Fréttablaðið - 18.11.2011, Síða 54
18. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR34
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. hæfileiki, 6. bardagi, 8. meðal,
9. loft, 11. tveir eins, 12. skrá, 14.
vegahótel, 16. hvað, 17. kk nafn, 18.
geislahjúpur, 20. klaki, 21. tafl.
LÓÐRÉTT
1. hluta sólahrings, 3. málmur, 4.
sumbl, 5. máttur, 7. markmið, 10. sæ,
13. maka, 15. kúnst, 16. rámur, 19.
í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gáfa, 6. at, 8. lyf, 9. gas,
11. ll, 12. skjal, 14. mótel, 16. ha, 17.
ari, 18. ára, 20. ís, 21. skák.
LÓÐRÉTT: 1. dags, 3. ál, 4. fyllerí, 5.
afl, 7. takmark, 10. sjó, 13. ata, 15.
list, 16. hás, 19. aá.
Jæja krakkar. Verðlaunin fyrir
að vera kominn lengst á veg í
þróuninni hlýtur...
Næsti…
Hvað meinarðu með
því að þú getir ekki
lært án þess að vera
með iPod?
Ég bara
get það
ekki.
Ég get ekki einbeitt mér ef
tónlist dynur ekki á báðum
eyrunum.
Það setur mig út af
laginu ef ég hef ekki
það sem ætti að setja
mig út af laginu.
Sumir segja að í for-
eldrahlutverkinu séu
árin stutt en dagarnir
langir.
Sumar næturnar
eru nú enn lengri.
Samstíga systkini
Systkinin Þórarinn, Sigrún og Ólöf Eldjárn, sem ólust upp á safni
og áttu föður sem varð forseti, hafa öll skapað sér sinn sérstaka
sess í heimi bókmenntanna.
Meðal annars efnis:
Áflog í íslenskum stjórnmála-
flokkum
Formannsslagir fyrr og nú.
Kvenlegt og einfalt
Jakkaföt og hnésíð pils eru ráðandi í
jólatískunni í ár.
Mikill fréttaflutningur hefur verið um ofþyngd Íslendinga undanfarið.
Talað er um að Íslendingar séu næst-
feitasta þjóð Vesturlanda og að aukinni
offitu barna sé best lýst sem faraldri.
Ýmsar umræður hafa sprottið upp í kjöl-
far þessa fréttaflutnings og vilja margir
meina að orðum sé nokkuð aukið og einnig
að heilsufarsvandamál og ofþyngd séu
ekki endilega jafn samanspyrt og margir
þeir sem tjá sig um ofþyngd vilja vera
láta. Ég ætla ekkert að tjá mig um það
hér enda væri ég þá á hálum ís, til-
heyrandi þeim vaxandi hópi Íslend-
inga sem er í ofþyngd.
MIG LANGAR hins vegar að
benda á að ef sú er raunin að
ofþyngd og offita stefni hraðbyri
í þá átt að vera stærsta heilsufars-
vandamál Íslendinga væri eðli-
legt að staldra við og velta fyrir
sér hvað hægt sé að gera til að
stemma stigu við vandanum.
RANNSÓKNIR sýna að
sykur er fíkniefni á sama
hátt og áfengi og tóbak
og að þeir sem ánetjast
því eiga erfitt með að
standast það þegar það
býðst. Mannfólk er enda
forritað til að sækja í sykur
og aðrar hitaeiningaríkar afurðir. Aðgerð-
ir gegn ofneyslu á áfengi og tóbaki hafa
meðal annars falið í sér stífar reglur um
aðgengi; áfengi má til dæmis ekki kaupa
nema á veitingastöðum eða í sérversl-
unum, tóbak er hvergi sýnilegt í verslun-
um og innkaup eru háð aldurstakmarki.
Alfarið er bannað að auglýsa þessar vörur.
ÞEGAR KVEIKT er á sjónvarpi, einkum
þegar fjölskylduefni er á dagskrá, má hins
vegar sjá bráðið súkkulaði leka tælandi
um allan skjá og þegar gengið er inn í
matvöruverslanir fer ekkert á milli mála
hvað helst á að selja; sælgæti og gos-
drykkjum er stillt upp þannig að ekki
fer framhjá neinum. Þá er regla frekar
en undantekning að sælgæti sé til sölu
við kassann svo góður tími gefist til að
láta freistast á meðan beðið er í röð eftir
því að borga. Flestir sem þurfa að fara í
matarinnkaup með börn meðferðis þekkja
umræðurnar sem sprottið geta þar.
ÞAÐ ER ljóst að ofþyngd stafar helst af
ofneyslu hitaeiningaríkrar fæðu og hreyf-
ingarleysi. Læknar hafa nú fengið umboð
til að ávísa á hreyfingu ef þeir telja þörf
á og er það vel. En vandinn í sambandi
við neysluna situr eftir hjá neytandanum.
Og hann heldur áfram að borða nammi og
drekka kók á meðan aðgengi að því er eins
auðvelt og raun ber vitni.
Sætmeti til sölu