Morgunblaðið - 10.07.2010, Page 11

Morgunblaðið - 10.07.2010, Page 11
Morgunblaðið/Ernir Gripið Það skiptir höf- uðmáli að haldið sé rétt á golfkylf- unni. hvernig megi laga það. Leiðin lá því í Hafnarfjörð- inn á glæsilegt æfingasvæði golf- klúbbsins Keilis þar sem ég hafði mælt mér mót við Björgvin Sig- urbergsson, kylfing og golfkenn- ara. Í þeim tilgangi að sjá hvort ekki væri hægt að fá nokkur góð ráð hjá einum af sigursælustu kylfingum landsins. Meistaramót golfklúbbsins Keilis er í fullum gangi þessa dagana, en Björgvin átti ekki að mæta á teig strax og hafði því tíma til að fara yfir nokkra hluti sem betur mættu fara í sveiflunni hjá mér. Gripið og aftur gripið Björgvin tekur vel á móti mér í kennslustofu sinni á æfingasvæði á Hvaleyrinni, en þar við hlið er upp- gert hús þar sem hægt er að æfa sig að vetri til. En húsið var eitt sinn stærsta fiskabúr landsins og bjó þar um hríð háhyrningurinn Keiko. Bjallan hringir og tíminn er byrj- aður. Sjö-járnið verður fyrir valinu og ég byrja að slá nokkra bolta svo Björgvin geti séð hvað þurfi að laga í sveiflunni, sem í mínu tilviki var heill hellingur. Það fyrsta sem Björgvin tekur eftir er gripið hjá mér. Bara það hvað ég held vitlaust á kylfunni hefur áhrif á allt sem við- kemur sveiflunni og segir Björgvin að það eitt að gripið sé ekki rétt geri það að verkum að ómeðvitað fari kylfingar að reyna að laga það á öðrum stöðum í sveiflunni. Sumir loka kylfunni á meðan aðrir opna hana og enn aðrir hreinlega breyti allri líkamsstöðunni bara til að leið- rétta vitlaust grip. Tæknin nýtt til fulls Eftir að hafa slegið nokkra bolta út á æfingasvæðið með mis- jöfnum árangri færum við okkur yf- ir á mottuna við hliðina þar sem tvær myndavélar eru notaðar til að taka upp sveiflu nemanda sem síðan er greind í tölvuforriti. Ég endurtek leikinn og slæ nokkra bolta að beiðni kennarans. Flestir halda þeir sig við jörðina eða fara til hægri , „slice“ eins og hægri beygjan er kölluð á golfmálinu. Teknar eru upp nokkrar sveiflur og við setjumst nið- ur og Björgvin hefst strax handa við að greina hvað mætti betur fara. Bakið er ekki nógu beint, mjöðmin færist, aftursveiflan dettur niður á meðan framsveiflan fer upp. Allt þetta gerir það að verkum að kylfu- hausinn nær ekki tengingu við bolt- ann á réttum stað. En allir þessir hlutir hafa einmitt með gripið að gera. Ég er semsagt að reyna að bæta fyrir vitlaust grip með því að gera aðrar óþarfa vitleysur í sveifl- unni. Að tímanum loknum gefur Björgvin mér svo nokkur góð ráð varðandi þetta blessaða grip og nú er bara vonandi að næst þegar ég fer á æfingasvæðið nýti ég mér þau. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010 Samkeppnisreglur og upplýsingar: www.jonsigurdsson.is Samkeppni um minjagripi og handverk. Vertu með! ÍS L E N S K A /S IA .I S /I S L 50 72 8 06 /1 0 Þessa dagana stendur Þjóðdansa- félag Reykjavíkur fyrir þjóðdansa- og þjóðlagamótinu Ísleik 2010 í samráði við norrænu danssamtökin Nordlek. Í tilefni af því verða ýmsar uppákomur næstu daga sem flestar eru í boði mótsins og er því enginn aðgangs- eyrir. Í dag verður dansað í miðbæ Reykjavíkur milli 13:30 og 16:00 og hefst svo opnunarhátíð í Háskólabíói kl. 17. Á morgun verður m.a. dansað í Árbæjarsafni og haldnir þjóðlaga- tónleikar í Neskirkju. Nánari upplýs- ingar má finna á vefsíðunni isdans.is. Þjóðdansa- og þjóðlagamót Morgunblaðið/Sverrir Þjóðdansar Dansað verður m.a. á Ingólfstorgi og Lækjartorgi í dag. Dansað um víðan völl „Ég ætla að kúra frameftir því ég er búin að vera að keyra frá Raufarhöfn til Reykjavíkur á einum degi [í gær]. Ég ætla að taka því rólega, fá mér góðan hádegisverð og hafa kósí heima. Svo er ég að spá í að kíkja í bæinn á útsölur og svo þarf ég að komast í nokkrar búðir, t.d. Fönd- urstofuna og Liti og föndur fyrir skartgripagerðina mína,“ segir Inga Björk Andrésdóttir, fata- og skart- gripahönnuður. Hún hannar undir nafninu IBA og kallast merkið henn- ar The indian in me. „Ég er með nokkrar pantanir svo ég ætla að gera þær í góðu tómi á morgun þegar ég kem heim úr bæn- um. Svo er spurning hvort maður skellir sér aðeins út að fá sér gott að borða og svo eftir það verður kannski bara vídeókvöld í góðum fé- lagsskap.“ Inga hefur upp á síðkast- ið einbeitt sér meira að skartgripa- hönnuninni en er að byrja aftur að hanna föt og var t.a.m. með í tísku- sýningu á Jónsvöku. „Ég ákvað að vera með í tískusýningunni því það gaf mér tækifæri til að koma fram með föt. Ég ætla að halda áfram að vinna í því og gera meira úr því,“ segir hún. Inga hefur tekið þátt í Pop Up- markaðnum vinsæla en hann verður næst á LungA-listahátíðinni á Seyð- isfirði 12.-18. júlí. Inga verður hins- vegar ekki með fyrr en í ágúst. Inga Björk Andrésdóttir, fata- og skartgripahönnuður. Hvað ætlar þú að gera í dag? Morgunblaðið/Heiddi Slakar á Inga ætlar að sofa út og hafa það gott í dag eftir mikla keyrslu í gær. Afslöppun eftir langa keyrslu Nú um helgina líkt og undanfarin ár munu meðlimir í Harley Davidson mótorhjólaklúbbnum á Íslandi halda fjölskyldumót í Þykkvabænum. Mótið kallast Potato-Run og hefur ávallt verið vel sótt af áhuga- mönnum um Harley Davidson mótorhjól en mótið er opið öllum og sóttu á þriðja hundruð manns há- tíðina 2009. Hátíðin verður haldin í Oddsparti, Þykkvabæ í samvinnu við staðarhaldara þar. Í ár er áhersla lögð á skemmtilega leiki og keppnir fyrir krakka á öllum aldri en verðlaunapeningar verða veittir fyrir best- an árangur. Nýjar keppnir verða haldnar í ár en þær eru Vitringurinn 2010 og Varahlutagúrú 2010. Mótið er sannkallað fjölskyldumót en í dag verð- ur þar fjölbreytt dagskrá fyrir krakka á öllum aldri, leikir, keppnir og verðlaunaafhending auk lifandi tónlistar og grillveislu. Fjölskyldumót mótorhjólafólks Glens og grín á Potato-Run Morgunblaðið/Árni Sæberg Davíðshúsi á Akureyri, heimili skálds- ins Davíðs Stefánssonar frá Fagra- skógi, barst nýlega fágætur munur sem rataði þar með aftur til síns heima eftir að hafa verið lengi á flakki og jafnvel verið talinn glataður. Nýlega kom Jón B. Guðlaugsson færandi hendi í Davíðshús og hafði í fórum sínum slitna munnhörpu sem Davíð átti forðum daga en hana hafði Árni Kristjánsson (1906-2003), pí- anóleikari og fyrrverandi tónlistar- stjóri Ríkisútvarpsins, gefið Jóni seint á síðustu öld. Árni og Davíð voru kærir vinir og líkast til hefur Davíð einhverju sinni gleymt hörp- unni heima hjá Árna. Í bókinni End- urminningar samferðamanna skrif- aði Árni kafla um Davíð vin sinn og nefnir þar meðal annars að hann hafi orðið vitni að því að skáldið kunni listavel að spila á munnhörpu. Hægt er að skoða gripinn alla virka daga frá 13-17. Munnharpa skáldsins Gefandinn Skáldið Davíð Stefánsson spilaði listavel á munnhörpu. Fágætur munur kominn aftur til síns heima Æfing Sveiflan á vonandi eft- ir að lagast í sumar með æfingu. Daglegt líf 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.