Morgunblaðið - 09.07.2010, Síða 14
FRÉTTASKÝRING
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Hestapestin, sem kom upp fyrr á
þessu ári, er að mestu gengin yfir.
Hestar eru óðum að ná fullum bata
og sérfræðingar segja að á heildina
litið séu horfur góðar.
Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir
hrossasjúkdóma hjá Matvælastofn-
un, segir þó mikilvægt að vera á
varðbergi. Hún leggur áherslu á að
snúa vörn í sókn. Gæta þurfi að um-
hverfisáhrifum því oftar en ekki séu
hesthús á Íslandi allt of þétt setin.
Einnig sé algengt að hestar séu hafð-
ir lengi innandyra í einu. Þannig
myndist kjöraðstæður fyrir smit-
sjúkdóma.
„Margir hestar hafa náð ágætis
heilsu aftur en það sést meðal annars
í því að um síðustu helgi fóru fram
kynbótasýningar sem gengu mjög
vel,“ segir Sigríður. Hún segir hesta
sem notaðir hafa verið í hestaferðir
sömuleiðis vera í ágætis standi.
Hreinlæti er mikilvægt
Sigríður segir að undantekningar-
lítið virðist sem allir hestar landsins
hafi smitast af hestapestinni. Pestin
sé að mestu gengin yfir í þeim hest-
um sem voru inni í vetur, en þeir hafi
sýkst fyrst. Þau hross sem gengu úti
fengu pestina seinna og voru ein-
kenni þeirra oftast vægari.
Þeir hestar sem hafa sýkst mynda
að einhverju leyti ónæmi fyrir bakt-
eríunni að sögn Sigríðar. Það sé þó
ekki mjög sterkt og því ekki útséð
um að þeir séu alveg sloppnir.
„Það er mjög mikilvægt að halda
smitmagninu niðri með því að
hreinsa hesthúsin vel,“ segir Sigríð-
ur. Mikilvægt sé að smitið bíði ekki
eftir hestunum þegar þeir komi á
hús í vetur. Sótthreinsun dragi veru-
lega úr smithættu.
Engin hrossasala í sumar
Sala á hrossum hefur að mestu
legið niðri í allt sumar. Það hefur
slæm áhrif á þá sem hafa atvinnu af
hestamennsku þar sem hrossasala
er það sem heldur henni gangandi
sem atvinnugrein.
Útflutningur á hrossum var stöðv-
aður 10. maí og lítið hefur verið selt á
innanlandsmarkaði. Blikur eru þó á
lofti en vonast er til að útflutningur
fari aftur í gang um miðjan næsta
mánuð.
Þó svo að útflutningur hafi verið
stöðvaður er útflutningsleyfi ís-
lenskra hesta í fullu gildi.
Sigríður Björnsdóttir segir þenn-
an tiltekna hestasjúkdóm ekki til-
kynningarskyldan innan Evrópu-
sambandsins enda séu einkennin
væg í hestum á meginlandinu.
„Áður en útflutningur getur hafist
á ný þarf að uppfylla ákveðin skil-
yrði. Þannig þurfa hestarnir að vera
lausir við sjúkdóminn og að auki
mega þeir ekki hafa verið í sýktri
hjörð í tiltekinn tíma fyrir útflutn-
ing,“ segir Sigríður.
Óvenjulegt ár
„Markaðsleg áhrif hafa enn ekki
komið fram en það gerist að líkind-
um með haustinu,“ segir Kristbjörg
Eyvindardóttir sem rekur ræktun-
arbúið Auðsholtshjáleigu ásamt eig-
inmanni sínum, Gunnari Arnarsyni.
Þau hjónin hafa staðið í hrossaút-
flutningi í mörg ár.
„Þetta ár hefur verið mjög óvenju-
legt hjá okkur enda útflutningur leg-
ið niðri í tvo mánuði en nú er allt að
komast í gang,“ segir Kristbjörg.
Hún er þó full bjartsýni og hefur
fulla trú að útflutningur hefjist á nýj-
an leik um miðjan ágúst.
„Það má kalla það lán í óláni að
pestin hafi náð hámarki í sumar en
þá er útflutningur venjulega í lág-
marki,“ segir Kristbjörg.
Útflutningur á hrossum fari aðal-
lega fram á haustin og á veturna því
þá séu minni viðbrigði fyrir hrossin
að skipta um umhverfi með tilliti til
hitafars.
Lítið sem ekkert hefur orðið úr
kynningum á íslenska hestinum í
sumar. Sýningum víða um land var
slegið á frest og sömuleiðis ýmsum
uppákomum sem tengjast íslenska
hestinum.
Vel heppnuð sýning
Til stóð að halda Landsmót hesta-
manna fyrstu helgina í júlí. Ekkert
varð af þeim fyrirætlunum vegna
hestapestarinnar. Aðstandendur
dóu þó ekki ráðalausir heldur stóðu
fyrir stórglæsilegri héraðssýningu í
Skagafirði í staðinn.
Fjöldi erlendra ferðamanna mætti
til að fylgjast með og voru þeir að
sögn viðstaddra jafnvel fleiri en Ís-
lendingarnir. Margir útlendinganna
höfðu fyrir löngu fjárfest í ferð til Ís-
lands til að fara á landsmótið.
„Hestarnir voru allir hraustir en
hefðu sumir hverjir mátt vera í ögn
betra formi,“ segir Páll Bjarki Páls-
son, hrossaræktandi á Flugumýri 2.
Engum hesti hafi verið vísað frá
enda hafi öll hrossin uppfyllt heilsu-
farsskilyrði. Hann segir sýninguna
gefa góð fyrirheit fyrir framtíðina.
Sýningin hafi sýnt það og sannað að
hestamenn séu ekki dauðir úr öllum
æðum.
Flestir hafa náð hestaheilsu
Dýralæknir segir brýnt að sótthreinsa hesthúsin Kjöraðstæður fyrir smitsjúkdóma eru í
hesthúsunum Markaðsleg áhrif pestarinnar eru ekki komin fram Bjartar horfur eru framundan
Þeysireið Svo virðist sem hestar séu óðum að ná sér eftir pestina sem reið yfir landið. Hestamenn þurfa þó að vera meðvitaðir um smitleiðir.
Morgunblaðið/Golli
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010
SKEMMTISIGLING: AUSTUR-KARÍBAHAF OG FLÓRÍDA
2.–11. OKTÓBER 2010
Miami – Florida, Philipsburg – St. Maarten, San Juan – Puerto Rico, Labadee – Haiti, Miami – Florida
Úrval Útsýn kynnir með stolti, Liberty of the Seas, eitt stærsta og mikilfenglegasta
skemmtiferðaskip heims. Skipið er eitt af nýjustu viðbótum Royal Caribbean skipafélag-
sins en það fór jómfrúarferð sína í maí 2007. Það hefur einstaka eiginleika og aðstöðu,
t.d. vatnagarð með brimbrettaaðstöðu, skautasvell, klifurvegg, verslunargötu og skem-
mtistaði svo fátt eitt sé nefnt. Þetta glæsilega skip er búið nær öllu er hugurinn girnist.
Barir, veitingahús, leiksýningar og skemmtanir eru hvarvetna í boði, ásamt ævintýralegu
sundlaugasvæði. Liberty of the Seas er sannkallað fljótandi 5 stjörnu lúxus hótel sem
undirstrikar að skemmtisiglingar eru ævintýri og upplifun sem seint gleymist.
á mann m.v. 2 fullorðna.*
Eitt stærsta og mikilfenglegasta skemmtiferðaskip heims!
* Innifalið: Flug til og frá Orlando, gisting á Baymont
Inn & Suites í Orlando með morgunverð í eina nótt,
skemmtisigling með fullu fæði og afþreyingu í 7
nætur, þjórfé um borð í skipinu og allar ferðir milli
flugvalla, hótels og skips.
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
Þau merkilegu tíðindi áttu sér stað
að stóðhestar frá Flugmýri 2 urðu
efstir í fjórum flokkum á velheppn-
aðri hrossaræktunarsýningu sem
fór fram á Vindheimamelum um síð-
ustu helgi. Þar kepptu hestar sem
allir voru við hestaheilsu!
Hestar frá Flugumýri 2 unnu til
verðlauna í flokki fjögurra, fimm,
sex og sjö vetra stóðhesta. Allir eru
þeir í eigu sömu fjölskyldunnar.
Þetta ku nánast vera einsdæmi
og segist Páll Bjarki Pálsson, Flugu-
mýri 2, ákaflega ánægður með ár-
angurinn sem sé hvatning til frekari
verka.
„Nú verður allt sett í gang. Um
verslunarmannahelgina verðum við
með stórt mót á Vindheimamelum
þar sem verða kappreiðar, peninga-
verðlaun og mikil hátíð,“ segir Páll
Bjarki.
Hann segir að stórbrotnar hug-
myndir séu uppi um að endurvekja
gömlu Vindheimamela-stemninguna
en áður þótti hestamönnum sjálf-
sagt að halda til Vindheimamela um
verslunarmannahelgina.
Efstir í fjórum flokkum
VINDHEIMAMELAR UM SÍÐUSTU HELGI
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson