Morgunblaðið - 07.07.2010, Blaðsíða 29
Menning 29FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2010
AF FRÆGU FÓLKI
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Það vita eflaust flestir hverJessica Simpson er, en hér erstutt samantekt: Jessica varð
fræg þegar hún sendi frá sér smá-
skífuna „I Wanna Love You For-
ever“ árið 1999. Það var Tommy
Mottola hjá Colombia Records sem
hafði heyrt í stelpunni og gaf út
fyrstu plötuna hennar, Sweet
Kisses. Hún er einna frægust fyrir
söngferil sinn, sem hefur nú verið
svona upp og ofan, en einnig náðu
raunveruleikaþættirnir Newlyweds,
sem skörtuðu henni og manni henn-
ar, söngvaranum Nick Lachey, í að-
alhlutverkum, töluverðum vinsæld-
um í Bandaríkjunum. Auk þess lék
hún Daisy Duke í bíómyndinni The
Dukes of Hazzard og fór með stór
hlutverk í Blonde Ambition, þar sem
hún lék á móti Luke Wilson, og
Employee of the Month.
Jessica Simpson er (var)holdgervingur ljóshærðu
„girl next door“-týpunnar.
Hún var sæt og söng og
giftist sætum gæja sem
söng og þau voru sæt
saman. Bla bla bla.
Hún er hvorki fram-
úrskarandi söng-
kona né leikkona og
þar sem hún virtist
alveg hryllilega
óspennandi týpa
held ég að hún hafi
að mestu leyti farið framhjá öðrum
en bandarískum, íhaldssömum
poppaðdáendum og raunveru-
leikaþáttafíklum.
En batnandi konu er best að
lifa. Svo fór að lokum að hún Jessica
skildi við hann Nick sinn, deitaði
tónlistarmanninn John Mayer og
ruðningsspilarann Tony Romo,
bætti talsvert á sig og lenti milli
tannanna á fólki fyrir vikið. Hún
varð strax áhugaverðari. Í öllum lát-
unum er eins og mótlætið hafi orðið
til þess að henni varð slétt sama.
Kannski var hún sjálf komin með
upp í kok af sér.
Ég man ekki alveg hvenærþetta byrjaði, en einn daginn
fóru myndir af Jessicu afslappaðri á
sófa í stúdíói með Billy Corgan,
söngvara Smashing Pumpkins, eins
og eldur um sinu á netinu. „Ha?“
hváðu eflaust margir. Corgan var
sjálfur búinn að ganga í gegnum ein-
hverja kreppu og var við það að
snúa aftur með leifarnar af Grasker-
unum, en hvernig það gerðist að
sæta, ljóshærða poppkrúttið og
sköllótti, reiði rokkarinn fundu
hvort annað var óskiljanlegt.
Á svipuðum tíma mætti hún í
spjall til Jays Lenos og játaði að hún
tyggði nikótíntyggjó í gríð og erg,
þrátt fyrir að vera reyklaus, og
sagðist komast í netta vímu af því.
Daginn eftir viðtalið við Leno kom
hún fram í spjallþætti Ellen De-
Generes og viðurkenndi að fyrst hún
væri hvort eð er með svo hvítar
tennur burstaði hún þær bara svona
þrisvar í viku, en notaði þess á milli
peysuermina til að þurrka burtu
mestu skánina og skolaði munninn
með bakteríudrepandi munnskoli.
Og svona hélt þetta áfram. Húnlandaði þætti á VH1 sem fékk
nafnið The Price of Beauty, þar sem
hún ferðaðist um heiminn með vin-
um sínum og komst að því hvernig
fegurð er skilgreind í hinum ýmsu
heimshornum og hvað fólk er tilbúið
að gera fyrir þennan hverfula eigin-
leika. Hún tísti myndum af sjálfri
sér með andlitsmaska, að nota
eyrnakerti og sagði frá því að á Ind-
landi hefði hún prófað að drekka
kúahland, þar sem það, að sögn inn-
fæddra, hjálpaði til við að afeitra lík-
amann.
Og hún ropar og prumpar.
Gerði það raunar líka í raunveru-
leikaþættinum forðum daga, þegar
hún var ennþá bara krúttlega
Jessica. En hvað er hún nú? Við-
brögð Bandaríkjamanna hafa verið
með ólíkindum. Þeir sem flytja
fréttir af fræga fólkinu segja frá
uppátækjum og játningum popp-
prinsessunnar, en vita varla hvað
þeir eiga að halda. Ekkert af þessu
er sérstaklega sjokkerandi þannig
séð, nema ókei, hún þarf alvarlega
að endurskoða tannhirðuna, en það
virðist bara ekki passa við gömlu
ímyndina að hanga með Corgan og
prumpa upphátt og drekka kúa-
hland. Og svo til að kóróna allt kall-
aði Mayer, fyrrverandi kærasti
hennar, hana „kynferðislegt na-
palm“ í nýlegu viðtali, og sagðist
hafa verið háður kynlífi með henni.
Það er skemmst frá því aðsegja að hún Jessica hefur
fangað athygli mína með uppá-
tækjum sínum síðastliðin tvö ár eða
svo. Mér finnst þetta skemmtilega
kúl hjá henni. Því hún stuðar og það
eru ekki síður þessi öfgakenndu við-
brögð, sem fá útrás í athugasemda-
kerfum og á bloggsíðum, sem eru
áhugaverð. Nú varð eitthvert kerf-
ishrun hjá annarri poppprinsessu,
Britney Spears, en viðbrögðin hafa
verið öðruvísi. Fólk kaupir það bara
að Britney sé komin í ruglið, hún er
súperstjarna og þetta er þeirra von
og vísa, en Jessica var ein af þeim,
fólkinu. Venjulega stelpan sem
meikaði það.
Það nýjasta sem ég heyrði af
Jessicu Simpson var að hún hefði í
einhverjum Newlyweds-þættinum
sagt Nick sínum að hún væri „að
fara með krakkana í sund,“ en þá
var hún sumsé á leiðinni á salernið.
Þegar ég las þetta varð mér hugsað
til leikarans Terence Howards, sem
lék meðal annars í Crash og Iron
Man. Hann lét einhvern tímann hafa
það eftir sér í viðtali að hann færi
ekki út með konum nema hann væri
viss um að þær gengju um með
blautþurrkur í veskinu til að þrífa
sig eftir salernisferðir. Það hvarflaði
að mér að Jessica Simpson væri
ágætt mótvægi og meðal við svona
Hollywood-vitleysu.
Skemmtilega opinská Jessica Simpson
Sætust! Jessica og Nick voru voða sætt og krúttlegt par.
Fegurðin kostar Simpson tístaði þessar mynd um daginn og uppskar
mikla athygli fyrir. Mörgum þótti þetta alls ekki lekkert af skvísunni.
Þyngd Simpson gafst upp á því að
svelta sig og varð harðlega gagn-
rýnd fyrir að þyngjast um nokkur
kíló og að láta sjá sig í þessum að-
sniðnu gallabuxum.
Sumargleði hljómplötuútgáfunnar
Kimi Records heldur af stað núna í
júlí þar sem fjöldi tónlistarmanna á
vegum útgáfunnar kemur fram. Síð-
ustu tvö ár hafa hljómsveitir á veg-
um Kimi ferðast um landið og haldið
tónleika í fjölmörgum bæjum,
stórum sem smáum. Í sumar verður
þar engin breyting á og farið verður
í fjórar tónleikaferðir um landið
þvert og endilangt.
Fyrsta ferðalagið hefst um
helgina og er ferðinni heitið austur á
Eistnaflug í Neskaupstað. Hitað
verður upp í höfuðborginni með tón-
leikum á Sódómu Reykjavík í kvöld
kl. 21. Þar koma fram Reykjavík!,
Retron, Me, The Slumbering Napo-
leon og Haukur morðingi, en sér-
stakur gestur í kvöld er harð-
kjarnasveitin KLINK.
Önnur ferðin hefst svo einnig á
Sódómu Reykjavík hinn 14. júlí
næstkomandi með tónleikum Sud-
den Weather Change, Stafræns Há-
kons, Kimono, Quadruplos og belg-
ísku sveitarinnar Tape Tum sem
Kimi gefur út. Þaðan verður farið á
Höfn, Seyðisfjörð á listahátíðina
LungA og Akureyri.
Þriðja ferðin hefst hinn 21. júlí á
Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði
þar sem Benni Hemm Hemm, Retro
Stefson, Miri og Snorri Helgason
koma fram. Þaðan er haldið á Akur-
eyri, Hvammsvík í Hvalfirði og svo
til Reykjavíkur.
Lokaleggur ferðalagsins er svo
um verslunarmannahelgina þar sem
Sumargleðin tekur Vestfirði með
trompi, en þar verða viðkomustað-
irnir Bjarnarfjörður, Flateyri, Ísa-
fjörður og Patreksfjörður. Búið er
að staðfesta komu hljómsveitanna
Reykjavík! og Nolo ásamt því að
fleiri sveitir munu bætast við þegar
nær dregur verslunarmannahelg-
inni.
Eins og segir heldur Sumargleðin
austur núna á fimmtudaginn þar
sem hljómsveitirnar koma fram á
Eistnaflugi og hefur Kimi Records
auglýst á Facebook að örfá sæti séu
laus í hljómsveitarrútunni. Rútan
fer frá BSÍ kl. 8.00 á morgun og er
stefnt á heimferð sunnudaginn 11.
júlí. Miðaverð fram og til baka er
8.000 kr. og tekið er við miðapönt-
unum í gegnum netfangið kimi-
records@kimirecords.net, en vert er
að endurtaka að aðeins eru örfá sæti
laus. matthiasarni@mbl.is
Sumargleðin fer á fullt
Ljósmynd/Julia Staples
Rokk Það er aldrei rólegt á Sumar-
gleði Kimi Records.
Söngkonan Cheryl Cole hefur verið
lögð inn á sjúkrahús vegna malaríu
sem hún fékk á ferðalagi sínu í Tan-
saníu. Söngkonan hefur á síðustu
dögum kvartað undan ofþreytu, en
upp komst um veikindin er hún féll
í yfirlið síðastliðinn laugardag.
„Cheryl hefur ekki verið með
sjálfri sér í rúma viku. Hún hefur
verið þreytt og lystarlaus. Það ligg-
ur nú í augum uppi að þetta voru
einkenni veikinnar. Henni sló
harkalega niður á laugardaginn og
hún svitnaði og skalf. Læknar hafa
áhyggjur af hversu veikt ónæmis-
kerfi hennar er orðið vegna vinnuá-
lags. Þeir halda að hún verði þess
vegna lengur að ná sér en ella,“ var
haft eftir heimildarmanni. Talið er
að Cole verði á sjúkrahúsi næstu
daga, en að sögn lækna á hún enn
langt í land með að ná bata.
Reuters
Veik Söngkonan verður nú að minnka við sig vinnu til að ná bata.
Cole með malaríu