Fréttablaðið - 19.12.2011, Qupperneq 8
19. desember 2011 MÁNUDAGUR8
Með því að kaupa FRIÐARLJÓSIÐ styrkir þú
hjálparstarf og um leið verndaðan vinnustað.
FRIÐARLJÓSIN verða seld við eftirtalda
kirkjugarða um jól og áramót.
Þau fást einnig víða í verslunum.
GUFUNESS- OG
FOSSVOGSKIRKJUGARÐUR
23. des. kl. 13–17
24. des. kl. 1O–17
31. des. kl. 13–17
KIRKJUGARÐURINN VIÐ SUÐURGÖTU
23. des. kl. 13–16
24. des. kl. 1O–16
KIRKJUGARÐUR AKUREYRAR
24. des. kl. 1O–17
31. des. kl. 13–17
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-
1
02
97
5
LÁTUM
FRIÐARLJÓSIÐ
LÝSA UPP AÐVENTUNA
FRÉTTASKÝRING
Hvað gerðist á síðustu þingfundum
fyrir frí?
Þingmenn brugðu ekki út af vana
sínum og dagskrá þingsins, síðustu
daga fyrir jólafrí, var í uppnámi.
Framan af virtist allt með ró og
spekt en tillaga Bjarna Benedikts-
sonar, formanns Sjálfstæðisflokks-
ins, um að draga til baka ákæru á
hendur Geir H. Haarde, virkaði
sem sprengja inn í þingstörfin.
Sátt náðist um málið og þingi lauk
á laugardag.
Reynt var að fá tillögu Bjarna
tekna til umræðu fyrir hlé, en
stjórnarliðar tóku það ekki í mál.
Ótækt væri að jafn stórt mál kæmi
fram svo skömmu fyrir áætluð
þinglok. Á endanum var samið um
að tillagan yrði tekin til umræðu
20. janúar.
Stjórnarliðar gáfu ekkert eftir
hvað varðaði umræðu og heim-
ildir Fréttablaðsins herma að
þeir hafi stungið upp á þingfund-
um fram að jólum og á milli jóla
og nýárs ef þörf kræfi, ætti að
afgreiða tillögu Bjarna strax. Þær
raddir munu hafa verið háværast-
ar innan Vinstri grænna. Til þess
kom ekki og mun þingmönnum
lítt hafa hugnast slík starfsáætlun
eftir maraþonfundi síðustu daga.
Raunar er umhugsunarefni að
slík tillaga geti nýst sem hótun.
Að það að þingmenn starfi eftir
svipuðu tímaplani og aðrir þegn-
ar þessa lands geti virkað sem
pressa í samningum. Þess í stað
fóru þingmenn í jólafrí 17. des-
ember og hefja þingstörf aftur 16.
janúar, eftir mánaðarhlé.
Nokkur umræða hefur farið
fram um starfshætti Alþingis. Sú
umræða virðist hins vegar ekki
skila sér inn í þingsali, þar sem
staða, lík þeirri sem nú kom upp,
er orðin hefð við áætluð hlé á þing-
störfum. Þingmenn funda fram á
nætur og mál koma inn á færi-
bandi, allt til að ná starfsáætlun
um boðað frí.
Helgi Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, sagði í samtali við
Fréttablaðið á föstudag að starfs-
fólk vissi ekkert um hvenær þing-
störfum lyki. Það yrði að vera
tilbúið til að vinna eins og þing-
mönnum semdist um. Það virðist
því ganga að innleiða á þingi það
sem fjölmargir þingmenn hafa
kallað eðileg vinnubrögð.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
forseti Alþingis, virðist sama sinn-
is, en við þinglok sagði hún nauð-
synlegt að þingmenn gætu reitt sig
á að starfsáætlun stæðist. Agnúar
væru á þingsköpum, þrátt fyrir
endurskoðun, og úr því yrði bætt
í nefnd. „Sú nefnd mun þó fyrst og
fremst vinna áfram að því að end-
urbæta þingsköp og vinnubrögð
hér á Alþingi eins og heitið var við
afgreiðslu málsins, síðastliðið vor.“
Fjöldi mála var afgreiddur á síð-
ustu dögum þingsins. Má þar nefna
mál sem tengjast tekjugrunni fjár-
laga og afgreiðslu ríkisborgara-
réttar.
kolbeinn@frettabladid.is
Þingi lokið þrátt
fyrir óvissu um hríð
Hefðbundin óvissa var um hvenær hlé yrði gert á þingstörfum. Um hríð leit út
fyrir að þingað yrði fram að jólum og jafnvel á milli jóla og nýárs. Sátt náðist
um meðferð tillögu um Geir H. Haarde. Frekari endurbætur á þingsköpum.
BJARNI BENEDIKTSSON Tillaga formanns Sjálfstæðisflokksins um að draga til baka
ákæru á hendur Geir H. Haarde verður tekin til umræðu 20. janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1. Hversu mikið hækkuðu bréf í
Högum á fyrsta degi viðskipta?
2. Hvað heitir íþróttafólk ársins
2011 hjá Íþróttasambandi fatlaðra?
3. Hvaða landsliðsmaður í hand-
bolta hannar nú stuttermaboli?
SVÖR:
PRAG, AP Vaclav Havel, fyrrver-
andi forseti Tékkóslóvakíu og
síðar Tékklands, lést í gær 75
ára að aldri eftir langvinn veik-
indi. Havel var einn af þekktustu
andófsmönnum Austur-Evrópu
á tímum kalda stríðsins og var
margoft handtekinn af komm-
únistastjórninni í Tékkóslóvakíu
fyrir skrif sín.
Hann kom boðskap sínum um
mannréttindi og gagnrýni á stjórn-
völd til skila með leikritum sínum
og ritgerðum sem gengu manna á
milli.
Havel fór fyrir „Flauelsbylting-
unni“ svokölluðu sem kom komm-
únistum frá völdum haustið 1989
og var kjörinn forseti í kjölfarið.
Eftir að leiðir skildi milli Tékk-
lands og Slóvakíu árið 1992 sagði
hann af sér, en var svo kjörinn
forseti Tékklands árið eftir. Hann
gegndi því embætti allt til ársins
2003.
Fjölmargir stjórnmálaleiðtogar
um allan heim hafa vottað Havel
virðingu sína, þar á meðal Lech
Walesa, fyrrverandi Póllandsfor-
seti, og Madeleine Albright, fyrr-
verandi utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna.
Talið er að Havel verði borinn til
grafar á föstudag. - þj
Fyrrverandi forsetinn og rithöfundurinn Vaclav Havel látinn, 75 ára að aldri:
Frelsishetja Tékklands er látin
FRELSISFRÖMUÐUR LÁTINN Vaclav
Havel var einn frægasti andófsmaður
kaldastríðstímans og leiddi síðar þjóð
sína sem forseti. FRÉTTABLAIÐ/AP
FLUGMÁL „Ég myndi ekki segja að hætta hafi
skapast, en af þessu er sannarlega lítilshátt-
ar aukin áhætta,“ segir Ingimar Sigurðarson,
flugrekstrarstjóri Flugfélagsins Arna. Aðflug
að austur-vesturbraut Reykjavíkurflugvallar
hefur á þessu ári verið brattara en vanalegt er
vegna hárra trjáa í Öskjuhlíð.
Umhverfissvið Reykjavíkur hafnaði nýverið
beiðni Isavia, sem rekur Reykjavíkurflugvöll,
um að einstök tré verði lækkuð þar sem þau
skaga upp í hindrunarflöt aðflugs að austur-
vesturflugbraut flugvallarins.
„Trén eru orðin of há til þess að hægt sé að
fljúga yfir brautina á eðlilegan hátt. Aðflugið er
brattara og því er í raun og veru búið að stytta
brautina til notkunar fyrir okkur. Þetta breytir
engu stórkostlegu, en hefur sannarlega einhver
áhrif.“
Ingimar segir ljóst að við óbreytt ástand
komi að þeim tímapunkti að ekki verði lengur
við unað, hvort sem það er eftir tvö, fimm eða
tíu ár. „Okkar vélar þurfa tiltölulega langa flug-
braut. Ef ekkert verður að gert kemur að því
að við þurfum að takmarka notkun á þessari
braut, þegar vissar veðuraðstæður skapast, og
takmarka þannig þjónustu við okkar viðskipta-
vini.“ - hhs
Flugrekstrarstjóri Flugfélagsins Arna segir tímaspursmál hvenær bregðast verði við vegna hárra trjáa í Öskjuhlíð:
Lítils háttar aukin áhætta en þó engin hætta
TRÉN ERU FYRIR Flugrekstrarstjóri flugfélagsins Arna
segir að vissulega fylgi því aukin áhætta að aðflugið að
austur-vesturflugbraut sé nú brattara en vant er, vegna
hárra trjáa í Öskjuhlíð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP
TAKTU VÍSI
Á HVERJUM
MORGNI!
1. Um 18,1 prósent. 2. Kolbrún Ösp
Stefánsdóttir og Jón Margeir Sverrisson.
3. Róbert Gunnarsson.
VEISTU SVARIÐ?