Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 4
FRÉTTASKÝRING Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Ekki hefur enn komið til tals að fjölga nemendum í læknadeild Háskóla Íslands, í því skyni að vinna bug á læknaskorti. Mikið hefur verið rætt um flótta lækna til útlanda, sem sætta sig ekki við þau kjör sem bjóðast hér á landi. „Það hefur ekki verið til umræðu enda ekki ljóst að þörf sé á því. Við sjáum ekki að svar okkar hér á landi sé að fjölga útskrifuðum læknum. Við þurfum að byggja lausnina á öðrum forsendum,“ segir Sig- urður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Þriðjungur íslenskra lækna býr erlendis Sigurður segir að þriðjungur allra íslenskra lækna, sem eru um 1500 talsins, sé búsettur erlend- is. Margir þeirra eru enn í sérnámi, en aðrir hafa ekki snúið heim að námi loknu. Hann eygir helst þann möguleika að fá þessa lækna aftur til landsins. „Það er okkar sem samfélags að búa þannig um hnútana að það verði aðlaðandi fyrir þetta unga fólk að koma heim. Svarið er óskaplega flókið og snýst ekki nema að hluta til um laun. Þetta snýst um fjöl- breytni í kerfinu, mögulega fleiri rekstrarform í þjónustunni og svo má lengi telja. Ástæðurnar eru raunverulega jafnmargar og mennirnir eru marg- ir,“ segir Sigurður. Hann segir að margir setji það fyrir sig hvað rekstrarformin séu bundin við opinberan rekstur og að hluti vandans sé ósveigjanleiki stjórnvalda í heilbrigðisgeiranum. „Ég held að það sé sama hvaða pólitíska guð menn trúa á, það er mjög erfitt að horfa upp á ónot- aðar byggingar, skurðstofur sem dæmi, sem nýtast ekki fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu og má ekki nota fyrir einkarekna heilbrigðisstarfsemi. Mjög margir hafa alist upp í sínu sérnámi í um- hverfi þar sem einkarekstur er talsvert meiri en hér og gætu hugsað sér að vinna meira á þeim for- sendum. Auðvitað er að mjög mörgu að hyggja þar og það þarf að gæta gæða þjónustunnar sérstak- lega vel þegar heilbrigðisþjónusta er einkarekin. Það er ekki þar með sagt að það sé ekki hægt að gera það, eins og dæmin sanna í fjölmörgum lönd- um um allan heim,“ segir Sigurður að lokum. Lausn vandans ekki bara hærri laun  Ekki á að fjölga læknanemum  Þarf að laða lækna aftur heim frá útlöndum  Hluti vandans er ósveigjanleiki stjórnvalda í heilbrigðisgeiranum Morgunblaðið/Eggert Jafnstór Ekki kemur til greina að fjölga lækna- nemum nú. Lækna þarf að laða heim. „Það er okkar sem samfélags að búa þannig um hnútana að það verði aðlaðandi fyrir þetta unga fólk að koma heim,“ segir Sigurður Guðmundsson. 4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010 Ný og endurbætt útgáfa Handhæg t ferðakort Hljóðbók Arnar Jón sson les 19 þjó ðsögur Nýr ítarle gur hálendisk afli Hafsjór af fróðleik um land og þjóð Vegahandbókin sími: 562 2600Eymundsson metsölulisti 30.06.10-06.07.10 1. Sæti Hvorki sam- flokksmenn Lúð- víks Geirssonar, fyrrum bæjar- stjóra Hafnar- fjarðar, né fulltrú- ar vinstri grænna í bænum þrýstu á hann að draga sig í hlé frá starfi bæjarstjóra. Ákvörðunin var alfarið Lúðvíks sjálfs. Þetta segir Guðmundur Rúnar Árnason, nýr bæjarstjóri og oddviti Samfylkingar í Hafnarfirði. Hann telur að með því að draga sig í hlé muni Lúðvík lægja óánægjuöld- ur í bænum. Segir hann þó mikla eft- irsjá að Lúðvík og telur að hefði kom- ið til atkvæðagreiðslu í bænum um ráðninguna, eins og andstæðingar hans höfðu krafist, hefði hann fengið umboð kjósenda. „Ég er sannfærður um að hann hefði fengið gríðarlegan stuðning og öflugt umboð,“ segir Guðmundur og bendir því til stuðnings á skoðana- könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði 3.-12. maí. Í henni vildu 68% að Lúðvík gegndi stöðu bæjarstjóra áfram. Segir Guð- mundur að Lúðvík hafi talið það þjóna hagsmunum Hafnarfjarðar best að ganga ekki til atkvæðagreiðslu og framlengja óróann heldur skapa sátt án tafar með því að víkja. Ekki náðist í Lúðvík sjálfan í gær. skulias@mbl.is Ákvörðun um að víkja var Lúðvíks  Sátt í bæjarstjórn, segir nýr bæjar- stjóri  Lúðvík hefði fengið umboð Vaskir fimleikakrakkar gengu á höndum niður Laugaveginn í gær við mikinn fögnuð viðstaddra. Ástæðan er sú að Fimleikadeild Ármanns stendur um þessar mund- ir fyrir söfnun til styrktar skóla- byggingu í smábæ í Gvatemala. Vegfarendur fylgdust með af að- dáun og hvöttu krakkana til dáða. Foreldrar og þjálfarar sáu um að allt færi vel fram en oft þurfti snar handtök við að færa aðskotahluti af göngubrautinni. Morgunblaðið/Ómar Snör handtök í handahlaupi Fimleikakrakkar söfnuðu fyrir fórnarlömb fellibyljar MMeira á mbl.is Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Ársverk lögreglumanna, þ.e. fjöldi lögreglumanna í fullu starfi, voru 696 á árinu 2009 sem er fækkun frá árinu áður, en þá voru þau 724. Fækkunin nemur um 4% og hafa þau ekki verið svo fá í yfir 10 ár, að því er segir í ársskýrslu rík- islögreglustjóra sem var kynnt í gær. Hegningarlagabrotum fjölg- aði á hinn bóginn í fyrra. Samkvæmt bráðabirgðatölum ríkislögreglustjóra fyrir árið 2009 kemur fram að hegningarlagabrot- um fjölgaði um 5% árið 2009. Þau voru 15.296 þá en 14.578 á árinu 2008. Gert er ráð fyrir að ástæður þessarar fjölgunar megi rekja til fjölgunar á innbrotum og þjófn- uðum. Öðrum vægari brotum, svo sem umferðarlagabrotum, fækkaði milli ára en þau vógu ekki upp á móti fjölgunum hegningarlaga- brota. Aka miklu minna Fram kemur í ársskýrslu ríkis- lögreglustjóra að lögregluembætti landsins hafa dregið verulega úr akstri á undanförnum árum. Akst- urinn 2009 var 1,2 milljón kíló- metrum minni en árið 2006. Skýr- ingin á minni akstri er sparnaður og breytt verklag. Ársverkum lögreglu fækkaði árið 2009 en glæpum fjölgaði  Akstur lögreglu dregst saman um 21% á síðustu 4 árum Morgunblaðið/Júlíus „Þetta er sigur fyrir lýðræðið í Hafnarfirði,“ segir Rúnar S. Sig- urjónsson en hann er einn þeirra sem stóðu fyrir undir- skriftasöfnun gegn ráðningu Lúðvíks. Telur hann að undir- skriftirnar hafi haft áhrif en hátt í þúsund manns skrifuðu undir. Vonir stóðu til að safna tækist undirskriftum 25% allra kosningabærra Hafnfirðinga, um 4500 manns. Með þeim fjölda hefði, samkvæmt reglum bæjarins, verið hægt að knýja fram kosningar um ráðninguna. Vildu kjósa TÆP 1000 UNDIRRITUÐU Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu síðastliðinn miðviku- dag, tóku margir þátt í inntöku- prófi læknadeildar þetta árið. Af þeim 285 sem luku prófinu komust aðeins 48 inn. Það vek- ur athygli að hlutfall kynjanna í hópi þeirra sem stóðust prófið er jafnara en áður. Stutt er síð- an konur voru meirihluti innrit- aðra. Nú skiptast sætin þannig milla kynja, að 23 þeirra skipa karlmenn og 25 konur. Meiri- hluti þátttakenda í prófinu eru nýútskrifaðir úr menntaskóla, en þó nokkuð er um það að nemendur komi í deildina eftir annað háskólanám. Hlutfall kynja jafnara NÆSTI ÁRGANGUR Guðmundur Rúnar Árnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.