Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010 Nokkrir þingmenn særðust í átökum sem bloss- uðu upp á þingi Taívans í gær þegar hefja átti umræðu um umdeildan viðskiptasamning við Kína. A.m.k. tveir þingmenn voru fluttir á sjúkrahús. Annar þeirra fékk klukku í höfuðið og hinum var kastað fram af ræðupalli þingsal- arins. Aðrir urðu fyrir minni meiðslum. Ákveðið var að fresta umræðunni um viðskiptasamning- inn sem var undirritaður í vikunni sem leið. Reuters Barist með hnúum og hnefum á þinginu Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Norska öryggislögreglan PST skýrði frá því í gær að þrír menn hefðu verið handteknir vegna gruns um að þeir hefðu undirbúið hryðju- verk. Norsk yfirvöld vildu ekki greina frá því hvort mennirnir hefðu ætlað að gera sprengjuárásir í Nor- egi eða einhverju öðru landi. Hermt er að norska lögreglan hafi fylgst með mönnunum í rúmt ár og ákveðið að flýta handtöku þeirra af ótta við að alþjóðleg fréttastofa myndi birta upplýsingar um rann- sóknina. Fréttastofan AP hafði í gær eftir ónafngreindum embættismönn- um í Bandaríkjunum að málið tengd- ist líklega áformum um að gera sprengjuárásir á jarðlestir í New York í Bandaríkjunum og verslana- miðstöð í Manchester á Englandi, en lögreglu tókst að koma í veg fyrir þær árásir. Embættismennirnir sögðu að þremenningarnir hefðu lík- lega ætlað að beita heimatilbúnum sprengjum, líkum þeim sem átti að nota í New York og Manchester. Mennirnir þrír hafa allir búið í Ósló eða í nágrenni borgarinnar. Janne Kristiansen, yfirmaður norsku öryggislögreglunnar, sagði að einn mannanna væri 39 ára norsk- ur ríkisborgari, Uighuri frá Kína sem hefði búið í Noregi frá 1999. Annar væri 37 ára íraskur ríkisborg- ari sem hefði fengið landvistarleyfi í Noregi af mannúðarástæðum. Þriðji maðurinn er 31 árs Úsbeki sem hafði einnig fengið varanlegt landvistar- leyfi í Noregi. Magnus Ranstorp, sænskur sér- fræðingur í baráttunni gegn hryðju- verkum, sagði að ekki kæmi á óvart að hryðjuverkamenn skyldu beina sjónum sínum að litlu landi eins og Noregi sem hefði ekki eins öflugar öryggisstofnanir og stór lönd eins og Bandaríkin og Bretland. „Handtök- urnar sýna þó að Norðmenn eiga gott samstarf við leyniþjónustur annarra landa,“ hafði fréttavefur Aftenposten eftir Ranstorp. Reyndu að búa til sprengjur  Yfirvöld í Noregi handtóku þrjá menn vegna gruns um að þeir hefðu skipulagt hryðjuverk  Mál þremenninganna talið tengjast áformum um sprengjuárásir í New York og Manchester Hryðjuverkaógn Storberget dómsmálaráðherra og Jens Stoltenberg. Flugmaðurinn Andre Borschberg varð í gær fyrstur manna til að fljúga vél knúinni sólarorku samfleytt í rúman sólarhring. Borschberg lenti tilraunavélinni Solar Impulse í Sviss um níuleytið í gærmorgun að staðartíma, um þrem- ur klukkustundum eftir sólarupprás. Hann hafði þá flogið vélinni í 26 klukkustundir. Vélin flaug fyrst í fjórtán klukku- stundir í dagsbirtu og sólarrafhlöð- urnar söfnuðu þá orku sem notuð var í næturfluginu. Þegar vélin lenti var hún með næga orku til að geta flogið í þrjár klukkustundir til viðbótar. Vélin er mjög viðkvæm fyrir sviptivindum þar sem hún er mjög létt og með svipað vænghaf og breið- þota. Veðrið var ákjósanlegt og ekki komu upp nein alvarleg vandamál í fluginu. Svissneski ævintýramaðurinn Bertrand Piccard stjórnaði tilrauna- fluginu, en hann varð fyrstur manna til að fljúga loftbelg umhverfis jörð- ina árið 1999. Hann segir markmiðið með tilraunafluginu að sýna að hægt sé að nota hreina orku í samgöngum í ríkari mæli en gert hefur verið. Stefnt sé að því að fljúga vélinni enn lengur og færast nær draumsýninni um vél sem geti flogið „endalaust“. Færast nær draumavél sem gæti flogið „endalaust“ Flaug í rúman sólarhring aðeins knúin sólarorku Reuters Knúin sólarorku Ævintýramaðurinn Bertrand Piccard (t.v.) og flugmað- urinn Andre Borschberg fagna eftir að vélin lenti í Sviss í gærmorgun. Estudio R. Carrera fyrir FLAUG ALLA NÓTTINA KNÚIN SÓLARORKU Heimild: www.solarimpulse.com Frumgerð HB-SIA Í næturfluginu gekk flugvélin fyrir orku sem sólarrafhlöðurnar söfnuðu í dagsbirtu Burðarvirki úr kolefnis- trefjum Stjórnklefi (1 m3) rúmar einn flugmann Þyngd rafhlaðna er 400kg, fjórðungur af þyngd flugvélarinnar Fjórir 10 hestafla rafhreyflar Sólarrafalar 10.748 ofan á vængjunum 880 á láréttum stélfleti 63,40 m 21,85 m 6,4 m ÞYNGD: 1.600 kg MEÐALFLUGHRAÐI: 70 km/klst HÁMARKS- FLUGHÆÐ: 8.500 m Solar Impulse, flugvél sem gengur aðeins fyrir sólarorku, lenti á flugvelli í Sviss í gær eftir að hafa flogið samfleytt í rúman sólarhring. Þetta er í fyrsta skipti sem flugvél er flogið alla nóttina með sólarorku. Norska toll- gæslan hefur handtekið bíl- stjóra flutninga- bifreiðar sem reyndi að smygla 28 tonnum af kín- verskum hvítlauk til Evrópusam- bandsins í gegn- um Svíþjóð. Yfirvöld telja að 1.200 tonnum af ódýrum hvítlauk frá Kína hafi verið smyglað til ESB-landa í gegnum Noreg frá árinu 2009. Smyglararnir komast þannig hjá því að greiða 9,6% toll af hvítlauknum. NOREGUR Stórfellt hvítlauks- smygl afhjúpað Læknar á Taívan hvetja veitinga- hús til að hætta að selja risaham- borgara vegna margra tilfella sem lýsa sér í aumum kjálka og erfiðleikum með að opna munn- inn. Haft er eftir prófessor á Taívan að slík vandamál geti komið upp þegar hamborgarinn er hærri en átta sentimetrar. Stórir borgarar geti skaðað liðamótin milli kjálka- beins og gagnaugabeins. Ofreyna sig á hamborgaraáti TAÍVAN Jens Stoltenberg, forsætisráð- herra Noregs, sagði á blaða- mannafundi með Knut Stor- berget dómsmálaráðherra að málið sýndi að landið væri ekki laust við hryðjuverkaógnina. „Noregur er enn eitt af örugg- ustu löndum heims,“ sagði þó Storberget og bætti við að lög- reglan teldi að almenningur í Noregi hefði ekki verið í hættu. Ekki lausir við ógnina ÓHUGUR Í NORÐMÖNNUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.