Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Skúli Á. Sigurðsson skulias@mbl.is Stjórn Íbúðalánasjóðs frestaði ákvörðun um ráðningu nýs fram- kvæmdastjóra sjóðsins á fundi sín- um seinnipartinn í gær. Ráða átti í stöðuna frá og með 1. júlí síðastliðn- um en Guðmundur Bjarnason gegndi stöðunni til 30. júní. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins er ekki samkomulag innan stjórnar um hver verði ráðinn næsti fram- kvæmdastjóri en af 27 umsækjend- um voru fjórir boðaðir í viðtal. „Ég vil orða það svo að það var að minnsta kosti samstaða um að fresta ráðningunni,“ segir Jóhann Ársælsson, stjórnarmaður, um hvort sundrung sé innan stjórnar um hvern skuli ráða framkvæmdastjóra. Hann kveður ekki liggja fyrir hve- nær ráðningin verður tekin fyrir í stjórninni að nýju; hún muni funda á næstunni en ekki sé víst að málið verði á dagskrá. Frestunin ótímabundin Ásta H. Bragadóttir, aðstoðar- framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, mun gegna starfi framkvæmda- stjóra þar til ráðið hefur verið í stöð- una en hún hefur gegnt henni síðan Guðmundur lét af störfum. Mun Ásta að sögn Jóhanns gegna starfinu ótímabundið. Frestunin mun að sögn Jóhanns ekki hafa nein áhrif á störf Íbúðalánasjóðs, þau muni ganga sinn vanagang. „Við erum ekki í neinum vandræð- um, við treystum Ástu vel fyrir þessu,“ seg- ir Jóhann. Stjórnin frestar stjóranum  Hafa frestað ráðningu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs  Aðstoðarframkvæmdastjóri gegnir starfinu ótímabundið Sumarútsölur eru nú í fullum gangi og í miðri efnahagskreppu eru þær enn mikilvægari kjara- bót en áður. Ferðamenn, sem hafa notið góðs af sögulega veiku gengi krónunnar, hafa líklega sjaldan get- að gert betri kaup hér á landi. Þetta par sem var á Laugavegi í gær lét ekki smáskúrir hindra sig í að kíkja á útsöluvörurnar, reikna út afsláttinn og síðan gengið. Skin og skúrir á útsölum Morgunblaðið/Ómar Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Makrílveiðar virðast ganga vel og það hefur mikil jákvæð áhrif. „Það er uppgangur hjá okkur, það er ekki hægt að neita því,“ segir Sig- urgeir B. Kristgeirsson, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. „Það sem er al- gjörlega nýtt í þessu er að makríll er bara hérna við bæjardyrnar hjá okkur. Veiðar á makríl hafa ekki verið heimilaðar fyrir vestan ákveðna gráðu suður af Suðaust- urlandi.“ Fituástandið mjög mikilvægt Spurður um gæði makrílsins seg- ir Sigurgeir fiskinn vera að fitna. „Hann fitnar svona eins og við karl- arnir, þetta kemur svona utan á ístruna á okkur,“ segir hann í gamni. „Þegar hann verður bráð- feitur þá er fiskholdið ekki stinnt og gott heldur verður það laust í sér. Fiskurinn verður viðkvæmur og holdið dettur í sundur. Það er varasamt að vinna af mjög miklum krafti fisk sem er ekki af þeim gæð- um að fólk vilji borða hann.“ Það er því mikilvægt að fituástand fisksins sé rétt en þegar hann er sem feit- astur þá er ómögulegt að vinna hann. „Hættan er sú að Ísland stimpli sig inn sem framleiðanda á mjög lélegum makríl,“ segir Sig- urgeir. Verðmætastur í haust Sigurgeir sagði makrílinn verð- mætastan eftir 1. september en verðlítinn þegar hann er horaður. „Þegar fitan er gengin inn í holdið á fisknum, þá er hann verðmæt- astur,“ segir hann. „Núna er hann ekki eins verðmætur og hann verð- ur í haust.“ Hann taldi að um það bil 30-40% af fisknum færu í fryst- ingu til manneldis. Framleiðslan er nær öll seld til Rússlands og því að- eins einn markaður fyrir makrílinn. Makríllinn þokkalegur Feitur Á leið til Rússlands.  Fiskurinn verður viðkvæmur og holdið dettur í sundur þegar hann er bráðfeitur  Útilokað að flaka fiskinn núna Hópur mótmælenda safnaðist sam- an fyrir utan heimili Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, í gærkvöldi. Að sögn sjónarvottar á staðnum voru um tuttugu mótmæl- endur samankomnir í götu ráð- herrans til að láta í sér heyra. Mótmælendurnir þeyttu vúvú- zela-lúðra en létu ekki ófriðlega. Héldu þeir sig á götu og gangstétt við húsið en fóru ekki inn í garð eða á lóð þess. Stöldruðu mótmælend- urnir stutt við; fólk bar að um kl. átta og voru flestir eða allir á brott um níuleytið. Ekki var að sjá nein viðbrögð fólks innandyra en nágranni telur víst að Steingrímur og annað heim- ilisfólk hafi ekki verið heima við. Sjónarvotturinn segist ekki hafa áttað sig á hverju nákvæmlega hóp- urinn vildi mótmæla. skulias@mbl.is Mótmæltu við heimili Steingríms Þeyttu vúvúzela-lúðra en létu ekki ófriðlega „Hérna er svoleiðis dúndurfjör í dag og allir mættir í bæinn. Veðrið hérna var rosalega ógeðslegt í byrjun vik- unnar, svo slæmt að við þurftum að redda þeim sem voru í verstu tjöld- unum gistingu,“ segir Stefán Magn- ússon, forsvarsmaður rokkhátíð- arinnar Eistnaflug í Neskaupstað. Hátíðin hófst formlega klukkan hálffjögur í gær. „Þetta er orðið rosalegt partí – hér er dúnalogn og bærinn er troðfullur. Svo er aðal- númerið, Napalm Death, að byrja á eftir.“ Að sögn Stefáns gekk greið- lega að aðstoða fólk í veðurofsanum í fyrrinótt. „Verstu tjöldin þarna fóru bara hreinlega í rúst – steinlágu. Það hefði verið hægt að æfa sund- tökin inni í þeim en við vorum ekki lengi að koma fólkinu í almennilegt skjól. Rauði krossinn aðstoðaði okk- ur í því.“ Eistnaflug stendur yfir fram á sunnudag. haa@mbl.is Gátu æft sundtökin í tjöldunum Veðrið þaggar ekki niður í rokkurunum Guðmundur Bjarnason gegndi starfi framkvæmdastjóra Íbúða- lánasjóðs frá árinu 1999 en þá tók sjóðurinn við hlutverki Hús- næðisstofnunar. Sjóðurinn var stofnaður með lögum árið áður. Sigurður E. Guð- mundsson gegndi starfi fram- kvæmdastjóra Hús- næðisstofnunar frá árinu 1971 til ársloka 1999. Sátu lengi FYRRI STJÓRNENDUR ÍLS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.