Fréttablaðið - 18.11.2011, Page 29

Fréttablaðið - 18.11.2011, Page 29
FÖSTUDAGUR 18. nóvember 2011 29 Á dögunum kom út skýrsla starfshóps á vegum Reykja- víkurborgar þar sem greint er frá því að stór hluti drengja á grunnskólaaldri býr ekki yfir nauðsynlegri hæfni til að lesa texta sér til gagns. Þá er ekki átt við að drengirnir séu ólæsir heldur að þeir eigi í vandræðum með að vinna úr þeim upplýs- ingum sem þeir lesa og nái ekki almennilega innihaldi textans. Þetta er mikið áhyggjuefni, ekki síst í ljósi þess hversu mik- ill hluti kennslunnar felur í sér að nemendur noti lestur til að afla sér upplýsinga. Formaður starfshópsins, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, segir það nauð- synlegt að þessar niðurstöður skili sér með virkri umræðu í samfélaginu ásamt þeirri stað- reynd að lestur ungmenna hefur minnkað gríðarlega. Eru það þá skólarnir sem eru ekki að sinna hlutverki sínu nægilega vel? Á öllum skólastigum í skólum landsins starfa kennarar sem nálgast starf sitt á faglegan hátt. Allt innra starf skólanna einkennist af metnaði, þreki og þoli við að sinna starfi sínu eins vel og hægt er, oft við erfiðar aðstæður. Eflaust komu þessar niðurstöður kennarastéttinni ekkert á óvart, þar sem kenn- arar hafa í mörg ár bent á sífellt minni lestrargetu barna og kall- að eftir aðgerðum. Nú er talan loksins orðin nægilega há svo að byrjað sé að tala um að gera eitt- hvað. En hvað á þá að gera? Ásgrímur Hermannsson, nemi og ármaður Mennta- skólans við Sund, birti grein á nemendavef MS sem ber yfir- skriftina „Hvernig skólinn drap metnaðinn minn“. Í greininni fjallar Ásgrímur um skólakerfi sem að hans mati hefur ekki ögrað honum sem nemanda, er úr sér gengið og með áherslur á röngum stöðum. Ásgrímur segir meðal annars: „Ég þori að fullyrða það að kynslóðin mín er ekki komin í skóla til þess að sitja við bækur og skrifa með blýanti...“ Hann heldur svo áfram og lýsir hinu hefðbundna daglega lífi sínu sem ungling- ur af „… zapping kynslóðin, kynslóðin sem er það ofhlað- in aðgengi að upplýsingum“. Greinin vekur vissulega upp vangaveltur, t.d. varðandi það hvaða starfsstéttir samfélags- ins nota bækur í sinni daglegu vinnu; þær eru ekki margar og fer ört fækkandi. Í dag gúggla einfaldlega allir allt, þurfa ekki að ganga með úr og vita allt um aðra. Grein Ásgríms endurspeglar daglegt líf ungmenna nútímans sem eyða mun meiri tíma að lesa á skjá en bækur. Lestrarvenjur barnanna eru því orðnar mjög ólíkar því sem áður var. Þeim er kennd kunnátta til að ná upp- lýsingum úr bók sem þau nota mestmegnis til að lesa upplýs- ingar á skjá. Ungmennin lifa í veröld þar sem þau þurfa ekki að geyma upplýsingar í höfðinu á sér heldur frekar kunnáttuna til að ná þessum upplýsingunum úr nærliggjandi tækjum. Þetta er kynslóð sem elst upp við að finnast hún vera þróaðri og tæknivæddari en fyrri kynslóðir og kannski er hún það. Það er þó ekki þar með sagt að þessi zap- kynslóð þurfi ekki leiðsögn og undirbúning fyrir lífið. Grein Ásgríms er ákall á breytingar frá samfélagshópi sem virðist eiga í hvað mestum vandræðum með hefðbundið bóknám og er einn stærsti brott- fallshópur úr framhaldsskóla, þ.e. ungum drengjum. En hún er líka ákall á breytt kennslu- fyrirkomulag og vakningu innan skólakerfisins um að aðlagast breyttum tímum og nýjum aðstæðum. Við þurfum að horf- ast í augu við það að það sem hentaði okkar kynslóð ágætlega virkar ekki endilega fyrir börnin okkar, enda hefur veröldin tekið talsverðum breytingum á síðustu áratugum. Hvað er hægt að gera fyrir ungmenni eins og Ásgrím sem eru fróðleiksfús en finnst bók- nám einvörðungu ekki vera neitt sérstaklega áhugaverður eða spennandi möguleiki? Það er til fjöldinn allur af úrræðum sem vert er að skoða og kynna sér en umhverfi og svigrúm til þess er takmarkað. Skólarnir búa við strangt rekstrarumhverfi sem þeir eiga á stundum erfitt með að brjótast út úr, jafnvel þó að hagsýni og hagræðing sé höfð að leiðarljósi. Það er einmitt þar sem breytingarnar verða að eiga sér stað svo hægt sé að setja sér langtímamarkmið með skóla- kerfi sem kemur til móts við þarfir hvers og eins nemanda, ögrar honum og hvetur til dáða. Það er því ekki lítið þrekvirki sem þarf að vinna og ein leið til þess er að nota nútímatækni í daglegu skólastarfi. Innleiðing á tækni í skólastarf þarf ekki að vera kostnaðarsöm þegar á heildina er litið og í rauninni á hún ekki að vera það. Tæknin á að standa undir því að vera hag- ræðingartæki sem skilar sér í auknum árangri, framleiðni og hagkvæmni. En til þess að það sé mögulegt er ekki nóg að henda gömlum tölvum inn í skóla og kalla það upplýsingatækni. Það þarf að mynda ákveðna stefnu varðandi tölvukaup og hugbúnað, kenna fólki að umgangast tækin sem það á að nota svo því líði vel og viðbragðstími þarf að vera skjótur þegar eitthvað kemur upp á. Lykilatriði er að tæknin styðji nám og skólastarf en byrji ekki að stjórna því. Þetta virðist stundum hafa gleymst. Rétt eins og Ásgrímur gerir sjá flestir sem koma að skóla- starfi að eitthvað þarf að gera, einhverju þarf að breyta. Hugs- anlega þurfum við að hætta að kalla eftir einhverjum gríð- arlegum umbreytingum eða róttækum aðgerðum og byrja að skoða hlutina í heild sinni. Koma saman og skoða hvernig við getum byrjað að taka fyrstu skrefin í átt að betra mennta- kerfi. Skólauppfærsla 2.0 Menntamál Ólafur Sólimann kennari B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér r ét t til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . * Flugsæti aðra leið með sköttum. E N N E M M / S IA • N M 47 75 1 Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is 13.900 kr.flug frá á lægsta verðinu árið 2012! Billund Heimsferðir bjóða þér beint flug til Billund á næsta ári. Flogið verður alla mánudaga frá 21. maí til 10. september frá Billund til Keflavíkur. Flug frá Keflavík til Billund verður alla miðvikudaga frá 23. maí til 12. september. Nú er tækifæri til að bregðast skjótt við og næla sér í fyrstu sætin á lægsta verðinu á www.heimsferdir.is Forsala Fyrstu 400 sætin á þessu frábæra verði bókaðu strax á www.heimsferdir.is Flug með Primera Air Primera Air annast þessi leiguflug fyrir Heimsferðir á Íslandi eins og fyrir önnur dótturfyrirtæki Primera Travel Group í Skandinavíu. Þjónusta um borð er fyrsta flokks og að sjálfsögðu á íslensku. Skráðu þ ig í netklúb b Heimsfe rða og fáðu sen d öll tilboð. *

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.