Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010 Dagana 16.-18. júlí nk. efna Kan- aríflakkarar til sumarhátíðar í Ár- nesi. Haldið verður harm- onikkuball á föstudagskvöld og farið verður í Þjórsárdal á laug- ardag. Hið vinsæla kvöldverðarhlað- borð Begga verður um kvöldið ásamt happdrætti með frábærum vinningum, meðal annars utan- landsferð fyrir tvo. Gestur frá Kanarí verður með gamanmál fyr- ir matargesti, síðan spila Labbi og co. fyrir dansi. Tjaldstæði og hús- bílastæði að venju. „Mætum öll í sumarskapi og allir eru velkomn- ir,“ segir í tilkynningu. Gaman Mikið stuð á Mannabar. Kanaríflakkarar Á mánudag eru sex mánuðir liðn- ir frá því að jarðskjálftinn mikli reið yfir Haítí. Rauði kross Ís- lands hefur unnið að hjálparstarfi á Haítí síðan þá í samstarfi við Rauðakrosshreyfinguna. Alls hafa 26 íslenskir hjálparstarfsmenn starfað á vegum Rauða kross Ís- lands á Haítí síðastliðið hálft ár, og er viðbúið að enn fleiri muni halda til starfa á næstu mán- uðum. Á morgun, sunnudag, kl. 12.30 efnir Rauði kross Íslands til um- ræðna um stöðu mála á Haítí. Sendifulltrúar munu segja frá að- stæðum og því sem hefur áunnist. Fulltrúar Landsbjargar og utan- ríkisráðuneytis verða á staðnum. Hálft ár frá stóra skjálftanum Borgarráð hefur samþykkt að veita hlutafélagi um rekstur svo- kallaðs „heimilis kvikmyndanna“ í Regnboganum 12 milljóna króna rekstrar- og framkvæmdastyrk. Stefnt er að því að hefja rekstur kvikmyndahúss í húsinu 1. sept- ember næstkomandi. Hagsmuna- félög kvikmyndagerðarfólks og kvikmyndaunnendur stóðu að stofnun hlutafélags um rekstur Regnbogans eftir að hefbundnum kvikmyndahúsarekstri var hætt í húsinu. Hugmyndin er að nýja kvikmyndahúsið sérhæfi sig m.a. í nýjum listrænum og eldri sígild- um kvikmyndum auk fræðslu og starfsemi sem stuðlar að betra kvikmyndalæsi barna og ung- linga. Kvikmyndahús fær 12 m. kr. styrk Útimarkaðurinn í Mosskógum í Mosfellsdal hefst í dag, laugardag, kl. 11.00. Markaðurinn er við gróðrarstöðina Mosskóga og er nú haldinn 11. sumarið í röð. Á markaðnum kennir ýmissa grasa. Meðal annars er fjöl- breytt, nýupp- tekið grænmeti sem og Þingvallasilungur nýr og reyktur, pestó, pikles, sultur af ýmsum gerðum, ullarsokkar, rósir og jarðarber frá Dalsgarði, Hrísbú- arrabarbari, ilmandi kaffi og með- læti og svo mætti lengi telja. Mark- aðurinn er opinn frá kl. 11.00 á laugardögum í sumar og eitthvað fram á haust. Útimarkaðurinn í Mosfellsdal ÚR BÆJARLÍFINU Ómar Garðarsson Vestmannaeyjum Það er orðið sem virðist eiga vel við um Vestmannaeyjar þessa dag- ana. Það virðist fátt geta farið úr- skeiðis eins og er. Karlalið ÍBV í knattspyrnu er í harðri toppbaráttu og vinnur hvern leikinn á fætur öðr- um. Kvennalið félagsins stefnir upp í úrvalsdeild. Makrílveiðar og -vinnsla eru kærkomin innspýting inn í bæj- arfélagið og hver bæjarhátíðin rekur aðra í sumar.    Goslokahátíðin var haldin með pomp og prakt og fór að öllu leyti vel fram. Dagskrá hátíðarinnar hefur sjaldan verið jafnglæsileg og allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi, konur og karlar, börn og fullorðnir. Breki, mynd eftir Harald Ara Karls- son, var einnig sýnd um helgina við húsfylli en í myndinni gerir hann upp föðurmissi. Þá vöktu Vísna- tónleikar Gunnars Þórðarsonar verðskuldaða athygli. En mesta gleðin á Goslokahátíðinni ár hvert er ávallt í Skvísusundinu á laugardags- kvöldinu, þegar Eyjamenn opna krár sínar, en þar er dansað fram undir morgun. Og nú, þegar einni hátíðinni er lokið, hefst undirbúningur af fullum krafti fyrir þá næstu og líklega stærstu hátíð ársins, Þjóðhátíð Vest- mannaeyja. Að vanda er dagskrá þjóðhátíðarinnar glæsileg, lands- frægir skemmtikraftar hafa boðað komu sína og straumurinn liggur sem fyrr til Eyja.    Surtseyjarstofa var opnuð um helgina í Vestmannaeyjum en tölu- verðan tíma hefur tekið að koma stofunni upp. Surtsey tilheyrir Vest- mannaeyjaklasanum en heimamenn hafa þó haft lítið um eyjuna að segja. Elliði Vignisson bæjarstjóri sagði við opnunina að nú væri Surtsey á leið heim, líkt og handritin forðum daga.    Landeyjahöfn verður opnuð síð- ar í mánuðinum og bíða heimamenn spenntir eftir 21. júlí þegar Herj- ólfur hefur siglingar í höfnina. Mikið hefur gengið á í undirbúningi fram- kvæmdanna, stór orð látin falla en nú þegar styttist í opnunina hefur efasemdaröddunum fækkað. Erfitt er að henda reiður á möguleikunum sem opnast með betri tengingu milli Vestmannaeyja og Suðurlandsins en beggja vegna sundsins bíða menn spenntir. Skemmtun Eyjamenn og gestir skemmtu sér vel í Skvísusundinu. Jákvætt og skemmtilegt sumar Morgunblaðið/Ómar Garðarsson Birkir Fanndal Haraldsson Reykjadalur | Hið þingeyska forn- leifafélag er metnaðarfullt félag sem stuðlar að rannsóknum og fræðslu um þingeyska sögu. Í sum- ar hefur félagið auglýst fræðslu og skoðunarferðir á 5 sögustaði í hér- aðinu og var fyrsta ferðin farin í fegursta veðri. Farið var að rúst- um kotbýlis austan í Fljótsheiði nærri þjóðvegi. Þar hét í Láfsgerði og var eflaust ekki merkilegra en hundruð fornra eyðibýla víðsvegar um landið – og þó. Sú sögn hefur varðveist að í byrjun 19. aldar var ungur dreng- ur sendur frá Einarsstöðum ein- hverra erinda upp í Láfsgerði. Þar varð hann vitni að því er rjúpa fló undan fálka inn í bæinn en hús- móðirin greip fugl fegin og sneri háls úr lið. Fulltíða maður varð þessi drengur, Sigurjón Jónsson hét hann, fylgdarmaður Jónasar Hallgrímssonar og sagði honum söguna. Þar er þá komið tilefni Jónasar fyrir Óhræsið. Ekki skulum við samt á 21. öld setja okkur í dómarasæti yfir fá- tæklingi í heiðarbýli í byrjun 19. aldar, eflaust með marga munna að metta. Nú láta menn sér sæma að krefjast veiðiréttar í þjóðgörðum landsins og er þó þjóðin stríðalin á alls kyns góðmeti og mætti þess vegna sjá rjúpuna í friði. Það voru um 30 áhugasamir gestir sem nýttu sér skoðunarferð fornleifafélagsins og gengu um rústirnar í Láfsgerði. Eflaust verður áfram mikill áhugi á ferðum Hins þingeyska fornleifafélags. „Óhræsið“ – er það héðan ættað?  Litast um í rústum Láfsgerðis Morgunblaðið/Birkir Fanndal Saman Hópur fólks á rústum Láfsgerðis. Yfir dalinn sér til Stóru-Lauga. „Kreditkort mættu óskap- legum mótbyr í fyrstu. Kortin áttu að auka verðbólgu, þrengja að kaup- mönnum og koma neyt- endum í skulda- fen enda hækk- uðu þau vöruverð. Einn þingmaður líkti kortum við eiturlyf þegar málið kom til umræðu á Alþingi og fjöl- miðlar fóru hamförum,“ segir Har- aldur Haraldsson athafnamaður. Í dag, 10. júlí, eru þrjátíu ár lið- in frá því Kreditkort hf. gáfu út til Haraldar fyrsta íslenska greiðslu- kortið. Haraldur var árið áður á ferðalagi vestur í Bandaríkjunum og kveðst hafa lent þar í ýmsum óþægindum sakir þess að hafa ekki verið með greiðslukort eins og alsiða var þá orðið vestanhafs. Hann ákvað því, í samstarfi við Gunnar Bæringsson, Gunnar Þór Ólafsson og fleiri að hefja starf- semi greiðslukortafyrirtækisins Kreditkorta sem fór af stað í jan- úar 1980. Eurocard-kortin voru gefin út hér í fimmtán ár en eftir að MasterCard eignaðist Eurocard þá fengu hinir sömu Mastercard í staðinn. Kort frá Visa komu á íslenska markaðinn 1983. Varnir brustu fljótt „Af mörgu sem ég hef tekið mér fyrir hendur hafa kreditkortin lík- lega breytt mestu fyrir almenning. Fyrst mátti aðeins nota kortin hér innanlands en notkun erlendis var skilyrt viðskiptaerindum. Þær varnir brustu fljótt. Kreditkortin hjálpuðu alþýðufólki á tímum þar sem aðeins útvaldir fengu lán. Þá átti þorri fólks þess nú kost að komast í sumarfrí með börnin og gat eignast hluti en greitt niður á lengri tíma. Þetta voru straum- hvörf,“ segir Haraldur. Hann telur ennfremur að notkun kreditkorta hafi stuðlað að auknum stöð- ugleika á vinnumarkaði. Innkaup hvers mánaðar hafi verið greidd eftir á og fyrir vikið hafi fólk síður verið tilbúið í verkfallsaðgerðir eða aðrar skærur sem lengi lituðu íslenskt þjóðfélag. sbs@mbl.is  Rétt þrjátíu ár liðin í dag frá því fyrstu greiðslukortin á Íslandi voru gefin út Haraldur Haraldsson Kreditkortin voru algjör bylting á Ís- landi en var líkt við eiturlyf á Alþingi Kort Fyrsta íslenska kredid- og greiðslukortið sem kom út 1980. Kreditkort og notkun þeirra hef- ur þróast eins og annað á þeim þrjátíu árum síðan þau komu fyrst fram á sjónarsviðið. Árið 1984 voru ferðatryggingar kort- hafa teknar upp og raðgreiðslur tveimur árum síðar. Rað- greiðslur komu 1986 og seinna kom greiðsludreifing til sög- unnar. Árið 1995 gátu korthafar tekið út peninga með kredit- kortum í hraðbönkum innan- lands, en nokkru áður höfðu de- betkort verið innleidd. Kunnugir telja að í dag séu um 80% inn- lendra viðskipta afgreidd með kortum og hefur hlutfallið farið síhækkandi. Allt út á krít ÞRÓUN KORTA Í ÞRJÁTÍU ÁR Austurstræti, Pósthússtræti og hluti Hafnar- strætis verða helguð hjólandi og gangandi vegfarendum út ágústmánuð. Með þessu vilja borgaryfirvöld styðja við vistvænan ferðamáta og glæða miðborgina enn frekara lífi. Undanfarin tvö sumur hefur Pósthússtræti verið lokað fyrir bílaumferð á góðviðrisdögum en það er liður í Grænu skrefunum í Reykjavík að bæta aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Þetta hefur mælst vel fyrir á með- al vegfarenda og veitingahúsaeig- enda við Austurvöll enda skapast um leið betri aðstaða fyrir borg- arbúa til að njóta sumarsins í mið- borginni. Meira mannlíf í miðborg Lokað fyrir umferð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.