Fréttablaðið - 18.11.2011, Síða 4
18. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR4
BRETLAND Seðlabankar víða um
heim hafa keypt gull í stórum
skömmtum undanfarið. Á þriðja
fjórðungi ársins keyptu þeir sam-
tals nærri 150 tonn af gulli, sem
er mesta magn sem þeir hafa
keypt áratugum saman.
Seðlabankar keyptu reyndar
lítið sem ekkert af gulli frá árinu
1988 þar til á síðasta ári, þegar
kreppan hafði dregið verulega
úr tiltrú manna á gjaldmiðlum
flestra ríkja heims.
Talið er að heildargullkaup
seðlabankanna verði 400 til 500
tonn á þessu ári. - gb
Seðlabankar tryggja sig:
Kaupa gull
í gríð og erg
LÖGREGLUMÁL Karl á fimmtugs-
aldri var tekinn með kókaín inn-
vortis í Leifsstöð í vikunni. Hann
var úrskurðaður í gæsluvarðhald
sem rennur út í dag.
Maðurinn var að koma frá
Kaupmannahöfn þegar hann var
handtekinn á mánudag, grunaður
um að vera með fíkniefni. Hann
reyndist vera með 120 grömm
af kókaíni innvortis. Rannsókn á
styrkleika kókaínsins er ólokið.
Maðurinn hefur lítillega komið
við sögu lögreglu áður, þó vegna
fíkniefnabrota. - jss
Karlmaður í gæsluvarðhaldi:
Smyglaði kóka-
íni innvortis
KÖNNUN Fjórir af hverjum tíu sem
afstöðu tóku í nýrri könnun MMR
segjast hafa hugsað um að flytja
af landi brott á síðustu mánuðum.
Um 26,5 prósent sögðust hafa
íhugað það vegna efnahags-
ástandsins, en 13,3 prósent af
öðrum ástæðum. Meirihluti
landsmanna, um 60,1 prósent,
hefur ekki hugsað um að flytja til
annars lands á síðustu mánuðum.
Meirihluti fólks á aldrinum 18
til 29 ára hefur íhugað að flytja
til útlanda, um 56,6 prósent.
Karlar eru líklegri en konur
til að íhuga að flytja frá landinu,
auk þess sem þeir sem hafa lægri
tekjur hugsa frekar um að flytja
en þeir sem hafa hærri tekjur. - bj
Áhugi á að flytja frá Íslandi:
Meirihluti ungs
fólks hefur
íhugað að flytja
GULL Seðlabankar víða um heim hafa
keypt hundruð tonna. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Búast má við umtals-
verðri fjölgun ferðamanna hér
á landi á næsta ári vegna auk-
ins framboðs ferða til landsins,
sagði Birkir Hólm Guðnason,
framkvæmdastjóri Icelandair, á
markaðsfundi félagsins í gær.
Haft er eftir Birki í tilkynn-
ingu frá félaginu að Icelandair
muni auka framboð ferða um
fjórtán prósent samanborið við
árið í ár. Áætlanir félagsins gera
ráð fyrir að farþegar verði um
tvær milljónir á næsta ári.
Birkir sagði að vel gangi
að bóka ferðir til Denver í
Bandaríkjunum, en það er nýr
áfangastaður Icelandair. - bj
Ferðamönnum mun fjölga:
14% aukning á
framboði ferða
Skráning á
mottaka@heilsuborg.is
eða í síma 560 1010
Streita og svefntruflanir
Hvað er til ráða?
Þriggja kvölda námskeið:
24. nóv, 29. nóv og 1. des kl. 20.00
Verð samtals kr. 7.500
Erla Gerður Sveinsdóttir,
yfirlæknir HNLFÍ
og Heilsuborgar
Magna Fríður Birnir,
hjúkrunarforstjóri HNLFÍ
Sigrún Ása Þórðar dóttir,
sálfræðingur og verkefna-
stjóri HNLFÍ
og Heilsuborgar
GENGIÐ 17.11.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
214,6795
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
117,59 118,15
185,2 186,1
158,42 159,3
21,284 21,408
20,289 20,409
17,301 17,403
1,5268 1,5358
183,58 184,68
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
LÍKNARMÁL Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur úthlutar jólaglaðn-
ingi fyrir þessi jól eins og undan-
farin ár.
Tekið verður á móti umsóknum
um jólaglaðning í húsnæði
Mæðrastyrksnefndar við Hátún
12 í Reykjavík milli klukkan 10
og 14 þriðjudagana 22. og 29.
nóvember, fimmtudaginn 1. des-
ember, þriðjudaginn 6. desember
og fimmtudaginn 8. desember.
Úthlutun jólaglaðningsins
verður síðan 19., 20. og 21. des-
ember milli 10 og 12 og milli 13
og 15 að Fiskislóð 14.
Mæðrastyrksnefnd úthlutar:
Umsóknir um
jólaglaðning
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
9°
5°
10°
7°
8°
8°
8°
23°
14°
20°
7°
22°
1°
13°
13°
7°Á MORGUN
Hægviðri en vaxandi
SA-átt annað kvöld.
SUNNUDAGUR
8-13 m/s.
5
5
3
4
1
6
6
7
8
8
8
5
6
3
3
4
2
7
2
4
5
10
3
4
6
6
8
8
7
6
5
HELGARHORFUR
Það er góðviðrisspá
fyrir morgundaginn
en þá verður víðast
hæg breytileg átt
og nokkuð bjart.
Hins vegur breytist
þetta annað kvöld
með vaxandi
suðaustanátt og
rigningu sunnan og
vestan til. Fremur
stíf sunnanátt á
sunnudag með
vætu en bjart norð-
austanlands.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
STJÓRNMÁL Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
hvatti þá flokksmenn sem kynnu að
hafa komið sér fyrir í skotgröfum
í afstöðu sinni til aðildarumsókn-
ar að Evrópusambandinu (ESB) til
að stíga upp úr þeim í setningar-
ræðu sinni á landsfundi flokksins í
Laugardalshöll í gær.
„Síðasti landsfundur okkar álykt-
aði að draga bæri aðildarumsóknina
til baka. Það er stefna flokksins og
hún er skýr. Að mínu mati er þetta
rökrétt niðurstaða, óháð því hvaða
afstöðu menn hafa til aðildar,“ sagði
Bjarni.
„Mín sannfæring er sú að hags-
munum Íslands sé best borgið utan
ESB. En ég ítreka það sem ég sagði
á síðasta landsfundi. Ef ríkisstjórn-
in þráast við og heldur viðræðun-
um til streitu er það að sjálfsögðu
skylda okkar að beita okkur af alefli
fyrir því að hagsmuna Íslands verði
gætt í hvívetna í viðræðuferlinu,“
sagði Bjarni.
Í ræðu sinni varði Bjarni þá
ákvörðun sína og meirihluta þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins að
styðja þriðju Icesave-samningana
í atkvæðagreiðslu á Alþingi. Hann
segist ekki líta svo á að með því
hafi verið farið gegn ályktun
landsfundar flokksins.
Bjarni gagnrýndi stjórnvöld
harðlega í ræðu sinni fyrir úrræða-
leysi í efnahagsmálum. Hann krafð-
ist þess einnig að bankarnir gerðu
grein fyrir þeim afslætti sem þeir
hefðu fengið af lánum til heimila,
svo hægt yrði að meta svigrúm
þeirra til frekari afskrifta.
„Það er blaut tuska í andlit okkar
allra þegar það er upplýst að 76
milljarðar króna renni til erlendra
kröfuhafa og þá fyrst og fremst
vogunarsjóða, vegna endurmats
á eignum viðskiptabankanna.
Hvaða réttlæti er fólgið í því að
erlendir spákaupmenn sem hafa
makað krókinn á falli íslenska fjár-
málakerfisins græði 76 milljarða
á meðan fjölskyldurnar í land-
inu berjast við að halda heimilum
sínum?“ brjann@frettabladid.is
Sjálfstæðismenn rísi
úr ESB-skotgröfum
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir rökrétt að draga aðildarumsókn að ESB til
baka. Hann varði afstöðu sína í Icesave-málinu á landsfundi. Hann sagði það
áhugamál stjórnvalda að ná sér niðri á fyrrverandi forystumönnum flokksins.
„Það hefur verið sérstakt áhugamál þeirra sem nú stjórna landinu að ná
sér niðri á fyrrverandi forystumönnum Sjálfstæðisflokksins,“ sagði Bjarni
Benediktsson, formaður flokksins, í setningarræðu sinni á landsfundinum.
„Það hefur ítrekað verið vegið að Davíð Oddssyni, fyrrverandi formanni
okkar og farsælasta forsætisráðherra seinni tíma,“ sagði Bjarni. „Íslensk
stjórnmál náðu síðan nýjum lægðum, og íslenskir stjórnmálamenn sýndu
á sér sínar verstu hliðar, þegar meirihluti þingmanna ákvað að efna til
pólitískra réttarhalda yfir Geir H. Haarde, fyrrverandi formanni okkar.“
Hann sagðist styðja Geir heils hugar í landsdómsmálinu og sagði það
sama gilda um þingmenn flokksins, sveitarstjórnarmenn, landsfundargesti
og þúsundir annarra Íslendinga. „Við stöndum öll með þér,“ sagði Bjarni.
„Við stöndum öll með þér“
KLÖKKUR Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var klökkur þegar hann
lýsti því yfir að fundarmenn, og raunar allir sjálfstæðismenn, stæðu með Geir H.
Haarde í landsdómsmálinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓLK Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra hefur í ráðherratíð
sinni glímt við þráláta martröð úr
fortíðinni. Þessu greindi Katrín frá
á ráðstefnu um kosti og galla sam-
einingar háskóla á Íslandi.
„Ég get sagt ykkur það, í algjör-
um trúnaði, sem hér eruð að mig
hefur, eftir að ég varð ráðherra,
stundum dreymt draum – og hann
er mjög óþægilegur,“ hóf Katrín
frásögn sína á ráðstefnunni.
Að sögn Katrínar hefst draum-
urinn á því að hún fær símtal þar
sem henni er sagt að hún hafi
aldrei lokið grunnskólaprófi. „Og
ég segi: Ég trúi
því ekki, ég man
greinilega eftir
að hafa verið
í grunnskóla!
Og svo semur
skólastjórinn
við mig í mínum
gamla skóla,
í L angholts -
skóla, um að ég
geti lokið prófinu utanskóla – af
því að ég segi að ég komist bara
alls ekki í tíma því ég sé nefni-
lega menntamálaráðherra,“ lýsti
ráðherra draumnum, sem snerist
síðan um það að hún væri að rifja
upp þýsku og stærðfræði og fleira.
„Yfirleitt hrekk ég upp í svita-
kófi og hugsa með mér: Guð minn
almáttugur! Hvað fór framhjá mér
í grunnskólanum? Hvað veldur því
að mig dreymir þennan draum
reglulega?“ sagði Katrín og lýsti
eftir aðstoð úr salnum til að losna
undan martröðinni: „Ef þið eruð
miklir Freud-istar megið þið endi-
lega koma til mín og segja mér
hvað ég á að gera og við hvern ég
á að tala; hvort ég á að tala eitt-
hvað sérstaklega við mömmu eða
eitthvað slíkt.“ - gar
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra vaknar ítrekað upp við vondan draum:
Óklárað grunnskólapróf vitjar Katrínar
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
Nauthóll í Nauthólsvík er veitinga-
staður en ekki kaffihús, ólíkt því sem
sagði í Fréttablaðinu á miðvikudag.
LEIÐRÉTT