Fréttablaðið - 18.11.2011, Side 2
18. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR2
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu hefur rökstudd-
an grun um að þjófaklíka sem
talin er hafa staðið að fjölda inn-
brota fyrr á árinu sé komin aftur
á kreik og hafi hafist handa við
sömu iðju á nýjan leik, einkum í
austurborginni að þessu sinni.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar hefur verið brotist inn
eða gerð tilraun til innbrots á höf-
uðborgarsvæðinu í nær tuttugu
skipti á síðustu tveimur vikum.
Síðast var brotist inn á heimili
í austurborginni í gærmorgun.
Talsverðu magni af skartgripum
hefur verið stolið.
Innbrotin nú eru spegilmynd
innbrotafaraldursins sem reið
yfir höfuðborgarsvæðið í febrú-
ar og mars síðastliðinn vetur. Þá
stálu þjófarnir einungis dýrum
skartgripum og dýrum úrum.
Sama er upp á teningnum nú.
Flest innbrotin voru í fyrra í sér-
býli við jaðar byggðar, dreift um
höfuðborgarsvæðið. Nú virðast
þjófarnir velja sér „viðfangsefni“
þar sem þeir geta athafnað sig við
svipaðar aðstæður.
Þá eiga báðar innbrotahrin-
urnar það sammerkt að þjófarn-
ir fara gjarnan inn um glugga
eða svaladyr á svefnherbergjum
og virðist það ekki hafa fælandi
áhrif á þá að heimili séu tengd
öryggisþjónustu. Þeir eru snögg-
ir að athafna sig og ásælast eink-
um skartgripi og úr, eins og áður
sagði. Þeir virðast vandfýsnir á
hverju þeir stela, því þeir hafa
tínt úr gullgripi en skilið silfur-
muni og skartgripi úr ódýrari
málmum.
Mörg innbrotanna hafa verið
framin á tímabilinu frá klukkan
17 til 22 þegar heimilisfólk hefur
brugðið sér frá. Lögregla hefur
fengið upplýsingar um tvo karl-
menn sem talið er hugsanlegt að
tengist málinu. Þeir hafa gengið í
hús og borið upp ýmis fjarstæðu-
kennd erindi, að því er virðist til
að kanna hvort fólk sé heima við.
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hvetur fólk til að vera á varð-
bergi og koma á framfæri upp-
lýsingum um grunsamlegar
mannaferðir í síma 444-1000.
jss@frettabladid.is
Laufey, er til svar við öllum
spurningum?
„Það er ekki endilega til eitt rétt svar
við hverri spurningu en það er til
svar við öllum spurningum.“
Laufey Haraldsdóttir var í sigurliði
Kvennaskólans í spurningakeppninni
Gettu betur í vor. Hún býr sig nú undir að
verja titilinn í vetur.
LÖGREGLUMÁL Tvær konu
r í Kópa-
vogi, sem urðu nýle
ga fyrir
barðinu á bíræfnum sk
artgripa-
þjófum, fá ekki nema f
imm pró-
sent af tryggingafjárhæ
ð á innbúi
og persónulegum munu
m endur-
greidd frá trygginga
félaginu.
Þær voru tryggðar hjá V
ÍS. Þjóf-
arnir höfðu á brott með
sér mikið
af dýrum skartgripum ú
r gulli og
hvítagulli með eðalstein
um.
Innbrotafaraldur er nú
í gangi,
eins og Fréttablaðið gr
eindi frá
í gær. Um tuttugu inn
brot hafa
verið framin á höfu
ðborgar-
svæðinu. Þau eiga það s
ammerkt
að einungis var farið inn
í sérbýli,
helst inn um svefnherber
gisglugga
eða dyr á bakhliðum hús
a í útjaðri
byggðar og dýrum ska
rtgripum
stolið.
Konurnar tvær sem Frét
tablaðið
ræddi við í gær báðust u
ndan því
að koma fram undir na
fni undir
þessum erfiðu kringum
stæðum.
Þær voru sammála um
að þjóf-
arnir væru þrautþjálfa
ðir í sínu
„fagi“. Báðar kváðust þæ
r ætla að
herða öryggisgæslu heim
a hjá sér
eftir föngum eftir þessa d
apurlegu
reynslu.
Önnur kvennanna var m
eð stórt
skartgripaskrín í fata
herbergi
undir stafla af fötum.
Þjófarnir
tæmdu það, að nokkru
m silfur-
skartgripum og semelí
usteinum
undanskildum, og settu
það síðan
aftur á sinn stað. Kona
n, sem er
ekkja, átti meðal annars
mikið af
sérsmíðuðum skartgri
pum sem
maðurinn hennar hafði g
efið henni
og þeim stálu þjófarnir,
auk gift-
ingarhringa þeirra beggj
a. Að auki
voru dýrmætir ættargrip
ir teknir.
Konan er með átta m
illjóna
króna innbústryggingu
en hefur
verið tjáð að hún fái að
hámarki
fimm prósent af henni eð
a 400 þús-
und krónur.
„Ég reyni bara að gleðj
ast yfir
því að hvorki börn mín
né aðrir
sem ég þekki stunda
óheiðar-
lega iðju, heldur er got
t og heil-
brigt fólk í kringum m
ig,“ segir
hún. Hin konan og tvæ
r dætur
hennar misstu skartgr
ipi sína,
auk tveggja nýlegra tölva
, sem hún
hafði nýverið skannað a
llar sínar
fjölskyldumyndir inn á. H
ún segir
þjófana hafa valið vendi
lega dýra
skartgripi, en skilið hin
a ódýrari
eftir.
Hildur Arna Hjartar
dóttir,
vörustjóri hjá VÍS, segir
að F plús
trygging á innbúi og
persónu-
legum munum nái ekki
yfir úr og
skartgripi. Um sé að ræð
a tiltekið
ákvæði í skilmálum þar
sem segi
að úr og skartgripir fáis
t bætt að
hámarki með fimm prós
entum af
vátryggingafjárhæðinni
. Fólki sé
bent á að taka sérstakar
trygging-
ar fyrir skartgripum.
jss@frettabladid.is
Ég reyni bara að
gleðjast yfir því
að hvorki börnin mín né
aðrir sem ég þekki stunda
óheiðar lega iðju.
FÓRNARLAMB SK
ARTGRIPAÞJÓFA
Mar
kona
við H
Hún
í Ve
eyju
jún
M
nam
Lei
skó
ar P
ar
bu
pró
lei
lei
19
Re
hl
ve
kv
út
M
le
d
M
dó
B
u
n
o
s
b
t
a
Ö
L
t
Bæta stolna skartgripi
eingöngu að litlu leyti
Tvær konur sem urðu ný
lega fyrir því að bíræfni
r skartgripaþjófar brutu
st inn
á heimili þeirra segja þá
þrautþjálfaða í sínu „fag
i“. Tryggingafélagið bæt
ir
aðeins hluta hinna stoln
u skartgripa en slíka grip
i þarf að tryggja sérstakl
ega.
SKARTGRIPIR Innbrotsþjóf
arnir sem hafa látið greipa
r sópa á heimilum fólks á
undanförnum vikum hafa
sóst eftir dýru skarti en ski
lið hið ódýrara eftir.
MYND/ÚR SAFNI
2008. Þá lögð þ
fram kauptilboð í skuld
abréf frá slíkum bré
fum og þ
P tú l varpar skugga á le
iðtogafund
m
ma
n
r
að
ildi
- gb
ndi-
kó,
gja
nna
þær
s.
ra
sér
afa
- gb
ð
li
LÖGREGLUMÁL Innbrotsþjófar sem
einkum eru á höttunum eftir
dýrum skartgripum hafa á undan-
förnum vikum herjað á tiltekin
hverfi á höfuðborgarsvæðinu. Lög-
regla segir um faraldur að ræða.
Meðal annars var dýrm tum
ættargripum stolið frá konu sem
Fréttablaðið ræddi við í gær.
Á undanförnum mánuði hafa
um tuttugu innbrot verið framin
í einbýlishúsahverfum í Hafnar-
firði, Kópavogi og Grafarvogi.
Hafa þjófarnir aðeins stolið dýrum
skartgripum og ekki skilið eftir
sig verksummerki, að skemmdum
við innbrotin undanskildum.
Í sumum hverfanna þar sem fólk
hefur orðið fyrir barðinu á inn-
brotsþjófum ætla íbúar að taka
sig saman og koma á fót öflugri
nágrannavörslu.
„Íbúar við götuna sem ég bý í
ætla að efna til fundar með lög-
reglu og tryggingafyrirtækjum
til að fá upplýsingar um viðbrögð
við þessum innbrotum,“ segir Þor-
steinn Vilhelmsson, íbúi í Kópa-
vogi. Brotist var inn á heimili
hans og eiginkonu hans um síð-
ustu helgi. Brotist hefur verið inn
á fimm heimili í hverfi þeirra.
Þorsteinn segir nauðsynlegt að
lögregla sé í stakk búin að takast
hratt og vel á við verkefni af þessu
tagi.
Einar Ásbjörnsson, lögreglu-
fulltrúi á höfuðborgarsvæðinu,
segir mikilvægt að fólk hafi tiltek-
in atriði í huga til að verjast inn-
brotsþjófum. Gæta þurfi að því að
allar krækjur á hurðum og glugg-
um séu í lagi. Fólk þurfi að vera
vakandi fyrir umferð fólks sem
ekki virðist eiga erindi inn í götur,
taka niður bílnúmer og hika ekki
við að láta lögreglu vita þyki eitt-
hvað grunsamlegt á ferðinni. Hús
í jaðri hverfa hafi verið útsettari
fyrir innbrotum. Gjarnan sé farið
inn baka til í skjóli trjáa, sólpalla
og skjólveggja. Þetta þurfi að hafa
í huga.
„Yfirleitt eru innbrot framin á
hefðbundnum vinnutíma fólks,“
útskýrir Einar. „En í þessari
hrinu nú hafa þjófarnir yfirleitt
verið seinna á ferðinni, jafnvel
fram undir klukkan átta á kvöld-
in. Bíræfnin er því töluverð.“ - jss
Láta allt vera nema
v r æta skartgripi
Hrina skartgripaþjófnaða gengur yfir sérbýlishúsahverfi á höfuðborgarsvæð-inu. Innbrotsþjófarnir sækjast einkum eftir dýrum skartgripum og skilja ekki eftir sig verksummerki. Efla á nágrannavörslu og árvekni í hverfunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skartgripaþjófar eru
komnir aftur á kreik
Nær tuttugu innbrot hafa verið framin á höfuðborgarsvæðinu á síðastliðnum
tveimur vikum. Þjófarnir stela úr svefnherbergjum og takmarka feng sinn við
skartgripi úr gulli og verðmæt úr, nákvæmlega eins og í hrinunni í fyrravetur.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir mikilvægt að fólk hafi tiltekin atriði
í huga til að verjast innbrotsþjófum. Gæta þurfi að því að allar krækjur á
hurðum og gluggum séu í lagi. Fólk þurfi að vera vakandi fyrir umferð fólks
sem ekki virðist eiga erindi inn í götur, taka niður bílnúmer og hika ekki við
að láta lögreglu vita, þyki eitthvað grunsamlegt á ferðinni. Hús í jaðri hverfa
hafi verið berskjaldaðri fyrir innbrotum. Gjarnan sé farið inn baka til í skjóli
trjáa, sólpalla og skjólveggja. Þetta þurfi að hafa í huga.
Varnir gegn innbrotsþjófum
ÍTALÍA Ljósmynd sem sýnir Bene-
dikt páfa XVI og egypska trúar-
leiðtogann Ahmed el-Tayeb
kyssast hefur verið tekið niður
að kröfu Páfagarðs.
Myndin var sett upp í
tengslum við auglýsingaherferð
verslanakeðjunnar Benetton,
sem áður hefur birt umdeildar
auglýsingamyndir.
Auk myndarinnar af páfa-
kossinum tilheyra auglýsinga-
herferðinni ljósmyndir af
öðrum þekktum leiðtogapörum
að kyssast. Á einni myndinni
sjást til dæmis þeir Benjamín
Netanjahú, forsætisráðherra
Ísraels, og Mahmoud Abbas, for-
seti Palestínustjórnar, kyssast,
á annarri Kim Jong-il og Lee
Myung-bak, leiðtogar Suður- og
Norður-Kóreu, og á þeirri þriðju
Angela Merkel Þýskalands-
kanslari og Nicolas Sarkozy,
forseti Frakklands. - gb
Páfagarður ósáttur:
Kossamynd af
páfa fjarlægð
TVÆR MYNDANNA Auk páfans og
íslamska bænaleiðtogans sjást þarna
Barack Obama Bandaríkjaforseti og Hu
Jintao, leiðtogi Kína, sameinast í kossi.
NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu lagði hald á tæp-
lega 60 grömm af amfetamíni,
rúmlega 100 grömm af marijúana
og stera við húsleit í íbúð í fjöl-
býlishúsi í Árbæ í fyrradag.
Tveir karlmenn voru handtekn-
ir, húsráðandi og maður sem var
gestkomandi. Gesturinn var með
tæplega 40 grömm af amfetamíni
og rúmlega 30 grömm af mari-
júana á sér sem einnig var tekið.
Mennirnir, sem eru á fertugs-
og sextugsaldri, játuðu aðild
sína að málinu en báðir hafa þeir
ítrekað komið við sögu hjá lög-
reglu. - jss
Fundu fíkniefni í Árbænum:
Tveir menn
handteknir
HAFNARFJÖRÐUR Bæjaryfirvöld í
Hafnarfirði eiga nú í viðræðum
við Rio Tinto Alcan vegna vatns-
gjalds. Með vísan í lög frá 2007
lagði Vatnsveita Hafnarfjarðar
66,7 milljóna króna aukagjald
á álverið í Straumsvík vegna
áranna 2005 til 2009.
Alcan greiddi upphæðina en
innanríkisráðuneytið hefur síðar
tekið undir með fyrirtækinu og
úrskurðað að því beri ekki að
greiða vatnsgjald til Vatnsveitu
Hafnarfjarðar. Á síðasta fundi
umhverfis- og framkvæmda-
ráðs bæjarins bókaði fulltrúi
minnihluta Sjálfstæðisflokks að
nauðsynlegt væri að fá skorið úr
málinu fyrir dómstólum. - gar
Rætt við Alcan um vatnsgjald:
Minnihlutinn
vill dómsmál
STRAUMSVÍK Ágreiningur um vatnsgjald
veldur áhyggjum í Hafnarfirði.
STELA DÝRUM SKARTGRIPUM
Innbrotshrinan nú á það
sammerkt með fyrri hrinu að
þjófarnir eru snöggir að athafna
sig og þeir virðast vandfýsnir
á hverju þeir stela. Mörg inn-
brotanna hafa verið framin að
kvöldi til.
Eldur í potti í Kópavogi
Slökkviliðið var kallað að húsi
í Laufbrekku í Kópavogi í gær-
kvöldi. Þaðan var tilkynnt um eld
í feitispotti. Ekki var um neinn eld
að ræða en töluverðan reyk lagði
frá pottinum. Slökkviliðsmenn
reykræstu húsið.
BRUNI
Ólík afstaða almennings
Hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ertu því að
íslensk stjórnvöld dragi umsókn um aðild að
Evrópusambandinu til baka?
Hvort vilt þú ljúka aðildarviðræðum við ESV
og fá að kjósa um samninginn í þjóðar-
atkvæðagreiðslu eða slíta aðildarviðræðum
við ESB?
MMR Capacent
■ Mjög eða frekar andvíg(ur)
■ Hvorki fylgjandi né andvígur
■ Mjög eða frekar fylgjandi
35,3%
53,1% 46,9%
14,2%
50,5%
■ Ljúka viðræðum
■ Slíta aðildarviðræðum
KÖNNUN Tvær kannanir sem greint
var frá í gær sýna ólíka afstöðu
almennings til viðræðna við Evr-
ópusambandið. Samkvæmt nið-
urstöðu Capacent vill meirihluti
landsmanna ljúka viðræðum, en
samkvæmt könnun MMR vill
meirihlutinn slíta viðræðum.
Í könnun MMR, sem unnin var
fyrir vefsíðuna andriki.is, var
aðeins spurt hvort fólk vildi draga
umsóknina til baka eða ekki. Í
könnun Capacent, sem gerð var
fyrir Sterkara Ísland, var spurt
hvort fólk vildi draga umsókn-
ina til baka eða ljúka viðræðum
og setja niðurstöðuna í þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Í könnun Capacent, sem sagt er
frá í Fréttatímanum í dag, segist
53,1 prósent vilja ljúka aðildar-
viðræðum og kjósa um samning-
inn en 46,9 prósent vilja slíta þeim.
Könnun MMR sýndi að held-
ur fækkar í hópi þeirra sem vilja
draga umsóknina til baka. Um 50,5
prósent segjast þessarar skoðun-
ar í dag, en 57,6 prósent vildu fara
þá leið í júní í fyrra. Nú segjast
35,3 prósent andvíg því að draga
umsóknina til baka, en hlutfallið
var 24,3 prósent í fyrra. - bj
Könnun MMR sýnir að heldur dregur úr fjölda þeirra sem vilja slíta aðildarviðræðum við Evrópusambandið:
Misvísandi kannanir um ESB-viðræður
SLYS Mikill harmur ríkir á Siglufirði og
Ólafsfirði vegna banaslyss sem varð þar á
miðvikudagskvöld. Þrettán ára stúlka lést
þegar fólksbíl var ekið á hana eftir að hún
steig út úr rútu. Hún var flutt rakleiðis á
sjúkrahúsið á Akureyri eftir slysið en var
úrskurðuð látin við komuna þangað.
Önnur stúlka var flutt alvarlega slösuð
til Akureyrar og lögð inn á gjörgæsludeild.
Hún er illa brotin, en með meðvitund og
ekki í lífshættu. Sú þriðja fékk að fara
heim með minniháttar áverka að lokinni
skoðun á heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar.
Stúlkurnar voru að koma frá Ólafsfirði,
þar sem þær höfðu verið í félagsheimilinu
um kvöldið ásamt skólasystkinum sínum.
Skólafélögum stúlknanna í grunnskóla
Fjallabyggðar á Siglufirði var veitt áfalla-
hjálp í gær. Í skólanum eru um hundrað
börn og unglingar. Þá var haldin minning-
arstund í Siglufjarðarkirkju í gærkvöldi.
Lögregla rannsakar hvort ökumaður
fólksbílsins var allsgáður undir stýri. - sh
Þrettán ára stúlka lést og jafnaldra hennar slasaðist alvarlega:
Siglfirðingar í sárum eftir banaslys
AF SLYSSTAÐ Fólk lagði blómvendi og kerti á slysstaðinn í gær. Víða í
bænum blöktu fánar í hálfa stöng. FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL AÐALSTEINSSON
SPURNING DAGSINS