Morgunblaðið - 09.07.2010, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 09.07.2010, Qupperneq 27
Hörmulegt vinnuslys í járnblendi- verksmiðju Elkem er staðreynd sem ekki verður umflúin. Fallinn er í val- inn ungur og efnilegur maður sem á nokkrum misserum hafði áunnið sér traust og virðingu samstarfsmanna sinna og stjórnenda félagsins. Óskar Stefánsson hafði þrátt fyrir skamman starfsaldur verið kjörinn aðaltrúnað- armaður vinnufélaga sinna og um leið talsmaður þeirra gagnvart stjórnend- um fyrirtækisins. Á sama tíma hafði honum verið boðið að axla aukna ábyrgð og stjórnendastörf sem honum entist því miður ekki aldur til að sinna. Óskar var aðeins þrítugur að aldri og hafði einungis starfað hjá Elkem í tvö ár. Það traust sem hann naut hjá öll- um þeim sem hann starfaði með er til marks um bæði mannkosti hans og mannblendni. Sjálfur bar ég gæfu til að kynnast Óskari ágætlega. Hann vakti strax at- hygli mína fyrir áhuga sinn á starfinu og metnað til þess að gera vinnustað- inn betri fyrir bæði starfsfólk hans og eigendur. Óskar horfði fram á veginn, hugsaði í langtímalausnum og tók þátt í draumum okkar um að gera Elkem á Íslandi að fyrirmynd fyrir járnblendi- verksmiðjur um allan heim. Hagræð- ing og framleiðni skiptir í þeim efnum miklu máli en ekki síður er mikilvægt að hlúa þannig að starfsfólki að því líði vel, upplifi sig öruggt í starfi sínu og haldi tryggð við vinnustaðinn. Í þeim efnum lagði Óskar drjúgt lóð á vog- arskálarnar á sinni stuttu starfsævi hjá félaginu og fyrir það verðum við ævinlega þakklát. Ég er einnig þakklátur fjölskyldu hans fyrir að taka á móti mér í kjölfar andlátsins og deila með mér þeim harmi sem við öll erum slegin. Hjá El- kem verður einskis látið ófreistað til að komast að orsökum þessa slyss og tryggja það að endurtekning þess geti aldrei orðið. Þeim veruleika sem ætt- ingjar og vinir Óskars standa frammi fyrir verður ekki breytt. Ég votta dóttur hans, foreldrum, ættingjum og vinum mína dýpstu samúð og bið allar góðar vættir að veita þeim stuðning í sorg sinni. Einar Þorsteinsson. Óskar kom til okkar á E-vaktina í vetur og féll strax vel í hópinn, enda hvers manns hugljúfi. Óskar gegndi stöðu aðaltrúnaðarmanns starfs- manna hjá Elkem Ísland og fljótlega eftir komuna á E-vaktina var hann valinn til að gegna vaktstjórastöðu á D-vakt og átti hann að taka við því starfi á haustdögum. Óskar var ein- staklega varkár og yfirvegaður í öllum þeim störfum sem hann tók sér fyrir hendur, einnig var hann mjög námfús og áhugasamur um starfið. Óskar var ávallt með bros á vör, sama hvað bját- aði á. Hann var mikill mannþekkjari og náði að draga það besta fram hjá öllum þeim sem hann starfaði með. Hann var einstaklega lunkinn í því að koma öðrum til að brosa og nutum við góðs af því á E-vaktinni þann tíma sem hann starfaði með okkur. Nú hefur verið höggvið stórt skarð í tilveru okkar sem verður aldrei fyllt. Við sem eftir sitjum geymum með okkur allar þær góðu minningar sem við eigum um Óskar, hláturinn, brosið, samræðurnar við hann og þessa ein- stöku yfirvegun sem hann bjó yfir. Engin orð fá lýst hversu einstakur Óskar var. Þín verður sárt saknað vinur. Dýpsta sæla og sorgin þunga, svífa hljóðlaust yfir storð. Þeirra mál ei talar tunga, tárin eru beggja orð. (Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum) Við vottum foreldrum, dóttur, syst- ur og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd E-vaktar Elkem Ísland, Heimir Hallsson og Sveinn Ragnar Jörundsson. Kæri Óskar. Harmurinn við fráfall vinar er alltaf jafn stór og þrúgandi. Við á D-vaktinni í tanganum viljum minnast þín. Vaktirnar í járnblendinu eru fjölskyldur, stórar og smáar, inn- an einnar vaktar er að finna alla fjöl- skyldumeðlimi. Þú gegndir flestum fjölskylduhlutverkunum innan okkar fjölskyldu, bara það sem átti við hverju sinni. Vorið 2008 komstu inn á vaktina okkar ráðinn til sumarafleys- inga. Strax frá fyrstu vakt sást hvað mikið var spunnið í þig og hve öflugur drengur var þarna á ferð. Auðvelt var að kynnast þér og fljótt varðstu einn af okkur, einn af vaktinni. Þú varst trúnaðarvinur okkra allra og við gát- um allir leitað til þín og talað við þig um allt mögulegt. Þú gerðir svo mikið fyrir andann á vaktinni að iðulega þegar við söfnuðumst tveir eða fleiri saman þá heyrðist frá þér „jaa hérna ég skal segja ykkur það“. Bros þitt og einlægni smitaði ávallt út frá sér og áhugi þinn á vinnunni, starfi okkar vinnufélaganna sem og einkalífi. Í lok hverrar vinnutarnar var kveðjan ætíð sú sama: „Hafðu það gott í fríinu vin- ur.“ Nú í vor kusu trúnaðarmenn Elkem þig sem aðaltrúnaðarmann, sem er merki um það traust og þroska sem þú barst með þér. Við þökkum Guði fyrir að hafa feng- ið að kynnast honum Óskari okkar, líf- ið sjálft og lífið í tanganum hefði verið litlausara án hans, megi Guð varðveita og styrkja fjölskyldu þína og dóttur þína, Ísabellu Alexöndru, sem þú hugsaðir svo fallega um og talaðir um. Þegar þú áttir von á henni léstu okkur alltaf vita. Varst stoltur faðir og þú fylgist með lífi hennar og passar hana þótt þú sért horfinn frá okkur úr þessu lífi. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr) Við kveðjum þig með þeim orðum sem þú varst vanur að segja: „Hafðu það gott vinur.“ Fyrir hönd D-vaktar, Elkem Ís- land, Benóný og Oddur. Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010 ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BJÖRNS ELÍASSONAR, Dalbæ, Dalvík. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á dvalarheimilinu Dalbæ fyrir persónulega og hlýja umönnun. Ragnheiður Guðmundsdóttir, Áslaug Ásgeirsdóttir, Ellen Björnsdóttir, Guðmundur Björnsson, Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir, Jón Ingi Björnsson, Aðalheiður Anna Guðmundsdóttir, Bryndís Björnsdóttir, Gestur Matthíasson, Bára Björnsdóttir, Hermann Jón Tómasson, Elías Björnsson, Gunnhildur Ottósdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN ÞÓRARINSDÓTTIR RIIS, lést mánudaginn 11. janúar á heimili sínu í Pacifica. Hvílir í Fossvogskirkjugarði. Þökkum auðsýnda samúð. Ib Árnason Riis og fjölskylda. ✝ Okkar ástkæri, KRISTINN BJARNI EGILSSON, Hringbraut 136, Keflavík, andaðist á Landspítalanum mánudaginn 5. júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 14. júlí kl. 13.00. Þórður Kristinsson, Lilja Björk Sveinsdóttir, Sesselja Kristinsdóttir, Jens Kristbjörnsson, Ævar Geirdal, Súsanna Antonsdóttir, Egill Helgi Kristinsson, Hrönn Pálsdóttir, Jónína Björg Kristinsdóttir, Karl Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengda- föður, afa, langafa og langalangafa, SIGURBERGS BOGASONAR, frá Flatey á Breiðafirði, Kleppsvegi 32, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 1. júlí, fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 13. júlí kl. 15.00. Kristín Guðjónsdóttir, Erla Sigurbergsdóttir, Haukur Már Haraldsson, Margrét S. Sigurbergsdóttir, Þór G. Vestmann Ólafsson, Guðjón Sigurbergsson, Dagmar Svala Runólfsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og virðingu við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, fósturföður, afa og langafa, KAJ ANDERS WINTHER JÖRGENSEN fyrrv. kaupmanns, Fellsmúla 13, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir hlýja umhyggju og vináttu. Snæbjörg Snæbjarnardóttir, Snæbjörn Óli Jörgensen, Anna María Elíasdóttir, Guðrún Birna Jörgensen, Halldór Þorsteinn Ásmundsson, Ólöf Sigríður Pálsdóttir, Róbert Winther Jörgensen, Erla Dagmar Lárusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, KJARTAN GUÐJÓNSSON listmálari, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju mánu- daginn 12. júlí kl. 11. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent á að láta líknarstofnanir njóta þess. Sigurður Kjartansson, Hólmfríður Erla Finnsdóttir, Bjarni Kjartansson, Lilja Grétarsdóttir, Gunnar Hrafnsson, Sólveig Baldursdóttir og barnabörn. ✝ Hjartans þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför okkar elskuðu, HULDU GUÐBJÖRNSDÓTTUR hjúkrunarfræðings, sem lést á deild 11E Landspítala við Hringbraut, sunnudaginn 16. maí. Sigurður Guðmundsson, Hrafn Tryggvason, Steingrímur Brynleifsson, Hrafnhildur Lára Hrafnsdóttir, Málfríður, Þórdís og Birna Sigurðardætur, makar og börn, Hrafnhildur Helgadóttir, Björn Guðbjörnsson, Kolbrún Albertsdóttir, Hrafnhildur Soffía Guðbjörnsdóttir, Kristján Kárason, Jóhanna Guðbjörnsdóttir, Skúli Guðmundsson, Sveinbjörn Dagnýjarson, Þorgerður Sigurðardóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir hlýhug og minningargjafir við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS LÁRUSAR BÆRINGSSONAR, Höfðagötu 18, Stykkishólmi. Bjarndís Þorgrímsdóttir, Hrafnhildur Jónsdóttir, Emil Þór Guðbjörnsson, Hanna Jónsdóttir, Hilmar Hallvarðsson, Bæring Bjarnar Jónsson, Birna Baldursdóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, BJÖRNS EYÞÓRSSONAR prentara, Álfheimum 60. Torfey Steinsdóttir, Steinn Bjarki Björnsson, Eyþór Hreinn Björnsson, Ingunn Þorsteinsdóttir, Darri Eyþórsson, Dagný Yrsa Eyþórsdóttir, Ægir Eyþórsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.