Morgunblaðið - 09.07.2010, Síða 37
Menning 37FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010
Meðan á HM í fótbolta stendur hefur Amnesty International
teflt fram alþjóðlega liðinu Stand Up United. Ekki er um eig-
inlegt knattspyrnulið að ræða heldur lið ellefu einstaklinga til
varnar mannréttindum og fólki gefst kostur á að styðja fjár-
hagslega vegna hinna ýmsu verkefna. Hver svo sem mannrétt-
indin eru sem þeir berjast fyrir, mega liðsmenn Stand Up Unit-
ed eiga von á öflugri andstöðu, segir á heimasíðu Amnesty. Af
þessu tilefni lék úrvalslið Amnesty á Íslandi gegn liði gamalla
Þórsara í lok árlegs Pollamóts Þórs á Akureyri fyrir eldri knatt-
spyrnumenn um síðustu helgi. Úrslitin urðu 4:4 og sýndu marg-
ir, gamlir leikmenn og aðrir, skemmtilega takta. skapti@mbl.is
Hvatt Mæðgurnar Nína Dögg Filippusdóttir og Rakel María Gísladóttir.
Áfram! Berjast! Berjast! Amnesty-liðar búa sig undir seinni hálfleikinn.
Fagnað Börkur Gunnarsson fagnar einu marka Amnesty liðsins.
Planað Halla Gunnarsdóttir leggur á ráðin.
Ragnar Bragason og Ari Matthíasson hlusta.
Sótt Siguróli „Moli“ Kristjánsson sækir að Birni
Inga Hilmarssyni markverði Amnesty-liðsins.
Allir saman í vörninni
Á haus Nói Björnsson rennir sér í Magnús Scheving, sem forðaði sér með því að fara kollhnís eins og íþróttaálfi sæmir.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Arkitektarnir Dagur Eggertsson og
Sami Rintala, sem reka saman arki-
tektastofu á tveimur stöðum í Noregi,
Rintala Eggertsson, hafa reist mik-
inn viðarturn fullan af bókum í hinu
virta Victoria and Albert-safni í
Lundúnum, elsta hönnunarsafni
heims. Innsetning þessi ber heitið
ARK og er hluti af verkefni safnsins
1:1 Architects Build Small Spaces
sem felst í því að leyfa arkitektum að
hanna innsetningar í safnið. Rintala
Eggertsson keppti við þrjár aðrar
stofur um innsetningu á þessum stað
í safninu og varð tillaga stofunnar
fyrir valinu en alls voru sjö mannvirki
reist í safninu eða innsetningar. Verk
Dags og Rintala er við stigagang sem
liggur að breska listbókasafninu,
National Art Library.
Líkamlegt og andlegt afdrep
„Yfirskriftin var „retreat“. Við átt-
um að búa til afdrep í safninu þar sem
fólk gæti tekið sér smápásu frá erl-
inum í safninu. Það fengu allir það
verkefni að búa til svona afdrep. Við
leystum þetta á þennan hátt. Annars
vegar að búa til svona líkamlegt af-
drep þar sem þú gast fengið afdrep
frá skarkala safnsins og tekið þér
pásu frá röltinu um safnið, komist inn
í það rými sem við sköpuðum sem
tengist því. Og hins vegar að skapa
rými fyrir and-
legan flótta frá
safninu eða þessu
umhverfi, komast
inn í heim bók-
mennta og frá-
sagna um náttúr-
una,“ segir
Dagur. Þeir Rin-
tala hafi sóst eftir
bókum um náttúr-
una en ekki fengið margar slíkar
bækur. Þeir hafi þó verið svo heppnir
að fá heilmargar norrænar bækur
gefins frá norrænu bókasafni með að-
stoð sendiráðs Noregs í Lundúnum.
„Það er náttúrlega hluti af þessu,
þegar maður kemur frá þessari
ósnortnu náttúru á Norðurlöndunum,
að taka eitthvað af sér af þessu bygg-
ingarefni sem er vistvænt og vekja
athygli á því.“
– Og þið notið í þetta hrátt og
óheflað timbur?
„Já, alveg ómálað og fengum mjög
góð viðbrögð við því,“ svarar Dagur.
Safngestir finni lyktina af timbrinu
og fari að leita að verkinu, renni á
lyktina. Dagur segir gaman að geta
virkjað skilningarvit gesta með þess-
um hætti.
Gildi bókmennta
Verkið nær upp þrjár hæðir á safn-
inu og ganga gestir inn í það að neð-
anverðu og geta gengið upp og kíkt í
bækur. Fólk verður svo að fara út um
sömu dyr og það kom inn um.
– Titillinn á verkinu, ARK, er hann
vísun í örkina hans Nóa?
„Það vísar aðeins í það, já, og að
safna saman eintökum og svo erum
við líka aðeins að vísa í þennan digital
heim, hvernig bókmenntir eru að
færast smám saman yfir í stafrænan
heim og munu kannski hverfa ein-
hvern tíma. Ekki það að þetta sé nein
rómantík að því leyti en það er verið
að vekja fólk til umhugsunar um það
hversu mikið gildi bækur og bók-
menntir hafa haft fyrir okkur á Norð-
urlöndunum.“
Þótt arkitektastofa Dags og Rin-
tala sé með bækistöðvar í Noregi, í
Osló og Bodö, sinnir hún verkefnum
víða um heim. Dagur nefnir sem
dæmi að stofan sé að hefja verkefni á
Svalbarða, annað sé að fara af stað í
Chile og eitt í Sjanghæ. „Svo erum
við að fara á Feneyjatvíæringinn
núna og verðum að sýna í norræna
skálanum,“ bætir Dagur við. Eft-
irsóknarvert sé að komast á arki-
tektatvíæringinn en hann fái litla at-
hygli á Íslandi þar sem Íslendingar
taki ekki þátt í honum. Hann hafi hins
vegar mikið auglýsingagildi fyrir
arkitektastofur.
Afdrep í V&A
Arkitektastofa Dags Eggertssonar og Sami Rintala
hannaði turn í Victoria and Albert Museum í Lundúnum
Dagur
Ljósmynd/Pasi Aalto
Örkin Innsetning Dags og Rintala í Victoria and Albert Museum í Lund-
únum er áberandi og gestir kunna að meta timburlyktina.
Skoða má verkefni Rintala Egg-
ertsson á rintalaeggertsson.com.
Þá má kynna sér allar innsetning-
arnar á vef V&A, www.vam.ac.uk.