Fréttablaðið - 18.11.2011, Qupperneq 8
18. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR8
Nýsköpunarmessa
og afhending Hagnýtingarverðlauna Háskóla Íslands
Markmiðið með Nýsköpunarmessunni er að virkja nemendur og vísindamenn HÍ til
nýsköpunar og vekja athygli á gildi hennar. Hagnýtingarverðlaunin eru veitt árlega
á grundvelli samkeppni sem hefur það að markmiði að laða fram hagnýtar hugmyndir
nemenda og kennara við Háskóla Íslands.
Í tilefni aldarafmælis Háskólans hefur einnig verið sett upp veggspjaldasýning með
vörðum úr sögu nýsköpunar og hagnýtingar rannsókna HÍ. Fulltrúar ýmissa nýsköpunar-
fyrirtækja, sem eiga rætur að rekja til rannsókna og verkefna innan skólans, munu
kynna starfsemi sína.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Háskólatorgi, föstudaginn 18. nóvember kl. 16.00.
1. Hver hlaut verðlaun Jónasar
Hallgrímssonar á Degi íslenskrar
tungu?
2. Hvaða land hefur verið rekið úr
Arababandalaginu?
3. Hversu hátt hlutfall útflutnings
Íslands fer til evruríkja?
SVÖR
AKUREYRI Fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Leikfélags
Akureyrar færði rúmar sjö
milljónir króna út af Minning-
arsjóði um Jónsbók, styrktar-
sjóði LA fyrir listamenn, inn í
rekstur félagsins til að leyna
rekstrarhallanum.
Einungis stjórn leikfélags-
ins á að hafa aðgang að sjóðn-
um, sem stofnaður var til að
styrkja listamenn á vegum
félagsins, en maðurinn sótti
einsamall um undanþágu hjá
bankanum og fékk aðgang
að reikningnum án vitundar
stjórnarinnar. Ekki komst upp
um athæfið fyrr en farið var
yfir bókhaldið og var honum
þá gert að segja upp.
Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er nær engin
innistæða á sjóðnum í dag, en
leikfélagið hefur ákveðið að
greiða upphæðina til baka eins
fljótt og auðið er.
Eins og fram hefur komið
var Maríu Sigurðardóttur,
fyrrverandi leikhússtjóra,
gert að segja af sér í síðasta
mánuði, þegar fjárhagsvand-
ræði félagsins voru komin upp
á yfirborðið, en leikfélagið var
rekið með 67 milljóna króna
tapi á síðasta ári.
Í kjölfar uppsagnar Maríu
var ráðinn nýr framkvæmda-
stjóri. Auglýsti hann stöðu
verkefnastjóra lausa til
umsóknar fyrr í mánuðinum
og sóttu ellefu manns um.
Verkefnastjórinn er með 350
þúsund krónur í mánaðarlaun,
sem þýðir að LA er að greiða
tvenn mánaðarlaun eftir að
María hætti sem leikhússtjóri,
þar sem hún er enn á starfs-
lokasamningi.
Ekki náðist í Sigrúnu
Björk Jakobsdóttur, formann
stjórnar LA, í gær.
sunna@frettabladid.is
Færði fé til að leyna halla
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar tók fé úr styrktarsjóði til að leyna rekstrarhalla leik-
félagsins. Var gert að segja upp í kjölfarið. Nýr verkefnastjóri LA vísar gagnrýni á fjölskyldutengsl á bug.
Helga Mjöll Oddsdóttir var ráðin verkefnastjóri
félagsins, en nokkuð hefur borið á gagnrýni vegna
ráðningarinnar og hafa umsækjendur óskað eftir
skriflegum útskýringum frá framkvæmdastjóra.
Helga er menntaður textílhönnuður og er dóttir
Odds Helga Halldórssonar, formanns bæjarráðs
Akureyrar. Helga segir gagnrýni á fjölskyldutengsl
ekki á rökum reista.
„Framkvæmdastjórinn var sá eini sem réði
þessu. Enginn af öllum þeim nefndum og ráðum
þar sem faðir minn er formaður, Akureyrarstofa,
og meira að segja leikhúsnefndin, komu nálægt
þessu,“ segir hún, en Helga er varamaður í stjórn
Akureyrarstofu. „Við Eiríkur höfum unnið vel
saman áður, hann þekkir mig og mína eiginleika
og það er ekkert athugavert við þetta.“ Helga
hefur unnið við búningahönnun í leikhúsum,
meðal annars hjá LA.
Eiríkur Haukur Hauksson framkvæmdastjóri
vísar gagnrýninni einnig á bug og segir Helgu hafa
verið hæfasta umsækjenda í þetta tiltekna starf.
Ekki er um stöðu listræns stjórnanda að ræða,
heldur eins konar aðstoðarmanns framkvæmda-
stjóra. Meðal annarra umsækjenda voru Gestur
Einar Jónasson leikari og Jón Gunnar Þórðarson
leikstjóri.
Ekkert athugavert
LEIKFÉLAG AKUREYRAR Fyrrverandi framkvæmdastjóri félagsins færði fé úr
læstum styrktarsjóði til að fegra bókhald leikfélagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1. Kristín Marja Baldursdóttir. 2. Sýrland.
3. Helmingur.
LÖGREGLUMÁL Verslunarstjórinn í
Bónus við Undirhlíð á Akureyri
var rekinn og kærður til lögreglu
vegna þjófnaðar úr versluninni.
Þá hefur komist upp um þjófnað
tveggja starfsmanna til viðbótar,
en málin eru ótengd. Hafa þeir
einnig verið kærðir. Frá þessu er
greint í Akureyri Vikublaði.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Akureyri er verslunar-
stjóranum gefið að sök að hafa
stolið töluverðu magni af matvör-
um úr versluninni í nokkra mán-
uði. Þegar rannsókn lögreglu hófst
voru eftirlitsmyndavélar skoðaðar
og þá komu brot hinna starfsmann-
anna í ljós. Þau eru talin minni-
háttar.
Starfsmennirnir tveir, ungir
piltar, hafa játað brot sín og voru
kærðir fyrir minniháttar stuld.
Þeim hefur verið sagt upp störf-
um. Verslunarstjórinn hefur játað
á sig hluta brotanna. Ekkert bendir
til þess að hann hafi reynt að koma
vörunum í verð og rannsakar lög-
reglan málið sem þjófnað.
Maðurinn sem um ræðir var
áður kærður og dæmdur fyrir
þjófnað fyrir nokkrum árum
þegar hann stal úr búningsklefum
í líkamsræktarstöðinni Laugum í
Reykjavík. - sv
Starfsmenn Bónuss á Akureyri kærðir fyrir þjófnað:
Verslunarstjóri játar
að hafa stolið mat
BÓNUS Verslunarstjóri Bónuss við Undirhlíð á Akureyri hefur verið kærður fyrir að
stela matvörum úr búðinni svo mánuðum skiptir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
INDLAND Farþegar austurríska
flugfélagsins Comtel, sem biðu
á flugvelli í Amritsar á Indlandi
eftir fari til Bretlands, urðu harla
undrandi þegar starfsfólk flug-
félagsins krafðist þess að þeir
reiddu fram fé svo hægt væri að
kaupa eldsneyti til flugsins. Ann-
ars væri ekki hægt að fljúga.
Fyrr í vikunni fengu farþeg-
ar sama flugfélags, sem milli-
lent höfðu í Austurríki eftir flug
frá Indlandi, sams konar beiðni.
Ekki væri hægt að fljúga áfram
til Bretlands nema farþegarnir
greiddu aukalega svo hægt væri
að kaupa meira eldsneyti á vélina.
„Ef þið viljið komast til Birm-
ingham verðið þið að borga,“ sagði
starfsmaður flugfélagsins þá. - gb
Flugfarþegar strandaglópar:
Gert að greiða
fyrir eldsneytið
FARÞEGAR Í AMRITSAR Flugfélagið vildi
viðbótargreiðslur. NORDICPHOTOS/AFP
ÍTALÍA, AP „Við verðum að sannfæra
markaðina um að við séum byrj-
uð að vinna að varanlegri lækk-
un hlutfalls ríkisskulda af lands-
framleiðslu,“ sagði Mario Monti,
nýr forsætisráðherra Ítalíu, sem
í gær kynnti þær aðgerðir sem
nýja sérfræðingastjórnin ætlar
að grípa til.
Skuldir ítalska ríkisins eru nú
1,9 milljarðar evra og þar með 120
prósent af landsframleiðslunni.
Monti hefur tekið við embætt-
inu af fjölmiðlakónginum Silvio
Berlusconi, sem enn situr þó á
þingi og stjórnar stærsta þing-
flokknum. Þingið samþykkti í síð-
ustu viku aðhaldsaðgerðir sem
stjórnin hyggst nú hrinda í fram-
kvæmd ásamt frekari aðgerðum
sem eiga að minnka skuldabyrðina
smám saman.
Almenningi á Ítalíu líst þó varla
á blikuna, enda boðar stjórnin
bæði niðurskurð á ríkisútgjöldum
og skattahækkanir.
Víða um land kom til átaka í gær
milli lögreglu og mótmælenda,
sem sums staðar köstuðu grjóti
í lögregluna en köstuðu annars
staðar eggjum og reyksprengjum
í banka. - gb
Mario Monti lofar að ná ríkisskuldum Ítalíu niður næstu árin:
Reynir að sannfæra markaði
MÓTMÆLI Í RÓM Fjöldi manns kom
saman til að mótmæla fyrirhuguðum
aðhaldsaðgerðum stjórnarinnar.
NORDICPHOTOS/AFP
VÍSINDI Ný tegund rafhlaðna með
tífalt betri endingu en þær raf-
hlöður sem notaðar eru í raf-
tækjum á borð við farsíma og
fartölvur mun koma á markað
innan fimm ára að sögn vís-
indamanna við Northwestern
háskólann í Bandaríkjunum.
Verkfræðingar við skólann
hafa hannað hleðslurafhlöðurn-
ar sem auk þess tekur tíu sinn-
um styttri tíma að hlaða. Talið
er að tæknin geti valdið bylt-
ingu í hönnun rafbíla.
- bj
Hanna betri rafhlöður:
Betri ending og
hlaðast hraðar
VEISTU SVARIÐ?