Morgunblaðið - 10.07.2010, Síða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010
FRÉTTASKÝRING
Gísli Baldur Gíslason
gislibaldur@mbl.is
Tillaga SPITAL-hópsins bar sigur
úr býtum í samkeppni um hönnun
nýs Landspítala við Hringbraut.
Alls bárust sjö tillögur til dóm-
nefndar sem að lokum skar úr um
hver yrði að veruleika af þeim fimm
sem voru teknar til greina. Niður-
staðan var tilkynnt af formanni
dómnefndar á Háskólatorgi í gær.
„Við völdum þessa tillögu af
mörgum ástæðum. Í fyrsta lagi
vegna þess að hún skapar sterka
bæjarmynd með götum og torgum.
Umferðarmálin eru skýr bæði hvað
varðar akandi umferð, hjól og gang-
andi. Það er gert ráð fyrir hag-
kvæmni í innra skipulagi bygging-
anna sem byrjað verður á, með
nauðsynlegum sveigjanleika. Þetta
skiptir verulegu máli þegar á að
sameina allan spítalann við Hring-
braut. Þessi sveigjanleiki og stöðlun
sem skiptir máli í nútíma-sjúkra-
hússtarfsemi næst best, fannst okk-
ur, í þessari tillögu,“ segir Guðrún
Ágústsdóttir, formaður dómnefnd-
arinnar. Hún segir að störf nefnd-
arinnar hafi gengið vel þó viðfangs-
efnið hafi verið flókið.
„Við unnum myrkranna á milli og
sveifluðumst til og frá. Það var ekki
vinningstillagan sem við sáum strax
að væri best. Það var ekki fyrr en
við fórum að kafa dýpra ofan í til-
lögurnar allar að við komumst að
niðurstöðu.“
Mikilvægt skref fyrir
heilbrigðisþjónustuna
„Þetta þýðir alveg óskaplega mik-
ið. Þetta þýðir að við erum áfram að
þróa heilbrigðiskerfið fram á við.
Við erum að fara að byggja okkur
húsnæði sem mun henta bæði nú-
tímanum og framtíðinni. Þannig að
við erum tilbúin í alla þá þjónustu
sem við þurfum að veita vonandi
næstu fimmtíu árin,“ segir Björn
Zoëga, forstjóri Landspítalans.
Starfsemi Borgarspítalans í Foss-
vogi verður, að sögn Björns, komið
fyrir í nýbyggingunni við Hring-
braut. Þar verða skurðstofur,
bráðamóttaka og gjörgæsla fyrir
allan spítalann auk
rannsóknar-
stofa og nokk-
urra legu-
deilda.
Björn
kveðst
ánægður
með vinn-
ingstillöguna. „Hún hefur þann
sveigjanleika sem þarf í spítala-
rekstri og þá breyttu tíma sem eru
framundan,“ segir Björn.
Sérstöku opinberu hlutafélagi
verður falið að annast fjármögnun
og framkvæmd verkefnisins. Hluta-
félagið verður sett á stofn sam-
kvæmt lögum Alþingis frá því í síð-
asta mánuði, að sögn Álfheiðar
Ingadóttur heilbrigðisráðherra.
„Það félag mun bjóða út einstaka
verkþætti, tryggja fjármögnun og
þannig sjá um byggingarfram-
kvæmdirnar og bera ábyrgð á þeim
gagnvart yfirvöldum og spítalan-
um.“
Ekki verkefni ráðuneytisins
Álfheiður segir að verkefnið sé
ekki beint á vegum heilbrigðisráðu-
neytisins, þó að ráðuneytið gæti
komið að ákvörðun um áfangaskipt-
ingar, stefnumörkun á þjónustu
spítalans og forgangsröðun í fram-
kvæmdum.
„Þetta er ekki venjuleg, opinber
framkvæmd í því tilliti vegna þess
að þetta er fjármagnað af lífeyris-
sjóðunum. Landspítalinn mun síðan
endurgreiða allan fjármögnunar-
kostnaðinn til lífeyrissjóðanna í
formi leigugjalda og þannig mun
ríkið eignast spítalann á endanum.“
Hluti borgarmyndar
Úrslit í hönnunarsamkeppni nýs Landspítala kynnt í gær Sterk bæjarhugsun
tryggði SPITAL vinninginn Þróar heilbrigðiskerfið fram á við, segir forstjóri
Framtíðaráform „Svigrúmi til stækkunar er haldið með sveigjanleika „bæjarhverfis“,“ segir meðal annars í niðurstöðu dómnefndar.
Í dag fagnar Hið íslenska biblíu-
félag 195 ára afmæli. Stofnfundur
þess var haldinn fyrrnefndan dag
árið 1815 á heimili sr. Geirs Vídalín
biskups, en biskupsgarður var þá í
Aðalstræti 10 en það hús stendur
enn. Félagið telst af þessum sökum
elsta starfandi félag á Íslandi. Allt
frá stofnun hefur meginmarkmið
þess verið að gera íslensku þjóðinni
kleift að eignast Biblíuna á eigin
tungumáli. Í upphafi 19. aldar
höfðu mikil hallæri gengið yfir
þjóðina og ekkert tækifæri gefist til
þess að leggja fjármuni í kostn-
aðarsama og flókna útgáfustarfsemi
um áratuga skeið. Með stofnun fé-
lagsins og öflugum stuðningi hins
breska og erlenda biblíufélags var
grettistaki lyft og þúsundum ein-
taka af Biblíunni og Nýja testa-
mentinu dreift um öll héruð lands-
ins, hvort sem um gjafir var að
ræða eða til sölu.
Hægt að skrá sig til leiks
Í tilefni afmælisins hefur Hið ís-
lenska biblíufélag haslað sér völl á
hinum nýja vettvangi veraldarvefs-
ins, „facebook“, og birtir þar reglu-
lega fréttir af félaginu ásamt ritn-
ingartextum dagsins. Geta
vefnotendur skráð sig til leiks og
þannig fylgst með því sem efst er á
baugi hverju sinni hjá félaginu.
Árið 2007 stóð Hið íslenska bibl-
íufélag að útgáfu nýrrar þýðingar
Biblíunnar í samstarfi við JPV-
útgáfu. Var þar um að ræða sjöttu
heildarþýðingu Ritningarinnar á ís-
lensku en hin fyrsta í þeirra röð er
oftast kennd við Guðbrand biskup
Þorláksson. Kom hún út árið 1584
og telst til mestu þrekvirkja ís-
lenskrar menningarsögu.
Biblíufélagið
er komið á
facebook
Aðalstræti 10 Félagið stofnað.
Fagnar 195 ára
afmæli sínu í dag
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Gengisstyrking síðustu mánaða gefur tilefni
til frekari verðlækkana á matvælum, segja
forsvarsmenn matvöruverslana.Verðkönnun
sem ASÍ birti í vikunni sýnir að verð á mat-
arkörfu hefur lækkað nokkuð frá því í febrúar
á þessu ári. Könnunin miðar við maí 2009 til
júní 2010. Á því tímabili hafa virðis-
aukaskattur og vörugjöld hækkað. Þær
hækkanir hafa ekki teljandi áhrif á mat-
vælaverð að sögn hagfræðings ASÍ. Áhrif
skattahækkana sjást aðallega á sælgæti og
drykkjarföngum.
„Það er full ástæða til að búast við frekari
verðlækkunum og þá sérstaklega hvað varðar
innfluttar vörur,“ segir Eysteinn Helgason,
framkvæmdastjóri Kaupáss, sem meðal ann-
ars rekur Nóatún, Krónuna og 11-11-
verslanirnar. Hann segist einnig búast við
einhverjum lækkunum á innlendum fram-
leiðsluvörum en í kjölfar styrkingar krón-
unnar hafi aðföng orðið ódýrari fyrir innlenda
framleiðendur. Það ætti svo að hafa áhrif til
lækkunar vöruverðs. Eysteinn segir þetta þó
allt háð stöðugri gengisþróun.
Guðmundur Marteinsson, framkvæmda-
stjóri Bónuss, tekur í sama streng og Ey-
steinn. Verðlækkanir hafi þegar gert vart við
sig vegna styrkingar krónunnar og býst hann
allt eins við frekari lækkunum.
Eysteinn segir verð á kjöti hafa lækkað
undanfarna mánuði og nú sé það lægra en það
var fyrir tveimur árum. Það megi þakka svo-
kallaðri iðnaðarframleiðslu, svo sem á kjúk-
lingum og svínum.
„Lækkað vöruverð á kjúklinga- og svína-
kjöti hefur áhrif til lækkunar vöruverðs á
lamba- og nautakjöti,“ segir Eysteinn.
Guðmundur hjá Bónus segist þó hafa tölu-
verðar áhyggjur af svínakjötsmarkaðnum.
Svínakjöt hafi haldist ódýrt síðustu tvö ár en
fyrirhugaðar sameiningar svínabúa geti leitt
til samdráttar í framleiðslu og hækkunar
vöruverðs. Hins vegar hefur Guðmundur litl-
ar áhyggjur af verði á lambakjöti. Telur hann
að það muni haldast frekar stöðugt.
„Talsvert hefur dregið úr sölu á lambakjöti
og sem stendur þolir það ekki hærra verð,“
segir Guðmundur.
Verðhækkanir á fiski
Öfugt við flestar vörur hefur fiskverð á inn-
lendum markaði farið hækkandi. Guðmundur
Marteinsson segir hækkunina felast í því að
útgerðirnar fái svo gott verð fyrir útflutning.
Það bitni á innlendum kaupendum. Þeir verði
að greiða hátt verð fyrir fiskinn vilji þeir
standast samkeppni við erlenda kaupendur.
Sem dæmi nefnir hann verð á harðfiski.
„Við horfum upp á gríðarlegar verðhækk-
anir á harðfiski. Hækkanir eru boðaðar upp í
sjöunda þúsund krónur á kílóið,“ segir Guð-
mundur. Harðfisksframleiðsla krefjist mikils
hráefnis og útgerðirnar selji fiskinn frekar úr
landi.
Matarverð fer að líkindum lækkandi
Styrking krónunnar leiðir til lækkunar matvælaverðs Forsvarsmenn matvöruverslana búast við
frekari lækkunum, sérstaklega á innfluttum vörum Allt er þó háð stöðugu gengi krónunnar
Eysteinn
Helgason
Guðmundur
Marteinsson
„Spítali í borg er það sem ein-
kennir verkefnið,“ segir Helgi
Már Halldórsson, verkefnisstjóri
SPITAL-hópsins. „Við leggjum
áherslu á götur og torg og höf-
um sagt að við viljum færa göm-
ul og góð gildi inn í skipulag spít-
alans – tengja hann betur borg-
inni og setja annan mælikvarða í
stærð bygginga en hefur verið í
þeim tillögum sem hafa verið á
borð- um hingað til.“
SPITAL-teymið
samanstendur af
níu fyrirtækjum,
þar af tveimur
norskum. Hóp-
urinn var
að hluta
til mynd-
aður fyrir
fyrri sam-
keppnina,
árið
2005.
Vilja tengja
spítala og borg
VERKEFNISSTJÓRI SPITAL
Helgi Már við
afhjúpun tillög-
unnar í gær.