Morgunblaðið - 09.07.2010, Síða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010
Síðumúli 34 - s: 517 1500 - www.malningalagerinn.is
Woodex á Íslandi frá árinu 1977.
Löngu landsþekkt fyrir endingu og gæði.
20%
Afsláttur af málningarvörum
Síðustu fimm árin hefur verið
gengin pílagrímsganga frá Þing-
völlum að Skálholti á Skálholts-
hátíð sem haldin er næst Þorláks-
messu að sumri 20. júlí. Gangan
verður endurtekin í ár og hefst kl.
10 árdegis við Þingvallakirkju.
Gengið verður að Farfuglaheim-
ilinu við Laugarvatn þar sem gist
verður. Göngunni verður svo fram-
haldið á sunnudagsmorgni frá
Neðra-Apavatni og gengið sem leið
liggur að Skálholti til hátíðarguðs-
þjónustu í Skálholtsdómkirkju kl.
14:00.
Allir eru velkomnir. Skráning og
nánari upplýsingar eru á
www.skalholt.is/pilagrimsgongur.
Skráningargjald er 1.500 kr.
Gangan Fjölmargir hafa gengið.
Pílagrímsganga
STUTT
STANGVEIÐI
Gísli Baldur Gíslason
gislibaldur@mbl.is
Gleði laxveiðimanna virðist engan
enda ætla að taka. Met falla víða um
land og allt annað en góð veiði virðist
heyra til undantekninga. Spá reyndra
veiðimanna um að það stefndi í stór-
laxasumar er að rætast.
Tveir 107 sentimetra boltar hafa nú
þegar veiðst. Sá síðasti kom á land á
miðvikudag, en hann veiddist í Laxá í
Aðaldal. Talið var að hann hefði vegið
um 25 pund.
Í gær veiddist 103 sentimetra lax í
Hrútafjarðará, sem vó rúm 20 pund.
Hrútarfjarðará er í góðu formi og þar
hafa veiðst um þrjátíu laxar. Skiptist
aflinn nokkuð jafnt á milli smálaxa og
stórlaxa.
Ótrúleg byrjun í Blöndu
Það er með ólíkindum hversu vel
veiðist í Blöndu í sumar. Um ellefu
hundruð laxar eru komnir á land og
þar af hafa þúsund þeirra verið veidd-
ir á fjórar stangir á svæði eitt. Áður
hefur verið rætt um stórlaxana í
Blöndu, en sá stofn er í toppstandi.
Veiði hófst í Eystri-Rangá í lok síð-
asta mánaðar. Emil Örn Þórðarson,
sölumaður hjá Lax-á, segir að á annað
hundrað laxa séu komnir á land nú
þegar. Til samanburðar voru aðeins
tæplega þrjátíu laxar komnir á land á
sama tíma árið 2007, sem var metár í
ánni.
Ytri-Rangá er ekki síður í formi en
nafna hennar. Þessa dagana veiðast
þar um þrjátíu til fjörutíu laxar á dag,
að sögn Stefán Sigurðssonar, hjá
Lax-á.
Meðalþyngdin yfir 10 pund
Holl Sveins Speights, ljósmyndara,
í Eystri-Rangá tók alls sjö fiska á
tveimur dögum. Á fyrstu vakt var áin
verulega gruggug, en eftir það veidd-
ist vel. Fiskarnir voru ekki af verri
endanum og var meðalþyngdin yfir 10
pund. Flestir tóku tommustyttan
SunRay og veiddist nánast um alla á.
„Bróðir minn tók tíu pundarann,
sem endaði á því að vera minnsti fisk-
urinn. Allir tóku stærri fisk á eftir
honum,“ segir Sveinn og hlær.
Stígandi í Laugardalsá
Af öðrum ám ber að nefna að mikil
stígandi hefur verið í Laugardalsá á
Vestfjörðum. Í síðasta holli komu
tuttugu og fimm laxar, en í heildina
hafa veiðst um hundrað og fjörutíu
laxar.
Í Flókadalsá veiddust rúmlega
fjörutíu laxar í fyrstu tveimur hollum,
sem telst nokkuð góð byrjun. Bæði er
veitt á maðk og flugu. Laxarnir úr
Flókadalsá eru yfirleitt smálaxar, á
bilinu 4 til 8 pund. Eitthvað hefur bor-
ið á því að fiskurinn sé lúsugur, að
sögn Birgis Jóhanns Jóhannssonar,
umsjónarmanns með ánni.
Tíu pundarinn endaði sem
minnsti laxinn í hollinu
Tröllið í Aðaldal Gísli Ásgeirsson veiddi þennan 107 sentimetra hæng í Laxá í Aðaldal í gær.
Stórlaxar veiðast með jöfnu millibili Eystri-Rangá virðist ætla að slá metið
Veiði hefur víðast hvar hafist með
látum í sumar. Mikið hefur veiðst
af vænum fiski og eru veiðimenn í
skýjunum með árangurinn.
Nokkrar ár hafa ekki byrjað svo
vel. Breiðdalsá var opnuð fyrir viku
og hefur lítið veiðst í henni vegna
flóða. Aðeins fimmtán laxar komu
á land í fyrstu vikunni. Þröstur
Elliðason, sem hefur umsjón með
ánni, segir að ekki hafi verið veitt
alla dagana. Gríðarlegar rigningar
hafa sett strik í reikninginn.
„Helminginn af tímanum hefur áin
verið óveiðandi en þegar linnir
hafa menn gripið einn og einn lax,“
segir Þröstur.
Þá hefur ekki veiðst jafn vel og
venjulega í Hvannadalsá. Fjörutíu
laxar hafa veiðst frá því þann 21.
júní, þegar áin var opnuð. Það eru
hins vegar ekki flóð sem koma nið-
ur á veiðinni þar, heldur þurrkur,
en lítið vatn er í ánni.
Veðrið setti strik í reikninginn
BREIÐDALSÁ OG HVANNADALSÁ FARA HÆGT AF STAÐ
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
barst aðstoðarbeiðni vegna báts sem
var vélarvana á Úlfljótsvatni síðdeg-
is í gær. Sagt var að um borð í bátn-
um, sem rak stjórnlaust um vatnið
vegna hvassviðris, væri maður með
þrjú börn.
Áhöfn TF-GNÁ, þyrlu Landhelg-
isgæslunnar, var á heimleið eftir æf-
ingu þegar útkallið barst og þyrlan
kom að bátnum 10 mínútum eftir út-
kallið en þá var aðeins einn maður í
bátnum. Sigmaðurinn sem seig niður
í bátinn fékk þær fréttir frá bátverja
að hann hefði sett börnin í land
nokkru áður en báturinn varð vélar-
vana. Bátnum hefði hann ekki komið
í gang og hafði hann ekki þrek til að
róa bátnum að landi vegna hjarta-
sjúkdóms.
Sigmaðurinn reri bátnum í land en
þyrlan flutti bátverjann til fjölskyldu
sinnar sem var hinum megin við
vatnið ásamt lögreglu og sjúkra-
flutningamönnum. Var maðurinn
mjög þakklátur fyrir aðstoðina.
Sigmaður TF-GNÁ
reri bátnum í land
Þyrla kom til bjargar á Úlfljótsvatni
Gylfi Magnússon,
efnahags- og við-
skiptaráðherra,
kveðst alls ekki
vera sammála
Árna Páli Árna-
syni félagsmála-
ráðherra um að
tilmæli Seðla-
banka Íslands og
Fjármálaeftirlits-
ins frá 30. júní hafi verið ótímabær.
„Í fyrsta lagi lá fyrir að fjármála-
fyrirtækin þurftu að fá leiðbeiningu
um hvernig þau ættu að ganga frá
sínum hálfsárs uppgjörum. Það gat
ekki komið síðar en í lok júní. Þau
gátu því ekki verið ótímabær og gátu
ekki komið seinna en þau birtust,“
sagði Gylfi í samtali við Morgunblað-
ið í gær. „Eins og umræðan sýnir þá
sýnist sitt hverjum um tilmælin sem
slík. Ég tek ekki undir skoðun Árna
Páls á þeim heldur.“
Gylfi fagnar þeirri ákvörðun við-
skiptabanka og sparisjóða að bjóða
viðskiptavinum, sem skulda fast-
eignalán tengd gengi erlendra
mynta, að borga fasta krónutölu í af-
borganir. Með því njóti viðskiptavin-
irnir lækkunar greiðslubyrði eins og
von væri á ef gengistryggingar-
ákvæðum þessara lána væri vikið til
hliðar.
Brjóta ekki gegn tilmælum
Hann bendir einnig á að Hæsti-
réttur hafi úrskurðað að bílalán og
bílasamningar innihaldi ólögmæt
ákvæði um gengistryggingu. Hins
vegar hafi enginn banki eða spari-
sjóður lýst því yfir að dómarnir hafi
fordæmisgildi fyrir fasteignalán. Nú
hafi bankar og sparisjóðir tekið af
skarið og boðið ásættanlega lausn
þar til frekari úrskurðir dómstóla
liggja fyrir.
Gylfi telur áfram mikilvægt að
niðurstöðu dómstóla verði flýtt og
bendir á að í undirbúningi séu mál
sem geti hlotið afgreiðslu snemma
hausts.
Hann segir að lausnin sem fjár-
málafyrirtækin hafi teflt fram brjóti
ekki í bága við tilmælin sem Fjár-
málaeftirlitið og Seðlabanki Íslands
sendu frá sér þann 30. júní s.l. Þar
var gert ráð fyrir að fyrirtækin gætu
hvenær sem er samið við viðskipta-
vini sína um betri lánakjör.
Er ósammála ummælum
félagsmálaráðherrans
Gylfi Magnússon
Tilmæli Seðlabankans og FME máttu ekki koma seinna
Árni Páll
Árnason
félagsmála-
ráðherra
skrifaði grein
í Fréttablaðið
í gær, Fjár-
málakerfi fyr-
ir fólk, og
segir þar
m.a.:
„Atburðir
síðustu daga sýna okkur líka að
tilmælin [SÍ og FME] voru mis-
ráðin og ótímabær – fjármála-
fyrirtækin eru nú að koma fram
með tillögur um hvernig greitt
verði af lánunum þar til úr öllum
ágreiningi er leyst. Það áttu þau
að gera strax í upphafi.“
„Misráðin og
ótímabær“
TILMÆLI SÍ OG FME
Árni Páll Árnason
Á laugardag nk.
verður Skátafé-
lagið Landnem-
ar með
skemmtilega
fjölskyldu-
skemmtun í Við-
ey. Skátarnir
munu reisa
frumbyggjaþorp
og gefst gestum Viðeyjar tæki-
færi til að læra að bjarga sér að
hætti frumbyggja, – að reisa sér
skjól yfir höfuðið, kveikja eld og
ýmislegt fleira spennandi. Á
sunnudag nk. verður gestum Við-
eyjar boðið að smíða sína eigin
flugdreka á gamla mátann. Flug-
drekasmíðin hefst um kl. 11:30 og
verða allir flugdrekarnir settir á
loft kl. 14:30. Stefnt er að því að
setja Íslandsmet í fjölda flug-
dreka á lofti.
Frumbyggjar og
flugdrekar í Viðey