Morgunblaðið - 09.07.2010, Side 33
Dagbók 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér
skilja, að ég er í föður mínum og þér í
mér og ég í yður. (Jóh. 14, 20.)
Víkverji heldur auðvitað með Ís-landi í HM í fótbolta, rétt eins
og maðurinn í frábærri sjónvarps-
auglýsingu Olís. Hins vegar var erf-
itt að einbeita sér að íslensku stilli-
myndinni sem var sýnd á besta tíma
sl. sunnudag, en Víkverja skilst að
þeir sem eru á móti fótbolta í sjón-
varpinu hafi fengið sitt fram. Þjóð-
legt og gott eins og samantekt um
Landsmót hestamanna í 60 ár, en
þeir sem misstu af þættinum sl.
sunnudagskvöld geta huggað sig við
það að hann verður endursýndur 17.
júlí.
x x x
Í lok nýliðins mánaðar sýndi Sjón-varpið þátt með Fílharm-
óníusveit Vínarborgar og ekki
seinna vænna að endursýna hann
fjórum kvöldum síðar. Allt betra en
fótboltinn, segja nöldrararnir. Á
mánudag var kominn tími til þess að
stöðva landann í kaupæðinu og í stað
fótbolta sýndi Sjónvarpið mynd um
neysluæði og afleiðingar þess. Á
þriðjudag og miðvikudag gátu lands-
menn, rétt eins og heimsbyggðin öll,
andað léttar, því þá voru á dagskrá
undanúrslitaleikir HM. Í gærkvöldi
tók síðan við bandarísk þáttaröð um
vini úr laganámi sem tókust á í rétt-
arsalnum og í kvöld er boðið upp á
glænýja 30 ára mynd um flugvél
með körfuboltasnillinginn Kareem
Abdul-Jabbar í aðalhlutverki. Leik-
urinn um 3. sætið á HM verður svo á
morgun og úrslitaleikurinn á sunnu-
dag en með honum lýkur sælunni
endanlega. Víkverji ætlar samt ekki
að afskrifa Sjónvarpið, því það á allt-
af stillimyndina til góða og kann þá
list öðrum betur að stilla á end-
ursýningu.
x x x
Annars botnar Víkverji ekkert íþessu nöldri um HM. Vikuna
21.-27. júní tengdust níu liðir af tíu
vinsælustu dagskrárliðum RÚV
HM, sjö leikir í beinni útsendingu og
tvö HM-kvöld. Hinn geysivinsæli
skoski Taggart lögregluforingi náði í
8. sætið, en fréttirnar, sem Sjón-
varpið treystir fyrst og fremst á,
komust ekki á blað. Þarf fleiri vitn-
anna við? víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 flakkari, 8
hárflóki, 9 rýja, 10
skaut, 11 þrátta, 13 sár,
15 karldýrs, 18 dreng,
21 hreysi, 22 lyktir, 23
hófdýr, 24 taugatitr-
ingur.
Lóðrétt | 2 lætur höggin
dynja á, 3 dorga, 4 planta,
5 fiskum, 6 rekald, 7 at,
12 smávegis ýtni, 14
blóm, 15 slydduveður, 16
rotni, 17 lásar, 18 gafl, 19
hlupu, 20 umgerð.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fætur, 4 fegin, 7 ólíft, 8 ódæði, 9 tóm, 11 afla,
13 haka, 14 græða, 15 görn, 17 flóa, 20 eir, 22 öskur, 23
orðan, 24 garða, 25 sonur.
Lóðrétt: 1 fjóla, 2 trítl, 3 rótt, 4 fróm, 5 glæta, 6 neita,
10 ólæti, 12 agn, 13 haf, 15 glögg, 16 rakur, 18 lúðan, 19
agnar, 20 erta, 21 roks.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Allt hefur sinn stað og stund og nú
þarftu að grípa tækifærið þegar það
gefst. Einbeittu þér því að sjálfum þér
um sinn.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú dregst varla úr sporunum um
þessar mundir, reyndu að taka þér pásu
og endurnæra þig. Einhver vill láta á sér
bera með öllum tiltækum ráðum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ekkert pirrar tvíburann meira
en einhver sem segir honum fyrir verk-
um, ekki síst ef það er hann sjálfur.
Treystu tilboðum um fjárhagsaðstoð sem
gera þér kleift að endurnýja á heimilinu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er mikil gæfa að eiga trún-
aðarvin sem tekur á viðkvæmustu málum
þannig að enginn bíður hnekki af. Láttu
hendur standa fram úr ermum, hvort sem
það verður í listum eða handverki.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Leggðu þitt af mörkum til heim-
ilishaldsins því annað er ekki sanngjarnt.
Það er alltaf auðveldara að sjá hvað fór
úrskeiðis eftir á. Mikilvæg reynsla fæst
ekki alltaf án sársauka.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Alvarlegar samræður um hugð-
arefni þín geta skilað góðum árangri í
dag. Vertu svo djarfur að standa með fé-
laganum í kvöld.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú skalt fylgja eðlisávísun þinni og
nýta krafta þína til að hjálpa öðrum. Vís-
bendingarnar eru allt um kring.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú verður að hlusta til að
heyra hvísl og leyndarmál. Gefðu þér
tíma til að bæta úr mistökunum, en ekki
nudda öðrum upp úr þeim.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er fátt eins skemmtilegt
og að sjá störf sín bera góðan ávöxt. Þig
þyrstir eftir nýjasta slúðrinu og fréttum
af mönnum og málefnum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Í stað þess að einblína á trén
sérðu loks skóginn. Nú væri upplagt að
gera sér glaðan dag í góðra vina hópi.
Hristu upp í hlutunum og leyfðu hug-
myndafluginu að njóta sín.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Gamalt vandamál kemur upp á
yfirborðið. Ef þú einbeitir þér að viðtök-
unum eyðileggur það fyrir tjáningunni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það kallar á heilmikið skipulag
þegar margt liggur fyrir bæði í starfi og
utan þess. Flikkaðu upp á þig og gakktu
til verks af opnum huga.
Stjörnuspá
Þetta gerðist …
9. júlí 1946
Skemmtigarðurinn Tívolí var
opnaður í Vatnsmýrinni í
Reykjavík. Þar voru meðal
annars bílabraut, hringekja,
Parísarhjól og danspallur.
Starfseminni var hætt árið
1964.
9. júlí 1976
Mesti hiti í Reykjavík á tutt-
ugustu öld, 24,3°C, mældist
þennan dag. Hitinn var meiri
en tuttugu stig frá hádegi og
fram á kvöld. Aðalfyrirsögn
Vísis daginn eftir var: „Íslensk
hitabylgja“. Metið var slegið í
ágúst 2004 og aftur í lok júlí
2008.
9. júlí 1994
Síldarminjasafn var formlega
opnað í Roaldsbrakka á Siglu-
firði, en safngripir höfðu um
skeið verið til sýnis í öðru
húsi. „Það ríkti hátíðarstemn-
ing á Siglufirði,“ sagði í Degi.
9. júlí 2005
Fyrstu stúdentarnir voru út-
skrifaðir frá Menntaskólanum
Hraðbraut, eftir tveggja ára
nám.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Matthildur María Karlsdóttir, El-
ín María Matthíasdóttir, Jórunn
María Matthíasdóttir og Valdís
María Guðmundsdóttir héldu hluta-
veltu á dögunum og söfnuðu 10.300
kr. sem þær lögðu inn á reikning til
styrktar Ellu Dís Laurens.
Hlutavelta
„Ég ætla mér að vera í Borgarfirðinum og halda
þar upp á afmælið í faðmi fjölskyldunnar,“ segir
Ingibjörg Júlíusdóttir en hún er 65 ára í dag.
Hún segir Borgarfjörðinn vera eina af sínum
uppáhaldssveitum á Íslandi og hlakkar mikið til að
njóta helgarinnar þar. Undirbúningur var í fullum
gangi þegar blaðamaður náði af henni tali og voru
dóttir hennar og tengdasonur í heimsókn.
„Við verðum þarna tólf saman um helgina, dæt-
ur mínar, tengdasynir og barnabörn. Dæturnar
héldu mér veglega veislu þegar ég varð sextug svo
ég læt það duga,“ segir Ingibjörg sem hyggur ekki
á nein stórkostleg veisluhöld í tilefni dagsins.
Ingibjörg starfaði í mörg ár sem kennari í grunnskólum Reykjavík-
ur en hefur nú lagt kennsluna á hilluna.
Fjölskyldan ætlar að dvelja í einum bústaða Kennarasambands Ís-
lands í Borgarfirði.
Ingibjörg er bjartsýn kona og því leggst aldurinn hreint ekki illa í
hana. „Aldur er svo afstætt hugtak að það skiptir mig engu þótt ég sé
orðin 65 ára. Það eldast allir um eitt ár á hverju ári,“ segir hún og
hlær. hjaltigeir@mbl.is
Ingibjörg Júlíusdóttir kennari er 65 ára
Heldur upp á Borgarfjörðinn
Sudoku
Frumstig
3 4 5
7 1 2 3
3 2 1
7 1 3 6 9
5 7
5 4 6
4 7
6 2 7 1
6 7
6 4 2
3
5 3
8 6
2 4 7 5
7 4 9 5
3 7 6 8
8 2 5 6 7
1
5 3
8 9 4
5 1 6 7
9
7 3 9
2 1 5
3 5 8
9 7 2 8
5 1 9 4 6 7 8 3 2
4 7 8 1 3 2 9 6 5
3 6 2 8 9 5 7 1 4
7 4 5 6 1 3 2 8 9
9 3 1 2 8 4 6 5 7
2 8 6 7 5 9 1 4 3
6 9 7 5 4 8 3 2 1
8 2 4 3 7 1 5 9 6
1 5 3 9 2 6 4 7 8
7 3 6 1 4 2 8 5 9
5 1 4 7 8 9 6 3 2
9 8 2 6 3 5 7 4 1
4 5 8 9 2 1 3 7 6
1 6 3 8 7 4 2 9 5
2 9 7 5 6 3 4 1 8
8 2 1 4 5 7 9 6 3
6 7 9 3 1 8 5 2 4
3 4 5 2 9 6 1 8 7
5 7 2 3 4 8 6 9 1
4 9 1 6 2 7 3 8 5
8 6 3 9 5 1 7 2 4
6 1 7 5 9 4 2 3 8
9 3 5 1 8 2 4 7 6
2 4 8 7 3 6 5 1 9
1 5 9 4 7 3 8 6 2
7 2 4 8 6 9 1 5 3
3 8 6 2 1 5 9 4 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 9. júlí, 190. dagur
ársins 2010
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rc3 d6 3. f4 Rc6 4. Rf3 g6
5. d4 cxd4 6. Rxd4 Bg7 7. Be3 Rf6 8.
Be2 Bd7 9. Rb3 Hc8 10. O-O O-O 11.
De1 a6 12. Kh1 b5 13. Hd1 Rb4 14.
Hd2 Rxc2 15. Hxc2 b4 16. Bxa6 Ha8
17. Bd3 bxc3 18. bxc3 Ha4 19. e5
Rd5 20. Bd4 Bc6 21. Hd2 Da8 22.
exd6 exd6 23. Bxg7 He8 24. Da1 Re3
25. Hg1
Staðan kom upp í A-flokki minn-
ingarmóts Capablanca sem lauk fyr-
ir skömmu í Havana á Kúbu. Ian
Nepomniachtchi (2695) hafði svart
gegn Nigel Short (2685). 25… Rxg2!
26. Hgxg2 Hxa2! 27. Hxa2 Dxa2 28.
Bf1 hvítur hefði orðið mát eftir 28.
Dxa2 He1+. 28… Bxg2+ og hvítur
gafst upp enda fátt um fína drætti í
stöðu hans eftir 29. Bxg2 Dxa1+ 30.
Rxa1 He1+ 31. Bf1 Hxf1+ 32. Kg2
Hxa1.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Nútíma tækni.
Norður
♠KD2
♥G10765
♦9
♣K642
Vestur Austur
♠G9 ♠Á107654
♥K932 ♥D8
♦KG74 ♦10632
♣1093 ♣8
Suður
♠83
♥Á4
♦ÁD85
♣ÁDG75
Suður spilar 4♥.
Í leik Íslands og Ísrael sá nútíma
tækni til þess að suður varð sagnhafi í
hjartasamningi á báðum borðum. Þor-
lákur Jónsson doblaði Multi 2♦-opnun
austurs, vestur sagði 2♠ leitandi og
Jón Baldursson yfirfærði í hjarta með
3♦ – svokölluð Rubensohl-sagnvenja.
Þorlákur tók yfirfærslunni og Jón fór
ekki hærra. Út kom ♠G, kóngur upp,
sem austur tók strax og spilaði laufi.
Þorlákur réð vel við það. Spilaði ♥Á og
hjarta í bláinn. Yfirslagur.
Hinum megin passaði Sigurbjörn
Haraldsson í austur, suður opnaði á
Standard-laufi og norður yfirfærði í
hjarta með 1♦. Bessi kom inn á 1♠, en
niðurstaðan var 4♥ í suður. Spaðagosi
út – kóngur upp og lítill spaði hjá
Bessa. Eldsnöggt. Nú er sama hvað
sagnhafi rembist, hann gefur alltaf tvo
slagi á spaða og tvo á tromp.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is