Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 6
FRÉTTASKÝRING Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is Algjör sprenging varð í fjölda þeirra sem leituðu sér aðstoðar við að koma viðskiptahugmyndum í fram- kvæmd í kjölfar bankahrunsins. Nýsköpunar- fyrirtækjum fjölgaði verulega á síðasta ári og það sama má segja um fjölda styrkbeiðna til bæði Ný- sköpunarmiðstöðvar og Tækniþróunarsjóðs Rannís. Nýsköpunarfyrirtækjum hefur ekki fjölgað jafn ört það sem af er þessu ári. Þeir sem blaðamaður ræddi við voru engu að síður á því að sköpunarþörfin og hugmyndagleðin væru enn ráðandi. Sá fjöldi styrkbeiðna sem Tækniþróunarsjóði Rannís barst á fyrri hluta þessa árs er líka svipaður og á sama tíma í fyrra. En hundrað umsóknir bárust fyrstu sex mánuði þessa árs vegna 30 styrkja. „Þetta eru ívið færri umsóknir nú, en það er líka einum styrk færra um að sækja,“ segir Lýður Skúli Er- lendsson sérfræðingur hjá Rannís. Á milli áranna 2008 og 2009 þrefaldaðist hins vegar umsóknafjöld- inn. 100 fyrirtæki með ríflega 300 starfsmenn Um 90-100 fyrirtæki eru þessi misserin með að- stöðu í þeim fjórum frumkvöðlasetrum sem rekin eru á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar á höfuðborg- arsvæðinu. Hafa sprotafyrirtæki þessi ríflega 300 starfsmenn á sínum snærum, þó ekki séu þeir allir með aðsetur í frumkvöðlasetrunum. Rósa Signý Gísladóttir, markaðsstjóri Nýsköp- unarmiðstöðvar Íslands, telur fjölda fyrirtækja í frumkvöðlasetrunum hafa haldist nokkuð jafnan frá því í fyrra. Töluverð hreyfing sé hins vegar á sprota- fyrirtækjum í frumkvöðlasetrunum sem opnuð voru eftir hrun, enda nýsköpunarkrafan þar önnur. „Að- stæður geta verið fljótar að breytast hjá litlum fyrir- tækjum,“ segir Rósa. Sum vaxi þannig og flytji sig um set, á meðan forsvarsmenn annarra fyrirtækja hætti í einhverjum tilfellum eða ráði sig í aðra vinnu. Ásókn í húsakynni frumkvöðlasetranna er hins veg- ar enn mikil. Snorri Sigurðsson, verkefnastjóri Sprotans, sam- starfsverkefnis Landbúnaðarháskólans, Nýsköp- unarmiðstöðvar og Atvinnuráðgjafar á Vesturlandi, tekur í sama streng og segir visst jafnvægi hafa ríkt undanfarna mánuði. Verkefnin sem hýst hafa verið hjá Sprotanum skipta tugum og hafa verið af öllum stærðargráðum. „Vistvæn orka ehf. er t.d. með til- raunaaðstöðu á Reykjum við að prófa ný íslensk ljós og Litlu búðirnar, sem er þjónustufyrirtæki fyrir hannyrðavörur, var einnig hýst hjá okkur.“ DaGeek er fyrirtæki sem staðsett hefur verið í frumkvöðlasetrinu í Kvosinni frá því í janúar sl. Þar vinna þau Einar Sigvaldason og Rut Magnúsdóttir að þróun samfélagssíðunnar DaGeek, en hug- myndin kviknaði hjá Einari fyrir nokkrum árum. „Honum fannst sig oft vanta ráðleggingar frá fólki sem hafði svipaðan smekk,“ segir Rut sem kom inn í samstarfið eftir að þau hittust á Þjóðfundinum á síðasta ári. „Við erum bæði áhugasöm um uppbyggingu á fólki og landi og Einar var að leita að manneskju sem gæti hjálpað honum að stýra þessu.“ Hún segir vinnuna við síð- una lofa góðu. „Þetta gengur virkilega vel og við erum að gera mjög spennandi hluti núna.“ Morgunblaðið/Ómar Sprotafyrirtæki DaGeek er meðal sprotafyrirtækja í frumkvöðlasetri Nýsköpunarmiðstöðvar í Kvosinni. Rut Magnúsdóttir hjá DaGeek segir margt spennandi vera þar í vinnslu. Hugmyndaauðgin og sköpunargleðin enn við lýði  Jafnvægi komið á fjölgun í röðum sprotafyrirtækja eftir öran vöxt í fyrra 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Starfshópur um endurskoðun laga um fisk- veiðistjórnun fundaði í gær. Björn Valur Gísla- son, alþingismaður og varaformaður hópsins, bindur vonir við að málið verði mjög langt komið á fundi hópsins í næstu viku. Hann vildi ekki greina frá einstökum efnisatriðum við- ræðnanna en sagði að góður andi hefði ríkt í hópnum undanfarið. Fulltrúarnir séu búnir að teygja sig talsvert í áttina hver til annars til að „ná ásættanlegri lendingu til langs tíma“. Björn Valur kannast ekki við neina „nýja nálgun“ í starfi hópsins gagnvart LÍÚ, frekar en öðrum. Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að „ný nálgun“ hefði orðið til þess að útvegsmenn settust aftur að fundarborðinu. Þeir hættu að mæta þegar skötuselsfrumvarpið kom fram. Umræðan fer fram í hópnum Björn Valur sagði að hann og Guðbjartur Hannesson, alþingismaður og formaður starfs- hópsins, hefðu átt fund með talsmönnum LÍÚ eftir að LÍÚ fundaði með þremur ráðherrum og fulltrúum atvinnulífsins og fiskvinnslunnar. „Þeir [LÍÚ] spurðu okkur í hvaða farvegi endurskoðunin væri. Þeim var bent á að sú um- ræða færi fram í þessum hópi, en ekki annars staðar,“ sagði Björn Valur. „Við hefðum hvorki umboð né vilja til að ræða við einstaka aðila um einhvers konar skilyrði eða vilyrði fyrir að fara aðrar leiðir en verið er að ræða í hópnum. Ef þeir vildu halda áfram þá væri fundur næsta þriðjudag, og þeir mættu.“ Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, situr í starfshópnum. Honum finnst vinnan hafa gengið ágætlega og mikill vilji allra hlutaðeig- enda til að ná saman um þetta mikilvæga mál. „Við höfum ekki lokið störfum og ýmislegt sem á eftir að reyna á,“ sagði Einar. Hann vildi ekki tjá sig um einstök efnisatriði sem eru til um- ræðu fyrr en niðurstaðan er fengin. Ekki markmiðið að herða að hálsi „Ég hef haft trú á því og hef enn að það verði hægt að ná viðunandi niðurstöðu,“ sagði Einar. „Hún verður þá að byggjast á því að það verði einhver fyrirsjáanleiki fyrir útgerðina. Fyrir mér hefur það aldrei verið markmiðið að kom- ast að því hvað hægt er að herða mikið að hálsi útgerðarinnar án þess að hún gefist upp. Miklu heldur hvað er hægt að gera til þess að hún búi til eins mikil verðmæti fyrir þjóðfélagið og mögulegt er.“ Styttist í löndun endurskoðunar  Mikilvægara að stuðla að sem mestri verðmætasköpun útgerðarinnar en að gá hve mikið hún þolir  Vonast til að endurskoðun laga um fiskveiðistjórnun verði langt komin á fundi í næstu viku Björn Valur Gíslason, al- þingismaður, bindur vonir við að endurskoðun laga um fiskveiðistjórnun verði mjög langt komin í næstu viku. Borgarráð samþykkti í gær að styrkja Tónlistarþróunarmiðstöð um sex milljónir króna í því skyni að tryggja áframhaldandi rekstur miðstöðvarinnar út árið. Diljá Ámundadóttir, formaður ÍTR, segir þennan styrk fara upp í leigu sem TÞM skuldar. „Þetta á að duga til þess að ganga frá því sam- komulagi sem hefur verið gert við eigandann og allir eru sáttir.“ Aðspurð hvort þetta sé næg fjár- hæð fyrir miðstöðina út árið segir Diljá að starfsemin sé í góðum mál- um fram að áramótum en þá rennur samningur við eigandann út. „Þá ætlum við að taka þessi mál upp á annað stig.“ gunnthorunn@mbl.is Styrkur tryggir starfsemi Tónlistarmiðstöð fær fé fram til áramóta Þróun Það er fjör að þróa tónlist. Tillaga borgarstjóra um að nafni Miklatúns verði breytt í Klambratún var samþykkt einróma í borgarráði í gær, að því er segir í tilkynningu frá borginni. Einnig var samþykkt að í tilefni af því að Christian H. Christensen, síð- asti bóndinn á bænum Klömbrum, hefði orðið 100 ára 18. júlí næstkom- andi, verði hannað og sett upp sögu- skilti á túninu síðar í sumar. Í tilkynningu borgarinnar kemur fram að nafni Klambratúns var breytt í Miklatún á sjöunda áratugn- um en nafnið festi sig aldrei í sessi í huga borgarbúa. Miklatún verður aftur Klambratún Morgunblaðið/G. Rúnar Tún Hvað felst í nafni? Þó að visst jafnvægi ríki hvað fjölgun sprotafyrirtækja varðar, virðist töluverður samdráttur vera í stofnun einkahlutafélaga. Þannig voru um þriðjungi færri einkahluta- félög skráð hjá Fyrirtækjaskrá á fyrstu sex mánuðum þessa árs en í fyrra. „Á tímabilinu janúar til júní 2010 voru 899 einkahlutafélög skráð hjá okkur,“ segir Skúli Jónsson, forstöðumaður Fyrirtækjaskrár. „Það er um 430 félögum færra en var á sama tíma í fyrra.“ Samlagsfélögum sem fá kenni- tölu hefur hins vegar fjölgað á þessum tíma og segir Skúli ástæðuna skattalegs eðlis. Þannig er þegar búið að skrá 306 samlagsfélög í ár, á meðan 97 samlags- félög voru skráð allt árið í fyrra. Veruleg aukning hefur líka verið í skráningu sameign- arfélaga og hafa 70 slík verið skráð það sem af er ári á móti 44 allt árið í fyrra. Nýskráningum fækkar um þriðjung FYRIRTÆKJASKRÁ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.