Morgunblaðið - 10.07.2010, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010
Anna Sigríður Einarsdóttir
annaei@mbl.is
Ekki hefur enn tekist að selja eignir Reykjavík-
urborgar í Lækjargötu 2 og Austurstræti 22, en
húsin hafa verið í sölu sl. þrjá mánuði. Einhverjar
fyrirspurnir hafa þó borist vegna húsanna sem
unnið hefur verið að endurbyggingu á sl. misseri.
Vinna á milli 30 og 40 manns við endurgerð
húsanna þessa dagana og er nú unnið á mörgum
vígstöðvum innanhúss og utan, auk þess sem hluti
byggingarvinnunnar fer fram utan svæðisins. Hús-
in eyðilögðust í miklum eldsvoða vorið 2007.
Endurbyggingin örlítið á eftir áætlun
Að sögn Kristínar Einarsdóttur, aðstoðarsviðs-
stjóra framkvæmda- og eignasviðs Reykjavík-
urborgar, eru framkvæmdirnar örlítið á eftir því
sem gert var ráð fyrir í upphaflegri áætlun. „Við
reiknum með að húsin verði tilbúin næsta vor,“
segir Kristín, en fyrri áætlanir höfðu miðað verklok
við áramótin 2010-2011. Ýmsir þættir hafi spilað
þar inn í ekki hvað síst að torvelt getur verið að
nálgast rétta efniviðinn þegar endurgera á gömul
hús.
„Þetta á ekki hvað síst við um Austurstrætið,
það hefur þurft að sérpanta efni enda ekki sama
hvað er notað.“ Austurstrætið ætti þó að fara að
taka á sig mynd strax í næsta mánuði því hefjast á
handa strax eftir verslunarmannahelgi við að reisa
veggi og koma skorsteininum upp, en eldstæðinu
var komið fyrir í húsinu nú í vor.
Þó ekki hafi tekist að selja húsin virðast margir
áhugasamir um að leigja þau, enda lá fyrir að ef lít-
ill markaður væri fyrir sölu nú þá yrðu þau leigð.
Kristín segir fleiri þó áhugasama um að leigja
Lækjargötuna. „Austurstrætið er líka viðkvæmara
hús.“
Svo kann líka að fara að líf verði komið í Lækjar-
götuna fyrir næstu jól. „Við stefnum að því að hægt
verði að hefja starfsemi á fyrstu hæð Lækjargötu 2
strax í desember á þessu ári,“ segir Kristín og
kveður allt benda til að það eigi að geta tekist.
„Þetta verður kannski ekki endanleg starfsemi í
húsinu, en það ætti að minnsta kosti að vera eitt-
hvert líf þar.“
Morgunblaðið/Eggert
Endurbygging Á milli 30 og 40 manns við endurgerð húsanna þessa dagana og er nú unnið á mörgum vígstöðvum innanhúss og utan
Líf í Lækjargötuna um jólin
Morgunblaðið/Júlíus
Eldsvoði Slökkviliðsmenn berjast við eldinn sem kom upp í húsunum vorið 2007.
Margir áhuga á að
leigja Lækjargötu 2
Dómarnir tveir sem nýlega féllu í
vændiskaupamálunum svokölluðu
hafa ekki verið birtir á heimasíðu
héraðsdóms. Meginreglan er sú að
dómar birtist þar fljótlega eftir
uppkvaðningu.
Helgi I. Jónsson, dómstjóri í
Reykjavík, segir birtingarleysið
eiga sér eðlilegar skýringar. Málin
hafi verið útivistarmál en slík mál
séu undanþegin netbirtingu sam-
kvæmt k-lið 2. gr. tilkynningar
dómstólaráðs nr. 2/2009. Tilkynn-
ingin er öllum aðgengileg á heima-
síðu dómstólaráðs. Útivistarmál
eru mál þar sem sakborningur
mætir ekki fyrir dóm. Reglan á við
í öllum málaflokkum.
„Dómarnir verða birtir síðar í
dómabók en samkvæmt reglunum
verða nöfn og annað sem tengir
menn persónulega við málið af-
máð,“ segir Helgi. Það sé ávallt
gert þegar um persónuleg mál sé
að ræða svo sem kynferðisbrota-
mál eða málefni barna.
Í umræddum málum voru tveir
karlmenn dæmdir til sektar-
greiðslna vegna vændiskaupa ann-
ars vegar og tilraunar til vændis-
kaupa hins vegar. Mennirnir eru í
hópi ellefu karlmanna sem ákærðir
voru fyrir vændiskaup fyrr á
árinu.
Helgi segir að aðalmeðferðar
megi vænta í einhverjum málanna
síðar á árinu og þá verði dómarnir
birtir á eðlilegan hátt á netinu eft-
ir uppkvaðningu. hjaltigeir@mbl.is
Vændis-
kaupadómar
birtast ekki
Catalina Mikue Ncogo var í héraðs-
dómi Reykjaness í gær dæmd til að
sæta 15 mánaða fangelsi fyrir milli-
göngu um vændi, líkamsárás og brot
gegn valdstjórninni. Hún hlaut
þriggja og hálfs árs fangelsisdóm
fyrir Hæstarétti í byrjun júní fyrir
hagnýtingu vændis og fíkniefnabrot.
Felur dómur héraðsdóms í sér hegn-
ingarauka við þann dóm og skal Ca-
talina því sæta fangelsi í fjögur ár og
níu mánuði.
Héraðsdómur taldi sannað að Ca-
talina hefði haft tekjur af vændi
fjögurra erlendra kvenna, sem komu
hingað til lands. Hún var hins vegar
sýknuð af ákæru fyrir mansal þar
sem ekki þótti sannað að stúlkurnar
væru fórnarlömb mansals.
Var Catalinu einnig gerð refsing
fyrir að berja nágrannakonu sína
með rafmagnssnúru, lemja aðra
konu í höfuðið og að hrækja á lög-
reglumann. Nágrannakonunni voru
dæmdar 250.000 kr. í skaðabætur,
auk vaxta, úr hendi Catalinu.
Dæmd aftur
fyrir hórmang
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Útsendingar frá heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu halda áfram
að njóta langmestra vinsælda af því
efni sem boðið er upp á í sjónvarpi
þessar vikurnar.
Capacent mælir sjónvarpsnotkun
Íslendinga og er það gert rafrænt.
Valdir einstaklingar bera á sér sér-
stök tæki, sem mæla nákvæmlega
hvaða sjónvarpsefni viðkomandi ein-
staklingur horfir á.
Capacent hefur nú birt niðurstöð-
ur áhorfsmælinga fyrir vikuna 28.
júní til 4. júlí. Samkvæmt þeim eru
þrír knattspyrnuleikir í efstu sætun-
um hjá Ríkissjónvarpinu, sem sýnir
leikina. Flestir horfðu á leik Spánar
og Portúgals, en 55,2% landsmanna
horfðu á þann leik í fimm mínútur
eða lengur. Næstflestir horfðu á leik
Spánar og Paragvæs (51,2%) og í
þriðja sæti var leikur Argentínu og
Þýskalands (47,7%). Í vikunni á und-
an voru leikir með Argentínu í
tveimur efstu sætunum og því virð-
ast Spánverjar hafa tekið við af Arg-
entínu sem vinsælasta lið keppninn-
ar.
HM-kvöldin í umsjón Þorsteins J.
njóta einnig mikillar hylli meðal
áhorfenda RÚV. Þrjú HM-kvöld
komast á lista yfir 10 vinsælustu
dagskrárliðina. Í sæti 9 kemur svo
Popppunktur og það er við hæfi að
tíufréttir séu í 10. sætinu. Sjálfur að-
alfréttatíminn nær ekki á listann
enda eru fréttirnar á öðrum tíma en
venjulega, eða klukkan 18.
Þegar heildaráhorf er skoðað eru
yfirburðir RÚV miklir. Hlutdeild
RÚV í heildaráhorfi er 59,1%, hlut-
deild Stöðvar 2 20,8% og hlutdeild
Skjás eins 7,5%.
Vinsælasta efni Stöðvar 2 voru
fréttirnar með 18,6% uppsafnað
áhorf en Helgarsportið kom næst
með með 17,% áhorf. Hjá Skjá einum
var þátturinn Law&Order með mest
uppsafnað áhorf eða 9,6%.
Í þessum tölum er miðað við ald-
urshópinn 12-80 ára.
Íslendingar eru sem límdir við sjónvarpstækin þegar sýnt er frá HM í knattspyrnu
Átta vinsælustu dagskrár-
liðirnir eru tengdir HM
Reuters
Vinsælir Spánverjar virðast njóta mestra vinsælda hjá Íslendingum.