Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 8
FRÉTTASKÝRING Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Þ að er alveg ótrúlegt hvað hefur ræst úr ferðasumrinu miðað við hvernig þetta leit út í vor,“ segir Ásborg Arnþórs- dóttir, ferðamálafulltrúi á svæðinu frá Þingvöllum að Þjórsárdal. Tekur hún fram að bókanir og straumur ferðamanna á svæðinu hafi dottið niður í mars og apríl vegna eldgossins í Eyjafjallajökli, en allt bendi til þess að sumar- mánuðirnir verði góðir auk þess sem menn eru bjart- sýnir fyrir haustið. „Það er töluvert mikil umferð og sums staðar aukning,“ segir Ásborg og tekur fram að þróun síðustu missera hafi verið sú að ferðamenn bóki ferðir sínar með styttri fyrirvara en áður. Lilja Halldórsdóttir, starfsmaður í Upplýsinga- miðstöð Suðurlands sem staðsett er í Hveragerði, tekur undir með Ásborgu og segir ótrúlegt hvað ræst hafi úr sumrinu. Vissulega hafi umferð ferðamanna dottið niður í mars og apríl, en allt stefni í að fjöldi er- lendra ferðamanna í júní verði svipaður milli ára. Í þeim hópi séu Þjóðverjar, Frakkar, Svíar og Norð- menn fjölmennastir, en einnig séu Hollendingar, Belgar og Austurríkismenn áberandi. Að sögn Lilju hafa erlendu ferðamennirnir mikinn áhuga á gos- svæðinu, vilja fá upplýsingar um gönguleiðir á svæð- inu sem og hvernig aðstæður séu á Laugaveginum og í Landmannalaugum. „Við fáum mikinn fjölda tölvupósta þar sem spurt er hvort óhætt sé að fara um á þessum svæðum,“ segir Lilja og tekur fram að nokkur vinna fari þannig í að koma þeim upplýs- ingum á framfæri að svæðið sé ekki hættulegt yfir- ferðar. Staðan misjöfn eftir svæðum Hjá Þuríði H. Aradóttur, markaðs- og kynning- arfulltrúa Rangárþings eystra, fengust þær upplýs- ingar að mjög misjafnt væri eftir svæðum hvernig ræst hefði úr ferðasumrinu. Nefndi hún sem dæmi að hjá Skógasafni hefði gestafjöldinn í júní verið nánast sá sami milli ára, auk þess sem rekstur Hótels Höfðabrekku í Vík gengi vel. Sömu sögu væri ekki að segja um mörg tjaldsvæðin sem fyrst og fremst hafa þjónað Íslendingum. „Það er eins og mun færri ís- lenskir ferðamenn séu að skila sér á svæðið milli ára,“ segir Þuríður og telur að ástæðuna sé m.a. að leita í HM. „Ferðaþjónustan á Suðurlandi er öll að koma til og lítur vel út með sumarið eftir mikinn samdrátt í vor vegna eldgossins,“ segir Erna Hauksdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. „Það sem einna helst vantar núna er meiri lausaumferð um svæðið,“ segir Erna og hvetur Íslendinga til þess að leggja leið sína aust- ur fyrir fjall og skoða með eigin augum hve vel gróð- urinn á svæðinu hafi tekið við sér eftir hið mikla öskufall. Sigurður Bjarni Sveinsson, framkvæmdastjóri South Iceland Adventure sem staðsett er á Hvols- velli, tekur undir með Ernu um að lausaumferð mætti vera meiri á svæðinu. Kallar hann eftir því að fyrirtæki í ferðaþjónustu starfi betur saman. Fyrir- tæki hans skipuleggur gönguferðir, dagsferðir, jeppa- og jöklaferðir í Rangárþingi eystra og gerir út á þann mikla fjölda lausaferðamanna sem sumar hvert leggi ferð sína um svæðið. Segir hann þeim ferðamönnum hafa fækkað talsvert milli ára og kennir m.a. um því sem hann kallar hræðsluáróður bílaleigufyrirtækja. „Starfsmenn bílaleigufyrir- tækja hafa eindregið varað ferðamenn við að leggja leið sína nærri gossvæðinu, m.a. með því að segja það á ábyrgð ferðalanga ef askan valdi lakk- skemmdum á bílaleigubílum,“ segir Sigurður. Bendir hann á að hann sé sjálfur með fimm bíla í rekstri á svæðinu og enginn þeirra hafi enn orðið fyrir lakkskemmdum. Bjartsýn á ferðasumarið  Allt útlit fyrir að vel rætist úr ferðasumrinu á Suðurlandi að mati fagaðila  Sakna þess helst að fleiri íslenskir ferðamenn leggi ekki leið sína á gossvæðið Morgunblaðið/Ómar Frá Landmannalaugum Starfsmenn í Upplýsingamiðstöð Suðurlands segjast fá fjölda fyrirspurna um gönguleiðir á gossvæðinu og hvort óhætt sé að leggja leið sína þangað sem og upp á hálendið. 8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010 Ríkisstjórnin hefur haft hálft ann-að ár til að finna lausn á skulda- vanda heimilanna, þar með talið gengislánavandanum. Þrátt fyrir þetta var hún algerlega óundirbúin þegar dómur Hæstaréttar féll.     Við tók vandræðagangur ríkis-stjórnar og loks voru Seðlabank- inn og Fjármálaeftirlitið fengin til að gefa út tilmæli.     Tilmælin fengu opinberan stuðningríkisstjórnarinnar þegar Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta- ráðherra sagði að nauðsynlegt hefði verið að finna einhverja lausn og að tilmælin „hafi verið eðlileg leið til þess“.     Gylfi bætti því við að ríkisstjórninhefði fregnir „úr dómskerfinu“ um hvernig málsmeðferðin yrði í framhaldinu, sem óneitanlega var mjög sérstök yfirlýsing.     Síðan hefur það gerst að tilmælumríkisstjórnarinnar, sem Seðla- banki og FME kynntu, hefur verið tekið fálega og þurfti þá ekki að bíða lengi viðbragða frá sólskinsdreng Samfylkingarinnar. Árni Páll Árna- son félagsmálaráðherra segir nú að tilmælin hafi verið „misráðin og ótímabær“.     Það sem er óþægilegast við þennanruglanda ríkisstjórnarinnar er að hann kemur ekkert á óvart leng- ur. Spurningin hlýtur hins vegar að vera sú hversu lengi Ísland getur bú- ið við að hafa ekki aðeins eina ráð- þrota ríkisstjórn heldur margar. Gylfi Magnússon Margar ráðþrota ríkisstjórnir Árni Páll Árnason Veður víða um heim 8.7., kl. 18.00 Reykjavík 14 léttskýjað Bolungarvík 7 rigning Akureyri 9 alskýjað Egilsstaðir 8 rigning Kirkjubæjarkl. 17 skýjað Nuuk 8 léttskýjað Þórshöfn 12 skýjað Ósló 17 skýjað Kaupmannahöfn 19 skúrir Stokkhólmur 26 léttskýjað Helsinki 24 léttskýjað Lúxemborg 30 heiðskírt Brussel 31 heiðskírt Dublin 16 skúrir Glasgow 19 léttskýjað London 26 léttskýjað París 33 heiðskírt Amsterdam 26 heiðskírt Hamborg 30 heiðskírt Berlín 29 heiðskírt Vín 26 léttskýjað Moskva 27 heiðskírt Algarve 24 léttskýjað Madríd 31 léttskýjað Barcelona 28 heiðskírt Mallorca 29 heiðskírt Róm 29 léttskýjað Aþena 25 skýjað Winnipeg 20 skýjað Montreal 31 léttskýjað New York 27 alskýjað Chicago 26 alskýjað Orlando 29 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR 9. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:25 23:42 ÍSAFJÖRÐUR 2:39 24:38 SIGLUFJÖRÐUR 2:19 24:24 DJÚPIVOGUR 2:44 23:22 „Veltutap okkar vegna eldgossins er 8 millj- ónir króna enda þurftum við að loka safninu í nærri þrjár vikur í apríl vegna öskufalls. Það sem af er ári hafa 1.100 færri gestir lagt leið sína hingað, en gestafjöldinn í júní var hins vegar næstum svipaður milli ára þannig að það er vonandi að rætast úr þessu,“ segir Sverrir Magnússon, fram- kvæmdastjóri Skógasafns. Tekur hann fram að miðað við bókanir gistirýma á svæðinu það sem eftir lifir sumars og fram á haustið sé hann bjartsýnn á framhaldið. Vonir standa til að úr sumrinu rætist FRAMKVÆMDASTJÓRI SKÓGASAFNS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.