Morgunblaðið - 10.07.2010, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Nú þegar af-koma ríkis-sjóðs fyrir
fyrstu fimm mánuði
ársins liggur fyrir
er ekki annað að sjá
en að upplýsingar sem fjár-
málaráðherra gaf Alþingi í um-
ræðum 10. maí sl. standist engan
veginn. Ráðherra var drjúgur yf-
ir árangrinum í umræðum um
skatta og fjárlagagerð og sagði
meðal annars: „Ég vona að hátt-
virtir þingmenn hafi glaðst yfir
því sem ég tel mig geta upplýst,
að í öllum aðalatriðum erum við á
áætlun hvað varðar markmið
okkar í ríkisfjármálum. … Það er
sömuleiðis ánægjulegt að við er-
um bjartsýnni á tekjuforsend-
urnar núna eftir tölur fyrstu
fjögurra mánaðanna en við
kannski vorum í byrjun. Það er
misskilningur ef menn halda það,
hvort sem það er háttvirtur for-
maður Framsóknarflokksins eða
aðrir, að þar sé einhver meiri
háttar brestur á ferðinni. Það er
sem betur fer ekki svo.“
Nú þegar tölurnar fyrir maí
liggja fyrir er staðan þannig að
tekjur ríkissjóðs urðu tæpum sex
milljörðum króna lægri en áætl-
anir gerðu ráð fyrir. Forsendur
fjárlaganna hafa þess vegna
brostið og þeir sem í umræðun-
um lýstu miklum áhyggjum af
ríkisfjármálunum, svo sem for-
maður Framsóknarflokksins,
höfðu mikið til síns máls. Ánægja
fjármálaráðherra yfir meintum
árangri í ríkisfjármálum hefur
ekki staðist skoðun og vandinn er
ekki síst á tekjuhliðinni, þar sem
áætlanir hafa reynst allt of háar.
Sú leið sem ríkisstjórnin valdi í
fyrra við að ná tökum á ríkis-
fjármálunum hefur með öðrum
orðum ekki skilað þeim árangri
sem að var stefnt. Ríkisstjórnin
taldi að hægt væri að hækka
skatta upp úr öllu
valdi til að hala inn
meiri tekjur og al-
ræmd er yfirlýsing
fjármálaráðherra –
you ain’t seen noth-
ing yet – um að enn frekari
skattahækkanir væru fram-
undan.
Vandinn er hins vegar sá að
hærri skatthlutföll og hærri
tekjur fara ekki alltaf saman.
Þvert á móti er hægt að ganga
svo nærri fólki með skattheimtu
að skatttekjur dragist saman
með hækkun skatthlutfalla.
Lægri skatthlutföll geta þess
vegna skilað meiri árangri til að
auka tekjur en hækkun skatta og
um það eru mörg dæmi bæði hér
á landi og erlendis. Lágir skattar
leysa krafta fólks og fyrirtækja
úr læðingi en háir skattar drepa
þá í dróma.
Í fyrrnefndum umræðum á Al-
þingi vitnaði Óli Björn Kárason
til fyrrverandi Bandaríkja-
forseta, sem orðaði þessa hugsun
þannig: „Efnahagskerfi sem er
þrúgað af háum sköttum mun
aldrei skila nægilegum tekjum til
að jafnvægi náist í ríkisfjár-
málum alveg eins og það mun
aldrei búa til nægilegan hagvöxt
eða nægilega mörg störf.“
Ríkisstjórn Íslands mætti
gjarna gera þessi orð Johns F.
Kennedys að sínum. Lægri
skattar eru það sem efnahagslífið
þarf á að halda en ekki skatta-
hækkanir með hótunum um frek-
ari hækkanir. Afmarkaður
skattaafsláttur, sem getur hjálp-
að tímabundið á afmörkuðum
sviðum, kemur heldur ekki í stað-
inn fyrir almenna skattalækkun
ef styrkja á efnahagslífið og
hleypa í það lífi. Til þess duga al-
mennar og myndarlegar aðgerð-
ir best, ekki síðbúnar smá-
skammtalækningar.
Skattahækkanir rík-
isstjórnarinnar hafa
ekki skilað árangri }
Brostnar forsendur
Héraðsdómurhefur kveðið
upp fangelsisdóm
vegna þjófnaðar úr
versluninni Bónus.
Brotamaðurinn
sem í hlut á er kona
sem hafði unnið þar
á kassa. Og hún er
dæmd fyrir að hafa dregið sér 47
þúsund fimm hundruð og þrjátíu
og tvær krónur (47.532). Ekki
var getið um neina aura í frá-
sögninni. Nafn hennar og heim-
ilisfang er birt í dómnum enda
sjálfsagt óhjákvæmilegt þegar
slíkur stórglæpur er afgreiddur.
Og konan er dæmd til skilorðs-
bundinnar fangelsisvistar. Hinn
skilorðsbundni fangelsistími er
fáeinum mánuðum styttri en
tími Jóns Ásgeirs Jóhannesson-
ar, eiganda Bónusverslunarinn-
ar, sem varð fyrir svo þungum
búsifjum að hann lét kæra kon-
una á kassanum til fangavistar
vegna áfallsins, 47.532 krónur.
Eigandinn hafði í
sínu brotamáli, að
eigin sögn, varið
2000 milljónum af
sínu fé til varna í
málinu með ágætum
árangri. Síðar kom í
ljós að milljarðarnir
tveir, sem eytt var í
dómsmálið, komu ekki úr vasa
Jóns heldur frá bönkunum
þrem, sem nú eru gjaldþrota.
Líklegt er að konan á kassanum
í Bónus hafi haft eitthvað minna
til sinna varna og því fór sem
fór. Vonandi fær Bónuseigand-
inn 47.532 krónurnar til baka, og
munu þær þá væntanlega duga
honum fyrir nokkrum Diet
Coke, og eins má leggja þær inn
á reikninginn í Kanada í sparn-
aðarviðleitni. Það er aldrei að
vita nema hússtjórnin í húsinu í
New York, þar sem þriggja
milljarða íbúðin er, vilji láta
skipta um peru. Þá gætu 47.532
krónur komið sér vel.
Það skapar
öryggi og vissu að
sjá að dómskerfið
lætur ekki lengur
snúa á sig}
Sko dómstólana
E
flaust er það að bera í bakka-
fullan lækinn að fjalla hér um
HM í fótbolta. Og þó; skítt með
það. Óhjákvæmilegt er að klára
dæmið fyrst byrjað var að
reikna á sínum tíma og sá lækur heldur senni-
lega ekki jafn bakkafullur og ýmsir aðrir, þrátt
fyrir allt. Að minnsta kosti fegurri á að líta og
hljómbetri en margar þær sprænur sem
heimsbyggðin fylgist með falla til sjávar dag
hvern.
Jafn slæmt er að monta sig og í síðustu viku,
en allt í lagi að nefna að spá okkar, mín og hlið-
arsjálfsins, frá því áður en 16-liða úrslitin hóf-
ust, rættist að hálfu leyti.
Er ekki 50% ágætis árangur?
Við spáðum því sem sagt eftir riðlakeppnina,
á þessum vettvangi, að Hollendingar kæmust í
úrslitaleikinn og andstæðingurinn yrði Argentína. Þá var
í kortunum að Maradona færi alla leið en skjótt skipast
veður í lofti; hans menn gleymdu að svitna gegn Þjóð-
verjum, sem burstuðu Suður-Ameríkumennina. Hið gríð-
arsterka, þýska lið var svo í hlutverki músarinnar gegn
Evrópumeisturum Spánar þó munurinn yrði ekki nema
eitt mark.
Kannski spáði ég ósjálfrátt eins og raun ber vitni; hef
jafnvel gert mér grein fyrir því að ég er ekki alvöru völva
og ólíklegt að ég hefði rétt fyrir mér að öllu leyti. Þess
vegna hafi Spánn dottið út í átta liða úrslitum skv. spánni,
eftir tap gegn Argentínu.
Það er nefnilega ekkert launungarmál að ég
held með Spáni. Algjör unun er að horfa á liðið
leika. Hvernig er annað hægt þegar um er að
ræða einhvers konar styrkta útgáfu af Barce-
lona? „Fallegasta“ liði heims síðustu misseri.
Það er satt að segja einstaklega ánægju-
legt, knattspyrnunnar vegna, að þessi tvö lið
skuli mætast í lokaleiknum. Hvorugt hefur
enn orðið heimsmeistari.
Spánn er besta lið heims en ekkert er sjálf-
gefið. Í báðum liðum er valinn maður í hverju
rúmi. Xavi, Iniesta og þeir eru ekki sjálfsagðir
sigurvegar. Snillingar eru líka í hollenska lið-
inu; Wesley Sneijder og Arjen Robben
fremstir meðal jafninga en Kuyt, van Persie
og van Bronkhurst engir aukvisar. Mark þess
síðastnefnda, í undanúrslitunum gegn Úrú-
gvæ, er eflaust það fallegasta í keppninni.
Þessi gamalkunni bakvörður, fyrirliði Hollands, leggur
skóna á hilluna eftir morgundaginn. Getur verið að mátt-
arvöldin ætli honum að hampa bikarnum?
Tvennt er spennandi við morgundaginn. Annars vegar
hvort liðið vinnur auðvitað – og megi það betra vinna úr-
slitaleikinn. Hins vegar hvort merkasti núlifandi maður á
jörðinni, Nelson Mandela, afhendir bikarinn. Mandela er
91 árs og heilsuveill. Hann treysti sér ekki á opnunar-
leikinn en nærvera forsetans fyrrverandi á morgun yrði
ánægjulegur lokapunktur sögulegrar keppni.
Það er aðeins eitt slæmt við það að úrslitaleikur HM sé
á næsta leiti; að keppninni sé að ljúka. skapti@mbl.is
Skapti
Hallgrímsson
Pistill
Bakkafullur lækur eða ekki
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
A
llt frá hruni bankakerf-
isins haustið 2008 hefur
óvenju mikið mætt á
lögreglumönnum
landsins. Ekki aðeins
hafa þeir þurft að sinna löggæslu í
kringum fjölda mótmæla sem reglu-
lega blossa upp, heldur hefur þjófn-
aðarbrotum og innbrotum fjölgað
verulega í kjölfar efnahagshrunsins.
Lögreglan hafði sett sér það
markmið að fækka hegningar-
lagabrotum á tímabilinu 2007-2009
um 2% miðað við árin 2006-2008 en
þess í stað fjölgaði brotunum um
3%. Sérstaklega fjölgaði auðgunar-
brotum mikið eða um rúmlega 11%,
úr 226 í 250.
Jákvæðu fréttirnar eru þær að
brotum gegn lífi og líkama fækkaði
á tímabilinu um 4%, voru 52 á tíma-
bilinu 2007-2009 samanborið við 54
brot árin 2006-2008.
Ekki færri ársverk í áratug
Á sama tíma og glæpum og lög-
gæsluverkefnum fjölgar hefur hins
vegar ársverkum lögreglu fækkað.
Samtals unnu lögreglumenn 696
ársverk á árinu 2009 sem er fækkun
á ársverkum frá árinu áður, en þá
voru þau 724.
Ársverkum fækkaði sum sé um
4% og hafa þau ekki verið svo fá í
yfir 10 ár, að því er fram kemur í
árssýrslu ríkislögreglustjóra.
Ársverkum hafði fjölgað jafnt
og þétt á árunum 2004-2006 en síð-
an hefur þeim farið fækkandi og
þau voru í fyrra 1,38% færri en árið
2004. Flest voru ársverkin 741 árið
2006 og hefur þeim því fækkað um
45 á síðustu þremur árum.
Rúmlega 700
lögreglumenn að störfum
Í febrúar árið 2009 voru 712
lögreglumenn, þ.e. lögreglumenn
sem lokið hafa prófi frá Lögreglu-
skólanum og afleysingamenn, starf-
andi á landinu. Þar við bætast 78
héraðslögreglumenn og 44 lögreglu-
nemar sem voru við nám í Lög-
regluskólanum í byrjun árs 2009.
Fjölgunin er umtalsverð milli
ára en árið 2008 voru 660 lög-
reglumenn við störf. Það sem skýrir
þessa miklu fjölgun í byrjun árs
2009 er að þá voru um 20 lög-
reglumenn á tímabundnum ráðning-
arsamningum auk þess sem afleys-
ingamönnum fjölgaði úr 14 í 26 frá
árinu 2008.
Þessi fjölgun hélst hins vegar
ekki út árið 2009 en ársverkum lög-
reglu fækkaði þegar leið á árið.
7,8 milljarðar til löggæslu
Á árinu 2009 námu heildar-
útgjöld til löggæslu ríflega 7,8 millj-
örðum króna, samanborið við rúm-
lega 7,2 milljarða árið 2007.
Þegar útgjöld lögregluembætt-
anna og Lögregluskólans eru skoð-
uð má greina mikla hækkun frá
árinu 2007 til ársins 2008 hjá Lög-
regluskólanum, eða um 48%. Að
hluta til skýrir fjölgun brautskráðra
lögreglunema aukninguna. Al-
mennt er kostnaður yfirstjórna
lögregluembætta þar sem sýslu-
maður er jafnframt lögreglustjóri
ekki talinn til útgjalda lögregl-
unnar þar sem þau eru á öðrum lið
í fjárlögum og erfitt er að meta
framlag hvers og eins sýslu-
manns til lögreglustarfsins.
Þetta er meginástæðan fyrir því
að greina má mikla út-
gjaldaaukningu hjá lögreglunni
á Suðurnesjum árið 2009 sam-
anborið við árið 2008. 1. janúar
2009 voru verkefni tengd tolla-
málum og öryggismálum á
Keflavíkurflugvelli færð frá
embættinu.
Færri ársverk
en fleiri glæpir
Tæp 80% lögreglumanna segja
að sér líki best við einkennishúf-
una og svörtu einkennisskyrt-
una, þegar þeir eru spurðir um
viðhorf sitt til einkennisfatnaðar
lögreglunnar. Könnunin var gerð
í apríl og maí í fyrra og alls svör-
uðu 375 lögreglumenn henni eða
tæp 54 prósent starfandi lög-
reglumanna. Á eftir húfu og
skyrtu er svokallaður búningur 1
vinsælastur, þá hvíta ein-
kennisskyrtan. Verst lík-
aði svarendum, þ.e. illa
eða frekar illa, við svo-
nefndan sumar-
jakka 2, vetrarjakka
3 og götuskó.
Með nýju út-
boði á einkennis-
fötum er stefnt að
því að ná fram
hagræðingu og
sparnaði hjá lög-
reglunni, segir í
skýrslu ríkislög-
reglustjóra.
Sáttir við
húfuna
BÚNINGAR LÖGREGLU
459
hegningarlagabrot voru
framin árlega að meðal-
tali árin 2007-2009.
3%
fjölgun var í þessum
brotaflokki miðað við
tímabilið 2006-2008.
‹ LÖG OG REGLA ›
»