Morgunblaðið - 10.07.2010, Síða 29

Morgunblaðið - 10.07.2010, Síða 29
systkinum Mannsa, þeim Margréti og Kára, sem nú er látinn, og föður þeirra Þórarni. Okkur Indriða kom vel saman og Kári sá til þess að við hefðum nóg að gera. Ég sé hann fyrir mér í bláum vinnuslopp í eldhúsi Bjargar segjandi með sposkum svip: „Indriða og eitt stykki stelpu, takk,“ það þýddi e.t.v. ferð í fjárhús, bílferð, sækja kálfa eða huga að geitum. Þeg- ar vordvölinni lauk var ég með loforð um að mega koma aftur um haustið í réttirnar. Þær urðu líka nokkrar vor- og haustferðirnar mínar til þeirra. Það var alla tíð gestkvæmt í Kvist- ási hjá Mannsa og Björgu. Seinustu ár var Mannsi orðinn lélegur til heilsu, skrokkurinn slitinn en topp- stykkið furðu gott, að eigin sögn. Nú hefur hann kvatt þessa jarðvist og við fjölskyldan þökkum honum sam- fylgdina. Vinnuhrjúf höndin hefur strokið létt um kinn í síðasta sinn. Guð gefi Björgu og Indriða styrk á erfiðri stund og blessi minningu Har- aldar Þórarinssonar, Mannsa frænda. Sigríður Ingvarsdóttir. Þeim fækkar gömlu „orginölun- um“, sem settu svip sinn á hverja sveit. Haraldur vinur minn í Kvistási var einn af þeim. Trúr og tryggur, alltaf til staðar ef þess þurfti með. Alltaf tilbúinn að leysa hvers manns vanda með gamanyrði á vör. Haraldur kom víða við á lífsleiðinni og hafði frá mörgu að segja, en lengst af rak hann verkstæði í göngufæri frá bænum í Kvistási. Hann gerði göngu- slóða frá heimili að vinnustað, sem hét „Austurvegur“ þegar völundurinn gekk til vinnu, en „Vesturvegur“ þeg- ar hann hélt aftur heim. Þarna var alltaf nóg að gera; það þurfti að lagfæra tól og tæki bænda, en yfir sumarið voru það hjólbarða- og púströraviðgerðir, sem tóku sinn tíma. Þetta var á þeim árum, sem Ís- lendingar fóru ekki af bæ nema með drekkhlaðna bíla; öll sæti setin og gjarnan farangur á toppgrind. Þannig hefluðu bílarnir malarvegina sem hlykkjuðust um sveitir landsins, vegagerðinni að kostnaðarlausu! Fyrr en varði var hljóðdunkurinn far- inn undan, bensíntankurinn eins og gatasigti og dekkin „punkteruð“, eins og gamalgrónir Akureyringar orða það. Þá var gott að hafa völunda á borð við Harald við veginn. Hann var tilbúinn til hjálpar að degi sem nóttu. Hafði gaman af, gaf sér tíma og sagði sögur. Ekki skemmdi fyrir ef eitthvað var til á kútnum. Ef viðgerð- in var tímafrek var ferðalöngum boð- ið í mat og gistingu. Þeir sem í Kvis- tás komu, niðurbrotnir með uppgefinn farskjóta, fóru háleitir á vit nýrra ævintýra á glæsivagni, sem virtist sem nýr. Þá var karlinn í Kvis- tási glaður. Hvort launað var fyrir greiðann skipti hann ekki meginmáli. Aðalatriðið var að gera fólk ánægt með lífið og tilveruna. En þetta er liðin tíð. Það er ekki lengur þörf fyrir snúningslipra völ- unda með fárra kílómetra millibili við þjóðveginn. Þeim fækkar líka sem muna þessa daga. Haraldur er farinn í ferðalag á traustum farskjóta. Hann er vel búinn með kjarnmikið nesti undir sætinu. Ég veit hann kemst á leiðarenda, því hann vildi ná öllum settum markmiðum, hvað sem það kostaði, hversu gáfuleg sem þau voru. Hann vílaði til dæmis ekki fyrir sér, að ganga heilu sveitirnar í mann- skaðaveðri til að komast á harmon- ikkutónleika og nikkan var hans hljóðfæri. – Ein mín ljúfasta minning er frá dansleik í Vopnafirði, þar sem dansað var við harmonikkuundirleik fram að sólarupprás og allra síðasta aukalagið var „Ó blessuð sértu sum- arsól“ í tangótakti, það var dásamleg nótt, sagði Haraldur í síðasta samtal- inu sem við áttum. Þá var hann hress og gamansamur, en vissi að kveðju- stund nálgaðist. Hann var tilbúinn og nú er Haraldur í Kvistási farinn úr hlaði. Kelduhverfið er hálfkollhúfu- legt á eftir. Góða ferð gamli vin. Gísli Sigurgeirsson. Hann Mansi í Kvistási er fallinn frá. Mansa kynntist ég sumarið 1966 þegar flokkur fólks, innlends og er- lends, gerði innrás í Kelduhverfi. Hér var á ferðinni hópur manna og kvenna í þeim tilgangi að kvikmynda stóran hluta kvikmyndarinnar um Hagbarð og Signýju, Rauðu skikkjunnar. Það var gott að eiga Mansa að þegar bílar og vélar gáfu sig hér og þar, ellegar þegar þurfti að skjótast eitt og annað með liðið. Alltaf var Mansi tilbúinn, sama hvenær sólarhrings var. Nokkrum árum síðar kem ég í Kelduhverfi og ræð mig þá sem kenn- ara við Barnaskólann í Skúlagarði og hvar nema á verkstæðinu hjá Mansa var ráðningin staðfest. Þau þrjú ár sem ég átti í Kelduhverfi var oftar en ekki komið við á verkstæðinu eða þá sest að kaffiborði heima í Kvistási þar sem Björg bar í okkur ýmislegt góð- gæti. Það var gaman og gott að koma í Kvistás og ræða hin ýmsu málefni. Ekki má gleyma að minnast á hve barngóður minn maður og þau hjón voru. Því kynntumst við vel með lítinn dreng á þessum árum. Ætíð var hugs- að um að barnið hefði nóg að bardúsa. Yfirleitt var létt yfir mínum manni og hann lét margt flakka. Sem frétta- ritari útvarpsins var okkar maður óborganlegur. Efnistök og frásögn Mansa voru svo sérstök að ekki mátti neinn gefa frá sér hljóð þegar þulur kynnti að fréttaritari RÚV í Keldu- hverfi læsi pistil sinn. Maður lagði við hlustir, hvort sem fréttin fjallaði um vegamál eða hvort músagangur yrði meiri eða minni næstkomandi vetur. Hann var snillingur til orðs og handa. Björgu, Indriða og ættingjum Mansa sendum við Kristín okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Flemming Jessen. Þá hringir Mansi í Kvistási – Har- aldur Þórarinsson – ekki framar að haustlagi til að láta í ljósi áhyggjur sínar af rjúpnastofninum, sem hann fylgdist ákaflega vel með. Mansi var mikið náttúrubarn, þótt hann hefði það að ævistarfi að gera við bíla og önnur tæki og tól fyrir nágranna sína og ekki síst á fyrri árum vegfarendur sem lentu í vandræðum á holóttum vegum í Norður-Þingeyjarsýslu. Sem dæmi um þetta áhugamál hans sagði hann mér fyrir ekki löngu að hann hefði eitt haustið talað við tólf alþingismenn, þar af tvo ráðherra, til að lýsa áhyggjum sínum af rjúpn- astofninum og hvað þyrfti að gera til að rétta hann við. Geri aðrir betur. Það var í upphafi Kröfluelda, sem hófust á jólaföstu árið 1975 og stóðu sem kunnugt er með hléum allt fram til ársins 1989, sem fundum okkar Mansa bar fyrst saman. Hann fylgd- ist grannt með framgangi mála á þeim vettvangi, og ekki síst eftir að mikið jarðrask varð í heimabyggð hans, Kelduhverfi, vegna Kröfluelda. Þar opnuðust nýjar sprungur og gamlar stækkuðu í þessum miklu jarðsögulegu umbrotum hér á landi á síðustu öld. Þá var gott fyrir okkur á Fréttastofu Útvarpsins að eiga Mansa að, því hann var vakinn og sof- inn yfir því sem var að gerast í kring- um hann. Sérstaklega var áhugavert að fá að fylgjast með því í gegnum hann hvernig Skjálftavatn varð til í þessum umbrotum. Það er ekki hægt að skilja svo við Mansa að minnast ekki á áhuga hans á harmonikkutónlist. Hann átti mikið safn slíkrar tónlistar, ýmist á plötum eða segulböndum, og ef frægir harm- onikkuleikarar voru hér á ferðinni lét hann sig ekki muna um að aka mörg hundruð kílómetra til að hlusta á þá á tónleikum. Þegar Kröflueldar stóðu sem hæst áttum við fréttamenn Útvarpsins marga góða stundina í Kvistási þar sem Björg var ætíð tilbúin með kaffi að íslenskum sveitasið. Fyrir það skal þakkað, jafnframt því sem Mansa eru þökkuð óeigingjörn störf í þágu Út- varpsins fyrr og síðar. Mannlífið verður fátækara að hon- um gengnum. Kári Jónasson. Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010 ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRÐAR SVEINBJÖRNSSONAR, Krummahólum 6, Reykjavík, áður Grundarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi fyrir alúð og hlýhug. Guð blessi ykkur öll. Kristín V. Þórðardóttir, Björn Karl Þórðarson, Jón Örn Þórðarson, Sigríður Svansdóttir, Erna Hlín Þórðardóttir, Rúnar Þrúðmarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir þann hlýhug og vináttu sem okkur hefur verið sýnd við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, sonar og tengdasonar, SÆMUNDAR HAFSTEINSSONAR, Brekkubyggð 50, Garðabæ. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki heima- hlynningar og líknardeildar Landspítalans fyrir persónulega og hlýja umönnun. Guð blessi ykkur öll. Auður Bragadóttir, Tryggvi Már Sæmundsson, Arnbjörg Harðardóttir, Bragi Reynir Sæmundsson, Ragnheiður Helga Sæmundsdóttir, Hafsteinn D. Þorsteinsson, Hafsteinn Ólafsson, Katrín Eyjólfsdóttir. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐBJARGAR PÉTURSDÓTTUR, frá Eyri við Ingólfsfjörð, Strandasýslu. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Höfða, Akranesi. Gunnar Guðjónsson, Sigríður E. Gunnarsdóttir, Sveinn T. Þórólfsson, Ásdís Gunnarsdóttir, Guðrún A. Gunnarsdóttir, Ásgeir G. Jónsson, Helga Gunnarsdóttir, Sigtryggur Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát móður minnar, tengdamóður, systur og ömmu, LAUFEYJAR SIGURÐARDÓTTUR, áður til heimilis að, Espigerði 4. Lísa Thomsen, Böðvar Pálsson, Auðun Sæmundsson, Salvör Sigurðardóttir, Sigurður Böðvarsson, Laufey Böðvarsdóttir, Bryndís Ásta Böðvarsdóttir, Anna Ýr Böðvarsdóttir, Lára Böðvarsdóttir, Dögg Thomsen, Arndís Hulda Auðunsdóttir. ✝ Elskuleg eiginkona mín, frænka, amma og langamma, MJÖLL ÞÓRÐARDÓTTIR, Hverafold 84, Reykjavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 8. júlí. Ólafur Steinar Björnsson og fjölskylda. ✝ Faðir okkar, ÞORSTEINN JÓNSSON flugmaður, Skipasundi 40, lést á heimili sínu miðvikudaginn 30. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigurbjörn Þór Þorsteinsson, Jón Bergsveinn Þorsteinsson, Unnur Þorsteinsdóttir og aðrir ástvinir. ✝ Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, GUÐBRANDS SVEINSSONAR, Unhól, Þykkvabæ. Sigurfinna Pálmarsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.