Morgunblaðið - 09.07.2010, Page 29

Morgunblaðið - 09.07.2010, Page 29
án þess að segja bróðir á eftir og finnst mér það segja sitt. Og það sama átti við um hana Gunnu Dóru, hún kunni að meta hana. Elsku besti frændi minn, nú er leið- inni þinni lokið hér á jörðu. Ég veit fyr- ir víst að það verður tekið vel á móti þér og hugsað vel um þig og veit ég fyrir víst að ég kem til með að sakna þín kæri Þórir. Það er notalegt til þess að hugsa núna þegar þú komst til mín í vinnuna tveimur dögum fyrir andlátið. Það var mikið að gera og þú veifaðir til mín á þinn skemmtilega hátt og sagðir glaðhlakkalega „sé þig seinna“ og þannig er það Lóli minn, við sjáumst seinna. Elsku Gunna Dóra, Salóme, Þóra, Hlynur, Hildur, tengdasynir og barna- börn, ég sendi ykkur mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Guðrún Blöndal (Gunna). Allt frá frumbernsku var Þórir Þór- isson stór hluti af tilveru okkar Mjó- götusystkinanna. Hann var kvæntur föðursystur okkar og stundaði sjó með föður okkar. Samgangur milli fjöl- skyldna var daglegur enda stutt á milli heimila þau ár sem Gunna Dóra og Þórir bjuggu á Ísafirði. Þórir var einstaklega skemmtilegur maður og mikill húmoristi, en það sem vakti mesta aðdáun okkar, þegar við vorum börn, var að hann hafði átt þátt í að leggja rafmagnslínuna sem lá upp Hnífana, fjallið sem liggur upp af Tungudal. Þar stendur sumarhús okk- ar fjölskyldunnar og ævintýraskógur. Aðkoma Þóris að rafmagnslínulögn- inni setti sannarlega lit á bernskudag- ana. Við vorum stolt af okkar manni og fannst hann hafa unnið fágætt afrek. Þegar Gunna Dóra og Þórir fluttu til Reykjavíkur í lok 7. áratugarins varð þeirra heimili okkar heimili í höf- uðborginni. Þangað gátum við öll sjö leitað, alltaf, sama hvernig stóð á. Þau voru okkar örugga borg í höfuðstaðn- um og tóku okkur alltaf höndum tveim. Þórir var einstakt ljúfmenni og skipti aldrei skapi. Það var helst í fyrra þegar hann fór með Beggu og Þóru í Bónus til að kaupa inn fyrir matar- veisluna sem þær ætluðu að halda. Þær settu smjörva í innkaupakörfuna en þá fauk í hann. Hann skipaði þeim með harðri hendi að taka þetta burt. Annað hvort keypti maður ekta smjör eða ekki neitt! Líklega hafði hann rétt fyrir sér eins og í svo mörgu öðru. Þórir var einstaklega góður við okk- ur systkinin og ótrúlega þolinmóður þrátt fyrir allan hamaganginn. Sagði stundum í gríni að það væri oft lífs- hættulegt að vera nálægt okkur. Þó sneiddi hann ekki sérstaklega hjá því heldur hélt sig alla tíð þétt að okkur – og við að honum. Blóðtengsl eru dýr og kannski er blóð þykkara en vatn, en sú tenging sem vakin er af samveru af heilum hug er ekki síður verðmæt. Þórir átti viðveru í öllu okkar lífi, að nálægum ströndum sem fjarlægum. Þórir hafði oft á orði hin síðustu ár að einhverju sinni hefði Begga reiðst ógurlega þegar hún var lítil og ætlaði aldrei að heimsækja hann aftur. Hann sagði þá í stríðni að hún myndi örugg- lega alltaf vera hjá þeim þegar hún yrði eldri. Hún hélt nú ekki, en sú varð þó raunin og má segja að svo oft hefur hún búið hjá þeim Gunnu Dóru og Þóri að það getur vel kallast hennar annað heimili. Gunna Dóra og Þórir komu oft vest- ur eftir að þau fluttu suður og nú síðast í júní. Þau fóru á Hrafnseyri 17. júní í útskrift Gísla Halldórs, í mat í Tjöru- húsið hjá Rönku og Magga og voru með foreldrum okkar. Þórir bar ætíð afar sterkar taugar til Ísafjarðar … til tengdafjölskyldu sinnar sem var líka hans fjölskylda og einnig þeirra vina sem hann hafði kynnst á Ísafirði og hélt alltaf tryggð við. Þó að langlundargeð Þóris yfir að hafa umborið okkur öll þessi ár hafi einhvern tíma verið haft í flimtingum, vitum við að honum þótti ekki síður vænt um okkur en okkur um hann. Minning þessa góða og fordómalausa manns mun ávallt lifa í brjóstum okk- ar. Við þökkum allt. Systkinin í Mjógötunni, Bergljót, Gunnar, Ragnheið- ur, Rannveig, Gísli Halldór, Hermann Jón og Guðmundur Birgir. Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010 ✝ Sigurður GuðjónGíslason fæddist á Hrauni 5. maí 1923. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Víði- hlíð 30. júní 2010. Foreldrar voru Gísli Hafliðason út- vegsbóndi, f. á Hrauni 11. maí 1891, d. 21. mars 1956 og Mar- grét Jónsdóttir hús- freyja, f. á Einlandi 15. nóvember 1891, d. 9. maí 1967. Bróðir Sigurðar var Þor- valdur, f. 3. febrúar 1919, d. 11. maí 1984. Sigurður kvæntist 18. október 1960 Hrefnu Ragnarsdóttur, f. í Reykjavík 10. maí 1931, dóttur hjónanna Jóns Ragnars Jónassonar skipasmiðs og Jóhönnu Eiríksdóttur húsfreyju. Þau eru bæði látin. Sigurður og Hrefna eignuðust þrjú börn. Þau eru: Gísli Grétar, f. 13. desember 1955, sonur hans er Sigurður Guðjón, f. 21. apríl 1982. Unn- usta Gísla er Margrét Hinriksdóttir. Hörð- ur, f. 5. febrúar 1967, kvæntur Valgerði Valmundsdóttir, börn þeirra eru Hrefna, f. 14. ágúst 1990 og Hafliði, f. 28. sept- ember 2000. Margrét, f. 16. október 1968, synir hennar eru Axel Örn, f. 15. febrúar 1993 og Vignir Þór, f. 1. júní 1996. Fóst- ursonur var Ragnar Jóhann Al- freðsson, f. 16. nóvember 1953, d. 11. júní 1987, sonur hans er Þorvaldur, f. 17. maí 1981. Barnabarnabörn eru tvö. Sigurður starfaði lengst af sem sjómaður, útgerðarmaður og bóndi í Grindavík. Útför Sigurðar fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 9. júlí 2010, kl. 14. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Með þakklæti kveð ég þig að sinni. Guð varðveiti þig. Þín ástkæra eiginkona, Hrefna. Kallið er komið hjá þér, elsku pabbi minn. Minningar um góðan föður geymi ég. Ó, pabbi minn, nú sól til viðar sígur og söngvar hljóðna, fölva slær á jörð. Þeir fljúga burt er húmið yfir hnígur er himinhvolfið fylltu þakkargjörð. Það dimmir nú og dökknar hér í heimi, ó, pabbi minn, þú horfinn ert mér frá. Í mínu hjarta minning þína geymi, ég man þig æ; og tárin stöðugt væta brá. Ó, pabbi minn, ég heyri klukkur hljóma, því hér og nú þungbær ögurstund, í mínum huga minningarnar óma, þú mér ert horfinn Drottins þíns á fund. Ó, pabbi minn, minn hugur harmi sleginn nú horfir fram á dægrin tóm og löng. Mín von er sú, við hittumst hinumegin og helgum Guði færum okkar dýrðarsöng. (Ingibjörg Guðnadóttir) Hvíldu í friði, elsku pabbi minn. Þín dóttir, Margrét Sigurðardóttir. Elsku pabbi, nú hefur þú fengið hvíldina sem var orðin þér svo kær- komin, en söknuðurinn er mikill og minningarnar streyma fram. Það fer mikil hlýja um mig þegar ég hugsa um tímann sem við áttum saman frá því ég man fyrst eftir mér og þar til þú kvaddir þennan heim. Þú varst alltaf svo ánægður þegar fjölskyldan var öll samankomin hjá þér og hvað gleðin skein frá þér þeg- ar afabörnin og svo langafabörnin bættust í hópinn. Þegar til stóð að fara á fjallið að smala fénu þá sá maður þig ljóma af tilhlökkun þar sem þú þeystist um á honum Nasa og þú sagðir svo oft við okkur Dadda heitinn bróður að það mætti ekki verða ein einasta kind eft- ir í fjallinu. Ég skildi ekki alveg þá hvað þér var annt um að þylja upp öll örnefni sem á vegi okkar urðu, en núna skil ég þennan viskubrunn sem þú skilur eftir. Hvergi undir þú þér betur en heima á Hrauni hvort sem það var í fjárhúsunum eða úti á túni. Skemmtilegar voru sjóferðirnar sem ég fékk að fara með ykkur Manga og Lalla bróður þínum, þegar búið var að tína beituna í fjörunni og árabátn- um ýtt úr Vörinni við bæinn voru margar góðar sögurnar sagðar. Einnig voru rjúpnaferðirnar svo skemmtilegar hjá okkur. Það er mér ofarlega í minni hvað þú varst greiðvikinn. Það gladdi þig mikið að geta rétt öðrum hjálpar- hönd, t.d. við slátt. Þau eru ófá túnin á Þórkötlustöðum og víðar sem við slógum eftir að við fengum traktor- inn. Ég man hvað ég var alltaf spenntur þegar bændurnir komu og buðu okkur inn á bæina í kaffi og ný- bakað meðlæti. Þegar þú fórst að minnka við þig vinnuna kom í ljós hvað þú hafðir gaman af því að baka, ég fæ vatn í munninn að hugsa um heimabakaða brauðið þitt, það var svo gott. Það lýsir þér svo vel þegar þú fékkst alnafna, þegar ég skírði son minn í höfuðið á þér, og ég horfði í tárvot augu þín af gleði og þakklæti, ég skildi ekki þá af hverju þú varst svona hrærður, en fyrir 4 árum þeg- ar ég fékk alnafna sjálfur þá skildi ég þessar tilfinningar svo vel. Ljúfar eru minningarnar um sam- verustundirnar okkar, ég er svo þakklátur fyrir tímann sem við átt- um saman, ég fékk að læra svo margt af þér þar sem ég vann hjá þér lengst framan af og þú svo í nám- unum hjá mér, þennan lærdóm er gott að eiga í veganesti í framtíðinni og geymi ég hann eins og gull í mínu hjarta. Þú hafðir svo gaman af tímanum sem þú vannst í Netagerðinni Möskva þar sem allir höfðu sínar skoðanir á fótbolta og þér fannst svo skemmtilegt að segja okkur frá þeg- ar þú komst heim. Við áttum svo góð- ar stundir þegar ég og nafni þinn fór- um með þig til Liverpool á Anfield hvað þú ljómaðir og varst hrókur alls fagnaðar. Það valt upp úr þér svo margt spaugilegt að nafni þinn kynntist alveg nýrri hlið á þér. Það eru svo góðar og skemmtilegar minningar sem við geymum úr þess- ari ferð. En núna ertu kominn til ástvina okkar sem voru farnir á undan þér og í dag þegar ég fylgi þér síðasta spölinn með miklum söknuði þá bið ég algóðan Guð að geyma þig þar til við hittumst á ný. Elsku besti pabbi, takk fyrir mig. Þinn sonur, Gísli Grétar. Elsku afi, núna ertu farinn og okk- ur finnst svo voðalega tómlegt að koma til Grindavíkur núna. En minningar um þig munu aldrei gleymast. T.d þegar við fengum að standa í bílnum á milli sætanna þeg- ar við fórum út í búð, þú áttir alltaf brjóstsykur handa okkur, passaðir alltaf að við yrðum ekki svangir og áttir alltaf nóg að borða fyrir okkur. Þú kenndir okkur fullt af spilum og alltaf þegar við komum í heimsókn sagðirðu: „Eru gosarnir komnir“ og oft varstu að leggja kapal þegar við komum. Þú varst ávallt hress og kát- ur og afar skemmtilegur. Sagðir okkur margar vísur og sögur og harðfiskinn áttir þú alltaf. Við vitum að amma passar að eiga köku og kex handa okkur. Og við vit- um að þú ert á góðum stað. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Minningar okkar um afa munu lifa í hjörtum okkar. Gosarnir þínir, Axel Örn og Vignir Þór. Elsku afi, loksins hefur þú fengið hvíldina sem þú hefur beðið lengi eft- ir. Þótt þú hafir verið tilbúinn þá er ég það ekki og það verður erfitt fyrir mig að sleppa takinu. Það er bæði sorg og gleði í hjarta mínu en ég veit að núna hefur þú það miklu betra og brosir breitt að handan til mín og segir mér að það sé allt í himnalagi. Ef ég lít yfir minningarnar sem þú hefur gefið mér get ég ekki annað en brosað. Allar minningarnar sem við eigum saman eru yndislegar, fullar af brosum, hlátri, spjalli, gátum, vís- um og bílrúntum og þú getur treyst því að ég varðveiti þær vel. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) En núna ertu farinn og sá tími er kominn sem þú hefur oft talað um, að ég setji blóm við leiðið hjá þér, og ég mun standa við það loforð sem ég gaf þér. Þegar sá tími kemur, þá hitt- umst við aftur hinum megin og höld- um áfram og hlæjum saman eins og ekkert hafi ískorist. Þín afastelpa, Hrefna. Elsku afi, það er skrítið að þú sért farinn frá okkur. Þú ert þó örugglega hvíldinni feginn. Það er ekki hægt að minnast þín án þess að hugsa um það hversu góður þú varst alltaf við okk- ur barnabörnin. Við Þorvaldur eydd- um ófáum klukkustundunum hjá þér þegar við vorum yngri og hugsa ég til þess tíma með miklum söknuði. Allt- af varstu til í að sækja okkur út í hverfi, taka við okkur spil eða bara spjalla. Svo sakaði nú ekki að alltaf var til kakó og brauð til að setja í ristina. Við vorum líka alltaf tilbúnir að hjálpa þér í fjárhúsunum þegar þig vantaði fleiri hendur enda varstu alltaf svo góður við okkur. Þegar ég fór að eldast og að vinna fyrir mér þá man ég alltaf hversu gott var að koma í kaffi til þín, hvort sem var að morgni eða í seinna kaffinu. Ef þú varst ekki búinn að baka brauð þá var búið að fara í bak- aríið og kaupa eitthvað til að við fær- um ekki svangir út. Ég vil þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman fyr- ir framan sjónvarpið að fylgjast með fótboltanum, það var nokkuð sem þú hafðir mikinn áhuga á meðan heilsan leyfði þér. Ég veit líka að þú hafðir mjög gaman af ferðinni sem við fór- um til Liverpool fyrir um 10 árum. Sú ferð skilur eftir sig margar góðar minningar. Ég gleðst mjög í hjarta mínu yfir því að hafa fengið að fara með þér. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Verst þykir mér að strákarnir mínir skuli ekki hafa fengið að kynn- ast þér betur sökum þess hve ungir þeir eru, það er mikill missir fyrir þá. En ég er þó á sama tíma mjög stoltur að hafa gert þig að langafa og ég veit að þú varst stoltur að eiga barna- barnabörn og sóttir mikið í þá í hvert skipti sem þú hittir þá. Elsku afi, við þökkum fyrir allt, hvíldu í friði. Sigurður Guðjón Gíslason, Inga Guðlaug Helgadóttir, Gísli Grétar Sigurðsson og Helgi Hróar Sigurðsson. Sigurður Guðjón Gíslason Nú er komið að kveðjustund vinar míns og nágranna nánast frá því ég man eftir mér. Jón Sölvi var sérlega góður granni ásamt bróður sínum Guðmundi sem lést vorið 1995. Frá þeim tíma bjó Jón einn að Efra-Apa- Jón Sölvi Helgason ✝ Jón Sölvi Helga-son fæddist að Efra-Apavatni í Laugardal 5. apríl 1913. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þann 27. júní 2010. Útför Jóns Sölva fór fram frá Skál- holtsdómkirkju 3. júlí 2010. Jarðsett var að Mosfelli. vatni. Samskipti milli bæjanna Efra- og Neðra-Apavatns voru mikil gegnum árin, bæði í leik og starfi og var jafnan hjálpast að við smalamennskur, heyskap og margt annað. Það var alltaf gott að heimsækja Jón, hann tók manni ávallt vel með stríðn- isglampa í augum og ætíð um nóg að spjalla. Ég var heppinn að eiga þess kost að ferðast um landið með Jóni, oftast var farið eftir slátt, einskonar töðu- gjaldaferðalög, og mín fyrsta ferð hringinn í kringum landið var með Jóni, Magnúsi frænda mínum og Eyjólfi dóttursyni Jóns. Jón var af- spyrnu fróður um landið sitt og skemmtilegur ferðafélagi og var há- lendið í sérstöku uppáhaldi hans eða vegir utan alfaraleiða. Jón hafði lif- andi áhuga á ýmiskonar tækjum og var fljótur að tileinka sér nýjustu tækni, var t. d. snemma kominn með Nmt-síma í jeppann sinn. Hann keypti líka vélsleða og hafði gaman af að þeysa um snæviþakta Lyng- dalsheiði og kom gjarnan við í kaffi á einhverjum bænum undir heiðinni, aufúsugestur. Jón var nákvæmur maður á öll tæki og fór vel með og var kappsmál að hafa allt í fullkomnu lagi, enda dugðu tækin honum vel og lengi svo eftir var tekið. Þó árin væru orðin ærið mörg var Jón svo ern að aldur hans gleymdist manni enda var hann ungur í anda og fylgd- ist vel með öllu í kringum sig sem og fréttum að utan. Hann hafði mjög sterkar skoðanir á öllum hlutum og varð ekki snúið svo glatt. Jón kom til dyranna eins og hann var klæddur og sagði sína skoðun, sama hvað öðr- um fannst, hafði mjög gaman af að glettast við fólk, en það var aldrei illa meint. Orðheppinn var hann með af- brigðum. Það er merki um þraut- seigju og ást á jörðinni sinni að geta búið þar einn fram á síðasta dag, hann var lánsamur að eiga góða fjöl- skyldu og vini sem gerðu honum kleift að vera heima þegar heilsunni hrakaði, því á Efra-Apavatni vildi hann vera. Lengst af var hann við nokkuð góða heilsu og afrekaði að lifa nærri heila öld. Það verður tómlegt að horfa upp að Efra-Apavatni þegar enginn Jón er þar lengur. Hans verður sárt saknað, en minningin um sterkan persónuleika, góðan félaga, vin og granna mun lifa. Ég og fjölskylda mín vottum Rúnu og Jóni Þór og börnum þeirra innilega samúð. Kveðja, Magnús Helgi Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.