Morgunblaðið - 09.07.2010, Page 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010
Hverfisgötu 105 • 101 Reykjavík • Sími: 551 6688 • storarstelpur.is
Útsala - Útsala
Útsala
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími 568 2870 – www.friendtex.is
Opið mánudaga – föstudaga 11.00-18.00
Lokað á laugardögum
Úrval af fatnaði úr eldri
listum á kr. 1.000, 2.000
og 3.000
Buxnatilboð
3 stk. á kr. 6.00050% 40%
Ath. Ekki útsala á Praxis vörum
Verð vörukörfu ASÍ hefur lækkað
nokkuð frá því í febrúar í flestum
verslunarkeðjum, en þá náði hún
ákveðnu hámarki eftir nær samfelld-
ar verðhækkanir síðan um mitt ár
2008.
Í mælingum verðlagseftirlits ASÍ
í febrúar sl. og nú í júní má sjá
nokkra lækkun í flestum verslunar-
keðjum.
„Auðvitað er kannski rétt að hafa
það sem fyrirvara að þetta er aðeins
ein mæling. Við viljum sjá aðra mæl-
ingu sem staðfestir þetta áður en við
segjum endanlega til um hvað er að
gerast,“ segir Henný Hinz, hagfræð-
ingur ASÍ. „En þetta er kannski í
ágætis samræmi við það sem við höf-
um séð í síðustu tveimur mælingum
en það sem gerist milli tveggja ein-
stakra mælinga þarf ekki endilega
að gefa vísbendingu til lengri tíma“.
Undanfarið ár hefur verð vörukörf-
unnar hækkað mest í klukkubúðun-
um 11-11, eða um
13% og Samkaup-
um-Strax um 7%.
Í lágverðsversl-
unum hefur verð
körfunnar hækk-
að mest í Bónus,
um 6,4% frá því í
maí í fyrra. Nú er
farið að örla á
lækkunum og
gera má ráð fyrir að áhrifa af sterk-
ara gengi krónunnar sé farið að
gæta í vöruverði.
Spurð um frekari lækkun telur
Henný fullt tilefni til frekari verð-
lækkana í ljósi þeirrar styrkingar
sem hefur orðið á genginu undan-
farna mánuði.
Rétt er að taka fram að upplýsing-
arnar taka til verðbreytinga í versl-
anakeðjum á milli mælinga. Ekki er
um verðsamanburð á milli þeirra að
ræða. gunnthorunn@mbl.is
Matarkarfan
lækkar í verði
ASÍ býst við enn frekari lækkun
Vörukarfa ASÍ
Verðbreytingar í lágvöruverslunum, maí 2009 - júní 2010
Maí 2009 (=100) Feb. 2010 Jún. 2010
120
100
80
60
40
20
0
Bónus Krónan Nettó Kostur
10
0
10
0
10
0
10
0
10
8,
6
10
4
,4
10
0,
8
10
6,
4
10
2,
4
10
4
,5
10
0,
9
Henný Hinz
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Fyrirtæki í eigu Haga keyptu tæp-
lega 30 heilsíður af auglýsingum í
Fréttablaðinu fyrir hverja eina sem
keypt var í Morgunblaðinu á fyrri
hluta ársins. Líkt og sjá má í töflunni
hér til hliðar auglýstu Bónus, Hag-
kaup, Útilíf og Debenhams, sem öll
eru í eigu Haga, á ígildi 383 blaðsíðna
í Fréttablaðinu á fyrstu sex mánuðum
ársins. Á sama tíma keyptu fyrirtæk-
in fjögur ígildi 13 blaðsíðna af Morg-
unblaðinu. Þetta kemur fram í könn-
un á dagblaðaauglýsingum sem gerð
var af Auglýsingamarkaði Capacent
Gallup.
Jafnari dreifing hjá öðrum
Séu auglýsingakaup 100 stærstu
auglýsenda landsins skoðuð, að und-
anskildum fyrirtækjum Haga, er
skiptingin miklum mun jafnari. Þau
fyrirtæki keyptu samanlagt ígildi
3749 heilsíðna á fyrstu sex mánuðum
þessa árs. Af þeim voru 2257 í Frétta-
blaðinu, en 1492 í Morgunblaðinu eða
um það bil sex síður í Fréttablaðinu
fyrir hverjar fjórar í Morgunblaðinu.
Af þessum tölum má sjá að kaup
fyrirtækja Haga námu meira en tí-
unda hluta þess sem 100 stærstu fyr-
irtækin að þeim undanskildum
keyptu samanlagt á tímabilinu.
Afgerandi og sérstakur munur
Hagar eru í eigu eignarhalds-
félagsins 1998 ehf., sem aftur er í eigu
Arion banka. Höskuldur H. Ólafsson,
forstjóri Arion, segir bankann vita af
þessum mun á auglýsingakaupum,
sem sér finnist „afgerandi og sérstak-
ur.“ Hann sé hins vegar ekki til kom-
inn vegna meðvitaðrar ákvörðunar
Arion. „Þetta eru náttúrlega svolítið
afdráttarlausar tölur, þannig að ég
geri ráð fyrir því að þetta sé meðvitað
hjá stjórnendunum. En við höfum
ekki skipt okkur af því hvar stjórn-
endur Haga kaupa inn það sem þeir
þurfa til rekstursins, hvort sem það
eru auglýsingar, söluvörur, starfs-
kraftar eða húsnæði. Okkur ber að
halda ákveðinni fjarlægð frá fyrir-
tækinu samkvæmt skilmálum sam-
keppnisyfirvalda,“ segir Höskuldur.
365 miðlar ehf. eru eigandi Frétta-
blaðsins. Stærsti eigandi 365 miðla er
Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem fer
með 90,2% eignarhlut. Jóhannes
Jónsson, tengdafaðir Ingibjargar, er
stjórnarmaður í 1998 ehf. og stjórn-
arformaður Haga. Aðrir stórir eig-
endur 365 miðla eru Ari Edwald, sem
jafnframt er forstjóri, og Stefán
Hilmar Hilmarsson, fyrrverandi fjár-
málastjóri Baugs og núverandi fjár-
málastjóri 365 miðla. Ekki náðist í
Finn Árnason, forstjóra Haga, í gær.
Um 97% auglýsinga
Haga í Fréttablaðinu
Hlutfallið 60%
meðal þeirra fyrir-
tækja sem ekki
heyra undir Haga
Heilsíðuauglýsingar Haga í dagblöðum*
Samtals
Bónus 168 2 170
Hagkaup 146 5 151
Útilíf 36 5 41
Debenhams 33 1 34
Samtals 383 13 396
97% 3%
* 1 heilsíða = 200 dsm. Fyrri hluti árs 2010.
Ljósmyndarar Morgunblaðsins
sýna nú stórbrotnar myndir sínar
frá eldgosinu á Fimmvörðuhálsi og
í Eyjafjallajökli á neðri hæð versl-
unarmiðstövarinnar Kringlunnar.
Allt frá upphafi eldgosanna stóðu
ljósmyndarar Morgunblaðsins vakt-
ina og mynduðu þessar tilkomu-
miklu náttúruhamfarir frá ýmsum
sjónarhornum og við margvíslegar
aðstæður. Þegar gosið í Eyjafjalla-
jökli hófst var ljóst að áhrif í byggð
yrðu mun meiri en í gosinu á Fimm-
vörðuhálsi. Því einbeittu ljósmynd-
arar blaðsins sér sérstaklega að
íbúum á svæðinu er á eldgosið leið.
Ljósmyndarar sem eiga myndir á
sýningunni eru Árni Sæberg, Júlíus
Sigurjónsson, Kjartan Þorbjörns-
son, Kristinn Ingvarsson, Ómar
Óskarsson og Ragnar Axelsson.
Sýningin stendur til 20. júlí nk.
Morgunblaðið/Eggert
Magnaðar myndir
af eldgosum til sýnis
Umtalsverð fækkun hefur orðið á
alvarlega slösuðum í umferðinni
fyrstu fjóra mánuði ársins sam-
anborið við sama tímabil í fyrra
samkvæmt slysaskráningu Umferð-
arstofu. 39 alvarleg slys urðu fyrstu
fjóra mánuði ársins og í þeim slas-
aðist 41. Í fyrra urðu 50 alvarleg
slys og 54 slösuðust en samkvæmt
þessu fækkar alvarlega slösuðum
um 24%. Þrír létust á þessu tímabili
í ár, en fjórir á síðasta ári.
Ekki er mikill munur á fjölda lítið
slasaðra fyrstu fjóra mánuði ár-
anna 2010 og 2009 en þeim virðist
fjölga um rétt rúmlega 1%.
Alvarlegum slysum
hefur fækkað
Sumarhátíð UÍA og Síldarvinnsl-
unnar fer fram á Fljótsdalshéraði
dagana 9.-11. júlí nk. Sumarhátíðin
er eitt stærsta verkefni Ungmenna-
og íþróttasambands Austurlands ár
hvert með hundruðum keppenda. Að
auki verður Samkaupamótið í frjáls-
um íþróttum á Vilhjálmsvelli, Eskj-
umótið í sundi í Íþróttamiðstöðinni
Egilsstöðum og norðan Lagarfljóts
verður keppt í fótbolta og golfi.
Þá verður bændaglíma í boði
Launafls í umsjá Glímudeildar Vals í
grillpartíi hátíðarinnar í Tjarnar-
garðinum á Egilsstöðum kl. 17 á
laugardag og keppt verður í boccia
og í strandblaki á sunnudag.
Sumarhátíð UÍA
haldin í 35. skipti