sem oftast hafa
verið ljósmynd-
aðar og áður
óþekktar myndir
af henni skjóta
reglulega upp
kollinum. Má þar
nefna að í ár voru fjórar myndir
seldar af Monroe sem ljósmynd-
arinn Len Steckler tók af henni árið
1961 og höfðu ekki sést áður og í
fyrra birti LIFE-tímaritið áður
óséðar myndir af leikkonunni. Nú
hefur bókaútgáfan Farrar, Straus
og Giroux tilkynnt fyrirhugaða út-
gáfu bókar í haust sem ber titilinn
Fragments, eða Brot, en í henni
verður að finna ljósmyndir af
Monroe sem fáir munu hafa séð.
Öllu merkilegra þykir þó að í bók-
inni verður einnig að finna texta
eftir Monroe, prósa sem útgáfan
segir að muni varpa nýju ljósi á
hina kynþokkafullu stjörnu.
Bók með
prósa
Monroe
Marilyn Monroe
Sýning Andreu Maack, Eau de
parfum, verður opnuð á morg-
un kl. 17 í Spark Design Space
á Klapparstíg 33. Á sýningunni
verða frumsýnd ilmvötn sem
Andrea hefur unnið í samstarfi
við franska
ilmvatnsgerðarfyrirtækið apf
arómes & parfums. Þrjú ilm-
vötn verða á sýningunni og
bera þau heitin Smart, Craft
og Sharp. Andrea hefur í sam-
vinnu við innanhússarkitektinn Ingibjörgu Agnesi
Jónsdóttur og fatahönnuðinn Katrínu Maríu
Káradóttur hannað umgjörð og útlit vörunnar.
Ilmvötnin verða til sölu meðan á sýningu stendur
og einnig fylgihlutir framleiddir fyrir sýninguna.
Myndlist
Ilmvötnin Smart,
Craft og Sharp
Andrea Maack
myndlistarmaður.
Annað kvöld kl. 20.00 bjóða
Borgarbókasafn, Ljós-
myndasafn, Listasafn og
Minjasafn Reykjavíkur til
kvöldgöngu undir yfirskriftinni
Reykjavík safarí, þar sem
menningarlíf miðborgarinnar
verður kynnt áhugasömum á
fimm tungumálum: ensku,
spænsku, lithásku, taílensku og
pólsku. Þátttakendur geta valið
það tungumál sem hentar þeim
og verður þeim skipt í hópa eftir tungumálum. Í
lok göngunnar hittast hóparnir í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsi en þar verður boðið upp
á hressingu og danskennarinn Etna Lupita Mas-
tache mun stíga dans. Þátttaka er ókeypis.
Menningarganga
Menning kynnt á
fimm tungumálum
Etna Lupita
Mastache
Þann 9. júlí kl. 18.00 opnar i8
Gallery fyrstu einkasýningu
myndlistarkonunnar Elínar
Hansdóttur hjá galleríinu. Um
sýninguna segir m.a. í tilkynn-
ingu: „Rétt eins og lína er
teikning eftir punkt, flötur
teikning eftir línu og rými
teikning eftir flöt, er fyrir-
brigði í rými teikning eftir tím-
ann. Tíminn virðist hreyfast
því við getum illa upplifað það
sem var, er og verður sem eina heild.“
Elín býr og starfar í Berlín. Verk hennar hafa
verið sýnd víða og hefur hún vakið athygli fyrir
innsetningar á sýningum hér á landi sem erlendis.
Sýningin er hluti af verkefninu Villa Reykjavík.
Myndlist
Fyrsta einkasýning
Elínar í i8
Elín Hansdóttir
myndlistarmaður.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Smekkleysa gaf út í vikunni geisla-
diskinn Hymnodia sacra en á honum
má finna lög úr samnefndu íslensku
handriti frá árinu 1742 sem er
stærsta nótnahandrit frá 18. öld sem
varðveist hefur hér á landi, ritað af
sr. Guðmundi Högnasyni, presti í
Vestmannaeyjum. Kammerkórinn
Carmina og kammerhópurinn Nor-
dic Affect flytja lögin en þau eru út-
sett af Árna Heimi Ingólfssyni, tón-
listarfræðingi og stjórnanda Carm-
inu. Árni Heimir hefur stundað
rannsóknir til margra ára á íslensk-
um nótnahandritum og hafa tvær
plötur þegar verið gefnar út með tón-
list fluttri eftir slíkum handritum,
Tvísöngur árið 2004 og Melódía árið
2007. Nú hefur sú þriðja bæst við.
Í handritinu Hymnodia sacra er að
finna 101 lag en um fimmtungur
þeirra rataði á plötuna. Árni vann
upp úr handritinu um 30 lög og setti í
upprunalegar útsetningar. Lög þessi
hafa Carmina og Nordic Affect flutt
á tónleikum og nú er meirihluti
þeirra kominn á plötu.
Tíu ára vinna að baki
Hymnodia sacra er latína og þýðir
heilagur sálmasöngur en lögin eru
með íslenskum texta. Árni segir
lagavalið á plötunni hafa farið eftir
því hvaða lög kórnum hafi þótt henta
best til söngs. Að vísu hafi íslensk
tónskáld útsett nokkur lög úr hand-
ritinu og þau orðið fleyg í kóraheim-
inum en hann hafi tekið meðvitaða
ákvörðun um að sleppa þeim á plöt-
unni. „Þau eiga bara sitt líf og þurfa
enga kynningu frá okkur. Ég ákvað
frekar að taka þessi sem væru minna
þekkt og fólk hefði ekki heyrt áður til
að gefa þeim meira tækifæri,“ segir
Árni. Í raun liggi um tíu ára vinna að
baki disknum, hann hafi unnið lengi
að því að koma þeim lögum á disk
sem fundist hafi í íslenskum hand-
ritum, lögum sem legið hafi í þagn-
argildi í mörg hundruð ár. Sú vinna
hafi verið afar skemmtileg og nú hafi
þrír diskar verið gefnir út með lögum
úr handritum, allt frá elsta tvísöngs-
handritinu frá árinu 1473 til þess
yngsta, frá 1742. Skömmu eftir það
hættu Íslendingar að skrifa nótna-
handrit.
„Mér líður ákaflega vel með að nú
sé þessu verkefni lokið, mér finnst
við geta litið með stolti yfir þetta, öll
þessi lög sem fólk er aðeins farið að
taka eftir núna og eru m.a.s. farin að
rata á efnisskrá hjá öðrum söngv-
urum sem er bara frábært – að við
skulum hafa átt þátt í því að gefa
þeim líf aftur,“ segir Árni. „Ég er
óskaplega ánægður með þennan disk
og finnst hann eiginlega það besta
sem við höfum gert,“ segir hann um
plötuna nýju.
Spurningar sem ekki er alltaf
hægt að svara
Árni segist með rannsóknum sín-
um á íslenskum nótnahandritum
hafa reynt að varpa ljósi á úr hvaða
jarðvegi þessi handritakúltúr spretti,
af hverju fólk hafi verið að skrifa
nótnahandrit á Íslandi, hverjir hafi
sungið þessi lög og hvernig. „Það
vakna svo margar spurningar og þó
maður geti ekki alltaf fundið svör við
öllum þýðir það samt ekki að maður
eigi ekki að spyrja spurninganna,“
segir Árni. Hann segir að útsetn-
ingar Carminu og Nordic Affect séu
ekki alltaf 100% sagnfræðilegar,
hópurinn gefi ímyndunaraflinu líka
lausan taum-
inn.
–En það er
engin leið að
vita hversu út-
breidd þessi
lög úr Hym-
nodia sacra
voru, hversu margir kunnu þau?
„Nei, nei, nema auðvitað að maður
getur séð það svolítið á því hvað lögin
eru í mörgum handritum. Sum
þeirra eru kannski bara í Hymnodia
sacra en svo eru önnur sem eru
kannski í 10-15 handritum í viðbót
sem skrifuð eru á ólíkum stöðum á
landinu. En samt veit maður auðvit-
að aldrei nákvæmlega hver út-
breiðslan var.“
Tónlistarlíf á Íslandi í
lægð undir lok 18. aldar
–Með þessum diski er ákveðnum
þríleik lokið hjá þér, eða hvað?
„Já, þarna er endapunkturinn rek-
inn. Við tókum Tvísönginn og síðan
kom 17. öldin með Melódíu og 18.
öldin með þessu. Eftir þetta tímabil
fer tónlistarlíf á Íslandi í mikla lægð
og handritakúltúrinn deyr út, tónlist-
arkennsla sem verið hafði einhver við
latínuskólana leggst af og þeir flytj-
ast til Reykjavíkur eftir móðuharð-
indin. Þessi ákveðna tónlistarmenn-
ing deyr út þannig að með þessari
útgáfu segjum við málinu lokið.“
Carmina heldur útgáfutónleika í
Þjóðmenningarhúsinu á morgun kl.
20.30 og er aðgangur ókeypis. Carm-
ina heldur svo til Þýskalands og flyt-
ur lög af Melódíu og Hymnodiu sacra
á bókmennta- og tónlistarhátíðinni
Wege durch das Land, á sérstökum
Íslandsdegi 10. júlí. Carmina mun á
hátíðinni halda tónleika í Dalheim-
klaustrinu í Ostwestfalen-Lippe en
þar mun íslenskur ábóti hafa dvalið á
12. öld. Hljómsveitin Amina mun
einnig halda tónleika þar.
„Með þessari útgáfu
segjum við málinu lokið“
Tónlist unnin eftir nótnahandritinu Hymnodia sacra gefin út á plötu
Kammerkórinn Carmina og kammerhópurinn Nordic Affect flytja lögin
Kammerkórinn Kórfélagar í Carminu í sínu fínasta pússi.
Stofnaður 2004
» Geisladiskurinn Melódía
með Carmina hlaut Íslensku
tónlistarverðlaunin árið 2007.
» Kammerkórinn Carmina var
stofnaður 2004 með það að
markmiði að flytja kórtónlist
endurreisnarinnar á Íslandi.
» Gramophone, stærsta og
virtasta tímaritið á sviði klass-
ískrar tónlistar í Evrópu, valdi
Melódíu sem eina af plötum
síðasta árs en á því ári var
henni dreift erlendis.
Ólafi tekst líka að
láta manni finnast
sem maður sé á rólegum
stað eftir mikil átök 32
»