Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 34
34 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ADDA, KENNARARNIR ERU
BÚNIR AÐ SEMJA VIÐ RÍKIÐ
HVAÐ GERÐIST?
SÍÐAST ÞEGAR ÉG
VISSI LEIT ALLS
EKKI ÚT FYRIR AÐ
ÞETTA MYNDI
LEYSAST Í BRÁÐ
VEIT ÞAÐ
EKKI.
EN ÞETTA
HEFUR VERIÐ
SANN-
GJARNT
AF
HVERJU
SEGIR ÞÚ
ÞAÐ?
VEGNA ÞESS AÐ
ÞAÐ ERU ALLIR
FÚLIR Á SVIPINN
Í ALVÖRUNNI?
ERTU AÐ HUGSA
ÞAÐ SEM ÉG ER
AÐ HUGSA?NÝ-
MÁLAÐ
Í ALVÖRU? ÉG KEYPTI GJÖFINA
ÞÍNA FYRIR MÁNUÐI SÍÐAN
ÆÆÆÆ...
ÞETTA ER ALLT
Í LAGI. FÁÐU ÞÉR
SMÁ AULA-KAKÓ
ÞAÐ ER ERFITT AÐ VERSLA
FYRIR ÞIG. ÉG HEF EKKI ENN
FUNDIÐ JÓLAGJÖF HANDA ÞÉR
ÞAÐ
RIGNIR ANSI
MIKIÐ
RAKEL SAGÐI AÐ ÞEGAR
HÖFIN URÐU TIL RIGNDI
Í MARGAR ALDIR
ÞÁ HEFUR VERIÐ ERFITT AÐ
SKIPULEGGJA LAUTARFERÐIR
HRÓLFI HEFUR ALLTAF
VERIÐ SAMA UM
VERALDLEGAR EIGNIR...
SVO LENGI SEM
HANN HEFUR NÓG
AÐ DREKKA
ÉG HEF TAPAÐ ÖLLU!
KLUKKUSAFNINU MÍNU...
FRELSINU... HEFNDINNI...
REYNDU
AÐ LÍTA Á
BJÖRTU
HLIÐARNAR
ÞÚ KEMST AÐ
MINNSTA KOSTI
Í BLÖÐIN
„BIG-TIME,
BEINA LEIÐ Í
STEININN“
Dísarfugl fannst
Fallegur dísarfugl
fannst við Vífilsstaði 5.
júlí sl. Fuglinn er grár
með gult höfuð og gula
rönd á vængjunum. Yfirbragð fjaðr-
anna er örlítið grænleitt sem sam-
kvæmt dýralækni er tilkomið vegna
lifrarsjúkdóms. Eigandi fuglsins
getur haft samband í síma 893-4500
eftir kl. 19.
Fréttamat
Ég velti nú vöngum yfir mati ljós-
vakamiðla á fréttnæmu efni, einkum
eftir hverju farið er á sviði íþrótta.
Brids er vinsæl almenningsíþrótt á
Íslandi sem stunduð er reglulega í
félögum og í heimahúsum um allt
land af fólki á öllum aldri. Nú ber svo
við að sveit skipuð íslenskum áhuga-
mönnum nær þeim frábæra árangri
að ná fjórða sæti á Evrópumóti í
brids eftir 11 daga samfellda spila-
mennsku. Þessi árangur er sýnu
eftirtektarverðari fyrir
þær sakir að a.m.k. tíu
sterkustu þjóðirnar
eru nær eingöngu skip-
aðar atvinnumönnum.
Með þessum eftir-
tektarverða árangri er
Ísland í hópi sex Evr-
ópuþjóða sem öðlast
hafa rétt til að taka átt
í heimsmeistaramótinu
í Hollandi að ári. Rétt
er að minna á að fyrir
20 árum urðu Íslend-
ingar heimsmeistarar í
brids og eiga nú mögu-
leika á að endurtaka
svo einstætt afrek. Til
þess þarf þó ýmislegt
fleira en að vera í hópi bestu spilara
heims. Nefna má öflugan stuðning,
samstöðu og skilning á því að brids
heldur á lofti sóma þjóðarinnar ekki
síður en góður árangur í öðrum
íþróttum og veitir víst ekki af.
Hvorki RÚV né Stöð 2 sáu ástæðu
til að geta um þessa stóru íþrótta-
frétt eftir að mótinu lauk hinn 3. júlí
síðastliðinn. Það virðist deginum
ljósara að þegar brids er annars veg-
ar er sigursælt lið Íslendinga ekki í
hópi „strákanna okkar“, a.m.k. ekki í
augum fréttamanna í ljósvakamiðl-
um.
Þorvaldur Pálmason.
Ást er…
… að fara saman í
heitt bað.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Opið kl. 9-16, vinnu-
stofa opin, hádegismatur.
Hraunsel | Rabb kl. 9, leikfimi kl.
11.30. Orlofsferð á Austurland 22.-27.
ágúst, gist á Hótel Laka og Norðfirði.
Lokað 12. júlí til 9. ágúst. Sjá
www.febh.is.
Hvassaleiti 56-58 | Opið kl. 8-16. Böð-
un fyrir hádegi, matur. Bingó kl. 13.30,
veitingar. Fótaaðgerðir, hársnyrting.
Korpúlfar Grafarvogi | Síðasti skrán-
ingardagur til þátttöku á skemmtidegi
eldri borgara í Gufunesbæ í Grafarvogi
14. júlí kl. 14, í síma 411-1400. Ókeypis
aðgangur. Uppl. í síma 520-2300.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin, matur og kaffi, bingó
kl. 14.
Sumarið er komið með kafla-skilum hjá Gylfa Þorkelssyni,
sem setið hefur í bæjarstjórn Ár-
borgar fyrir Samfylkinguna, en
yrkir nú:
Áform hef nú mörg og merk,
mikið band á rokknum.
Sem mitt fyrsta sumarverk
ég sagði mig úr flokknum.
Ólafur Stefánsson sendi honum
hamingjuóskir:
Þetta tel ég þroskamerki,
– þó enn fækki lokkum.
Nú rís Íslands stóri sterki
stofn í bændaflokkum.
Gylfi svaraði þegar og vildi ekki
að afstaða sín yrði oftúlkuð:
Burt úr flokki, af því er
ekki hlýðinn sauður.
Ennþá glaður inní mér
eldur logar rauður.
Helgi Zimsen lagði orð í belg:
Sé hann vaskur, sannur, klár,
sitt með allt á hreinu.
Gulur, rauður, grænn og blár,
gilda má þá einu.
Ármann Þorgrímsson fékk ekki
orða bundist eftir að dómur féll um
skattlagningu sjúkratrygginga-
bóta:
Á aumingjunum fantabrögðin bitna
bera dæmin vitni allsstaðar,
en púkarnir á fjósbitanum fitna
finnast margir lögspekingar þar.
Sigrún Haraldsdóttir tekur undir
það:
Óvitrum dómurum illa vinnst,
auka þeir hrjáðra vanda,
að leika þá harðast sem hafa minnst
og höllustum fæti standa.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af dómi og sumarverkum
Sumarsólstöðugátan 2010 fól í sér ferskeytlu í reitum 1-105. Mjög góð þátt-
taka var í þessari vinsælu krossgátu og bárust hátt í 200 lausnir. Í gær var
dregið úr réttum lausnum.
Vinningshafinn er Kristín Friðbertsdóttir, Torfufelli 42, Reykjavík. Hún
hlýtur í verðlaun hina glæsilegu bók Páls Stefánssonar ljósmyndara, Áfram
Afríka.
Rétt lausn Sumarsólstöðugátunnar 2010 er svohljóðandi:
Hvílík fegurð hvelfist yfir dali!
Hvert sem lítur speglast hún
í mynd og ljóði um móa og tún.
Mér finnst eins og dýr og steinar tali.
St.P.H.
Sumarsólstöðugátan 2010