Fréttablaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 52
18. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR32
Hrafnhildur Arnardóttir listakona
fékk afhent hin virtu norrænu textíl-
verðlaun The Nordic Award in Text-
iles 2011 á fimmtudaginn síðastliðinn
við hátíðlega athöfn í sænsku borginni
Borås. Hún hlýtur verðlaunin fyrir
frumleg verk sín úr hári, bæði ekta og
gervi. „Mér var tilkynnt að ég hefði
verið útnefnd til verðlaunana fyrir
ári þegar hringt var í mig á afmæl-
isdaginn minn,“ segir Hrafnhildur
glaðlega, en hún er nýlega snúin
aftur til New York þar sem hún býr
að staðaldri.
„Í verðlaununum felst að maður
setur upp textílsýningu í textílsafn-
inu í Borås. Það er mjög flott safn
enda borgin með mikla textílhefð,“
segir Hrafnhildur, sem einnig fékk
verðlaunaupphæð sem nemur 250.000
sænskum krónum. Sýning hennar var
opnuð í safninu sama dag og verðlaun-
in voru afhent. Hrafnhildur segir að
sér hafi ekki veitt af heilu ári til að
undirbúa hana. „Ég ákvað að vera
með stóra sýningu enda rýmið afar
stórt og mér fannst gaman að geta
tekist á við það,“ segir Hrafn-
hildur, sem sýndi mörg
ný verk á sýning-
unni. „Ég einbeitti
mér að textíl og
sýndi nokkra
skúlptúra
auk þess
sem ég
var með
plánet-
uher-
bergi.“
Hún
sýndi
einnig
nokk-
ur fyrri
verka
sinna á
mynd-
bandi,
meðal ann-
ars gjörninga.
„Þetta er í fyrsta
sinn sem vinnings-
hafinn er gjörninga-
listamaður og ég var af því
tilefni með gjörning hér í Sví-
þjóð á laugardaginn,“ segir
Hrafnhildur og lýsir því hlæjandi að
hún hafi þar breytt sér í plánetu.
Gunnar Gunnarsson, sendi-
herra Íslands í Svíþjóð,
afhenti Hrafnhildi
verðlaunin við
hátíðlega athöfn
í Åhaga, menn-
ingar- og tón-
listarhúsinu
í Borås, að
viðstödd-
um fjölda
gesta.
Mikið
var um
dýrð-
ir þetta
kvöld, en
auk verð-
launaaf-
hending-
arinnar
og hátíðar-
kvöldverð-
ar hélt sin-
fóníuhljómsveit
Borås tón lei k a
með þátttöku sænska
píanóleikarans Robert Wells.
„Það var hálf furðulegt að vera
miðpunktur athyglinnar en þetta var
skemmtilegt,“ segir Hrafnhildur,
en sýningin hefur vakið þó nokkra
athygli. „Ég fór í blaða-, sjónvarps-
og útvarpsviðtöl,“ segir hún og er
afar upp með sér að hafa hlotið þessi
verðlaun. The Nordic Award in Text-
iles eru enda virtustu verðlaun sinnar
tegundar í Evrópu.
Móðir okkar,
Vigdís Einarsdóttir
áður til heimilis að Fornastekk 11,
Reykjavík,
lést laugardaginn 12. nóvember á Hjúkrunarheimilinu
Mörk. Útför fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 18. nóvember kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jón Friðberg Hjartarson
Einar Friðberg Hjartarson
Stefán Friðberg Hjartarson
Ævar Sigmar Hjartarson
Þökkum innilega samúð og hlýhug við fráfall systranna
Erlu og Svönu Tryggvadætra
Sigríður Svana Pétursdóttir Ólafur Tryggvi Egilsson
Arndís Erla Pétursdóttir Snorri Már Egilsson
Tryggvi Pétursson Guðrún Björg Egilsdóttir
Katrín Pétursdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir okkar,
Þorsteinn Guðmundsson
Auðsstöðum, Hálsasveit,
lést á Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn 7. nóvember.
Útförin fer fram frá Reykholtskirkju mánudaginn
21. nóvember kl. 11.
Hinrik Guðmundsson
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Ásmundur S. Guðmundsson
Guðmundur Guðmundsson
Bjarni Guðmundsson
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð
við andlát og útför okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Ingibjargar B.
Jóhannesdóttur.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Öldrunardeildar
Kristnesspítala fyrir kærleiksríka umönnun, hlýju
og vinsemd.
Jónína Hallgrímsdóttir
Heiðbjört Hallgrímsdóttir Ævar Kristinsson
Kristín Hallgrímsdóttir Þórir Ó. Tryggvason
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, bróðir,
tengdafaðir og afi,
Árni Magnússon
skipstjóri,
Suðurmýri 16, Seltjarnarnesi,
lést á heimili sínu hinn 17. nóvember.
Móeiður M. Þorláksdóttir og fjölskylda.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og
amma,
Sesselja Júlíana
Ísleiksdóttir
Fellsmúla 4, áður Lokastíg 10,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 13. nóvember sl.
Útförin fer fram frá kirkju Óháða safnaðarins
þriðjudaginn 22. nóvember kl. 14.00.
Fanný Gunnarsdóttir, Hörður Gunnarsson
Gunnar Harðarson, Maren Lind Másdóttir.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð, hlýju og hjálpsemi
vegna andláts
Árna Þorkelssonar.
Sérstakar þakkir til Valgerðar Sigurðardóttur læknis,
Heimahlynningu og starfsfólks Líknardeildar fyrir
einstaka umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorkell S. Árnason Rakel Egilsdóttir
Í tilefni af 25 ára afmæli
Hjálpartækjamiðstöðvar
Sjúkratrygginga Íslands
verður opið hús fyrir gesti
og gangandi að Vínlandsleið
16 í dag. Kynnt verður saga
og starfsemi Hjálpartækja-
miðstöðvar í máli og mynd-
um, og gestum gefst kostur
á að prófa ýmis hjálpartæki,
eins og þrautabraut fyrir
hjólastóla, sokkaífæru og
lyftara. Þá verður set ráðgjöf
í boði, grillaðar pylsur, gos,
piparkökur og kaffi.
Á 25 ára tímabili hefur
starfsemi Hjálpartækja-
miðstöðvar aukist veru-
lega, en hlutverk hennar
felst aðallega í að annast
afgreiðslu umsókna um
styrki vegna hjálpar-
tækja, veita faglega ráð-
gjöf á hjálpartækjum og
sinna viðgerðarþjónustu.
Miðstöðin stuðlar að hag-
kvæmni í ríkisrekstri því
hún sér um að endurnýta
hjálpartæki með viðhaldi
og viðgerðarþjónustu á
þeim. Hún leggur einnig
áherslu á að miðla upplýs-
ingum og sjá um fræðslu
varðandi hjálpartæki.
Um það bil 30 þúsund
umsóknir um hjálpartæki
komu inn til stofnunarinn-
ar á árinu 2010 og fer þeim
fjölgandi með hverju ári.
Opið hús er að Vínlands-
leið 16 frá klukkan 12 til
15.30 í dag. - þlg
Hjálpartækjamiðstöðin 25 ára
HJÓLASTÓLL Meðal þess sem gestum Hjálpartækjamiðstöðvar býðst í
dag er að prófa þrautabraut fyrir hjólastóla.
Hlaut virt norræn textílverðlaun
LISTAKONA Hrafnhildur Arnardóttir hefur vakið athygli fyrir frumleg textíllistaverk úr hári og
gervihári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON