Morgunblaðið - 07.07.2010, Page 28
28 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2010
Ensk-franska hljómsveitin The
Fancy Toys mun ásamt Ragnheiði
Gröndal söngkonu og Guðmundi
Péturssyni gítarleikara efna til
fjögurra tónleika á Norðurlandi og
í Reykjavík dagana 7.-10. júlí. Með
þeim í för verða kvikmyndatöku-
menn, sem hyggjast gera
heimildarmynd um Íslandsferðina.
Þess má geta að sveitin The
Fancy Toys hefur áður komið til Ís-
lands. Einn liðsmanna sveitarinnar,
James Duncan, spilaði þar að auki
með Jethro Tull-foringjanum Ian
Anderson á tónleikum í Reykjavík
fyrir skömmu.
The Fancy Toys með
tónleika 7.-10. júlí
Fólk
Föstudaginn næstkomandi, 9. júlí, og laugardag-
inn 10. júlí mun söngkonan Bryndís Ásmunds-
dóttir flytja Janis Joplin-lög á tónleikum söng-
konunni frægu til heiðurs á skemmtistaðnum
Sódómu Reykjavík, ásamt hljómsveit skipaðri
Inga Birni Ingasyni á bassa, Kristni Snæ Agnars-
syni á trommur, Agli Antonssyni á hljómborð og
Ragnari Erni Emilssyni og Kjartani Baldurssyni
á gítar.
„Ég tók þátt í sýningunni sem fjallaði um líf
hennar, ferðalag bæði í einkalífi og músík, og ég
er mikill Janis Joplin-aðdáandi og hef alltaf ver-
ið. Ég hef hlustað á hana síðan ég var krakki og
lít mjög upp til hennar músíklega séð. Allur þessi
kraftur sem hún hafði og þessi innlifun er nátt-
úrlega bara eitthvað sem er ekki hægt að snerta
en það snertir fólk og það heillar mig,“ segir
Bryndís. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Janis
Joplin-heiðurstónleikar líta dagsins ljós, því eftir
sýninguna sem haldin var í Íslensku óperunni
fyrir skemmstu hefur Bryndís tekið þátt í nokkr-
um slíkum tónleikum og nú síðast á Græna hatt-
inum á Akureyri þar sem Bryndís býr. „Ég ætla
að skjótast suður fyrir þessa tónleika en ég var
síðast á Græna hattinum og það gekk alveg ótrú-
lega vel. Andrea Jóns, rokkamma Íslands, verð-
ur þarna og ef eitthvað er, þá á hún Janis. Hún
hjálpaði okkur gríðarmikið þegar við vorum að
rannsaka Janis fyrir sýninguna í Íslensku óp-
erunni. Þetta verður mikil tónlistarveisla, alveg
geggjað kvöld, ég er viss um það,“ segir Bryndís
að lokum. gea@mbl.is
Janis Joplin-heiðurstónleikar á Sódómu
Morgunblaðið/Ómar
Janis Joplin Bryndís Ásmundsdóttir og Ilmur
saman í uppsetningunni í Óperunni.
Það verður nóg um að vera á fjöl-
skylduhátíðinni Húnavöku sem
fram fer dagana 16.-18. júlí á
Blönduósi. Meðal þeirra sem koma
fram í ár eru leikararnir Gói og
Halli, sem sjá um að kynna fjöl-
skylduskemmtun og kvöldvöku.
Hellisbúinn verður sýndur í Félags-
heimilinu á föstudagskvöldinu.
Ingó Veðurguð kemur í heim-
sókn á fjölskylduskemmtunina og
Sálin hans Jóns míns verður með
stórdansleik á laugardagskvöldinu.
Auk þess koma fram Ari Eldjárn,
uppistandari og eftirherma, og
Bjartmar Guðlaugsson.
Föstu liðirnir verða á sínum stað,
eins og fjölskylduskemmtun, kvöld-
vaka, bakkasöngur, fjöldagítarspil
og söngkeppni fyrir börn. Sérstakir
gestir hátíðarinnar í ár eru 25
krakkar úr Skólalúðrasveit Sel-
tjarnarness, sem hefur lengi verið
undir stjórn Blönduósingsins Kára
Húnfjörð Einarssonar.
Fjölbreytt fjölskyldu-
skemmtun á Húnavöku
Ásgerður Júlíusdóttir
asgerdur@mbl.is
Kvikmyndin Boðberi verður frum-
sýnd í kvöld, 7. júlí, í Kringlubíói
kl. 18.00. Myndin er hugverk leik-
stjórans og handritshöfundarins
Hjálmars Einarssonar en hún
fjallar á gagnrýninn hátt um ís-
lenskt samfélag fyrir bankahrun
og segir af verkamanninum Páli
sem upplifir sérkennilegar vitranir
og uppgötvar í kjölfarið að ým-
islegt djöfullegt sé að gerjast í
samfélaginu.
Með hlutverk Páls fer Darri
Ingólfsson en hann er einna þekkt-
astur fyrir að hafa landað auka-
hlutverki í stórmynd Clints
Eastwood, Flags of our Fathers
frá árinu 2006.
Darri segir í viðtali við Morgun-
blaðið að hann hafi alltaf haft
áhuga á leiklist en það var í raun
móður hans að þakka að hann varð
leikari.
„Ég var alltaf eitthvað viðloðinn
leiklist og lék m.a. í tveimur söng-
leikjum í Versló. Ég fékk síðan
inni í Arts Educational School of
Acting í London árið 1999 en það
var nú eiginlega móður minni að
þakka því þeir héldu prufur hérna
það árið. Prufurnar voru snemma
á sunnudagsmorgni og mamma
bara sparkaði í rassinn á mér og
skipaði mér að fara. Viti menn, ég
komst inn og áður en ég vissi af
var ég bara staddur einn úti í
London. Síðan kynntist ég auðvit-
að fólki þarna úti og þar á meðal
Ísgerði Elfu mótleikkonu minni í
Boðberanum en hún var einnig í
þessum skóla.“ Darri útskrifaðist
árið 2003 og fékk strax hlutverk í
leikritinu The Hotel in Amsterdam
í Donmar Warehouse-leikhúsinu í
London. Síðan hefur mikið vatn
runnið til sjávar og nú býr Darri í
Los Angeles þar sem hann reynir
fyrir sér sem leikari. „Ég endaði
með því að búa í London í átta ár
en það var alltaf draumurinn að
fara til L.A. og reyna fyrir sér en
það dróst á langinn og undanfarin
ár hef ég verið eiginlega búið
í ferðatösku. Nú er ég
loksins fluttur út
til L.A., vopn-
aður græna
kortinu og
búinn að
pakka nið-
ur í þessar
tvær
ferðatösk-
ur sem ég
hef búið í
síðustu
þrjú ár. En
eins og ein-
hver sagði þá
skiptir annars
staðsetningin ekki
máli heldur hvað mað-
ur gerir. Ég
er búinn að
vera þarna í
ár og er
svona nokk-
urn veginn bú-
inn að átta mig
á því hvernig
maður á að lifa af
þarna en nú er bara
að tækla þennan stað.
Ég er kominn með um-
boðsmann úti, þannig að vonandi
fara hjólin bráðum að snúast en
þetta er bara ævintýri og ef þetta
gengur ekki þá kem ég bara aftur
heim.“ Darri er staddur hérna
heima um þessar mundir til að
kynna Boðberann en hann segist
hafa kynnst Hjálmari fyrst í Cann-
es fyrir nokkrum árum. „Hjálmar
hafði svo samband við mig fjórum
árum seinna og bað mig að lesa
handritið að myndinni. Fyrst um
sinn var umgjörðin smá í sniðum
þó handritið væri gríðarstórt. Síð-
an bara stækkaði þetta og stækk-
aði og nú erum við bara með
stærðarinnar kvikmynd.“ Boðberi
er tekinn upp fyrir bankahrunið og
reyndist vera einskonar spádómur
á atburðina sem fylgdu í kjölfarið.
Darri segir að í fyrstu hafi þetta
bara verið fyndið. „Svo var nú
ýmislegt sem kom okkur til góða í
eftirvinnslu eins og mótmælin fyrir
utan Alþingishúsið sem við nýtum
okkur í myndinni en svo byrjuðu
aðrir atburðir að passa svo vel inní
þetta sem gerði allt ferlið mjög
spennandi. Pælingarnar í myndinni
harmóneruðu svo vel við það sem
ég sjálfur var að pæla á þessum
tíma og líklegast sáu fleiri hvað
var að gerast. Menn biðu bara eft-
ir því að allt færi af stað og hryndi
eins og spilaborg því það voru
fleiri en ég sem höfðu þetta á til-
finningunni.“ Darri viðurkennir að
hann hafi fengið smá-útrás fyrir
reiðina í garð stjórnvalda í gegnum
hlutverkið. „Eflaust eiga einhverjir
eftir að fá smá-útrás líka fyrir
uppreisnina gegn öllu því óréttlæti
sem fylgdi bankahruninu með því
að horfa á myndina en hver um sig
upplifir myndina á ólíkan hátt.“
Sparkað út í leiklistina
á sunnudagsmorgni
Darri Ingólfsson í aðalhlutverki í Boðberanum Stefnir á frama í Hollywood
Morgunblaðið/Ómar
Boðberi Leikarinn Darri Ingólfsson leikur verkamanninn Pál í nýrri mynd Hjálmars Einarssonar leikstjóra.
„Páll er pípari sem á sér draum um að verða myndlistarmaður. Hann hef-
ur ítrekað reynt að komast í myndlistarskóla en ekki gengið. Hann fer að
fá vitranir í svefni um að eitthvað óvenjulegt og allt að því djöfullegt sé í
gangi í íslensku samfélagi. Eftir að röð skotárása á háttsetta einstaklinga
í þjóðfélaginu á sér stað grípur um sig mikil skelfing og Páli finnst að það
sé á hans ábyrgð að gera eitthvað í málunum,“ segir Darri Ingólfsson,
aðalleikari kvikmyndarinnar Boðberi sem frumsýnd er í kvöld. Með önnur
hlutverk fara Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, Jón Páll Eyjólfsson, Pét-
ur Einarsson, Hjalti Rögnvaldsson, Magnús Jónsson. Gunnar
Eyjólfsson, Þráinn Bertelsson og Móeiður Júníusdóttir.
Leikstjóri og handritshöfundur er Hjálmar Einarsson.
Bjargráð Boðberans
ÍSLENSK KVIKMYND
Á ylströndinni í Nauthólsvík má
finna Sumarhvell Kanans og Sím-
ans sem mun standa frá kl. 16.00 til
19.00 í dag. Dagskráin verður ekki
af verri endanum en um risastóra
útitónleika er að ræða með hljóm-
sveitum og söngfólki. Meðal þeirra
sem koma fram eru Elektra, Jónsi í
Í svörtum fötum, Haffi Haff, Ís-
lenska sveitin, Friðrik Dór, Skíta-
mórall, Buff-strákarnir, Jón Jóns-
son og Magni. Þá verður Segway--
rallið einnig á sínum stað og fá
gestir gefins blöðrur, boli, límmiða
í bílinn og margt fleira. Á endanum
verður grillað og allir fá Fanta og
Svala með grillmatnum. Þá fer þar
einnig fram Fossvogssundið.
Sumarhvellur Kanans
og Símans