Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 11
Daglegt líf 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010 SUMARHÚS OG FERÐALÖG Gas-kæliskápar 100 og 180 lítra Gas-hellur Sólarrafhlöður og fylgihlutir. 10-80w Gas-ofn Gas-vatnshitarar 5 - 14 l/mín Kælibox gas/12v/230v Gas-eldavélar Sólarrafhlöður fyrir húsbíla og fellihýsi. Þunnar 130w B  Reykja k   Opið virka daga frá kl     Gas-helluborð Hjörtu tískuaðdáenda slógu hraðar í París í vik-unni þegar John Galliano sýndi nýjustu hönnunsína fyrir Christian Dior. Svo virðist sem Galli-ano hafi brugðið sér í líki blómaskreytis fyrir haust- og vetrarlínuna 2011 en tískusýningin þótti minna helst á blómahaf. Fallegur blómvöndur Hver flíkin á fætur annarri var eins og fallegt blóm í vendi; bleik tjullpils og jakkar og kjólar skreyttir pífum og blúndum í skærum litum. Kok- teilkjólarnir voru heldur ekki af verri endanum, í kremuðum og dökkbláum litum. Ball- kjólarnir voru glæsileg samsuða af tjulli og silki að ofanverðu með pilsum sem formuð voru eins og blómablöð. Galliano þykir hing- að til hafa verið afar frumlegur í hönnun sinni og hefur ekki brugðist bogalistin í þetta sinn ef marka má íburðarmikla sýn- inguna og viðbrögðin við henni. Jessica Alba var til að mynda afar hrifin af hönnun Gallianos og sagði eftir sýninguna að hún myndi vilja vera hvert einasta blóm í garðinum hans. maria@mbl.is Látlaus Svo virðist sem þessi hafi vafið um sig fögru blómi. Blómarós Í hönnun sinni notar Galliano litríkt silki og tjull í bland við svart og dekkri liti. Töff Þessi var með blómvönd á pilsinu. Glæsilegt blóma- haf Gallianos Reuters Meistarinn Galliano hefur sjálfur sinn sérstaka stíl. Blómvöndur Þessi er eins og samsettur úr litríkum blómum. Danska vefsíðan www.rice.dk er stútfull af fallegum hlutum fyrir heimilið. Hún var sett upp af hjónum sem búsett eru í Danmörku en kon- an er dönsk og maðurinn Frakki. Hlutirnir á síðunni eru hins vegar frá Taílandi og Madagaskar. Þeir eiga það sameiginlegt að vera mjög litrík- ir og sumir hverjir dálítið krúttlega „kitsch“. Mikið er til af glösum, diskum, hnífapörum og öðru fyrir eldhúsið en líka hlutir til að skreyta heimilið og hlutir fyrir börnin. Allt saman mjög lekkert og smart og gleður augað með öllum regnbogans litum. Hægt er að panta af vefsíð- unni til Íslands en til gamans má geta að verslanirnar Sirka á Akureyri og Snúðar & snældur á Selfossi selja einnig vörur frá Rice. Vefsíðan www.rice.dk Litagleði Eldhúsáhöldunum frá Rice er ekki auðvelt að týna enda afar litrík. Litríkt fyrir heimilið Einn daginn er eins ogmaður vakni úr margramánaða roti sífelldsskemmtanahalds, útstá- elsis og vitleysu. Það stefnir í þrí- tugt og skyndilega er maður boðinn í tvö brúðkaup með nokkurra vikna millibili og vinkonur manns fara að gildna um sig miðja. Ósjálfrátt skrúbbar maður sig í framan, vakn- ar til meðvitundar og stígur á svið í alveg nýju hlutverki. Ég er samt ekki að þykjast því mér finnst í raun frábært að fá barn í vinahóp- inn og fara í brúðkaup. En það kem- ur mér stórlega á óvart hvað ég virðist eiga auðvelt með að ræða brjóstagjöf, prufugreiðslur og jafn- vel hundauppeldi ef út í það fer. Skyndilega er ég orðin meistari pókerfésins. Ég sem er alltaf svo mikill engill, lýg aldrei og er góð. Nú sit ég bísperrt og fleygi mér í umræður um ágæti brjóstamjólkur til móts við pelagjöf, hlusta ábúðarfull á frásagnir vinkvenna minna af ógurlegum fæðingarhríðum þeirra og svefnlausum nóttum með óstöðvandi magakveisubörnum. Ekki nóg með það held- ur fer ég líka til útlanda og sleppi mér yfir litlum bleikum peysum og krúttlegum flísgöllum á svo allt of góðu verði að það er fáránlegt. En í gegnum þetta hef ég komist að ýmsu athyglisverðu, t.d. því að mér þykir svo vænt um vinkonur mínar að ég get ekki annað en verið afar spennt og þegar þótt mjög vænt um litla krílið sem ein þeirra hefur nú burðast með innra með sér í fulla níu mánuði. En krílið lætur enn bíða eftir sér þegar þessi orð eru skrifuð. Eins get ég ekki annað en sam- glaðst vinum mínum yfir því að hafa fundið hvort annað og vera á leið í hjónaband. Það er einmitt svo mikilvægt að geta samglaðst og verið ánægður með það sem maður hefur. Vissulega eru barnaföt krúttleg og ung- börn svo ósköp sæt. En í bili nægir mér alveg að ein- hver annar eigi þau og ég er sátt við að geta skilað litla bómull- arhnoðranum aft- ur um leið og næsti maga- krampi flæðir yfir og hnoðrinn byrjar að æpa. María Ólafsdóttir maria@mbl.is »Ekki nóg með þaðheldur fer ég líka til útlanda og sleppi mér yfir litlum bleikum peysum og krúttlegum flísgöllum á svo allt of góðu verði. HeimurMaríu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.